Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Qupperneq 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Qupperneq 56
56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.9. 2014 Tvær sýningar verða opnaðar í Gallerí Kunstschlager á Rauðarárstíg 1 í kvöld, laug- ardag, klukkan 20. Gunnhildur Þórðardóttir er listamaður vikunnar og stendur hennar sýning í viku. Gunnhildur sýnir skúlptúrinn „Sjónvarp með vígtönnum“ og myndbands- verkið „Boðorðin 10 í slammi“. Hún skoðar pönkið sem samfélagslegt tæki til að hafna ríkjandi viðhorfum og neyslusamfélaginu og fjallar um þörf mannsins til að gera hlutina á eigin forsendum. Á sama tíma verður sýningin „Feng Shui Problem“ opnuð og þar sýna Nikulás Stefán Nikulásson og Emma Heiðarsdóttir. Nýju verkin eru unnin með rýmið í huga, en út- koman er sögð eitt stórt feng shui-vandamál. SÝNA Í KUNSTSCHLAGER PÖNK - PROBLEM Úr verki Gunnhildar Þórðardóttur, Boðorðin 10 í slammi. Hún er listamaður vikunnar. Leikskáldið Ingibjörg Magnadóttir. Hún hefur unnið að ýmiskonar leikhústengdum verkum. Morgunblaðið/Golli Útvarpsleikhúsið á Rás 1 frumflytur á sunnu- dag nýtt íslenskt leikverk, Rökrásina eftir Ingibjörgu Magnadóttur, í leikstjórn Hörpu Arnardóttur. Var það unnið í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík. Verkið fjallar um eldri hjón sem hafa ekki farið út úr húsi í þrjátíu ár en hafa ákveðið að opna ólöglega útvarpsstöð. Leikarar eru þau Kristbjörg Kjeld, Erlingur Gíslason, Guðrún S. Gísladóttir, Kristján Franklín Magnús, Jóhanna Friðrika Sæmunds- dóttir og Vignir Rafn Valþórsson. Kristín Anna Valtýsdóttir samdi tónlist við verkið en hljóðvinnslu annaðist Einar Sigurðsson. NÝTT Í ÚTVARPSLEIKHÚSI RÖKRÁSIN Sýning er kallast „Villtar svefnfarir fyrir iðnaðar- vistfræðinga“ verður opn- uð í Verksmiðjunni á Hjalteyri í dag, laugardag, klukkan 18. Við opnunina fremja listamennirnir gjörning. Fjórir listamenn hafa undanfarið dvalið og starf- að í alþjóðlegri vinnustofu á Hjalteyri og eiga verk á sýningunni. Það eru þau Angela Rawlings, Elsa Lefebvre, Maja Jantar og Philip Vormwald, sem koma frá Kanada, Frakklandi og Belgíu. Þau hafa komið sér fyrir í djúpsjávarsafninu Strýtunni og nota gömlu síldarverksmiðjuna til þess að skapa staðbundin verk. Listamennirnir hafa boðið Gústav Geir Bollasyni að sýna með sér. Samkvæmt tilkynningu lýtur iðnaðarvist- fræði að rannsóknum á flæði efnis og orku gegnum iðnaðarkerfi. SÝNING OPNUÐ Á HJALTEYRI SVEFNFARIR Gústav Geir Bollason Tvær sýningar verða opnaðar í Listasafni Árnesinga í Hvera-gerði klukkan 16 í dag, laugardag. Annars vegar er þaðVegferð, með verkum eftir Halldór Ásgeirsson myndlist- armann, og hins vegar Umrót, með íslenskri myndlist síðan um og eftir 1970. Verkin á henni eru í eigu Listasafns Íslands. Vegferð er sögð vera í raun umfangsmikil dagbókarfærsla sem veitir innsýn inn í upplifun Halldórs á náttúrunni og leiðir hans til að útfæra sína eigin heimsmynd. Sýningin er að hluta til yf- irlit – og um leið endurlit til þess tíma sem Halldór byrjaði að vinna að myndlist. Hér sjáist að þráðurinn hafi aldrei slitnað og í yngri jafnt sem eldri verkum megi greina ólíkar útfærslur á til- raunum listamannsins með sjálfsprottna skrift, gjörninga og efni náttúrunnar: eld, vatn og ljós. Halldór vinnur nú að útilistaverki við Kerhólsskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi og af því tilefni er ferill listamannsins kynnt- ur í Listasafni Árnesinga. Umrót er samstarfssýning með Listasafni Íslands, sú þriðja og síðasta af sýningaröð sem er ætlað að veita innsýn í ákveðin tímabil og kynna ríkjandi stefnur í íslenskri myndlist. Sýningin tekur til tímabils sem einkenndist af umróti nýrra strauma. TVÆR SÝNINGAR Í LISTASFNI ÁRNESINGA Vegferð Hall- dórs og Umrót Halldór Ásgeirsson við eitt verka sinna á sýningunni Vegferð en sjón- um er beint að upplifun hans á náttúrunni og úrvinnslu á henni. Verkið Bad Priest eftir Dieter Roth er eitt þeirra sem gefur að líta á sýningunni Umróti. Sýnd eru verk eftir Dieter, Erró, Rúrí og fleiri. SÝNINGARGESTIR FÁ INNSÝN Í UPPLIFANIR HALLDÓRS ÁSGEIRSSONAR OG UMRÓT ÁRANNA UM 1970. Menning Sænski myndlistarmaðurinn AndreasEriksson uppgötvaði myndverk eftirKjarval í bók fyrir nokkrum árum og það leiddi til þess að fyrir rúmu ári setti hann upp sýningu í Stokkhólmi með nýjum verkum sem hann kallaði Landskap (till Kjarval) og gaf þau einnig út á bók, en verk- in vann hann út frá sýn Jóhannesar Kjarvals á landið. Eriksson er einn kunnasti listamað- ur sinnar kynslóðar í Svíþjóð og hafði þá ný- verið verið fulltrúi þjóðar sinnar á Feneyja- tvíæringnum. Hann hefur verið hér á landi síðustu vikuna og sett upp áhugaverða sýn- ingu í báðum sölum Kjarvalsstaða; þar renna saman sýningin Roundabouts, sem er yfirlit yfir verk hans, samvinnuverkefni fimm safna, og Efsta lag, sýning með samspili verka eftir þá Kjarval. „Eftir því sem ég stilli fleiri verkum Kjar- vals upp, finnst mér hann verða reiðari að sjá á ljósmyndunum frammi á ganginum,“ segir Eriksson brosandi. „Ég hugsa í sífellu; ætli Kjarval þætti þetta í lagi.“ Eriksson kom í þriggja daga heimsókn fyrr á árinu, kafaði þá niður í safn verka Kjarvals og valdi fyrir sýninguna málverk og allrahanda skissur og teikningar. „Sjálfsagt mætti finna hundruð málverka eftir hann sem mætti raða upp eins og þessum,“ segir hann og bendir á röð málverka meistarans í austursalnum, þau hafa verið tekin úr römm- unum og raðað í þétta línu, hvert við annað. „Þau eru næstum í sömu stærð, líklega gerð fyrir ferðamöppuna hans. Það mætti gera gríðarlanga röð með þessum hætti.“ En hver er hugmyndin bak við að raða verkum Kjarvals upp á þennan hátt? „Þetta er eins og eitt málverk sem þenst út. Það er eins og þau séu í felulitum og ef þau væru sett út í náttúruna væri erfitt að sjá þau. Þessi framsetning snýst um mál- verkið og eðli þess. Kjarval fór út á næstum hverjum degi og vann að nýjum verkum; þetta var endalaust verkefni, frekar en það að mála einstök verk. Þetta var lífsstíll, hans aðferð við að vinna. Ferlið að mála var hon- um greinilega afar mikilvægt.“ Eriksson segist alls ekkert hugsa um myndefni verkanna, um staði eða árstíðir sem Kjarval endurspeglar. „Ég hugsa alls ekkert um það. Ég hugsa um málninguna, litina, um málverkið. Það fyrsta sem ég upplifði þegar ég kom til landsins var að leigubílstjórinn fór að segja mér sögur af Kjarval,“ segir hann. „Sá næsti sem ég hitti sagði fleiri sögur. Og í hvert sinn sem ég horfi á Kjarvalsverk með Íslendingi segir hann mér hvaða fjall er á myndinni. Ég hef enga tengingu við það og verð að nálgast verkin sem málari; málari lít- ur á málverkið, á sköpun listamannsins og hún hefur ekkert með landafræði að gera.“ Það er áhugaverð nálgun fyrir Íslendinga sem hafa á tíðum allt að því þráhyggju- kenndan áhuga á stöðum í myndlist. „En verkin eru fyrir mér í fyrsta lagi um það að mála og Kjarval fer aftur með olíu- litina niður í landið, niður í svörðinn, líttu bara á þessi verk,“ segir hann og bendir á málverkaröðina þar sem varla sést í sjón- deildarhring, bara hraun, gróður og mold. „Kjarval tengir saman jörðina og framleið- anda olíulitanna.“ Erikssen hefur valið að sýna úrval teikn- inga eftir Kjarval, sumar eru í kössum sem standa á gólfinu, önnur á veggjum í samtali við hans eigin verk. Í einu rýminu eru brons- afsteypur hans af moldvörpuhaugum og tré sem hann hefur klofið og sett aftur saman sem tvö, í öðru rými eru sérkennileg mál- verk sem verða til þegar hann málar með leysiefni á frauðplast, sem leysist við það upp, og þá gerir hann afsteypur í gips af formunum sem myndast. „Mér finnst gott að sýna þessi verk hér, þau tengjast bæði yfirborði jarðarinnar og hvítum striga; þau eru eins og inngangur í málverkið. Ég kem alltaf aftur að málverkinu og striganum sem tengingu við snjó. Með þeim sýni ég sum síðustu verk Kjarvals, um litaspjald málarans. Ég valdi þessar teikningar Kjarvals þarna frammi því mér þykja þær svo opnar og svo eru margar þeirra einfaldlega um það að vera úti í náttúrunni. Þær eru mótaðar af allt að því þráhyggjulegri nálgun og end- urtekningum; það er eins og hann hafi í sí- fellu þurft að safna myndum.“ Sem dæmi um þráhyggju bendir hann á eina blaðsíðuna í lítilli skissubók sem Kjarval hefur fyllt með orði sem hann skrifar upp aftur og aftur: starfa, starfa, starfa … „Oft eru teikningarnar líka eins og minn- VERK EFTIR ANDREAS ERIKSSON OG JÓHANNES KJARVAL MÆTAST Á KJARVALSSTÖÐUM „Jafnvel enn meira hraun“ KUNNUR SÆNSKUR MYNDLISTARMAÐUR, ANDREAS ERIKSSON, HEFUR STILLT MYNDVERKUM SÍNUM UPP MEÐ VERKUM JÓHANNESAR KJARVAL OG HEFUR EKKI ÁHUGA Á ÞVÍ HVAÐA STAÐI VERKIN SÝNA. „ÉG HUGSA ALLS EKKERT UM ÞAÐ. ÉG HUGSA UM MÁLNINGUNA, LITINA, UM MÁLVERKIÐ,“ SEGIR HANN. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Kofi Ted Kaczynskis; málverk frá 2004 eftir sænska listamanninn Andreas Eriksson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.