Fréttir - Eyjafréttir - 18.06.1998, Blaðsíða 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 18. júní 1998
Frá Maðamannafundinum á Hótel Sögu. F.v. Páll Marvín, Jeff Forster, Hallur Hallsson, Guðjón Hjörleifsson og Þorsteinn
Ingi Sígfússon.
Nú er ljóst að Keikó kemur til Eyja.
Free Willy Keiko samtökin hafa
tilkynnt íslenskum stjórnvöldum og
bæjaryfirvöldum í Vestmannaeyj-
um að hvalurinn Keikó verði fluttur
til landsins og komið fyrir í sjókví í
Klettsvík við Vestmannaeyjar í
september næstkomandi eða í síð-
asta lagi næsta vor.
Eflir að sendinefnd á vegum sam-
takanna fékk leyfi ríkistjómarinnar um
að flytja Keikó á „heimaslóðir" voru
aðstæður skoðaðar í Vestmannaeyjum
og Eskiftrði ásamt fleiri stöðum á
landinu. Varð lendingin sú að mati
nefndarinnar að velja Vestmannaeyjar
sem heimili Keikós.
A fréttamannafundi sem haldinn
var síðstliðinn þriðjudag lýstu að-
standendur Keikós í Bandaríkjunum
yfir þakklæti fyrir þann velvilja sem
Islendingar hafa sýnt Free Willy
samtökunum og lýstu lofsorði á þann
stuðning við málefnið sem kom fram
jafnt hjá Eskfirðingum og Vestmanna-
eyingum.
Að vel athuguðu máli komst stjóm
Keikó Foundatiom að þeirri niður-
stöðu að Vestmannaeyjar væm ákjós-
anlegur staður fyrir Keikó. Til
grandvallar niðurstöðu sinni leggur
stofnunin fram þau rök að aðstæður
við Vestmannaeyjar séu mjög ákjós-
anlegar.
Hallur Hallsson, fulltrúi Free Williy
Keiko samtakanna, segir að sjókvíin
sem Keikó mun dvelja í sé vel varin
fyrir veðri og sjó og að náttúrafegurð
sé óviðjafnanleg. „Bæjaryftrvöld hafa
sýnt okkur ómetanlegan stuðning og
ekki síst í ljósi Rannsóknaseturs
Vestmannaeyja og þess vísindstarfs
sem þar fer fram voru Vestmanna-
eyjar valdar og er þá ekki á nokkum
hallað varðandi staðarvalið. Það er
ekki nokkur vafi á því að það sem réði
úrslitum um staðarvalið er sú vís-
indastarfsemi sem fram fer í Rann-
sóknasetrinu. Framundan eru um-
fangsmiklar rannsóknir með þáttöku
vísindamanna alls staðar að úr
heiminum," segir Hallur.
Hvert verður framhald málsins?
„Sjókvíin sem hönnuð hefur verið
verður flutt til Islands og er væntanleg
á til Vestmannaeyja næstkomandi
laugardag með Hetjólfi og sem dæmi
um umfang þessa flutninga , þá er
kvíin flutt á fjórtán fjöratíu feta
flutningavögnum.
En hvað um frekara umfang þessara
flutninga og áhrif?
„Böm um víða veröld hafa staðið í
þeirri trú að Keikó verði sleppt lausum
-sbr. kvikmyndina - en það er fjarri
sannleikannum. Nú er stefnt að því að
því að flytja Keikó á heimaslóðir þar
sem hann geur synt í söltum sjó og
jafnvel átt samskipti við aðara háhym-
inga og vonandi rennur upp sa dagur
að Keikó syndi frjáls við Islands-
strendur.“
Free Willy Keiko samtökin hafa
notið stuðnings Time Wamer, Craig
McCaw Foundation, The Human
Society of the US, Matel, auk
stuðnings hvaðanæva úr heiminium,
svo sem dýra- og náttúruvemdar-
samtaka. Formaður Free Willy Keiko
samtakanna er Craig McCaw.
Rannsóknasetrið réði úrslitum
Veigamesti þátturinn í því að
Vestmannaeyjar urðu fyrir valinu
sem framtíðarheimili Keikós er sú
starfsemi sem Rannsóknasetur
Vestmannaeyja hefur unnið undan-
farin ár. Hlutverk Rannsóknaset-
ursins er að sinna rannsóknum og
þróun á breiðu sviði sjávarútvegs í
samvinnu við Háskóla Islands,
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins,
Hafrannsóknastofnun, Þróunarfé-
lag Vestmannaeyja og atvinnulífið í
Eyjum. Einnig er því ætlað að taka
á móti sérfræðingum og nemendum
frá hinum ýmsu háskólum sem
vinna að verkefnum er tengjast
Eyjum.
Páll Marvin Jónsson forstöðumaður
setursins segir að koma Keikós til
landsins muni efla þá starfsemi sem
unnin er í Rannsóknasetrinu og verða
mikil lyftistöng fyrir Eyjar. Hann seg-
ist og ekki sjá neina annmarka á því að
Keikó komi til Eyja. „Um að Keikó
geti borið með sér einhverja sjúkdóma
sem áhrif gætu haft á vistkerfið hér tel
ég ekki vera fyrir hendi. Hins vegar er
rennt blint í sjóinn með það hvemig
hann mun taka vistinni."
Páll Marvin segir að þetta sé gífur-
legt tækifæri til rannsókna á Keikó og
náttúrunni og komi til með að vekja
áhuga og athygli. „Það starfa 15
háskólamenntaðir menn við setrið og
þetta mun verða mikil lyftistöng fyrir
það. „Rannsóknir verða aðallega at-
ferlisrannsóknir og erfðafræðilegar
rannsóknir hvala og háhyminga.“
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri
segir að niðurstaða Free Willy Keiko
samtakanna sé mjög ánægjuleg. „Við
geram ráð fyrir því að ferðamönnum
muni fjölga og störfum, sem muni
skila auknum tekjum í bæinn og að
rannsóknastarf muni eflast til muna.
Auk þess fylgja Keikó tíu manns sem
sjá munu um hann, svo það fjölgar
strax í bænum. Það sem er næsta
verkefni bæjarins í þessu máli er að sjá
um að dýpka í Klettsvíkinni svo að
hægt veði að koma kvínni fyrir sem
Keikó mun dvelja í. Einnig þarf að
gera yfirborðsmælingar á flugvell-
inum vegna flugvélarinnar sem koma
mun með Keikó, en hugsanlega er
þyngd vélar og hvals of mikil fyrir
völlinn. Það er hins vegar mál sem
auðvelt er að kippa í liðinn."
Guðjón segir að erfitt geti verið að
átta sig á öllum áhrifum sem fylgja
komu Keikó til Eyja, hins vegar sé
það ljóst að ákveðin uppbygging muni
fylgja í kjölfarið. „Þetta er ekki mikil
fjárfesting og ágóðinn er vel umfram
þá fjárfestingu."
Guðjón leggur áherslu á fagleg
vinnubrögð nefndarinnar sem mat
aðstæður á hinum ýmsu stöðum á
landinu. „Vetmannaeyjar buðu ekkert
umfram aðra, þegar aðrir vora komnir
af stað. Þetta var metið og kostir og
gallar skoðaðir sem síðan gefa ákvðna
niðurstöðu og ég get ekki verið annað
en ánægður með hana. Umbjóðendur
Keikós í Bandaríkjunum komu til
okkar eftir að við buðum Vest-
mannaeyjar sem hugsanlegan valkost
og höfðum betur í málinu. Þetta var
heiðarleg samkeppni. Það fylgir hins
vegar vandi vegsemd hverri og mikil
vinna framundan, en augu manna
munu mjög beinast að Vestmanna-
eyjum þegar Keikó verður kominn og
við munum leggja okkur alla fram um
að gera dvöl Keikós hér sem ánægju-
legasta.“
Hefði verið óhugs-
andifyrirtíuáram
-segir Þorsteinn Ingi Sigfússon
Þorsteinn Ingi Sigfússon hefur átt
einn stærstan þátt í hugmynda-
vinnunni að baki því að fá hvalinn
Keikó hingað til Vestmannaeyja.
Hann segir að Keikó hefði ekki
verið hugsanlegur fyrir tíu áram og
menn verið taldir snarvitlausir að
velta hugmyndinni fyrir sér. „Menn
hefðu þá haft þessa hvalfangara-
aðkomu að málinu. Hins vegar tel
ég að vel geti farið_ saman að nýta
sjávarspendýr við Island og halda
Keikó. Ég held að íslendingar haft
sannað það að geta unnið þetta í
sjálfbærri þróun. Ég er hlynntur
sjálfbærri þróun sjávarspendýra um
leið og ég er hlynntur því að við
notum okkur, þann mátt sem felst í
kennslu og fræðslu varðandi
Keikóævintýrið. Þetta getur allt
farið saman. Varðandi aðkomu
mína að Keikómálinu held ég að við
höfum verið að gera rétta hluti með
því að setja Rannsóknarsetrið og það
starf sem þar hefur verið unnið í
öndvegi. Ég held að okkur haft tekis
mjög vel að koma þessari sýn okkar
til skila og einn meginþátturinn í því
er sterk tengsl við samfélagið."
Þorsteinn segir að hugmyndin um
komu Keikó dl Vestmannaeyja falli
vel að því starfi sem unnið hafi verið
undanfarin fimm ár í Rannsókna-
setri Vestmannaeyja og hann bætir
við að stefnumörkun stjómar sam-
starfsnefndar Háskólans og Vest-
mannaeyja hafi orðið til að styrkja
enn frekar þetta starf. „Rannsókna-
setrið í Eyjum hefur einbeitt sér að
þjálfun ungs fólks í nánum tengslum
við náttúrana. Þessi vinna hefur leitt
til alþjóðlegra verðlauna fyrir rann-
sóknir skólafólks á líffræði loðnunn-
ar árið 1996. Auk þess vann hópur
Þorsteinnlngi.
skólafólks frá Eyjum til verðlauna í
Hugvísi veturinn 1998 og mun
kynna verkefni sitt í Berlín í haust."
Þorsteinn hefur einnig lagt fram
hugmynd sem hann tengir hinni
fomu grísku sögu um véfréttina í
Delff, en hún var augu og eyra þeirra
sem vildu og jafnvel sáu inn í
framtíðina." Með hugmyndinni um
Delfí í Vestmannaeyjum er unnið
áfram með þetta hugtak. Upp-
lýsingatækni er notuð til þess að
tengja ungt fólk náttúrunni, rann-
sóknum á henni og vöktun um-
hverfisins. Þetta er ekki ósvipað því
og gert var í bandaríska JASON
verkefninu sem sent var út frá
Eyjum til skólafólks í Norður
Ameríku í fyrravetur. Nú þegar
ákveðið hefur verið að Keikó kemur
til Eyja verður þetta starf kórónað og
fær nýjar víddir."
Rannsóknaaðstaða og hítastig vðgu hungt
Hullur Hallsson er talsmaður Free
Willy Keiko samtakanna á íslandi
og hefur séð um samskipti við fjöl-
miðla og útréttingar á málum sem
þarf að annast varðandi komu
Keikós til Islands.
„Þetta hefur verið mikið starf
undanfarna mánuði og verður enn þá
meira á næstu mánuðum og miss-
eram,“ segir Hallur.
Kemur þú til með að flytja til Eyja?
„Þegar stórt er spurt er oft lítið um
svör. Ég sé það að minnsta kosti fyrir
mér að ég muni koma til með að vera
mikið í Eyjum eftir að Keikó kemur.
Mínum afskiptum af málinu er hvergi
nærri lokið. Þetta er mál sem á eftir að
þróast, en með hvaða hætti það verður
leiðir tíminn í ljós. Fulltrúar Free
Willy Keikó samtakanna, sem komið
hafa hingað til lands og kannað að-
stæður, hafa verið feikilega ánægðir
með allar móttöku og hvemig
forsætisráðherra hefur tekið á málinu
og ekki síst Vestmannaeyingar. Þeir
era mjög ánægðir með aðstöðuna sem
er í Vestmannaeyjum og ekki síst þátt
Rannsóknasetursins og aðkomu þess
að málinu.“
Hallur segir að rök nefndarinnar
hafi verið að sú rannsóknaraðstaða
sem fyrir hendi sé í Eyjum hafi vegið
einna þyngst. „Annað sem nefndin
lagði til grandvallar er aðstaðan í
Klettsvíkinni. Þar er skjólgott og
hitastig sjávar hæst af þeim stöðum
sem skoðaðir vora. Það væra háhym-
ingar um hverfis Vestmannaeyjar og
nú væri unnið að veigamiklum
rannsóknum á háhymingum við
Island. Auk þess sem náttúrafegurð
við Eyjar hafi haft mikið að segja og
er þá ekki verið að kasta rýrð á
náttúrafegurð annars staðar á landinu.