Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Side 33
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Frá vinstri: Sigríður Kjartans-
dóttir, Kristín Björgvinsdóttir,
Dóra Welding, Áslaug Snorra-
dóttir, Kristín Kristjánsdóttir
og Aldís Pála Arthursdóttir.
28.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
150 g smjör
100 g suðusúkkulaði
120 hreint Cadbury-súkkulaði
smá sletta af rjóma
1 bolli sykur
2-3 tsk. vanilludropar
¼ tsk. salt
1 msk. kakó
2 egg
2 msk. volgt vatn
2/3 bolli hveiti
Bræðið smjörið í potti og bræðið
í öðrum potti súkkulaðið og
rjómann saman. Mikilvægt er að
fylgjast vel með bráðinni svo súkku-
laðið festist ekki við botninn. Bland-
ið öllu saman í skál, hrærið vel og
vandlega saman. Setjið í hringlaga 24
cm form og hitið í miðjum ofni við
250°C í um 40-50 mínútur eða
þannig að kakan sé enn örlítið blaut
í miðjunni. Gott er að stinga prjóni
varlega í kökuna síðustu 10 mín-
úturnar til að fylgjast með. Berið
fram með mynturjómanum.
Kingston Brownies
MYNTURJÓMI
250 ml rjómi
1 msk. vanillusykur
4 dropar piparmyntudropar
smá grænn matarlitur
nokkur Remi-myntukex
½ askja jarðarber
Þeytið rjóma saman við van-
illusykur. Þegar rjóminn er full-
þeyttur skal blanda vanillu-
dropunum hægt og rólega saman
við sem og smávegis af grænum
matarlit til að fá fallegan myntulit á
rjómann, best er að nota skeið.
Smyrjið kreminu á kökuna og
skreytið eftir smekk með Remi-
myntukexi og jarðarberjum.
Fyrir 6
2 pokar rækjur, Dóra mælir
með rækjum frá Dögun
1 rauð paprika, smátt skorin
½ agúrka, smátt skorin
½ hunangsmelóna, skorin í
litla bita
½ askja jarðarber, smátt skor-
in
kál að eigin smekk
1 búnt fersk steinselja
Afþíðið rækjurnar. Rífið kálið og
setjið í botninn á fallegu glasi eða
skál. Stráið grænmetinu og ávöxt-
unum yfir. Bætið 2-3 msk. af rækjum
í hvert glas, hellið smávegis af sí-
trónusósu yfir hvert glas. Skreytið
með steinselju.
SÍTRÓNUSÓSA
3 msk. pítusósa
2 msk. sætt sinnep
ferskur sítrónusafi eftir smekk
svartur pipar, sítrónupipar og
hvítlauksduft eftir smekk
Hrærið saman pítusósuna, sinn-
epið og kreistið sítrónuna til að
þynna og bragðbæta sósuna.
Smakkið þá loks til með svörtum
pipar, sítrónupipar og hvítlauksdufti.
Rækjukokteill
1 dós sólþurrkaðir tómatar
1 krukka fetaostur
heil planta af ferskri basilíku (gott að kaupa eina í potti)
1 rauðlaukur
1 askja Chili-smurostur frá Philadelphia
1 kjúklingabringa á hvern gest
salt og pipar
kjúklingakrydd að eigin vali
safi úr ferskri sítrónu
brauðrasp að eigin vali, mjög smátt saxað
Maukið sólþurrkuðu tómatana, fetaostinn, basilíkuna og rauðlaukinn
vel saman í matvinnsluvél og kryddið með salti og pipar eftir smekk.
Skerið vasa í bringurnar, stingið hnífnum djúpt í bringuna en passið að
þær fari ekki í sundur, þær eiga að hanga saman. Setjið basilíkufyllinguna
í vasana og lokið fyrir með tannstönglum. Smyrjið bringurnar með sí-
trónusafa og stráið brauðraspi yfir þær, betra er að setja meira en
minna. Stráið yfir þær kjúklingakryddi, salti og pipar. Setjið bringurnar í
eldfast mót og hitið við 250°C í miðjum ofni í um það bil 30 mínútur
en bringurnar eiga að vera dúnmjúkar og safaríkar og mikilvægt er að
fylgjast vel með þeim.
Fylltar basilíkubringur