Málfríður - 15.03.2011, Qupperneq 22
Nemendum í grunnskólum Akureyrar sem hafa tengsl
við Noreg eða Svíþjóð hefur um alllangt skeið verið
boðið upp á kennslu í norsku eða sænsku í stað dönsku.
Þeir nemendur sem býðst að stunda nám í norsku eða
sænsku á þessum forsendum þurfa þó að hafa undir-
stöðu í tungumálinu. Þeir þurfa að skilja allvel talaða
norsku/sænsku, geta lesið einfalda texta og geta gert
sig skiljanlega á tungumálinu.
Undirrituð hefur undanfarin tíu ár kennt þeim nem-
endum á Akureyri sem rétt eiga á norsku. Fyrstu árin
voru nemendahóparnir frekar fámennir en undanfarin
fjögur árin hafa nemendur verið um 12 á hverju ári.
Bakgrunnur þeirra er mjög misjafn, allt frá því að hafa
aldrei búið í Noregi til þess að hafa búið stærstan hluta
ævi sinnar þar í landi.
Þó að reglurnar segi að nemendur eigi að uppfylla
viss skilyrði til að vera í norsku er erfitt að neita nem-
anda sem ekki uppfyllir þau að fullu ef hann á t.a.m.
föður- eða móðurfjölskyldu sína í Noregi. Reynslan
hefur einnig yfirleitt verið sú að þeir nemendur sem
ekki hafa mjög góðan bakgrunn í málinu en hafa eftir
sem áður skýr tengsl við landið eru oftast tilbúnir til
að leggja mikið á sig. Þeir læra einnig mikið af þeim
nemendum sem betur kunna tungumálið og þekkja til
samfélagsins, reglna þess og siða.
Á Akureyri eru sjö grunnskólar og einnig hafa nem-
endur úr Eyjafjarðarsveit haft aðgang að kennslunni.
Kennslan hefur frá upphafi farið fram í Brekkuskóla en
það er sá skóli sem er mest miðsvæðis. Nemendur hitta
kennara sinn einu sinni í viku í tvær kennslustundir í
senn utan venjulegs skólatíma. Þetta eru færri kennslu-
stundir en kenndar eru í dönsku en þar sem nemendur
koma utan venjulegs skólatíma og oft um langan veg
hefur þessi háttur verið hafður á. Reynt er að nýta
kennslustundirnar vel og heimavinna er þó nokkur
til að vega upp á móti takmörkuðum fjölda tíma. Sú
hefð hefur skapast að kenna 7. og 8. bekk saman annars
vegar og svo 9. og 10. bekk hins vegar. Yngri nemend-
urnir hafa þá komið fyrst og þeir eldri einni kennslu-
stund síðar en allir nemendur eru þá saman í um eina
kennslustund. Þannig er hægt að vera með innlögn í
t.d. málfræði og fara yfir heimavinnu og annað með
hvorum hóp fyrir sig. Tíminn sem allir eru saman er
yfirleitt mjög skemmtilegur og fjölbreyttur.
Námsefnið í norsku samanstendur ekki af lesbók og
vinnubók eins og oft er í tungumálum. Hver nemandi
er með málfræðibók við hæfi og síðan er námsefnið
tekið héðan og þaðan; úr bókum, af netinu og víðar.
Ég nýti netið mikið og við reynum alltaf að spjalla um
það sem er að gerast í Noregi þá stundina. Einnig legg
ég áherslu á að nemendur segi frá og fjalli um það sem
þeir hafa áhuga á hvort sem það er uppáhalds hljóm-
sveitin þeirra eða eitthvað sem þau kynntust í Noregi
og finnst áhugavert. Nokkrum sinnum hafa allir nem-
endur unnið saman að einhverju verkefni og þá höfum
við oftast tekið fyrir norska „ævintýramenn“ eins og
Fridtjof Nansen, Thor Heyerdahl og Roald Amundsen
sem voru sannkallaðar hetjur. Tvö síðastliðin ár höfum
við svo fylgst með tveimur ævintýramönnum sem
eru sprelllifandi og eru að gera ótrúlegustu hluti, en
það eru þeir Børge Ousland og Lars Monsen. Einnig
hafa nemendahópar unnið saman að verkefnum um
konungsfjölskylduna, persónurnar sem ratað hafa á
norska peningaseðla, gert ferðabæklinga um mismun-
andi staði í Noregi og skipulagt ýmsar draumaferðir
um Noreg.
Á bókasöfnum hér fyrir norðan er ekki mikið um
efni á norsku til útláns. Þar kemur netið til hjálpar
og einnig veitir Tungumálaverið í Laugalækjarskóla
okkur norsku- og sænskukennurum á landsbyggðinni
frábæra þjónustu. Þar getum við fengið lánaðar ýmsar
bækur − bæði námsbækur, skáldsögur, fræðibækur og
orðabækur − og myndbönd af ýmsum toga, og ekki
má gleyma stuðningnum sem maður fær þar því það
er ekki alltaf auðvelt að vera eini kennarinn í faginu á
stóru svæði. Reynt er að bjóða upp á námskeið fyrir
norsku- og sænskukennara einu sinni á ári og hafa þau
námskeið verið fjölbreytt og skemmtileg. Ég hef einnig
nýtt mér þann möguleika á að fara á námskeið sem
tengjast norrænum tungumálum erlendis og það hefur
verið frábær upplifun.
Fljótlega eftir að ég byrjaði að kenna norsku sá ég
hve mikill galli það var að ef nemandi mætti ekki í
22 MÁLFRÍÐUR
Bryndís Indíana
Stefánsdóttir .
Norskukennsla
í grunnskólum Akureyrar
Bryndís Indíana Stefánsdóttir,
kennari í íslensku fyrir
útlendinga