Fréttir - Eyjafréttir - 07.01.1999, Side 2
2
Fréttir
Fimmtudagur7.janúar 1999
Velheppnaður þrettándi þrátt fyrir rigningu
Friðsæláramót
Áramótin fóru vel fram í Vest-
mannaeyjum að sögn lögreglu.
Nokkur ölvun var að vísu en lítið
um óhöpp. Aðeins voru 18 færslur
í dagbnók lögreglu frá kl. 20 á
gamlaárskvöld og til hádegis á
nýársdag. Tvö eignaspjöll vom
unnin og teljast bæði upplýst. Þá
varð slys þegar stúlka varð fyrir
bifreið á Strandvegi og meiddist
lítillega. En kannski ber hæst að
engin líkamsárás var kærð til
lögreglu um áramótin.
Skemmdirvegna
sprenginga
Liðin vika, l'rá 28. des. fram til 5.
jan.. var fremur róleg og aðeins 169
færslur skráðar í dagbók lögreglu.
Þó var tilkynnt um sjö eignaspjöll
vegna sprenginga og varð talsvert
tjón í tveimur þeirra. Sprengja var
sprengd í ruslakassa við KA-Tang-
ann með þeirn afleiðingum að rúða
brotnaði. Þá var bifreið skemmd
með því að sprengja sprengju á
mælaborði hennar og er bifreiðin
talin ónýt eftir. Raunar var ekki um
verðmæta bifreið að ræða en engu
að síður tilfinnanlegt tjón fyrir
eiganda hennar.
Ökklabrotnaðíog
kærði
Þó svo að engin kæra hafi kornið
fram vegna Ifkamsárása um ára-
mótin. barst þó ein slík á mánudag.
Var hún þó síðbúin en íirásin álti sér
stað þann 20. desember. Fórnar-
lambið ökklabrotnaði í árásinni.
Smáóhöppog
pjófnaður
Alls voru ljögur umferðaróhöpp
tilkynnt lögreglu í vikunni, öll
minniháttar og engin slys á fólki.
Og kært var til lögreglu aðfaranótt
þriðjudags að farsíma hefði verið
stolið og er ekki vitað hver þar var
að verki.
Síðasti stútur ársins
í vikunni voru 11 ökumenn kærðir
vegna brota á umferðarlögum, þar
af sjö vegna hraðaksturs. Einn var
stöðvaður að morgni gamlaársdags
vegna gruns um ölvun við akstur.
Önnur brot voru vegna fram-
úraksturs við gangbraut. rangrar
notkunar á ljósabúnaði og fyrir að
leggja ólöglega.
Kynningá100%
næringar-og
snynivörum
Annað kvöld, föstudag, kl. 20 og
laugardag kl. I6 verður haldin
kynning á Lundanum á næringar-
og snyrtivörum sem hjálpað hafa
fólki um allan heim.
ítalska heilbrigðisráðuneytið gerði
viðamikla könnun á þessurn vörum
af þeirri ástæðu að talið var að á
ferðinni væri enn ein skyndilausnin
og peningaplokk. Niðurstöður
leiddu í ljós að allir ítalir ættu að
borða vöruna dags daglega.
Fréttatilkynning.
Stór hluti bæjarbúa og gestir
létu ekki kalsarigningu og
austan kaldann í gærkvöldi á
sig fá og mættu til að kveðja
jólin með viðeigandi hætti.
Að venju hófst dýrðin með
mikilli flugeldasýningu af Flánni
þaðan sem jólasveinamir hófu
sína síðustu göngu á þessum
jólum. Þegar þeir komu niður
með blysin sín biðu þeirra nokkur
þúsund manns ásamt Grýlu,
Leppalúða, tröllum, álfum og
púkum. Þaðan hélt hersingin á
Löngulágarvöllinn þar sem jólin
voru dönsuð út. Að því loknu
héldu þessir árlegu jólagestir til
sinna heima. Ánægðir með
dvölina í mannaheimi og skildu
eftir sæl mannanna böm,
sérstaklega þau yngstu.
Beðiö eftir jólasveininum.
Girðingunni lómað fyrir brennu
Valur Gíslason, fomaður Hesta-
mannafélagsins Gáska er heldur
óhress með hvernig rafmagns-
girðing, sem hann á, var leikin af
hendi brennuhaldara við Ofanleiti.
Er girðingin ónýt en enginn
ábyrgðarmaður finnst fyrir
brennunni.
Valur var með nokkra hesta í stykki
við Ofanleiti sem er ofan við Stapaveg
sl. sumar og spunnust af því nokkrar
deilur sem náðu hámarki með undir-
skriftasöfnun þar sem skorað var á
bæjaryfirvöld að sjá til þess að Valur
fjarlægði hrossin. Helstu rökin voru
þau að hestar og rafmagnsgirðingar
væru stórhættulegar bömum og mó-
fuglar ættu undir högg að sækja þegar
hestar væm annars vegar.
Valur hafði leyfi fyrir hestana til 1.
október og tók þá hestana í burtu.
Hann hafði sótt um frekari afnot af
jarðarskikanum og beið því með að
taka girðinguna niður þar til
niðurstaða lægi fyrir. „Ég beið eftir
endanlegu svari sem átti að koma um
leið og nýir túnsamningar taka gildi.
Hefði svarið verið neikvætt hefði ég
tekið girðinguna niður um leið og þá
lá fyrir,“ sagði Valur.
Hann segist ekki hafa átt von á að
girðingin væri fyrir nokkmm en þar
virðist hann hafa haft á röngu að
standa. „Þetta er ótrúleg umgengni og
meðferð á eigum annarra. Þeir sem
héldu brennuna hafa dregið vírinn í
einn haug og helmingur stauranna er
brotinn. Það hefði verið sök sér hefðu
þeir tekið girðinguna í sundur á einum
stað sem hefði alveg nægt. Eins hefði
ég komið og fjarlægt girðinguna ef
einhver hefði látið svo lítið að hafa
samband við mig.“
Valur segir tjónið tilfinnanlegt en
hann segist ekki vita til hvers hann
eigi að snúa sér til að fá það bætt. „Ég
hafði samband við slökkviliðsstjóra
sem kannast ekki við að hafa gefið
leyfi fyrir þessari brennu sem hefur
verið mjög stór eins og ummerkin
sanna. Það er því engan ábyrgðar-
mann að finna og svo hafa orðið
umtalsverð umhverfisspjöll sem ekki
verða lagfærð nema með plægingu og
sáningu,“ sagði Valur að lokum.
Eyjamenn
áhugalausir
Frestur til að skila inn gögnum til
að taka þátt í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins, seni fara mun
fram að mánuði liðnum vegna
Alþingiskosninganna í vor,
rennur út á miðnætti.
Að minnsta kosti 11 manns hafa
tilkynnt munnlega að þeir muni
taka þátt í prófkjörinu, en áður en
blaðið fór í prentun í gær hafði
aðeins borist ein formleg tilkynning
um þátttöku. Um helgina mun
kjörstjóm flokksins funda á Selfossi
með þeim frambjóðendum sem þá
verða búnir að tilkynna formlega
þátttöku.
Eftir því sem næst verður komist
er Ámi Johnsen eini Eyjamaðurinn
sem ætlar að gefa kost á sér.
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinnæ Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur. frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frenir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt i áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kleni, Veitingaskálnum Friðarhöfn, Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.