Málfríður - 15.03.2011, Qupperneq 28
Tungumálatorgið – tungumalatorg.is – er vettvang ur
á neti fyrir kennara, nemendur og foreldra sem
tengjast öllum skólastigum og gerðum fræðslustofn-
ana. Torgið hefur verið byggt upp með þátttöku
Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, mennta- og
menningarmálaráðuneytis, Menntasviðs Reykjavíkur,
stofnana, sjóða og einstaklinga, en það var formlega
opnað 16. nóvember árið 2010. Allt efni er varðar við-
komandi málaflokk er þar að finna á einum stað án til-
lits til aldurs nemenda, búsetu, skólastiga, tungumála
eða gerða fræðslustofnana.
Með Tungumálatorgi er gerð tilraun til að skapa
langtímaminni í skólastarfi og þróunarverkefnum
með því að birta á einum stað dæmi um verkefni
sem vel hafa tekist og kennsluhætti sem skila árangri.
Tungumálatorg auðveldar tengslamyndun kennara
þeirra í millum og við sérfræðinga og er vettvangur
hagsmunahópa kennara og nemenda um tiltekin
tungumál, efni og þróunarverkefni.
Tungumálatorgið er félagsnet um tungumálanám
og kennslu. Tungumálatorgið er hýst af mennta- og
menningarmálaráðuneyti og hefur verið unnið í skjóli
Menntasmiðju Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Skipt hefur sköpum fyrir þróun þess hve margir ein-
staklingar, opinberar stofnanir og þróunarsjóðir hafa
stutt verkefnið með faglegum stuðningi og beinum og
óbeinum fjárframlögum.
Netsamfélög torgsins eru öllum aðgengileg þeim
að kostnaðarlausu. Lögð er áhersla á að efni sem birt
er á Tungumálatorginu sé merkt og notað samkvæmt
ákvæðum Creative Commons um hugverkasameign.
Tungumálatorgið er hugsað sem samstarfsvett-
vangur tungumálakennara, foreldra barna sem
tala fleiri en eitt tungumál og skóla fjölmenningar.
Tilgangur Tungumálatorgsins er að stuðla að málefna-
legri umræðu og auknum tengslum kennara í skólum
landsins þvert á skólastig og staðsetningu skóla, þar
sem grundvöllur umræðunnar er þekking og áhugi
á mikilvægi tungumálakennslu og þróun hennar í
nútíma- samfélagi.
Tungumálakennarar eru sérfræðingar hver á sínu
sviði og þeir koma jafnt úr símenntunarstofnunum,
leik- , grunn-, framhalds- og háskólum. Þeir eru íslensk-
ir og erlendir og hafa hlotið menntun sína í íslenskum
háskólum sem erlendum, hver með sína þekkingu,
reynslu og áherslur sem mikilvægar eru umræðunni.
Tungumálatorgið er vettvangur einstaklinga og
hópa þar sem tekin eru fyrir viðfangsefni sem varða
starf þeirra og áhugasvið, stofnað er til sameiginlegra
verkefna og umræðna og skipst á upplýsingum. Hægt
er að hugsa sér hópa um efni eins og kennslu barna
í leikskólum og yngstu aldurshópum grunnskólans,
aðferðir við að efla nemendasjálfstæði, ritun á ýmsum
færniþrepum, greinabundið tungumálanám o.fl.
Mikilvægt er að á torginu fari fram umræða fagfólks
og uppbygging efnisbanka sem forðabúr er geymir
reynslu þátttakenda, sögur úr kennslustofunni, fjöl-
breytt viðfangsefni, aðferðir og verkfæri sem gagnast
við margvíslegar aðstæður og úrlausnarefni.
Vefirnir
Vettvangurinn er tvískiptur: Annars vegar efnisvefur
með gagnlegum upplýsingum um skólastarf, ætlaður
hópum með margháttaðar þarfir og hins vegar sam-
félagsvefur þar sem kennarar og/eða foreldrar geta
skipst á skoðunum og leitað ráða hver hjá öðrum. Allir
vefirnir eru ritaðir á viðkomandi tungumáli til að halda
á lofti orðræðu sem viðeigandi er á hverju máli.
Upplýsingum um nám og kennslu tungumála og
íslensku sem annars máls hafa til þessa verið vistaðar
á vefjum hingað og þangað og eru lítt aðgengilegar
nema þeim sem vel til þekkja. Á Tungumálatorgi hefur
þeim verið safnað saman undir einn hatt.
Margir vefir torgsins tengjast kennslu íslensku sem
annars máls, íslensku sem erlends máls og íslensku
sem móðurmáls á erlendri grundu. Vefurinn Íslenska
sem annað mál og tengdir undirvefir eru vettvangur
kennara og kennsluráðgjafa um land allt sem tengjast
viðfangsefninu í leik-, grunn,- framhalds- og háskól-
um. Vefurinn Íslenska fyrir útlendinga tengist íslensku-
kennslu fullorðinna og tengdir námsefnisvefir eru
sjónvarpsefnið Viltu læra íslensku og námsefnið Íslenska
fyrir alla. Íslenska erlendis er samstarfsvefur íslenskra
Fig 1
28 MÁLFRÍÐUR
Þorbjörg St.
Þorsteinsdóttir.
Brynhildur Anna
Ragnarsdóttir.
Tungumálatorg –
Vettvangur tungumálanáms og kennslu10
Eymundsson.is
Þú færð orðabækurnar
í Eymundsson