Málfríður - 15.03.2011, Síða 31
við á meðan á náminu stendur. Dæmi úr kennslustof-
unni sem birt eru á torginu gagnast háskólakennurum
til að undirbúa nemendur sína fyrir vettvangsnám.
Nemendur geta jafnframt sent inn efni sem þeir hafa
unnið undir leiðsögn háskólakennara og leiðsagnar-
kennara. Tungumálatorgið býður upp á varanlegan
vettvang fyrir afrakstur af vinnu kennaranema, sem
jafnframt getur nýst reyndum kennurum.
Samantekt
Tungumálatorgið er einstakt fyrirbæri að því leyti að
það er umgjörð fyrir starfssamfélag kennara, nemendur
og foreldra sem tengjast öllum skólastigum og gerðum
fræðslustofnana, með þátttöku Menntavísindasviðs
Háskóla Íslands, mennta- og menningarmálamála-
ráðuneytis, Menntasviðs Reykjavíkur og fjölmargra
aðila í skólakerfinu. Allt efni er varðar málaflokkinn
er á einum stað án tillits til aldurs nemenda, búsetu,
skólastiga, tungumála eða gerða fræðslustofnana.
Tungumálatorgið getur orðið brú milli kennslu,
kennsluhátta og kennsluáherslna í grunn- og fram-
haldsskólum; leikskólum og grunnskólum; skólakerfis-
ins og símenntunarstofnana og ýtt þar með undir meiri
samlegð fagþekkingar og reynslu.
Á Tungumálatorgi er kominn vísir að vettvangi þar
sem fram fara gagnkvæm samskipti fagaðila, hug-
mynda og reynslu. Tungumálatorgið er í dag fyrir-
mynd að möguleikum á framsetningu efnis og sam-
starfs, möguleikum á hvernig hægt er að draga fram í
dagsljósið hið ósýnilega í starfi góðra kennara og bjóða
gestum inn í skapandi kennslustofur. Það sýnir jafn-
framt, hvernig hægt er að styðja innflytjendur til sjálf-
stæðrar þátttöku í íslensku samfélagi, hvernig kenn-
arar geta styrkt eigin starfsþróun með frjóum, opnum
umræðum og stuttum námskeiðum á vettvanginum,
hvernig hægt er að nýta það fé sem til umráða er þannig
að afrakstur af þróunar- og samstarfsverkefnum verði
sýnilegur og aðgengilegur öllum skólum á landinu
þeim að kostnaðarlausu.
Með Tungumálatorgi er settur fram vettvangur
til að skapa langtímaminni í skólastarfi og þróunar-
verkefnum með því að birta á einum stað dæmi um
verkefni sem vel hafa tekist og kennsluhætti sem skila
árangri. Kennsluhættir sem hafa gefið góða raun eru
gerðir sýnilegir með myndum, myndbandsupptökum
og sýnileiki kennarastarfsins verður meiri. Reynslan
hefur sýnt að vettvangur á borð við Tungumálatorg
auðveldar tengslamyndun kennara, hópa kennara og
við sérfræðinga og getur orðið vettvangur hagsmuna-
hópa kennara og nemenda um tiltekin tungumál, efni
og þróunarverkefni.
Tungumálatorgið stuðlar að hringrás þekkingar um
kennsluhætti, efni og áherslur fyrir nemendur með fjöl-
breyttan bakgrunn, þekkingu og þarfir, en til þess þurfa
tungumálakennarar að láta til sín taka, birta efni, skiptast
á skoðunum og veita hver öðrum uppörvun og ráð.
Í beinum samskiptum kennara
Á Tungumálatorgi býðst vettvangur fyrir starfsþróun
kennara. Þar samþættast fræði og framkvæmd með
ráðgjafarstuðningi. Ráðgjöfin fer fram í netsamfélag-
inu þar sem kennarar eiga að geta sótt í reynslubrunn
annarra kennara með þátttöku í umræðum og með
fyrirspurnum. Kennarar geta sett upp leshringi og
örnámskeið í lokuðum eða opnum hópum. Efni af
lengri námskeiðum má fylgja eftir með kennslu og
ráðstefnum á neti. Reynslan og þekkingin verður ekki
bundin við þá sem viðburðinn sóttu heldur verður hún
til í víxlverkun við sams konar reynslu annarra. Torgið
getur einnig veitt kennurum beinan aðgang að leiðsögn
í máli og málnotkun í ræðu og riti gegnum samskipta-
síður ef þörf krefur. Spuni2011 er fyrsta netnámskeiðið
sem haldið er á torginu. Á námskeiðinu er fjallað um
netverkfæri til náms og kennslu. Viðfangsefnið miðast
við þarfir á vettvangi og viðbrögð og umræður þátt-
takenda hafa mótandi áhrif á inntak námskeiðsins. Vel
má hugsa sér frekari námskeið í þessa veru.
Í ráðgjöf
Íslenskum kennurum stendur til boða ráðgjöf danskra
farkennara, ráðgjöf í kennslu íslensku sem annars máls
og ráðgjöf í norsku og sænsku. Ráðgjöf danskra far-
kennara er tímabundin og bundin takmörkuðu svæði á
landinu í hvert sinn. Ráðgjafar og danskir farkennarar
stoppa stutt við á hverjum stað. Undanfarið ár hefur
verið unnið að því í samvinnu við starfandi farkennara
að setja á „Rejselærerens hjørne“ áhugaverð viðfangs-
efni úr kennslustofum og upplýsingar um aðföng sem
geta nýst öðrum kennurum. Starf farkennaranns fær
því meiri slagkraft en ella og einskorðast ekki við skóla
og sveitarfélög þar sem kennarinn er hverju sinni.
Sama gildir um ráðgjöf og efni tengt margreyndum
leiðum í kennslu nemenda með íslensku sem annað
tungumál. Það verður aðgengilegra og áhrif víðtækari.
Það sem áður var miðlað á póstlistum og milli fámennra
hópa verður sett upp á vefsíður og í umræður á gagn-
virkum samfélagsvefjum. Tungumálatorgið auðveldar
flæði í efnismiðlun og eflir tengsl við vettvang. Ráðgjöf
og fræðsla á Tungumálatorgi nýtist þvert á fræðslustig
sem og á landsvísu.
Í tengslum kennaramenntunar og vettvangs
Lög um grunnmenntun kennara frá 12. júní 2008
kveða á um fimm ára menntun kennara sem lýkur
með meistaragráðu. Kennaramenntunin hefur vafalítið
hagsmuni af því að tengjast vettvangi skólastarfs fyrir
tilstilli Tungumálatorgs. Á torginu fá nemar og nýút-
skrifaðir kennarar aðgengi að fjölbreyttari leiðsögn
frá kennurum á vettvangi á örráðstefnum og með
áhugaverðum dæmum úr kennslustofunni. Þannig fá
kennara nemar breiðari hóp kennara að ráðfæra sig
MÁLFRÍÐUR 31