Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Qupperneq 42
Magnea Einars-
dóttir og Sigrún
Halla Unnarsdóttir
hanna áhugaverðar
prjónaflíkur með
öðruvísi áherslum.
Morgunblaðið/Kristinn
Magnea Einarsdóttir stofnaði fyrirtæki sember heitið magnea fyrir rúmu ári, stuttueftir útskrift úr hinum virta listaháskólaCentral Saint Martin. Síðan þá hefur magn-
ea sýnt tvær línur sem eiga það sameiginlegt að ein-
kennast af áhugaverðri textílnotkun með ríka áherslu á
prjón. Nú er væntanleg í verslun ný lína frá fyrirtækinu
sem sýnd var á hátíðinni Reykjavík Fashion Festival síð-
astliðið vor en þá bættist einnig nýr hönnuður inn í fyr-
irtækið, Sigrún Halla Unnarsdóttir, sem nam fatahönnun
við Designskolen Kolding í Danmörku.
„Sigrún kom inn fyrir RFF sem stílisti, það gekk svo
vel að hún vann hjá fyrirtækinu allan febrúar og mars
og svo vildum við ekki sleppa hvor annarri,“ útskýrir
Magnea en þær Sigrún kynntust í gegnum kennslu þar
sem þær kenna báðar við textíldeild Myndalistarskóla
Reykjavíkur.
„Sigrún hefur gríðarlega reynslu í framleiðslu og við
fórum beint í að undirbúa framleiðsluna eftir RFF,“ seg-
ir Magnea og bætir Sigrún við að þær stöllur séu sam-
mála um uppbyggingu fyrirtækisins. „Við lærðum í svip-
uðum skólum og tölum svolítið sama tungumál þegar
kemur að hönnun og ferlinu sjálfu,“ segir Sigrún.
Magnea útskýrir að nú skipti þær mikið með sér
verkum þar sem hún einbeiti sér aðallega að efnum en
Sigrún sjái að mestu um form og snið. „Samstarfið er
rosalega skemmtilegt því það kemur margt inn sem
kemur manni á óvart. Við erum svo mikið að ping-
ponga hugmyndum á milli.“
Textíllinn einfaldar formin
Línan er væntanleg í verslunina Jör í byrjun næsta mán-
aðar. Mikil áhersla er lögð á prjón, sem Magnea segir
að muni alltaf einkenna línur fyrirtækisins.
„Við viljum einbeita okkur að því að þróa okkar eigin
efni en það lagði ég upp með til þess að byrja með. Ég
var með ákveðnar hugmyndir sem mig langaði til þess
að þróa og vildi halda áfram að búa til prjón sem hægt
væri að framleiða í vélum. Ég held að við séum ekkert
að fara að snúa við blaðinu. Það er líka það skemmti-
lega við þetta – að prófa eitthvað nýtt,“ útskýrir Magn-
ea og bætir við að vegna þess hve rík áhersla er lögð á
prjón og textíl séu formin á flíkunum eilítið í einfaldari
kantinum.
Innblástur línunnar er að mestu leyti sóttur til bygg-
ingarsvæða í Berlín og vinnufatnaðar. Með línunni verða
einnig framleiddir hattar sem sýndir voru á sýningunni.
„Hattarnir eru innblásnir af vinnuhjálmum. En að gera
prjónafatnað sem er innblásinn af vinnufatnaði – það er
ekkert rosalega mikið samasemmerki þar á milli. Endur-
skinsþráður sem sýndur var á prjónaflíkunum er inn-
blásinn úr vinnufatnaði og beinum línum bygginga,“ bæt-
ir Sigrún við.
Magnea og Sigrún segjast finna fyrir meiri orku í fata-
hönnunargeiranum á Íslandi og tækifærin séu sífellt að
aukast. Einnig segja þær Ísland góðan stað til þess að
stofna ný hönnunarfyrirtæki vegna þess hve mikið áhugi
almennings hérlendis hefur aukist. „Af því að við erum
á Íslandi höfum við miklu meira tækifæri á að kynna
okkur, bæði hér og úti. Ef við værum til dæmis úti í
London eða á stærri stað myndum við bara hverfa í
fjöldann.“
Magnea segir jafnframt fá störf í boði fyrir fatahönn-
uði á Íslandi. „Þannig að við verðum að búa okkur til
eitthvað sjálf. Núna finnst mér vera einhver orka. Ég er
í stjórn fatahönnunarfélagsins og það vilja allir að eitt-
hvað gerist og fólk fer á flug. Maður vill því nýta þessa
orku til að koma þessu á næsta stig.“
Magnea og Sigrún vinna nú hörðum höndum að
næstu línu og stefna á að halda til Kaupmannahafnar í
byrjun næsta árs og kynna línuna fyrir breiðari markaði.
„Við samsömum okkur svolítið Kaupmannahöfn og
finnst okkar stíll passa þar. Ég held að það sé gott að
byrja þar og kynnast markaðnum. Þó verður maður að
finna sinn stað og við erum að byrja á því núna,“ bætir
Sigrún við að lokum.
SAMSTARFIÐ KEMUR SÍFELLT Á ÓVART
Fleiri tækifæri
og aukin orka
MAGNEA EINARSDÓTTIR OG SIGRÚN HALLA GUNNARSDÓTTIR HANNA ÁHUGAVERÐAR
FLÍKUR HJÁ FYRIRTÆKI SÍNU SEM BER HEITIÐ MAGNEA. RÍK ÁHERSLA ER LÖGÐ Á TEXTÍL OG
PRJÓN EN NÝ LÍNA TÍSKUHÚSSINS ER VÆNTANLEG Í VERSLUNINA JÖR Í OKTÓBER.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.9. 2014
Tíska
Ljósmyndari/Aldís Páls.