Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Page 41
28.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
SPORTÍS
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS
RÆKTARDAGAR 27.SEPT.-4.OKT!
20% AF HLAUPASKÓM
30% AF CASALL OG ASICS FATNAÐI
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
Mc Planet & 3322
frönsk hönnun haust 2014
E
itt af því sem mikilvægt er að eiga þegar hausta tekur eru
notaleg heimaföt. Þá erum við ekki að tala um eitthvað sér-
hannað og dýrt heldur fatnað sem hægt er að letihaugast í
fyrir allan peninginn. Haustið er tími athafna og fram-
kvæmda og þegar við fáum frið fyrir vinnunni og tómstundunum
skiptir máli að vera þannig klæddur að ekkert þrengi að þannig að
líkaminn fái raunverulega
hvíld.
Á mínu heimili gerist það
einhvern veginn bara blásp-
ari að ég liggi meðvitund-
arlaus í sófanum og horfi á
sjónvarpið. Þess vegna legg
ég mikið upp úr því að vera
rétt búin þegar þessi helgi-
athöfn fer fram. Helsta
vandamálið er þó að ég legg
svo mikið í þægindin á þess-
um augnablikum að yfirleitt
hefur Óli lokbrá náð algerum
tökum á mér áður en ég næ
að kveikja á sjónvarpinu, en
það er önnur saga.
Ég geri heldur enga kröfu
um að heimafötin séu smart
og svo hef ég aldrei skilið þá
hugsun að svona föt þurfi að
vera sérstaklega sexí. Í mín-
um huga hafa föt almennt
eitthvert allt annað hlutverk
en að keyra upp kynþokka.
Þetta eru mögulega hinar
verstu fréttir fyrir kaup-
menn en ég hef bara aldrei
heyrt neina lifandi mann-
eskja láta það út úr sér að
hún hafi hrifist að annarri
manneskju því hún var svo
smart í tauinu. Fín föt geta
ýtt undir vellíðan og sjálfs-
traust en það er hæpið að þau geti búið til kynþokka sem ekki er til
staðar nú þegar. Rannsóknir benda einnig til þess að hrifning okkar
á öðrum hafi aðallega með lyktarskynið að gera – alls ekki fatastíl.
Í dagsins önn finnst mér háhælaðir skór, kjólar og aðhalds-
sokkabuxur veita skjól og öryggi. Að vera í fötum sem okk-
ur líður vel í dags daglega gerir það að verkum að við
komum meiru í verk og okkur líður almennt betur í
athöfnum dagsins. Eins vel og mér líður í slíkum föt-
um er það samt alltaf mitt fyrsta verk að
hendast úr þeim þegar ég kem heim. Það
er bara alls ekki hægt að hugsa almenni-
lega um börn í háhæluðum skóm og
kjól.
Þess vegna get ég seint þakkað
þeim meistara sem fann upp slopp-
inn. Og þá er ég ekki að tala um
efnislitla gegnsæja Barbie-
dúkkusloppa eins og sjást á hvíta
tjaldinu (eða í erótískum myndum)
heldur heiðarlega frottesloppa, as-
íska silkisloppa og venjulega bómull-
arsloppa sem koma þreyttum hús-
mæðrum til bjargar á haustkvöldum.
Ég veit bara ekki um neitt sem ekki er
hægt að gera í slopp og þess vegna
flokka ég sloppinn sem hina fullkomnu
heimaflík.
Það eru reyndar ekki alveg allir í
kringum mig sammála mér um ágæti
sloppsins og ekki allir með þessa flík í
jafn miklu hásæti og ég sjálf. Þess
vegna vinn ég hörðum höndum að því að
reyna að sloppavæða helstu leikarana í lífi
mínu og er komin með karlmannsslopp í stærð
M inn á bað. Hvort í sloppinn verður farið eða
ekki liggur ekki ljóst fyrir á þessari stundu en
einhvern veginn set ég slopp og íþróttagalla í
sama flokk þannig að þetta ætti að verða
auðsótt … eða hvað?
martamaria@mbl.is
Konan í
sloppnum …
Frotte-sloppur
úr Rúmfata-
lagernum.
Sloppur úr
versluninni
Selenu.