Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 07.01.1999, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 07.01.1999, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 7. janúar 1999 Fréttir 13 Magnús og Bjarki fylgjast spenntír með huernig spilin leggjast hjá Matthíldi. í fyrsta skipti í tarotlestri. Matthildur rýnir í spilin eftir að Magnús hefur farið hefðbundna leið við að stokka spilin: Það er eins og alltaf sé verið í fortíðinni, segir Matthildur. Það sem er liðið kemur ekki aftur. Ef allur ftskur í sjónum verður veiddur er mjög erfitt að ná honum aftur. Við verðum að fara að snúa okkur að uppbyggingu. Tímamir em breyttir og það er kominn tími til að menn fylgist að. Nú er lag að nýta sér breytingamar og taka þær inn. Þetta á við um flotann jafnt og annars staðar í samfélaginu. Það þýðir ekki að bíða eftir að eitthvað verði sem var. Þið hafið jákvæðnina, en það er ekki nóg. Eins og ég sagði áðan er gæftaleysi. Það er verið að búast við miklu en þetta mikla verður ekki eins mikið og búist er við. Það er eins og við þurfum að losa okkur úr einhverjum fjötmm og sjá hlutina í réttu ljósi. Það þarf að fara að horfa fram á veginn og víkka sjóndeildarhringinn. Það þarf að skoða fleiri möguleika en menn em að skoða í dag. Það er nefnilega oft hægt að gera hlutina á annan hátt en gert er. Eg sé að það verði eins og hálfgert hmn. Þannig að fyrstu mánuðir ársins verða erfiðir, atvinnuleysi, gæftaleysi. Ég vildi óska þess að það kæmu einhver önnur spil héma, segir Matthildur. En þetta beinir huganum að því að menn ættu kannski að beina huganum að einhverju öðru, öðmvísi veiðum og annari tækni. Ég vil kalla það hugarfarsbreytingu sem við þurfum á að halda. Þetta verður erfitt fyrir sjómenn, útvegsmenn og þar af leiðandi bæjarfélagið vegna þess að á sjónum byggist þetta samfélag. En eins og ég sagði áðan með tunglið, maður verður að fara inn í skuggann til að sjá hvað þar er til þess að geta tekið betur á málunum í birtunni og þegar vel gengur. Við verðum að skoða það sem er neikvætt til þess að geta breytt því. Til þess að breyta verðum við að viðurkenna annmarkana sem neikvæða til þess að breyta þeim í hið jákvæða. Hér koma upp svo mörg spil sem benda á hugsanabreytingu. Fjármálin verða hins vegar á vissan hátt jákvæð. Það fæst meira fyrir minna. Minni afli en meiri peningur. Hins vegar þegar fer að þrengja að þá er eins og fólk fari að rífa sig laust og skoða fleiri möguleika. Það verður hrun til þess að hægt verði að byggja upp á nýtt. Vertíðin sem slfk bregst ekki, en hún verður mjög erfið. Fólki finnst það hins vegar hanga í lausu lofti og það verður erfitt að festa hendur á því sem að er að ske. Það verður svo ríkjandi bjartsýni þegar fer að líða á, en þetta verður ekki auðvelt. En eins og í hinni spánni þá eru það útlönd sem skipta máli. Og Matthildur biður Magnús að draga eitt spil í lokin. Þetta er sá sem stjómar með góðu og bendir á að þú eigir að víkka dálítið sjóndeild- arhringinn og taka tillit til fleiri þátta en hingað til. Þá næst líka fullkomin stjóm. Þegar gengið hefur verið í gegnum þrengingar þarf að fara að taka til og henda gömlum erjum út af borðinu. Það er ekki vertíðin sem bregst heldur hvemig vinna beri úr hlutunum. Þér verður ýtt upp að vegg sem formaður í þínu félagi, svo þú verður að taka á hlutunum og sætta ólík sjónarmið. I samvinnunni verða hlutimir góðir og uppskeran góð. Atvinnumál og nýsköpun Bjarki Brynjarsson framkvæmdastjóri Þróunarfélagsins sest næstur í stólinn. Matthildur segir eftir að Bjarki hefur meðhöndlað spilin að mikið sé að ske í atvinnumálum. Það er greinilegt að varðandi ný atvinnutækifæri er verið að vinna að góðum hlutum og mikilvægum og farið af stað með eitthvað af ofboðslegri bjartsýni Hér er spil sem segir að verið sé að byija á einhverju nýju, en það verði að skoða alla hlutina áður en hafist er handa. Þetta er verkefni sem lofar mjög góðu, en það má ekki gleyma því að við höfum reynslu úr fortíðinni sem hægt er að nýta á jákvæðan hátt í framtíðinni. Þetta er jafnvel fyrirtæki sem hefur gengið áður en farið niður. Hér er lag að skoða hlutina og spyrja sig hvers vegna og af hverju áður en farið er af stað. Nota reynsluna sem kennara og þá ætti þetta að ganga vel. I fortíðinni á að skoða það sem hefur gengið illa en það á líka að klára það og eyða því. Þetta er eins og ætla að byggja hús. Fólk byrjar á því að rífa það gamla, en gleymir að athuga granninn og undirstöðumar og byggir hið nýja hús á gamla grunninum. Það er ekki ráðlegt að raða nýjum hug- myndum á feysknar undirtöður. En það er mikil nýbyrjun, eða eins og verið sé að fara að skoða alla hluti upp á nýtt. Það er hins vegar skortur á Ijármagni. Þess vegna er eins og verið sé að bíða eftir einhverju erlendu fjármagni, eða einhverju sem gefur atvinnuskapandi tækifæri. Ein aðvöran er héma líka en hún er sú að við verðum að hætta að flýja erfiðleikana og takast á við þá hér og nú, en ekki þegar það er orðið of seint. Það er eins og áður atvinnuleysi framan af, en það er eitthvað nýtt sem er að koma og á eftir að reynast vel. Þetta er eins og erfið meðganga, en svo fara hlutimir að blómstra en við þurfum að vera jákvæð og jákvæð hugsun skilar mjög miklu. Lögnin endar í rauninni á sigri og þrátt fyrir erfiðleikana verður sigur í lokin og hann næst með mikilli vinnu og eljusemi. Bjarki velur svo eitt spil í lokin og Matthildur segir: Stundum þarf að velja á milli þess sem er veraldlegt og andlegt. Þetta spil segir að þú munir lenda svolítið upp á kant við sjálfan þig, eða spyrja þig að því hvort þú hafir verið að gera rétt. Það eina rétta er því að hlusta á sjálfan sig, því þú veist best sjálfur, en getur lent svolítið milli steins og sleggju í þínu starfi, en þú verður að minnsta kosti umdeildur. S Iþróttahreyfingin Handboltinn Fyrstur fær sér sæti Magnús Bragason formaður handknattleiksdeildar IBV. Matthildur biður Magnús að loka ekki á sig, en hann settist með krosslagðar hendur. Hann breiðir því út faðminn og Matthildur leggur spilin og spyr um frekan útlending, sem er dálítið þungur fyrir móralinn í liðinu. Það er eins og einn maður í liðinu eigi eitthvað erfitt og hann kemur erlendis frá. Hann á erfitt með að samlagast og vinna með öðram kannski er það vegna meiðsla sem hann hefur átt við að stríða Það horfir þó til betri vegar og á eftir að breytast. Það hefur gengið vel framan af keppnistímabilinu og það á að nýta þá reynslu sem byggðist upp þá til góðs fyrir liðið. Nú er einhver óeining sem þarf að vinna gegn. Það era sérstak- lega tveir menn innan liðsins sem eiga erfitt með að vinna saman. Þá þarf að reyna að sætta. Þegar það hefur tekist ganga hlutimir betur. Einhverjar þreifingar virðast vera um að fá gamlan leikmann í liðið og það virðist muni verða liðinu til góðs. Það kemur einhver inn í stað einhvers sem fer og það verður til þess að einingin innan liðsins verður betri í heildina. Þið verðið ekki meistarar, en ykkur kemur til með að ganga vel og verður góður grannur að næsta leiktímabili. Ég vildi því segja að núna væri verið að vinna góða vinnu fyrir næsta keppnistímabil. Þið eigið að hlusta meira á ykkur sjálfa en ekki það sem er utan að komandi. Þið eigið að þjappa ykkur saman, hlusta og gagrýna sjálfir, en láta gagnrýni sem kemur utan að renna meira framhjá ykkur og spila meira eftir eigin hjarta. Einhver meiðist með þeim afleiðingum að hann verður að hætta. Nú er handboltalið ÍB V komið í átta liða úrslit í bikarkeppninni og Magnús spyr um gengið í bikarkeppninni. Þið spilið ekki til sigurs og verðið ekki í úrslitum, en þið komist nokkuð langt. Magnús dregur svo spil sem Matthildur les í: Þetta segir það að þið ætlið að taka einhvem úr fortíðinni inn í liðið aftur, en þetta gæti alveg eins átt við næsta leiktímabil. Það kemur einhver sem gerir liðið betra og hefur spilað með því áður. Næsta leik- tímabil sem byrjar næsta haust verður hins vegar mun betra fyrir ykkur. Knattspyman Jóhannes Olafsson er formaður ÍBV knattspymudeildar. Hann tyllir sér af öryggi hins sigurvissa manns í stólinn og reiðubúinn hverju sem er. Það er samvinnan sem skiptir máli hér eins og svo oft áður, segir Matthildur. Þið erað að missa einhvem leikmann og Jóhannes staðfestir að tveir séu famir nú þegar. Það er greinilega eitthver óeining sem ekki hefur verið gengið endanlega frá sé ég. Það er þetta sem eyðileggur liðið. Þið verðið að vinna í því að losa um þessa óeiningu, því hún verður ekki til góðs á neinn hátt. Ef þau mál verða leyst þá fer liðið vel út úr næsta keppnistímabili. Það eru sigurspil hérna og líka spil sem vísa heim, en þar er bikarinn eins og þú veist, trúi ég. Það er einhver einn sem eitrar mjög svo út ffá sér í liðinu, þó hann sé góður er liðið betur komið án hans heldur en með hann. Þetta verður erfið ákvörð- un, en ef það er samvinnu liðsins og einingu til framdráttar þá heldur liðið að minnsta kosti öðram titlinum, en það tekst ekki nema með mikilli samvinnu. Ég get hins vegar ekki sagt til um hvoram bikamum þið haldið, en það kemur héma fortíðarhyggja svo að annar fer örugglega. Menn eru að horfa of mikið á það sem var, en við eigum að geta haldið okkur áfram í baráttunni. Jóhannes spyr um Evróukeppnina. Þið komist ekki langt en verið ánægðir með það sem þið komist. Það eru hins vegar margir að skipta sér af og gefa góð ráð, en það gildir sama hér og annars staðar að hlusta á innri mann. Þið verðið sáttir við sjálfa ykkur en ég er ekki viss um að allir standi með ykkur. Þið gerið ykkar besta miðað við þá stöðu sem þið verðið í, en við eram ekki að tala um neina stórsigra. Fréttir Eins og í fyrra leggur Matthildur eina lögn fyrir blaðið. Það er einhver for- tíðarhyggja sem er nokkuð ráðandi og blaðið er umdeilt. Það er líka þetta samvinnuleysi sem kemur upp héma eins og reyndar í öllum lögnunum núna. Það er eins og engir geti unnið saman lengur. Fjárhagsstaðan er ágæt og hér er ekki annað að sjá en að kvenmaður komi til starfa á blaðinu upp úr miðju ári. Blaðið verður hins vegar áfram með fulla reisn þó að kvenmaður komi þangað til starfa. Benedikt Gestsson Bíll til sölu Daihatsu Charade SG árg. 90, ekinn 90 þús. km. til sölu. Hugs- anleg skipti á dýrari bíl. Uppl. í síma 481 2279 og 896 3459 Beitningamaður óskast Beitningamaður óskast, uppl. í síma 481 2497 og 861 4397 íbúð óskast til leigu Óska eftir 3ja herb. íbúð til leigu. Uppl. hjá Áróru í síma 481 1404. íbúð óskast íbúð óskast til leigu frá 1. feb. Reglusemi og skilvísum greiðsl- um heitið. Uppl. 481-2535 og 481-1928. Herbergi til leigu Til leigu er herbergi með sér inngangi, sér bað og eldhúsað- staða. Uppl. 481-1806 e.kl.17.00. Tapað Ég er 8 ára og tapaði ferða- kíkinum mínum í göngutúr á sunnudaginn. Finnandi hafi samband við Fréttir eða í s. 481-3310. Tapað 2 hringir töpuðust í Eyjum á þjóðhátíð. Annar er sérsmíðaður frá Jens. Hinn er fínlegur gullhringur með perlu og er frá Jóni Sigmundssyni. Vinsamlega hafið samband við Fréttir. Tapað Regatta úlpa tapaðist eða var tekin í misgripum helgina fyrir jól á Lundanum. Úlpan er merkt Ómari Stefánssyni. U. 481-2134 Bíll til sölu Toyota Corolla XL 1300, 3 dyra, ekinn 102 þúsund k,. Vel með farinn. U. 481-2347 e. kl. 19.00 Spáin fyrir árið 1998 Lestur Matthildar fyrir árið 1998 gekk fram með ágætum. Hún las að á heildina yrði árið gott og heildarmyndin jákvæð. Óhætt er að segja að það hafi gengið eftir. Þó að eiginlega hafi verið um tvö sjómannaverkföll að ræða þá sagði Matthildur verkfall yrði stutt og gekk það eftir. Matt- hildur sagði tvö ólík öfi eða fyrirtæki inyndu sameina krafta sína, þar sem færi að reyna á samstarfið í september. Að bestu manna sýn og skilningi er þetta trúlcga flutningur Keikó á heimaslóðir. í október rís upp nei- kvæð urnræða í skólamálum sagði Matthildur. Heimfæra má það upp á umræðu um fjarvistir og mætingar kennara í framhaldsskólanum og fóra Fréttir ekki varhluta af þeirri umræðu. Nýtt fyrirtæki segir Matt- hildur verða til í desember og það verða til farsældar. Fjárfestingafélag Vestmannaeyja var stofnað og menn bjartsýnir á framtíð þess fyrir bæjafélagið. Að vísu segir hún konur áberandi þar, ekki vora þær áberandi á formlegum stofnfundi félagsins, en koma kannski inn síðar með krafti.. Afiabrögð of sjósókn: Matthildur segir loðnu- og síldarvertíð verða gjöfular, þó ekki byrji þær vel. Ef mið er tekið vertíðinn sl. ár þá vora |rær gjöfular. en ef litið er á árið til lengri tíma stóðu þær tæplega undir væntingum Kosningarnar: Lestur Matthildar varðandi kosningamar var mjög svo blandin mörgum „efum“. Hún sagði að ef Sjálfstæðismenn ynnu kosn- ingamar yrði það rnjög naumt og kannski má segja að þeir hafi þurft að hafa fyrir sigrinum. Veður og árferði: Matthildur sá fyrir austan og sunnanáttir, sem verða að teljast hrein og klár öfugmæli, því óhætt er að segja að norðan og norðaustan áttir hafi verið ríkjandi og veður sólríkt og hafði góð áhrif á mannlífið. Iþróttir: Matthildur sagði að ÍBV myndi vinna báða bikarana í knattspymunni og gekk það eftir eins og frægt er orðið. Menningarmál: Matthildur segir að einstaklingar reyni fyrir sér í menningarlífinu, en fjársvelti hái starfseminni, erfitt er að finna samsvörun í þessu efni. Ekki er að sjá að hún sjái goslokahátíðina fyrir sér nema það séu ólíku öflin tvö sem hún segir að taki saman höndum í júlímánuði. Túlkendur vilja þó heldur tengja það komu Keikó til landsins. Heimamaður kemur fram sem ætlar sér að rífa upp rnenn- ingarstarfsemi. Hugsanlega má tengja það goslokaafmælinu. Matthildur les hins vegar úr spilum sínum að ungur maður (heima- maður, sem ekki er rétt) muni setja upp myndlistarsýningu sem vekja mun athygli. Nægir þar að nefna Sjónþing og heimsviðburð Bjama H. Þórarinssonar myndlistarmanns. íslandspóstur hf íslandspóstur hf. í Vestmannaeyjum óskar eftir að ráða gjaldkera í 50% starf fyrir hádegi. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 1999. Nánari upplýsingar gefur stöðvarstjóri í síma 481-1000

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.