Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Page 64
SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2014
Daginn sem George Valdimar Tiedemann, sem á íslenska
móður og bandarískan föður, var skírður í Kristskirkju á
Landakoti árið 1944 var tekin af honum ljósmynd á kirkju-
tröppunum – í örmum ókunnugs hermanns. George hefur
lengi langað að vita hver maðurinn er en ekki haft erindi
sem erfiði. Það var svo nýverið, þegar hann var að fara yfir
pappíra úr dánarbúi móður sinnar, að hann rakst á skírn-
arvottorð sitt. Þar voru tveir menn tilgreindir sem skírn-
arvottar, Vincent Hermanson og Bucks County. George
áttaði sig strax á því að Bucks County væri ekki nafn á
manneskju, heldur sýslu í Pennsylvaniu, um klukkustund-
ar akstursleið frá heimili hans sjálfs. George rauk beint í
símaskrána og viti menn Vincent Hermanson er enn við
hestaheilsu, 96 ára að aldri, og búsettur í Bucks County.
George heimsótti skírnarvott sinn á dögunum og fékk
staðfestingu á því að hann væri maðurinn á myndinni.
„Hann mundi vel eftir deginum og gat svarað fjölmörgum
spurningum mínum um föður minn og reynslu þeirra í
seinni heimsstyrjöldinni á Íslandi,“ segir George og bætir
við: „Hverjar eru líkurnar á þessu?“
GEORGE VALDIMAR TIEDEMANN DATT Í LUKKUPOTTINN
Fann skírnarvottinn
sjötíu árum síðar
George Valdimar Tiedem-
ann og Vincent Hermanson
með myndina góðu á milli
sín. Hún er sjötíu ára gömul.
Makhaya Ntini, krikketgoðsögn frá
Suður-Afríku, fer fyrir leiðangri
tveggja liða upp á topp Kilimanjaro
þar sem áætlað er að spila krikket-
leik. Kilimanjaro er í 5.895 metra
hæð yfir sjávarmáli og ef tekst að
spila verður leikurinn skráð heims-
met yfir leik sem spilaður er í
mestri hæð.
Fyrrverandi heimsmet er 5.165
metrar; sett árið 2009 þegar spilað
var í Himalæjafjöllum.
Ntini og félagar eru að safna fjár-
munum fyrir nokkra málstaði en
fyrst og fremst fyrir fyrsta al-
þjóðlega krikketvellinum í Rúanda
en þar er íþróttin mjög vinsæl.
Í leiðangrinum eru 30 leikmenn,
Ntini þeirra þekktastur, en einnig
er með í för Englendingurinn Ash-
ley Giles sem og Heather Knight
landsliðskona Englands. „Ég vildi
að ég væri tvítugur á ný. Þetta er
eitt það erfiðasta sem ég hef gert á
ævinni,“ sagði Ntini í samtali við
AFP-fréttastofuna í grunnbúðum
fjallsins. Ntini og félagar bjuggust
við að vera átta daga að klífa fjallið
en þeir lögðu af stað 20. september.
Gangi allt samkvæmt áætlun ætti
leikurinn að fara fram um helgina.
FURÐUR VERALDAR
Krikket á
þaki Afríku
Krikket er vinsæl íþrótt víða um heim þótt hún hafi aldrei náð fótfestu hér
á landi. Í Suður-Afríku er íþróttin næstvinsælust á eftir knattspyrnu.
AFP
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Jake Gyllenhaal
Leikari
Gísli Örn Garðarsson
Leikari
Margeir Ingólfsson
Plötusnúður
3 - IN - 1
MICELLAR
WATER
0%PARABENLITAREFNIILMEFNI
HREINSAR
FJARLÆGIR FARÐA
VEITIR RAKA
ALLT MEÐ 1 HREINSIVÖRU
NIVEA SENSITIVE
FYRIR VIÐKVÆMA HÚÐ: