Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Blaðsíða 40
Tíska
Blóðug háskólapeysa til sölu
*Verslunarkeðjan Urban Outfitters hóf í haust sölu ásvokallaðri háskólapeysu sem vakti gífurlega hneyksl-an. Peysan, sem var bleik að lit, fór mjög fyrir brjóstiðá fólki enda var hún alsett blóðdropum. Áletrunin vareinnig afar óhugnanleg þar sem peysan var merkt há-skólanum Kent State en árið 1970 varð skotárás íKent State-skólanum þar sem árásarmaðurinn myrti
fjóra nemendur og særði níu. Urban Outfitters hefur
beðist afsökunar á þessum ósmekklega gjörningi.
E
in klassísk – hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns? Bleik Aftur-slá,
Christian Dior-jakki og svartir lakkskór frá Topshop. Ég hef bundist þessum
flíkum tilfinningalegum böndum og skammast mín ekki fyrir að ofnota þær,
sumt er einfaldlega alltaf viðeigandi.
En þau verstu? Kjóll úr Weekday sem var með svo stórum blöðruermum að ég virkaði
áttföld. Eftir að þjóðþekktur söngvari og hjartaknúsari hélt ég væri nýbúin að fæða
barn (hef aldrei lagt í þann gjörning) skutlaði ég umræddum kjól í mikilli geðshræringu
inn í skáp þar sem hann fær að dúsa – þangað til ég fer sjálf í barnaframleiðslu.
Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú tókst þátt í? Kvöld eitt fyrir nokkrum
árum stóð ég fyrir framan spegil, í heiðbláum samfestingi og gulllituðum pinnahælum
og setti heila túpu af bláu glimmerföndurlími á augnlokin. Við hlið mér stóð Rakel vin-
kona mín sem reyndi eftir bestu getu að næla á sig risastóran silfurlitaðan tjullkjól með
biluðum rennilás en allt gekk þetta hálfbrösulega því við vorum báðar með þykkar
blúndufermingargrifflur á höndunum. Þetta var sumsé fyrir ’85-ballið í Mennta-
skólanum við Sund en við vinkonur sammæltumst um að þetta gæti allt eins verið
djammgalli fyrir venjulegt ball – við værum hvort eð er alltaf svona klæddar. Svarar
þetta spurningunni?
Hvað heillar þig við tísku? Það sem heillar mig við tísku er að hún er í fyrsta lagi fjöl-
menningarleg (fullorðinsorð). Ég hef til dæmis ferðast um Vestur-Afríku og mætt ein-
staklingum sem ég gæti ekki átt minna sameiginlegt með; við töluðum ekki sama
tungumálið, komum úr sitthvorum heiminum, trúnni, samfélagslegum gildum – nefndu
það. Samt gátum við horft hvert á annað og hugsað: „… flott týpa!“ Þeir
sem heillast af tísku deila nefnilega ákveðinni sameiginlegri hug-
myndafræði sem mér finnst virkilega fallegt (hér má byrja að syngja
lagið We are the World).
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó þegar kemur að
fatakaupum? Ekki klæðast neinu sem Whoopi Goldberg eða Miley
Cyrus myndu ganga í. Allt þar á milli er í fínu lagi.
Ætlarðu að fá þér eitthvað sérstakt fyrir veturinn? Í vetur ætla
ég að ganga í svartri vintage Yves Saint
Laurent-ullarkápu sem ég fann um dag-
inn. Ég er nefnilega eins konar „vint-
age-lukkutröll“ – sýndu mér ruslahaug og
ég finn mér vintage-merkjavöru. Ekki
málið!
Hvað er það síðasta sem þú festir kaup
á fatakyns? Fyrir utan stóra-YSL-
kápumálið þá var seinasta flíkin sem ég
eignaðist hælaskór úr COS en það er uppá-
haldsverslunin mín. Maðurinn minn kaupir
alltaf á mig skó – án hans væri ég berfætt.
Áttu þér uppáhaldsfatahönnuð? Uppá-
haldshönnuðurinn minn er Rakel Jónsdóttir
en hún er sömuleiðis uppáhaldsvinkona mín, svo það
tvennt helst í hendur. Þar að auki held ég mikið upp
á Hildi Björk Yeoman, Jör, Guðrúnu Helgu Krist-
jánsdóttur og Berglindi Óskarsdóttur. Mér finnst
skemmtilegra að fylgjast með íslenskum fatahönn-
uðum því við lifum öll og hrærumst í sama um-
hverfinu hér á Íslandi. Þess vegna finnst mér
áhugaverðara að skoða vinnuna þeirra en hjá
stórum nöfnum úti í heimi sem eru oftar en ekki
með heila hersingu af starfsfólki á bak við sig.
Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Tísku-
lega dömuleg skinka með slatta af merkjasnobbi.
Hvaða tískublöð eða tískublogg lestu? Ég vinn
sem blaðamaður á Nýju lífi svo það er partur af
starfinu að skoða reglulega bæði tískublöð og
-blogg. Nýtt líf er mitt uppáhaldstímarit, það rætt-
ist stór draumur þegar ég fékk starfið enda hef ég
skoðað tískublöð alla mína tíð af mikilli áfergju.
Dönsku blöðin Cover og Eurowoman skoða ég líka
reglulega sem og ítalska Vogue. Blogghringurinn er stór
(alltof stór) en á þeim rúnti verða á vegi mínum meðal
annars Elísabet Gunnars á Trendnet, The Cut og
fyrirmyndin mín í lífinu; The Man Repeller.
DÖMULEG SKINKA MEÐ SLATTA AF MERKJASNOBBI
Anna Margrét hefur
mikinn áhuga á tísku og
skoðar reglulega bæði
tískublöð og -blogg.
Morgunblaðið/Kristinn
Væri berfætt án
kærastans
ANNA MARGRÉT GUNNARSDÓTTIR STARFAR SEM BLAÐAMAÐUR Á
NÝJU LÍFI AUK ÞESS SEM HÚN KENNIR BEYONCÉ-DANS Í KRAMHÚSINU.
ANNA MARGRÉT SEGIST VERA EINS KONAR „VINTAGE-LUKKUTRÖLL“
OG GETA FUNDIÐ NOTAÐAR MERKJAVÖRUR Í RUSLAHAUG.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Anna fann fallega
„vintage“ Yves Saint
Laurent-kápu um
daginn sem verður ef-
laust vel nýtt í vetur.
Anna skoðar reglulega
danska tímaritið Cover.
Verslunin
Cos er í
miklu eft-
irlæti.
Rakel Jónsdóttir er
uppáhaldsfata-
hönnuður Önnu,
sem fylgist vel með
tískunni á Íslandi.