Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Blaðsíða 41
28.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 SPORTÍS MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS RÆKTARDAGAR 27.SEPT.-4.OKT! 20% AF HLAUPASKÓM 30% AF CASALL OG ASICS FATNAÐI Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911 www.facebook.com/spennandi Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16 Mc Planet & 3322 frönsk hönnun haust 2014 E itt af því sem mikilvægt er að eiga þegar hausta tekur eru notaleg heimaföt. Þá erum við ekki að tala um eitthvað sér- hannað og dýrt heldur fatnað sem hægt er að letihaugast í fyrir allan peninginn. Haustið er tími athafna og fram- kvæmda og þegar við fáum frið fyrir vinnunni og tómstundunum skiptir máli að vera þannig klæddur að ekkert þrengi að þannig að líkaminn fái raunverulega hvíld. Á mínu heimili gerist það einhvern veginn bara blásp- ari að ég liggi meðvitund- arlaus í sófanum og horfi á sjónvarpið. Þess vegna legg ég mikið upp úr því að vera rétt búin þegar þessi helgi- athöfn fer fram. Helsta vandamálið er þó að ég legg svo mikið í þægindin á þess- um augnablikum að yfirleitt hefur Óli lokbrá náð algerum tökum á mér áður en ég næ að kveikja á sjónvarpinu, en það er önnur saga. Ég geri heldur enga kröfu um að heimafötin séu smart og svo hef ég aldrei skilið þá hugsun að svona föt þurfi að vera sérstaklega sexí. Í mín- um huga hafa föt almennt eitthvert allt annað hlutverk en að keyra upp kynþokka. Þetta eru mögulega hinar verstu fréttir fyrir kaup- menn en ég hef bara aldrei heyrt neina lifandi mann- eskja láta það út úr sér að hún hafi hrifist að annarri manneskju því hún var svo smart í tauinu. Fín föt geta ýtt undir vellíðan og sjálfs- traust en það er hæpið að þau geti búið til kynþokka sem ekki er til staðar nú þegar. Rannsóknir benda einnig til þess að hrifning okkar á öðrum hafi aðallega með lyktarskynið að gera – alls ekki fatastíl. Í dagsins önn finnst mér háhælaðir skór, kjólar og aðhalds- sokkabuxur veita skjól og öryggi. Að vera í fötum sem okk- ur líður vel í dags daglega gerir það að verkum að við komum meiru í verk og okkur líður almennt betur í athöfnum dagsins. Eins vel og mér líður í slíkum föt- um er það samt alltaf mitt fyrsta verk að hendast úr þeim þegar ég kem heim. Það er bara alls ekki hægt að hugsa almenni- lega um börn í háhæluðum skóm og kjól. Þess vegna get ég seint þakkað þeim meistara sem fann upp slopp- inn. Og þá er ég ekki að tala um efnislitla gegnsæja Barbie- dúkkusloppa eins og sjást á hvíta tjaldinu (eða í erótískum myndum) heldur heiðarlega frottesloppa, as- íska silkisloppa og venjulega bómull- arsloppa sem koma þreyttum hús- mæðrum til bjargar á haustkvöldum. Ég veit bara ekki um neitt sem ekki er hægt að gera í slopp og þess vegna flokka ég sloppinn sem hina fullkomnu heimaflík. Það eru reyndar ekki alveg allir í kringum mig sammála mér um ágæti sloppsins og ekki allir með þessa flík í jafn miklu hásæti og ég sjálf. Þess vegna vinn ég hörðum höndum að því að reyna að sloppavæða helstu leikarana í lífi mínu og er komin með karlmannsslopp í stærð M inn á bað. Hvort í sloppinn verður farið eða ekki liggur ekki ljóst fyrir á þessari stundu en einhvern veginn set ég slopp og íþróttagalla í sama flokk þannig að þetta ætti að verða auðsótt … eða hvað? martamaria@mbl.is Konan í sloppnum … Frotte-sloppur úr Rúmfata- lagernum. Sloppur úr versluninni Selenu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.