Fréttir - Eyjafréttir - 18.06.1998, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 18. júnf 1998
Fréttir
17
Auður og Gunnar Ingi í Smart hafa gert föt að sínu fagi.
Gunnar Ingi og Auður í Smart:
Til er fólk sem
gerir sér ekki
grein fyrir því
hvað gott er að
búa í Eyjum
-segja þau í viðtali við Fréttir
þar sem þau rekja í stórum
dráttum verslunarsögu sína
Verslun á landsbyggðinni er sögð
standa höllum fæti, ekki síst er það
sagt eiga við sérverslanir. Sam-
keppni í verslun fer vaxandi, versl-
unum fækkar og verslunarkeðjur
ná stöðugt stærri hluta markað-
arins. Um leið hafa bættar sam-
göngur orðið til þess að landið er
orðinn einn samfelldur markaður.
Þetta hefur geftð verslunum á
Reykjavíkursvæðinu forskot því
þar er markaðurinn stærstur. En til
eru þeir sem gefa öllurn kenn-
ingum um dauðadæmda lands-
byggðarverslun langt nef, koma á
fót myndarlegum sérverslunum og
komast upp með það. Dæmi um
þetta eru Gunnar Ingi Gíslason og
Auður Asgeirsdóttir sem reka
tískuverslunina Smart í Vest-
mannaeyjum.
Urðu að læra af reynslunní
Gunnar Ingi og Auður eru ung að
árum, hann fæddur 1. nóvember 1968
og hún 19. nóvember 1974. Saman
opnuðu þau Snrart 1. september 1995.
Hvomgt hafði reynslu af rekstri, hann
kom af sjónum með viðkomu á
veitingastað og hún var rétt að komast
út á vinnumarkaðinn. Reynsluleysið
hefur að sumu leyti orðið þeim
dýrkeypt en með hjálp ættingja, vina,
viðskiptavina og fólks sem þau hafa
verslað við hefur dæmið gengið upp
og Smart er í dag ein besta verslun
landsins í sínum flokki.
Þegar Gunnur Ingi er spurður að því
hvers vegna hann haft farið af stað
með Snrart segir hann að það hafi ekki
verið spurning hvort heldur hvenær
hann hellti sér út í kaupmennskuna.
„Maður getur sagt eftir á að þetta hafi
verið bölvuð vitleysa en ég var búinn
að vera með þetta í maganum í mörg
ár. Meira að segja var ég búinn að fá
húsnæði tveimur árum fyrr en það
stóðst ekki þegar á reyndi. Þegar mér
svo bauðst húsnæði í Drífanda sló ég
tU,“ segir Gunnar Ingi.
Ævintýramennska
Auður og Gunnar Ingi vom á þessum
tíma farin að mgla saman reytum og
kom aldrei annað til greina en að þau
færu saman í slaginn. „Auðvitað var
þetta ævintýramennska en Gunnar
vildi þetta. Það kom heldur aldrei
annað til greina en að gera þetta með
stæl," segir Auður og það hafa þau
staðið við.
Þau tóku strax ákvörðun um að
reyna að þjóna sem flestum enda
markaðurinn í Vestmannaeyjum ekki
stór. „Við emm með tískufatnað á
allan aldur, sérhæfum okkur ekki í
einum einum aldurshópi nema við
emm ekki með bamaföt. En
unglingamir, foreldrar þeirra og afi og
amma eiga öll að geta fundið eitthvað
hjá okkur, allt frá femringarfötum og
upp úr. Það em nokkur dæmi um að
þrír ættliðir úr sömu ljölskyldunni
skipti við okkur," segir Auður.
Þau eru sammála um að viðtökur
haft strax verið frábærar enda lögðu
þau upp með að vera með fyrsta
flokks vöm og þau auglýstu grimmt.
„Það má líka segja að við höfurn
komið inn á mjög góðum tíma.
„Tímasetningin var frábær því á sama
tíma fer af stað uppsveifla í
bæjarlífinu. Hún er enn til staðar og á
sinn þátt í því að Smart er dæmi sem
gengið hefur upp," segir Gunnar Ingi.
Frá því verslunin opnaði hafa þau
verið að þróa verslunina og sjá út hvað
hentar best markaðnum. „Nú emm við
með góða blöndu af tískuvöru,
íþróttafatnaði og geisladiskum. Þessir
vöruflokkar virðast eiga mjög vel
saman. Við gemm líka eitt sem ekki
hefur tíðkast í Vestmannaeyjum,
tvisvar á ári er allur lagerinn settur á
útsölu til að rýma fyrir nýjum vömm.
Viðskiptavinir okkar hafa sýnt að þeir
kunna að meta þennan verslunarmáta
og það ánægjulegasta við reksturinn er
að við erum að eignast vini meðal
viðskiptafólks sem sýnir að fólk
treystir okkur," segir Gunnar.
Þegar komið er inn á stöðu verslana
í Vestmannaeyjum segir Gunnar of
mikið gert úr því að verslunin sé að
fara úr bænum. „Auðvitað verslar fólk
uppi á landi og í útlöndum en okkar
reynsla er sú að aðkomufólk sem
hingað kemur er tilbúið að versla lítist
því á verð og gæði. Ég tók þetta
saman eftir fyrsta árið og kom í ljós að
fimmtungur veltunnar var sala til fólks
sem hér var í fríi. Þetta hlutfall hefur
eitthvað lækkað en samt afgerandi í
rekstri Smart.“
Stöndumuelaðvígi
Gunnar segir að þetta eigi ekki að
koma á óvart því þau bjóði upp á
rjómann af sambærilegri vöru í
Reykjavík. „Þetta á ekki bara við
Smart, aðrar verslanir í Vestnranna-
eyjum standa sig mjög vel hvað
vöruúrval varðar. Við erum í inn-
kaupasamstarfi við verslanimar Kókó
og Kjallarann sem eru stór nöfn í
tískuheiminum í Reykjavík, em með
verslanir á Laugaveginum og í Kringl-
unni. Það er í mínum verkahring að
Nú þegar sumarfríin eru að byrja, er
gott að kynna sér hvað er til boða hér
á landi. Ég veit að Vestmannaeyingar
vilja njóta sumarfrísins sem best og vil
því kynna ykkur hvað við höfum upp
á að bjóða hér á Seyðisfirði. Hér er
löng hefð fyrir hvers konar músík og
mcnningaruppákomum.
„A Seyði“ stendur fyrir listasumri
ár hvert. Menningarmálafulltrúar í ár
em þær Aðalheiður Borgþórsdóttir og
Gréta Garðarsdóttir. Opnun sýning-
anna „A Seyði“ verður laugardaginn
20. júní kl. 17.00 við menningar-
nriðstöðina Skaftafell. Sýningin
verður vítt og breitt urn bæinn og alls
kaupa allan herrafatnað fyrir þessar
búðir um leið og ég kaupi inn fyrir
Smart. Mér er engin launung á því að
samstarfið hefur hjálpað okkur mikið.
Við skipuleggjum sameiginlegar
innkaupaferðir til útlanda og svo sjá
þeir um að leysa út vöruna og senda
okkur. Þetta fyrirkomulag hefur náð
að auka framlegð verslunarinnar
umtalsvert.“
Eins og áður hefur komið fram
höfðu Auður og Gunnar litla sem enga
reynslu af verslunarrekstri þegar þau
opnuðu Smart. „Hvað við höfum lært
á þessum tíma?" segir Gunnar þegar
þessi spuming er lögð fyrir þau. „Við
höfum orðið að læra allt en við höfum
h'ka verið heppin að því leyti að allir
sem við höfum skipt við hafa hjálpað
okkur mikið. Við höfunr aðeins tapað
á einum aðila sem við höfum verslað
við.“
Hafagertsínmistök
Hefur þetta ekki kostað það að þið
hafið gert margar vitleysur? ,Jú. Guð
minn almáttugur," segir Gunnar og
heldur áfram. „Fólki finnst kannski
mikið að gera hjá okkur en ein vitlaus
innkaup geta orðið til þess að við
verðum launalaus heilt sumar. Það
getur verið vitlaus jakkafatasending,
vitlaus litur eða eitthvað sem larið er
úr tísku og gróðinn hverfur út um
gluggann.“
ViljumbúaíEyjum
Þau leggja þó áherslu á að þau vilja
ekki láta vorkenna sér og þegar upp er
staðið sé fólk ánægt með framtak
þeirra. „Þetta getur verið nrjög gefandi
þegar fólk kemur til manns og hrósar
okkur fyrir gott vöruúrval og góða
konar uppákomur verða í allt sumar.
Ég vil hvetja ferðafólk, hvort senr þið
eru á leið um landið eða farið með
Nörrænu út, komið og sjáið hvað við
höfum upp á að bjóða.
Og hver gleymir austfirsku veðri
þegar sólin skín og húsin og fjöllin
glampa í spegilsléttum firðinum. En ef
það skyldi koma skúr þá er ekki síðra
að njóta þess sem hér er að gerast.
Meðal helstu atriða eru minn-
ingarsýning um Dieter Rot í Skafta-
felli sem verður opnuð 20. júní. Sama
dag verður opnuð sölusýning með
verkum Stefáns V.J. Stórvals frá
Möðrudal og unr leið opna nokkrir
þjónustu. Þegar við förum út að
skemmta okkur erum við að rekast á
ánægt fólk í fötum frá okkur og þá
verður maður svolítið stoltur. En svo
er það nú einu sinni þannig að þú
getur verið með 99 ánægða
viðskiptavini en einn óánægðan og þá
langar þig mest til að fara að gráta,"
segir Auður og hlær.
Það hefur ekki farið hjá því að
Auður og Gunnar hafa orðið mjög
áberandi í bæjarlífinu eftir að þau
opnuðu Smart. Þau hafa farið eigin
leiðir í að koma sér á framfæri og
besta dæmið um það er þegar þau tóku
flugstöðina á leigu undir tískusýningu.
Það hitti í mark og þau fylltu
llugstöðina. Þegar þau eru spurð að
því hvorl þessu fylgi mikið umtai
segja þau erfitt að neita því. „Maður
hafði oft heyrt að fólk sem er áberandi,
sérstaklega í smærri bæjarfélögunr
lendi auðveldlega á milli tannanna á
fólki. Auðvitað heyrir rnaður síðastur
hvað sagt er um mann en ég hefði
aldrei trúað því hvað fólk getur lagst
lágt og þar höfum við fengið okkar
skammt,“ segir Gunnar.
„Ég vil leggja áherslu á við höfum í
langflestum tilfellum mætt skilningi
og Smart hefði aldrei orðið að
veruleika nema vegna vina, ættingja
og viðskiptavinanna sem eiga í
versluninni eins og við. Okkur líður
lfka vel í Vestmannaeyjum og erum
nýlega flutt í hús sem við erum að
gera upp. Hér erum við tilbúin til að
eyða ævinni. Ég held að fólk geri sér
ekki grein fyrir því hvað gott er að búa
hérna. Ég vitna oft f góðan vin minn
sem sagði: -Ef þú átt góða vini hérna
er hvergi betra að búa en í
Vestmannaeyjum," sagði Gunnar Ingi
Gíslason að lokurn.
listamenn sýningu í Barnaskólanum.
Þann 21. júní verður Menningardagur
bama.
I kirkjunni verða tónleikar öll
miðvikudagskvöld í sumar. Víkinga-
hátíð sem Hótel Snæfell stendur hefst
I. júlí og stendur til 5. júlí. Dagana 3.
Og 4. Júlí verður Hljómastefna '98
sem er tónlistarmót á Seyðisfirði. Þá
verður boðið upp á götuleikhús og
þann 15. ágúst verður Landsmót
hagyrðinga á Seyðisfirði undir stjórn
Hákonar Aðalsteinssonar.
Verið velkomin,
Karólína Þorsteinsdóttir.
LESENDABREF - Karólína Þorsteinsdóttir skrifar:
ÍE1!
Menningardagar á Seyðisflrði