Málfríður - 15.03.2011, Síða 27
Heimildaskrá:
Aðalnámskrá framhaldsskóla. [Sjá á þessari slóð: http://menntamál-
araduneytid.is/utgefid-efni/namskrar//3954]
Heimasíða Félags dönskukennara [Sjá á þessari slóð: http://www.fdk.
is/Greinar/tabid/1111/Default.aspx]
Helgi Grímsson, skólastjóri Sjálandsskóla. Námskynning á unglingastigi.
[Sjá á þessari slóð: http://www.sjalandsskoli.is/pages/3331]
Ingvar Sigurgeirsson. (2007). Hvað er einstaklingsmiðað nám. Að mæta
þörfum ólíkra nemenda, þýtt og staðfært, Helgi Grímsson. [Sjá á þessari
slóð: http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/fraedslumidstod/
vefur/foreldrar.htm]
Ingvar Sigurgeirsson, Arnór Benónýsson, Hallur Birkir Reynisson,
Jóhanna Eydís Þórarinsdóttir og Valgerður Gunnarsdóttir. (2008) „
Það kemur ekki til greina að fara til baka“. Sveigjanlegt námsumhverfi í
Framhaldsskólanum á Laugum. [Sjá á þessari slóð: http://netla.khi.is/
greinar/2008/003/prent/index.htm]
Ingvar Sigurgeirsson, Ágúst Ólason, Björn Gunnlaugsson, Hildur
Jóhannesdóttir og Sif Vígþórsdóttir. (2010). List- og verkgreinar í önd-
vegi. Sagt frá þróunarverkefninu Smiðjur í Norðlingaskóla. [Sjá á þessari
slóð: http://netla.khi.is/greinar/2010/004/prent/index.htm]
Mennta- og menningarmálaráðuneytið. Lög um framhaldsskóla, nr.92/2008).
[Sjá á þessari slóð: http://www.althingi.is/lagas/137/2008092.html]
Skólanámskrá. Iðnskólinn í Hafnarfirði. (2007). [Sjá á þessari slóð:
http://idnskolinn.is]
spurningum um það hvað mætti betur fara í tengslum
við kennsluna, kennsluefni og námsmatið. Einnig
hvernig samvinna kennara og samþættingin hefði
gengið. Hverju mætti breyta fyrir næstu önn og hvað
mætti standa. Viðhorf nemenda til námsins voru rædd
og kom fram að viðhorf nemenda til námsins var betra
en kennarar höfðu þorað að vona.
Lokaorð, hugur og hönd
Það er mikil áskorun fólgin í því að taka að sér nem-
endur sem koma með brotna sjálfsmynd og margvís-
legar greiningar inn í framhaldsskólana og fá þá til
þess að sjá tilgang með dvöl sinni. Nemendurnir þurfa
að finna að starfsfólk skólans sé tilbúið til þess að leita
lausna. Samstarf margra fagaðila innan skólans þarf
að vera til staðar ef vel á að takast til, einnig verða
kennarar að geta unnið þverfaglega, það þarf að tengja
fögin, kennarana og nemendurna saman, hug og hönd.
Samþætting námsgreina er framtíðin. Það er úrelt að
hver og einn sé að vinna bak við lokaðar dyr, þar sem
enginn má trufla, allra síst nemendurnir.
Útskrift nemenda sem ekki hafa siglt lygnan sjó
í gegnum skólakerfið er stund sem kennarar við IH
upplifa sem betur fer oft.
Landskrifstofa Menntaáætlunar Evrópusambandsins | Háskólatorgi | Sæmundargötu 4 | 101 Rvík | S: 525 4311 | ask@hi.is
Comenius – styrkir
Kennarar/skólastjórnendur geta sótt um styrki til að sækja tengslaráðstefnur vítt og breitt í Evrópu.
Tækifæri fyrir skóla á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi til að koma af stað evrópskum samstarfs-
verkefnum, tvíhliða eða marghliða verkefni.
Listi yfir ráðstefnur á haustmánuðum birtist í byrjun sumars á: comenius.is
Umsóknarfrestur vegna endurmenntunar kennara verður 15. september nk. fyrir námskeið eftir
1. janúar 2012.
Etwinning – rafrænt, evrópskt skólasamstarf. Kjörinn vettvangur fyrir kennara og nemendur til að tengj-
ast evrópskum félögum og vinna að sameiginlegum verkefnum. Auðvelt og skemmtilegt samstarf sem
opnar margs konar möguleika, Oftar en ekki upphaf að Comeniusarverkefni. Sjá nánar etwinning.is
Comenius námsgagnagerð – unnin í samstarfi minnst 3 aðila frá jafnmörgum löndum. Umsóknir berist til
Framkvæmdastjórnarinnar í Brussel.
Sjá nánar fleiri styrkja-möguleika á comenius.is
Landsskrifstofa Menntaáætlunar ESB, Háskólatorgi. Comenius.is
póstfang: teva@hi.is, sigrunol@hi.is
MÁLFRÍÐUR 27