Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Síða 25
28.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
B
irkir Vagn Ómarsson, íþróttafræðingur og
þjálfari hjá World Class, er mikill íþróttagarpur
og fer allt að átta sinnum í ræktina á viku.
Hann á tvö börn, Kára og Eddu Lilju,
og segir að það þurfi ekki alltaf mikinn tíma til
að ná góðri æfingu. Stundum sé allt í lagi að fara
bara í göngutúr með börnin ef tíminn er knapp-
ur.
Gælunafn: Mamma kallaði mig oft ljósið og það
yfirfærðist, mér til mikillar ánægju, yfir til vina
minna.
Atvinna: Íþróttafræðingur og vinn við að
þjálfa í World Class.
Hversu oft æfir þú á viku? Þegar ég
er í stuði fer ég átta sinnum í viku
og hvíli mig á sunnudögum. En yf-
irleitt fer ég einu sinni á dag, sex
daga vikunnar.
Hver er lykillinn að góðum
árangri? Það er mikilvægt að setja
sér gáfuleg markmið og vera þol-
inmóður í því sem maður er að gera.
Hvernig er best að koma sér af
stað? Það er mikilvægt að koma sér á
staðinn. Margir vilja mikla fyrir sér
hlutina en það er um að gera að byrja
rólega.
Hvað ráðleggur þú fólki sem vill
hreyfa sig meira? Maður þarf að
vera skynsamur og fara ekki fram
úr sér. Ég vil hafa sem mesta fjöl-
breytni í minni líkamsrækt. Það er
hægt að æfa of mikið og það er
ekki gott því líkaminn þarf sína
hvíld, mjög mikilvægt.
Hvernig heldurðu þér í formi
þegar þú ferð í frí? Ég hef alla tíð
verið mikið í íþróttum og það
kemur sér oft vel. Ég nýti mér
ýmsa staði þegar ég er í fríi.
Leikvelli, náttúruna og bara það
sem mér dettur í hug. Maður
þarf ekki langan tíma til að
gera fína æfingu. Svo er bara að
fara út að ganga með börnin eða
léttan hlaupatúr.
Ertu almennt meðvitaður um
mataræðið? Já ég er meðvit-
aður um mataræðið en ég á það
til eins og svo margir að detta í
smásukk annað slagið. Það er
mikilvægt að vita hvað mað-
ur er að láta í systemið á sér.
Hvað borðarðu til að halda þér í formi? Ég drekk
bara vatn og reyni að borða eins hreina fæðu og
ég get. Ég fer ekki oft út í einhverjar öfgar.
Hvaða óhollusta freistar þín? Ég hef alltaf
verið veikur fyrir einni ískaldri kók í dós. Ég
er lítill nammikall en pítsa og kók er nokk-
uð sem ég gæti fengið mér daglega.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill bæta
mataræðið? Það er langbest að borða eins
hreint og maður getur. Það er enginn
matur eða drykkur hlutlaus. Fínt að
hugsa það þannig að það er til
tvenns konar fæða; fæða sem
gerir þig heilbrigðari og fæða
sem gerir þig minna heil-
brigðan.
Hvaða gildi hefur hreyfing
fyrir þig? Mikið gildi. Það er
mikilvægt að hreyfa sig og
finna sér hreyfingu sem manni
finnst skemmtileg. Hvort sem
það er lyftingar, göngutúrar,
sund, hjólreiðar eða eitthvað
annað. Við eigum öll að geta
fundið smátíma af deginum til að
koma okkur í góða hreyfingu, al-
veg sama hversu mikið er að gera
í vinnunni.
Hvað eru algeng mistök hjá
fólki við æfingar? Margir sem
byrja að hreyfa sig ætla að
gleypa heiminn á einum degi.
Það borgar sig að byrja rólega
og láta hlutina bara gerast ró-
lega. Vinnandi í líkamsrækt-
arstöð allan daginn sé ég líka
alltof marga beita líkamanum
rangt við æfingar og það
getur verið slæmt. Mik-
ilvægt er að kunna æfing-
arnar sem maður er að
gera.
Hverjar eru fyrirmyndir
þínar? Róbert Traustason
er toppþjálfari sem hefur
kennt mér mikið. Svo er
Ebbi frændi (Evert Víg-
lundsson) þjálfari sem
er til fyrirmyndar, á
fimmtugsaldri í topp-
standi.
KEMPA VIKUNNAR BIRKIR VAGN ÓMARSSON
Það þarf ekki langan tíma
til að fara á fína æfingu
Sjósund og sjóböð njóta vaxandi vinsælda hér á landi. Margir sækja í
sjóinn allt árið um kring og telja það allra meina bót. Yfir veturinn er
opið í heita pottinn og búningsklefa í Nauthólsvík mánudaga til laug-
ardaga kl. 11-13 og auk þess mánudaga og miðvikudaga kl. 17-19.
Sjóbað yfir veturinn* Þetta er ekkert mál fyrirJón Pál.Jón Páll Sigmarsson (1960-1993)
Margir hreyfa sig meira yfir sum-
artímann en almennt á veturna. Á
þessu er þó allur gangur og hreyfing
yfir sumartímann er oft óregluleg,
t.d. fjallgöngur, fótbolti með fé-
lögum, hjóltúrar og göngur í nátt-
úrunni, en hreyfing yfir vetrarmán-
uðina hins vegar reglulegri enda
hreyfingin stunduð inni í sölum lík-
amsræktarstöðva eða á öðrum
reglulegum æfingum.
Haustið er því tíminn þegar marg-
ir kaupa sér kort í líkamsræktina
eða aðgang að einstaka nám-
skeiðum. Slíkt er alls ekki ókeypis
enda boðið upp á toppaðstöðu og
jafnvel leiðbeiningar þjálfara. Þeir
sem vilja spara sér eyrinn ættu þó
að huga að því að reglulegar göngur
að vetri til geta verið alveg jafn
skemmtilegar og göngur á sumrin.
Skokkhópar eru í flestum hverfum
og sundlaugar landsins bjóða upp á
fyrsta flokks laugar fyrir lítið. Þá eru
danshópar sem hittast og hægt er
að sækja dansnámskeið í Háskóla Ís-
lands fyrir lítið. Það eina sem þarf er
að líta í kringum sig, rífa sig frá sjón-
varpinu og fara út að hreyfa sig
hvort sem snjóar eða blæs.
Ódýrari hreyfing í vetur
Íslenskar sundlaugar auka lífsgæði
okkar umtalsvert allan ársins hring.
Morgunblaðið/Golli
Tölvurisinn Apple er heldur betur
að stimpla sig inn í heilsugeirann.
Það hefur reyndar einkennt fyrir-
tækið að þegar tekin er ákvörðun
um að fara inn á ákveðið svið er
það gert með nýrri nálgun sem
gjörbyltir gömlum hefðum, líkt og
iPod og iTunes gerðu fyrir tónlist-
armarkaðinn og iPhone fyrir far-
símamarkaðinn.
Nú hefur Apple kynnt Healt-
hKit sem gerir notendum iPhone
og síðar iWatch færi á að fylgjast
betur með heilsunni yfir daginn.
Þegar eru nokkrir spítalar farnir
að prófa HealthKit en Stanford
University Hospital notar nýju
vöru Apple til að fylgjast með
blóðsykri sjúklinga og Duke Uni-
versity er að hanna, í samstarfi
við Apple, leið til að nota heilsu-
forrit Apple til að fylgjast náið
með blóðþrýstingi, þyngd og öðr-
um þáttum sjúklinga með hjarta-
og æðasjúkdóma og krabbameins-
sjúklinga.
Tölvusnillingarnir hjá Apple hefur yfirleitt tekist vel til þegar kynntar eru nýjar
vörur og öllu jafna umbylta þeir þeim markaði sem sótt er inn á.
AFP
Byltir Apple heilsugeiranum?
Hollar vörur úr náttúrunni
í hæsta gæðaflokki
Hamp fræ Kinoa fræ Chia fræ Möndlumjöl
H-Berg efh | S. 565-6500 | hberg@hberg.is | hberg.is
FRÁBÆR
T
VERÐ