Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 20.12.1998, Blaðsíða 18

Fréttir - Eyjafréttir - 20.12.1998, Blaðsíða 18
18 Fréttir Sunnudagur 20. desember 1998 lfíst hjá góðu fólki „Já, það var ekkert um það að tala, ntaður varð að fara að vinna til þess að fækka munnunum sem metta þurfti á heimilinu og þá fór ég í vist að passa böm. Eg fór til Reykjavíkur og var þar í tvö ár. Ég var þar hjá mjög góðu fólki, Bjama Sighvatssyni, sem seinna varð bankastjóri í Eyjum, og Kristínu Lámsdóttur frá Stakkagerði. En á vorin, eftir að ég var orðin táningur, fannst mér ég alltaf þurfa að komast í burtu frá Eyjum. Það var eins og kæmi eitthvert óyndi í mig á vorin. Þá sagði ég mömmu að ég vildi fara og hún leyfði mér það. Ég var tólf ára gömul þegar ég fór fyrst að passa böm, en vorið sem ég fermdist kom Kristín Lárusdóttir hingað og ég fór með henni suður til Reykjavíkur og var hjá henni upp undir tvö ár og leið þar afskaplega vel, ráðin upp á fæði og húsnæði og eitthvert smávegis kaup. Mig minnir að það hafí verið tuttugu og fimm krónur á mánuði. Annað sumar fór ég og var þá hjá læknisdóttur í Reykjavík.“ Hvernig var að vera stúlka í húsi í Reykjavík. eða skyldi maður segja stofupía? „Kristín tók mig eiginlega sem barnið sitt því að mamma bað hana fyrir mig. Én hætturnar í Reykjavík voru ekkert líkar því sem þær eru nú. Þá gat ntaður farið allra sinna ferða og það var mjög gaman í Reykjavík, og eins að fara út úr bænum á alls kyns skemmtanir. Þess vegna fannst mér líf mitt áður en ég fór að basla mjög skemmtilegt og er mjög ánægð með það og bemskuárin. Mér fannst ég vera mjög frjáls. Það getur vel verið að mamma hafí viljað að ég lærði eitthvað hjá þessari góðu konu í Reykjavík og í raun þá lærði ég það hjá henni sem ég hef búið að alla tíð í því hlutskipti mínu að sjá um heimili. Þar lærði ég að elda og baka, sem ég bætti svo við á langri ævi. Kristín lét mig saurna í og sjá um hvers kyns viðgerðir á fötum. Én hún þrælaði mér ekkert úl og var mjög góð við mig. Hún átt drengi sem voru í skóla og hún var að lesa með þeim og spurði mig hvort ég vildi ekki lesa dönsku þennan vetur eins og strákamir, og ég gerði það, en það gleymdist þó mjög fljótt eftir að ég var komin út í skarkala lífsins. En mér þótti mjög gaman að þessu og var enginn eftirbátur strákanna. Þetta var mjög yndislegt heimili. Húsið var stórt, Bámgata 16 og ólíkt því sem ég átti að venjast. Það var að vísu alltaf gaman í Eyjum á vertíðum þegar bærinn var l'ullur af fólki, en það kom einhver leiði ylir mig þegar allt þetta fólk var farið að vori. Ég fór líka austur á land og var þar hér um bil eitt ár hjá móðurfrænda mínum. En þegar ég kem heim til Eyja á ný kynnist ég manninum rm'num." Hjónaband Alla er 18 ára þegar hún giftist fyrri manni sínum, Bernódusi frá Sand- prýði, og eignast fyrsta barnið. „Það má eiginlega segja að erfiðleikarnir hefjist þá,“ segir Alla. „Þetta var hins vegar mjög algengt í þá daga og ólíkt því sem nú er. Það var einhvem veginn eins og stelpur yrðu að vera komnar í hjónaband 18 eða 19 ára. Þá vom ekki þessi tækifæri sem nú em og við hefðum gjarnan viljað hafa þegar við vorum ung. Þegar ég geng með fyrsta bamið er ég heima hjá mömmu um sumarið, en Bernódus var á síld. Þá vom reyndar eldri systkini mín farin að heiman." Hvar kynntist þú manninum þínum? „Það var nú bara á dansleik héma í Eyjum. Við höfðum að vísu gengið saman í skóla, sem krakkar, en þá var ég nú ekkert að spá í hann. En ári eftir er ég orðin ófrísk og þar næsta ár aftur. Við fórunt náttúrulega að búa, við mjög kröpp kjör á Haukfelli við Hvítingaveginn, í mjög lélegri íbúð sem var full af raka og sagga. Það lá við að það læki á mann í rúminu. Þetta gekk nú samt sæmilega fyrstu árin og við liðum engan skort, en við áttum ekki neitt, nema borð, nokkra stóla og rúm að sofa í. Þama á Hvítinga- veginum fæðist annað bamið okkar, en þá lluttumst við niður í London við Miðstrætið og bjuggum þar í fimm ár.“ Ógæfandynuryfír Bemódus var á sjó, fyrst sem vélstjóri, en svo fór hann á stýrimannanámskeið og var búinn að vera skipstjóri í þrjár vertíðir þegar ósköpin dynja yfir. „Hann var 36 ára þegar hann deyr úr lungnakrabbameini. Hann lör að kenna þessa sjúkdóms síðast í nóv- ember 1956, bar sig þó vel fram yfir jól og áramót, en fer til Reykjavíkur á sjúkrahús í janúar og deyr 11. febrúar 1957, ljórum mánuðum síðar. Ég fór suður undir það síðasta, eða þrentur dögum áður en hann dó, en ég var aldrei beðin um að koma og finnst það skrítið eftir á, af því að ég vissi hvað hann var orðinn veikur. Mér fannst að ég þyrfti að fá að sjá hann eins og hann var, en það varð aldrei og ég kom með hann heim í kistu. Síðan gekk þetta hefðbundna leið og ég var ein með allan bamahópinn, eitt tveggja ára, fjögurra, sjö, tíu, tólf, fjórtán og sextán, og vissi ekki í hvom fótinn ég átti að stíga.“ En í hvom fótinn steigstu svo? „Á þessum tíma fannst mér ég vera alein í heiminum. Ég tók skrefið áfram og reyndi að berjast. Við vomm sem betur fer búin að kaupa okkur gamalt hús, Borgarhól, þar sem við höfðum skjól. Okkur hafði gengið illa að fá leigt því að við vomm með svo rnörg böm.“ Var þetta viðhorf algengt til bamafjölskyldna á þessum ámm? „Já, þegar við þurftum að fara úr London fór ég af stað til að leita að húsnæði til leigu og viðkvæðið var að börnin væm svo mörg og að þau eyðilegðu allt og skemmdu, svo ég varð að snúa við með nei í farteskinu. Á endanum leigði mágur systur minnar okkur smákjallara og það sem mér fannst dýrðlegast af öllu var að þar var klósett, því hafði ég ekki kynnst fyrr. Við erum þama í kjallaranum í tvö eða þrjú ár áður en við keyptum Borgarhól. Hann fór svo undir hraun í gosinu, en þar bjó ég í tuttugu og sex ár. Það var ekki alltaf dans á rósum í því húsi, en það var líka oft mjög gaman með þennan stóra systkinahóp." Suniarið eftir að Bemódus deyr fer Alla í burtu með yngsta drenginn því að bróðir Bemódusar bauð henni að koma norður í land til Olafsfjarðar. „Það lyfti mér mjög mikið upp. Ég öðlaðist einhvem kjark og fólk í kringum mig sýndi mér mjög mikla vinsemd og hluttekningu. Ég fer síðan aftur til Eyja og er þar um veturinn með bömin, en um vorið fer ég að vinna og kem yngstu bömunum á bamaheimili. Mér var nú reyndar boðið að hafa þau endurgjaldslaust, en ég kom ekki nema öðm þangað inn því að hinn hékk á hálsinum á mér og grét þar til ég fór með hann heim. Þannig að eldri bræður hans pössuðu hann. Krakkamir vom að sjálfsögðu í skóla, en ég fór að vinna í Éiskiðjunni og starfaði þar í tuttugu ár með þessu stóra heimili." Hvemig var svona hefðbundinn dagur hjá þér? Fyrstu árin okkar í Borgarhól til dæmis var þetta þannig að ég fór á fætur snemma á morgnana, en þá var engin miðstöð í húsinu, svo ég þurfti að byrja á því að kveikja upp í ofninum. Ég var mjög líkamlega hraust á þessum ámm og þurfti lítið eða ekkert að sofa. Mér fannst ég geta allt. Ég þurfti að koma bömunum í skólann. Eftir að Bemódus dó fór ég í vinnu eftir að þau vom farin í skólann og kom svo aftur heim klukkan ellefu og eldaði mat handa þeim og gaf þeim að borða. Síðan fór ég aftur í vinnu og var stundum fram á kvöld, en þegar á leið fóru eldri bömin að hjálpa mér. En einn góðan veðurdag bilaðið bakið af sliti og þrældómi, en ég hætti ekki að vinna fyrr en ég var orðin sjötíu og þriggja ára." Hvemig myndir þú lýsa sjálfri þér. Ertu mjög glaðlynd að eðlisfari? „Mjög svo. Ég man aldrei eftir því að hafa verið í vondu skapi. Ég ætlaði einu sinni að leggjast upp í sófa í þunglyndi, vegna þess að eitthvað gekk illa hjá mér, en ég stóð upp eftir tíu mínútur. Ég gat ekki lagst í neitt vol.“ Seinnahjónabandið Alla giftist aftur árið 1963 Magnúsi Magnússyni og átti með honum tvö böm. „Það hjónaband stóð í nokkur ár. en við skildum. Við áttum dreng og stúlku, en systir mín ól upp drenginn. Það vom miklir erfiðleikar hjá mér á þessum tíma, og mörgu vildi ég breyta og gera öðmvísu þegar ég horfi til baka til þessara ára. Þegar við giftum okkur eignumst við stúlkuna, og hennar hefði ég ekki viljað vera án. En ég var íjömtíu og þriggja ára þegar ég átti hana. Mér fannst mjög erfitt að eignast bam á þessum tíma og læknirinn sagði að það hefði verið allt í lagi að eignast tíu böm, en ég hefði mátt sleppa því ellefta, því það hefði getað farið með mig." Hvemig gekk að koma bömunum til mennta? „Stelpumar fóm í Gangfræðaskólann og giftust mjög ungar. Helgi vildi fara í Kennaraskólann og gerði það, en þetta var erfitt, svo að hann las drjúgan hluta námsins utan skóla. I framhaldi af því langaði hann í Háskólann. Jón langaði líka að læra og hann fór í menntaskóla, en kostaði sig alveg sjálfur eins og Helgi. Þegar hann lýkur stúdentsprófi fær hann vinnu í austur- þýska sendiráðinu í Reykjavík. Það endaði með því að hann fór til Rostock í Austur-Þýskalandi, þar sem ódýrt var að vera, og lærði skipa- verkfræði. Þuríður fór í Kennaraskólann en hætti námi í gosinu. Þetta er afskaplega gaman núna. Þegar ég er orðin þetta gömul og lít yfir hópinn minn finnst mér það alveg yndislegt, og ég sé ekki eftir þeirri vinnu sem ég hef lagt á mig. Bömin em svo dýrmæt gjöf og kannski kann maður ekki að þakka guði fyrir það. Ég er mjög trúuð manneskja, þó að ég sæki ekki kirkju, en mér finnst alltaf einhver vemd- arvættur yfir mér.“ GosíHeimey Hvemig vom aðstæður þínar í gosinu? „Við bjuggum þá í Borgarhól, en það hús fór undir hraun. Við urðum að sjálfsögðu að fara eins og aðrir. En Magnús, seinni maður minn, átti dóttur í Reykjavík þar sem við fengum að vera í nokkra daga. Þaðan fluttumst við í Ölfusborgir. en mér leiddist mjög mikið þar. Við fómm þá á stúfana til að reyna að fá leigt í bænum. Og í Hafnarfirði hittum við fólk sem var mjög vinsamlegt við okkur. Þar bauðst okkur gömul nuddstofa sem stóð auð. Magnús standsetti hana og þar var mjög vinalegt og skemmtilegt að búa. Við kölluðum það Kardimommu- bæinn.“ Hvemig var sambúðin með seinni manni þínum? „Hann var góður maður og mikill listamaður í sér. Hann málar og getur allt milli himins og jarðar. En það er oft með listamenn að þeir tolla ekki mjög vel í vinnu og em ekki ráðdeildarsamir í peningamálum. Hann var mjög góður við mig og bömin, en svo kom að því að þetta brast hjá okkur. Við emm hins vegar mjög góðir vinir og eigum þrjú bamaböm saman. Við emm mjög sátt hvort við annað. Ég get ekki hugsað mér að vera ill við neinn og get ekki hugsað mér að fara í gröfina og vera ill út í neina manneskju. Ég vil vera sátt við alla.“ Eftir að þau flytja til Hafnarfjarðar fer Alla að vinna í fiski í Reykjavík. „Það gekk ágætlega hjá okkur og við fengum seinna inni í dönsku Viðlagasjóðshúsi og það var mjög gaman að flytja í það. Það hafði aldrei skeð áður að ég flytti inn í nýtt hús. Mér fannst svo gaman að koma inn í húsið og skoða í skápana og sjá að enginn hafði rótað í þeim. Þetta var eitthvað sem ég átti sjálf. Seinna keyptum við svo kanadískt hús. Magnús vildi svo flytja aftur til Vestmannaeyja. Ég vildi hins vegar vera áfram í Hafnarfirði. Hann réð þessu hins vegar og það varð úr að við fluttumst aftur til Éyja og keyptum þá austurendann í London sem hann standsetti líka þvf að Magnús er ntjög laghentur. Þetta var 1975. Mér finnst ég hafa haft það mjög gott síðan. enda ólíku saman að jafna við það sem áður var, og nú á ég allt til þess að geta lifað ágætu Kfi, sem ég vissi ekki hvað var þegar ég var ung. Ég var búin að eiga átta böm áður en ég eignaðist þvottavél. En, eins og ég sagði, þá var ég alltaf svo hraust og bameignimar höfðu ekkert að segja fyrr en með yngstu bömin, þá fór þetta að verða dálítið erfitt.“ Skilnaðurogsonamissir Hafði þá mikið gengið á? ,Já, dálítið. Ég bara gafst upp og við skildum 1977. En það var samt eins og sorgin ætlaði seint að fara frá Þessi mynfl er tekin utan við Nyborg, sem var byggð 1876. Ahenni erufrá vinstri: Asa, faðir tíllu, Bergmundur, móðir hennar Elín Helga ogAlla. A myndinni er einníg fóstursonurinn Bergmundur Elli.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.