Málfríður - 15.03.2011, Qupperneq 5
Þessi grein er byggð á erindi sem var flutt á ráðstefnu
Félags dönskukennara í mars 2010. Í erindinu fjallaði
ég um mikilvægi þess að þróa fjölbreytta kennsluhætti í
dönsku og taka meira mið af einstaklingnum og áhuga
hans og leiðir til þess. Einnig drap ég á hvað það væri
sem helst væri talið hvetja eða letja kennara og nemend-
ur til að reyna nýjar leiðir. Í þessari grein verður nánar
gerð grein fyrir þessum hugmyndum. Þótt hér sé gengið
út frá kennslu í dönsku sem erlendu máli eiga þessar
hugmyndir alveg eins við tungumálakennslu almennt.
Áhugahvöt
Áhugi er ein sterkasta driffjöðurin í hvers kyns námi,
en ekki síst tungumálanámi.
Viðamiklar rannsóknir hafa farið fram á áhugahvöt
í tungumálanámi (sjá t.d. Oddný Sverrisdóttir, 2007;
Dörnyei, 2001) sem allar staðfesta mikilvægi áhuga-
hvatar til að ná góðum árangri. Ekki er hægt að taka
sem sjálfsögðum hlut að brennandi áhugi kvikni hjá
börnum eða unglingum á að læra tungumál sem er
hvergi að finna í málumhverfi þeirra og daglegu lífi
og hæpið að ætla að „mótivera“ börn með framtíðinni.
Brýning kennara sem beinist að framtíðarhlutverkum
nemenda höfðar illa til þeirra. Hér má nefna setningar
eins og: „Það er svo nauðsynlegt að kunna dönsku
þegar þú verður orðin fín kona/maður í stjórnarráðinu
og þarft að taka þátt í löngum fundum á skandinavísku
og lesa enn lengri skýrslur á Norðurlandamálunum.”
Eða „ef þú ferð í framhaldsnám til útlanda eru meira
en 50% líkur á að þú farir til Norðurlandanna.” Í huga
unglingsins er þetta framtíðarmúsík sem kemur þeim
harla lítið við á þessari stundu.
Börn og unglingar lifa í núinu og námið þarf að
vera áhugahvetjandi og merkingarbært fyrir þau þar
sem þau eru stödd í tilverunni. Þar af leiðir að við-
gangsefnin þurfa að miðast við þroska og áhugasvið
þeirra hverju sinni. Kennarar þurfa því stöðugt að leita
eftir hugmyndum og áhugasviðum nemenda. Ég velti
því fyrir mér hversu dugleg við erum að spyrja nem-
endur hvað þeim finnist gaman að fást við. Staðlaðar
kennslubækur duga skammt í nútíma tungumála-
kennslu en Internetið hefur gerbreytt aðstöðu okkar
til að ná í fjölbreytt efni, bæði ritað og talað. Hluti af
fagmennsku kennarans er að leita sem víðast fanga og
nálgast nemendur á forsendum þeirra og leyfa þeim
líka að taka þátt í leitinni.
Nemendasjálfstæði
Nemendasjálfstæði, sem nú er mikið rætt um í tungu-
málanámi, beinist ekki síst að því að auka áhuga nem-
enda á náminu og það er m.a. gert með því að auka
ábyrgð þeirra, þ.e. gera þá meðábyrga (Ushioda, 1996).
Það getum við m.a. gert með því að gera þau með-
vituð um markmiðin með náminu almennt og mark-
miðunum í stökum kennslustundum. Einfalt atriði eins
og að setja námsmarkmið tímans fram í upphafi hans
er árangursrík leið til að hjálpa nemendum til að þess
skilja hvað þeir eiga að læra/þjálfa í tímanum og hvers
vegna þeir eru að vinna einmitt þetta eða hitt verkefnið
og um leið hjálpar það þeim til að ígrunda og meta
eigið nám. Þetta er allt önnur hugsun en sú að skrifa
á töflu í upphafi tíma hvað á að fara yfir eins og við
kennarar gerum oft. Önnur leið og ekki síður áhrifarík
er að vinna námsmarkmiðin í samvinnu við nemendur.
Einn þáttur nemendasjálfstæðis er að vinna markvisst
með námsvitund nemenda (metacognitive awareness).
Það getum við gert með ýmsum ráðum, t.d. með því að
láta þá skoða markmið tímans aftur í lok hans og láta
nemendur meta hvern fyrir sig hvort þeir hafi nú ekki
örugglega lært það sem til var ætlast eða hvað vanti
upp á sem bæta þarf úr. Önnur áhrifarík leið til að láta
nemendur meta eigið nám er að biðja þá að skrifa niður
í lok tímans tvennt eða þrennt sem þeir hafa lært nýtt
eða betur. Þetta tekur ekki langan tíma og er einfaldara
í framkvæmd en log-bókarskrifin sem einnig eru gott
tæki. Ef nemandinn þarf að velta fyrir sér hvað hann
hefur lært gerir hann sér betur grein fyrir hvað hann er
að fást við – með öðrum orðum: það eykur námsvitund
hans. Kennarinn getur nýtt þessi skrif til að greina nám
nemandans. Þetta eru leiðir sem hafa gefist vel í öllum
aldursflokkum. Sjálf notaði ég þetta í framhaldsskóla
og nota það nú í háskólakennslu með góðum árangri,
þ.e. ég fæ innsýn í hvað og hvernig nemendur mínir
telja sig vera að læra.
MÁLFRÍÐUR 5
Hafdís Ingvarsdóttir.
Hafdís Ingvarsdóttir, prófessor
við Háskóla Íslands
Úr viðjum vanans
01
Uppgötvið
Þýskaland
www.goethe.de/germany
Uppgötvið Þýskaland
Árangursríkar kennsluaðferðir, kennsla á öllum námstigum og
undirbúningur fyrir öll próf í 13 athyglisverðum borgum í Þýskalandi.
Hagnist á viðbótartilboði okkar:
• einstaklingsbundin námsráðgjöf
• tungumála- og sjálfsnámsmiðstöðvar
• menningar- og frístundadagskrá
• húsnæðisþjónusta
Frekari upplýsingar fást hjá:
Netfang: Goethe-Institut Dänemark, Tel. +45 33 366 453
E-Mail: deutsch@goethe.de
673-Malfridur_A4:093_Malfridur_A4 08.03.2011 17:00 Uhr Seite 1