Málfríður - 15.03.2011, Page 23
Það er mjög skemmtilegt að kenna norsku og þar
sem nemendur hafa ákveðinn bakgrunn eru verkefnin
sem hægt er að vinna mun fjölbreyttari en t.d. með
nemendum sem eru að byrja að læra dönsku. Kennslan
fer að langmestu leyti fram á norsku og allir tala á
sinni mállýsku. Þar sem ég kenni einnig dönsku í 7.
og 8. bekk fæ ég stundum hugmyndir þar sem ég nýti
mér í norskukennslunni og öfugt. Einnig hef ég kennt
útlendingum íslensku og sótt mjög skemmtileg nám-
skeið á vegum Ísbrúar í þeim efnum. Það er mjög góð
tilfinning fyrir kennara þegar gott verkefni hefur verið
undirbúið og hægt er að nýta það með fleiri en einum
nemendahópi. Þó að tungumálið sé mismunandi snýst
tungumálakennsla alltaf um það að miðla á fjölbreytt-
an og skemmtilegan hátt. Ég er eindreginn stuðnings-
maður þess að norræn tungumál séu kennd í grunn-
skólum en finnst þó að kennslan eigi fyrst og fremst
að snúast um það að skapa jákvætt viðhorf gagnvart
tungumálum Norðurlanda og að miðla því sem nor-
rænt er, sama frá hvaða landi það kemur.
tíma þá hafði hann enga möguleika á að hitta mig í
skólanum daginn eftir og fá t.d. heimavinnuna sína.
Ég hef að vísu alltaf verið í góðu sambandi við for-
eldra í gegnum tölvupóst en ég vildi að nemendur og
foreldrar hefðu betra aðgengi að mér og kennslunni.
Fyrir sex árum fékk ég aðstoð við að búa til heima-
síðu fyrir norskunemendur á Akureyri og lifir sú síða
góðu lífi enn í dag (http://akmennt.is/norska/ ). Þar
er alltaf hægt að sjá hvenær á að mæta og nálgast
alla heimavinnu. Þar eru einnig ýmsir nytsamlegir
tenglar og skemmtiefni. Ég setti auk þess inn efni þar
fyrir kennara en fyrir rúmu ári var opnuð frábær síða
fyrir norsku- og sænskukennara og fór ég þá að setja
efni þar inn (http://kennarar.ning.com/ ). Þar liggur
mikið af efni fyrir kennara og þó að það sé á norsku
eða sænsku ættu allir tungumálakennarar að geta nýtt
sér hugmyndirnar sem þar eru. Nýlega var einnig opn-
aður vefurinn http://tungumalatorg.is/ og er það von
mín að þessar flottu vefsíður verði til þess að tungu-
málakennarar deili góðum verkefnum og hugmyndum
og nálgist þannig meira hver annan.
Nordplus styrkir samstarf
leik-, grunn- og framhaldsskóla
á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum
Umsóknarfrestur v/undirbúningsheimsókna rennur út 15. október nk.
Nánari upplýsingar á:
www.nordplus.is
Landskrifstofa Nordplus
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins
Háskólatorgi, 101 Reykjavík
Sími 525 4311
Nordplus Junior
(Norðurlöndin og Eystrarsaltslöndin)
- Ferðir nemenda og kennara (mobility)
- Styrkir til samstarfsneta (networks)
- Styrkir til samstarfsverkefna (projects)
- Undirbúningsheimsóknir styrktar
••
MÁLFRÍÐUR 23