Fréttir - Eyjafréttir - 18.06.1998, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 18. júnf 1998
Fréttir
9
Ibúðir aldraðra
íbúðin að Eyjahrauni 4 er laus til umsóknar.
Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri í síma 481
1092. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Ráðhússins, kjallara
og skilað á sama stað fyrir 1. júlí nk.
Vegna komu starfsmanna Keikósjóðsins
óskar Þróunaifélagið að taka á leigu
húsnæði fyrir 12 manns.
Lysthafendur hafi samband
við Þróunaifélagið sem fyrst,
sími481 1111
Vegna komu Keikós óskum við eftir a.m.k. tólf
verkamönnum sem hefðu áhuga á vinnu við
samsetningu kvíar fyrir Keikó.
Upplýsingai' í síma 481 1111
Hljómsveit Peabody tónlistarskólans
heldurtónleika í Eyjum
Tónlistanriðburður
Á morgun 19. júní mun
hljómsveit Peabody tónlistar-
skólans í Bandaríkjunum halda
tónleika í Hvítasunnukirkjunni.
Hljómsveitin samanstendur af 48
úrvalsnemendum Peabodyskól-
ans. Á tónleikunum mun hljóm-
sveitin leika þrjú verk, Ófullgerðu
sinfóníuna eftir Schubert, Sjöttu
sinfóníu Bethovens sem oft er
kölluð pastorale og Víólukonsert
eftir Bob Sirota skólastjóra
Peabodytónlisarskólans Pea-
body tónlistarskólinn er mjög virtur
skóli og hefur hann staðið fyrir tón-
leikaferðum víðsvegar um lönd
undanfarin ár. Rétt er að hvetja
Vestmannaeyinga til þess að
mæta á tónleikana, því það er ekki
á hverjum degi sem sinfóníu-
hljómsveit leikur í Eyjum. í för með
hljómsveitinni er Ijósmyndari frá
bandarísku blaði. Hljómsveitin
mun halda til Reykjavíkur að
lokinni veru sinni í Eyjum, en
þaðan fer hljómsveitin til
Skotlands. Tónleikarnir hefjast
klukkan 20:00 og rétt að vekja
athygli á því að aðgangur er
ókeypis.
Sem fyrr mun Björgunarfélag Vestmannaeyja sjá um
kennsluna í „Sprangi" og verður kennt daglega,
inni við Spröngu, frá klukkan 14 til klukkan 18,
mánudaga til föstudaga.
Kennslan mun standa yfir í þrjár vikur og er ókeypis.
Tómstunda- og íþróttafulltrúi
v aÍ ÉÍT**—
. Jj
U'
Þátttakendur í Golfævintyri hafa haft í nógu að snúast á hverjum degi. Hér eru nokkrir
áhugasamir að æfa sveifluna
Aðalsteinn sigurvegari á Net og
Hampiðjumótinu
Góð þátttaka var í Net og Hampiðju-
mótinu, sem haldið var laugardaginn
fyrir sjómannadag, eða 36 manns. I
keppni án forgjafar urðu þrír efstu:
1. Aðalsteinn Ingvarsson 71 högg
2. Gunnar G Gústafsson 74 högg
3. Júlíus Hallgrímsson 75 högg
Með forgjöf urðu þessir efstir:
1. Brynjar S Unnarsson 63 högg
2. Karl Haraldsson 65 högg
3. Garðar H Eyjólfsson 65 högg
Öll verðlaun voru gefin af Net og
Hampiðjunni, ýmiss konar vamingur
til golfiðkunar og voru þau hin glæsi-
legustu eins og venjulega.
Jónsmessumótið um helgina
Það verður nóg að gerast um helgina í
golfinu. Sveinsstaðaættin verður með
lokað mót á föstudag og laugardag.
En á laugardag kl. 14 verður blásið til
Jónsmessumótsins sem er einhver
skemmtilegasta keppni ársins. Þetta
er snærisleikur í léttum dúr og fá
þátttakendur forgjöfina sína í formi
snærisspotta sem þeir svo geta skorið
af og lagað hjá sér stöðuna eftir
hentugleikum. Þetta hefur ávallt verið
ein fjölsóttasta keppni ársins og eru
keppendur beðnir að skrá sig sem
fyrst. Lokaskráning er kl. 20 á föstu-
dag og er þýðingarmikið að fólk skrái
sig fyrir þann tíma vegna þess að
talsverður undirbúningur er fyrir þessa
keppni, spottanna vegna.
Kvennamótið blásið af
Um síðustu helgi stóð til að halda
svonefnda Kvennaparadís í golfi hjá
GV. I fyrra var aðsókn mjög þokka-
leg en nú brá svo við að aðsókn var
það lítil að aflýsa varð mótinu. Þá var
æfingasvæði golfklúbbsins.
og hætt við Hatta- og kjólakeppnina
en hún verður haldin síðar í sumar.
GV sigraði á Nesinu
Síðasta laugardag var farið í heimsókn
til Nesklúbbsins á Seltjamamesi en
klúbbamir skiptast á heimsóknum
árlega. Mjög góð þátttaka var í
mótinu að þessu sinni af hálfu Eyja-
manna eða alls 32 keppendur og
annað eins frá Nesklúbbnum. Vegna
þessa mikla íjölda þátttakenda og eins
þess að Nesvöllurinn er aðeins níu
holur, var bmgðið á það ráð að spila
með „Texas Scramble" fyrirkomulagi
en þá em þrír saman í liði frá hvomm
klúbbi og alltaf valinn besti bolti.
Þetta gefur í nær öllum tilvikum miklu
betra skor en í venjulegum höggleik.
Aftur á móti hefur þettta í för með sér
að ekki er hægt að tíunda árangur
hvers keppenda. En GV sigraði í
keppninni og mun það í fyrsta sinn
sem aðkomuliðið ber sigur úr býtum í
þessari keppni.
Golfævintýri lýkur á morgun
Golfævintýri GV hófst á mánudag og
því lýkur á morgun þegar þátttakendur
fara héðan en viðurkenningar og
verðlaunaafhendingar fara fram í
kvöld. Þetta er mót fyrir unglinga að
16 ára aldri. Að jtessu sinni em
þátttakendur 90 úr 12 klúbbum. Er
það nokkur fækkun frá síðasta ári.
Höfuðástæða þess mun vera sú að
vinnuskólar á landsbyggðinni starfa í
júnímánuði og því tíma ekki þessir
ungu kylfmgar að missa af þeim
tekjum. Stjóm GV mun því alvarlega
íhuga að færa þetta mót fram í júlí á
næsta ári til að fá betri þátttöku.
Stíf dagskrá hefur verið alla dagana
frá kl. átta að morgni til kl. tíu að
kvöldi. Að mestu byggist Golfævin-
týrið upp á golfi, bæði æftngum, golf-
kennslu og keppni en að auki er margt
annað á dagskrá, svo sem skoðunar-
ferðir, bíóferðir, sund, grillferðir og
fleira.
Auk heimamanna er valinn hópur
landsþekktra kylfinga sem sér um
kennslu og æfingar. Þar má nefna
Suðumesjamanninn Örn Ævar Hjart-
arson, sem nýlega sló vallarmetið á St.
Andrews; Ólöfu Maríu Jónsdóttur frá
Hafnarfirði, íslandsmeistara kvenna;
Jón Karlsson. unglingaleiðbeinanda
GSÍ og Ingólf Pálsson frá Nesklúbbn-
um en allt er þetta golffólk í fremstu
röð.
Eins og áður segir lýkur Golfævin-
týrinu á morgun og munum við greina
nánar frá því í næsta blaði.
Ofurkonan í Golfklúbbnum
Svo er hér ein lítil saga frá
Golfævintýrinu sem við getum ekki
stillt okkur um að láta íylgja með.
Ásamt aðkomufólki hafa félagar úr
GV séð um aðstoð og leiðbeiningar.
Ein aðkomukonan í hópnum gat ekki
orða bundist þegar bömin sögðu henni
að þama væri að störfum ofurkona úr
Vestmannaeyjum. Hún kenndi þeim
almenna kennslu á vetuma, á sumrin
kenndi hún sund á morgnana og golf
eftir hádegið og svo ætti hún og ræki
leikfangabúð. Konan trúði því tæplega
að slík ofurkvendi fyrirfyndust en fór
út á völl og sannfærðist um að allt var
þetta rétt. Þessi ofurkona heitir Katrín
Magnúsdóttir, kennari, sundkennari,
golfkennari og kaupmaður í Oddinum
og auk alls þessa sér hún um heimilið
íyrir Sigurgeir, okkar mann á Fréttum.
Tæplega margar frístundir sem gefast
hjá henni.
Pentium tölva til sölu
40 mb vinnsluminni, 17 tommu skjár,
módem o.fl. Forrit og leikir að
verðmæti ca. 150 þús. fylgir með.
Upplýsingar hjá Þorsteini í síma 481
2433
Verslunarhúsnæði að Skólavegi 4 til sölu.
Upplýsingar hjá Lögmönnum í Vestmannaeyjum
eðaísíma481 1779
Húsnæði
Þriggja herbergja íbúð til leigu.
Upplýsingar í síma 481 201 I.
BMW
BMW 1991, ekinn 111 þúsund km.
til sölu. Bíllinn er 4 dyra, vínrauður,
sjálfskiptur og með honum fýlgja
bæði sumar og vetrardekk.. Útvarp,
segulband, rafmagnsrúður,
rafmagnsspeglar, vökvastýri,
samlæsingar, þjófavörn og litað gler.
Álfelgur geta fylgt.
Upplýsingar í síma 896 3555
Lundaveiáimenn og
úteyjaíélagar
Munið eftir veiðiskýrslum og endumýjun veiðikorta fyrir
lundaveiðitímann 1998.
NátturuHtofa Suðurlands og veiðistjóri
Nánari upplýsingar í síma 481 1111