Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 07.01.1999, Blaðsíða 7

Fréttir - Eyjafréttir - 07.01.1999, Blaðsíða 7
Fimmtudagur7. janúar 1999 Fréttir 7 Fréttapýramídamir fyrir árið 1998 afhentir: Komu í hlut Hlyns Stefánsson- ar, Hressó og Listvinafélagsins Handhafar Fréttapýramídanna 1998. F.v. Hermann Einarsson sem tók við vióurkenningunni fyrir hönd Listvinafélagsins, Hlynur, Anna Dóra, Jóhanna og Kári. Heilsa Vellíðan Vilt þú losna við: þreytu - 3 til 8 aukakíló á mánuði slen - meltingartruflanir og fá í staðinn: aukna orku - jafnari svefn betri líðan - ferskleika í morgunsárið Staðreyndir: 100% náttúrlegar næringar- og snyrtivörur 27 milljónir manna í 42 löndum hafa náð góðum árangri. Vilt þú prófa? Kynning, föstudag kl. 20 og laugai'dag kl. 16 á Lundanum. * Okeypis sýnishorn. Hafa bætt Vestmannaeyjar Fréttapýramídarnir fyrir árið 1998 voru veittir í áttunda sinn við athöfn á Hertoganum á laugardaginn. Fréttapýramídamir komu að þessu sinni í hlut eigenda lík- amsræktarstöðvarinnar Hressó fyrir framlag til atvinnu og þjónustu, Listvinafélags Vest- mannaeyja fyrir Daga lita og tóna sem haldnir em um hverja hvítasunnu og Hlyns Stefánssonar fyrirliða meistaraflokks IBV í knattspymu sem varð þrefaldur meistari sl. sumar. Milli 60 og 70 manns vom viðstaddir athöfnina sem Arnar Sigurmundsson, stjómarformaður Eyjaprents-Frétta stýrði. Ómar Garðarsson, ritstjóri gerði grein fyrir forsendum veitinganna og Gísli Valtýsson framkvæmdastjóri afhenti Fréttapýramídana sem eins og endra nær voru gerðir af Grími Marinó Steindórssyni myndlistar- manni. Boðið var upp á tvö söngatriði og voru bæði sótt yfir götuna í Hvítasunnukirkjuna. Meðan gestir vom að koma sér fyrir söng bama- kór undir stjóm Hjálmars Guðna- sonar og hjónin Unnur Ólafsdóttir og Sigurmundur Einarsson fluttu tvö lög undir lok athafnarinnar. Frá upphafi hafa Frétta- pýramídamir verið þrfr, fyrir framlag til atvinnu og þjónustu í Vestmannaeyjum, fyrir framlag til menningarmála og til framlags til íþróttamála. Eins og alltaf koma nokkrir aðilar til greina þegar kemur að því að meta árangur einstaklinga, fyrirtækja eða stofnana á hverju ári. Þegar litið er til síðasta árs var valið óvenju auðvelt því strax í haust lá ljóst fyrir hverjir helst kæmu til greina við veitingu Frétta- pýramídanna. Systurnar Anna Dóra og Jóhanna Jóhannsdætur hafa ásamt eiginmönnum sínum rekið heilsuræktarstöðina Hressó af miklum myndarskap í fjögur ár. Hafa þær allan tímann sótt upp á við og hefur reksturinn aldrei staðið með meiri blóma en í haust. Þeir eru ekki margir sem standa að Lisvinafélagi Vestmannaeyja en þeim hefur tekist að lyfta Grettistaki í menningarlífi Vest- mannaeyja með Dögum lita og tóna sem að mati Frétta eru merkasta framtak sem fram hefur komið hér á síðari árum á menningarsviðinu. Síðast en ekki síst er það svo meistaraflokkur ÍBV í knattspyrnu sem náði sínum besta árangri í sumar með því að vinna íslands- og bikarmeistaratitlana og standa uppi sem meistarar meistaranna. Fyrir meistaraflokki fór Hlynur Stefánsson fyrirliði sent er einn glæsilegasti íþróttamaður sem Vestmannaeyjar hafa alið. Öll hafa þau, Hlynur, Anna Dóra og Jóhanna og Listvinafélagið lagt sitt af mörkum til að gera Vestmannaeyjar að betri bæ og vonandi eigum við eftir að njóta starfa þeirra sem lengst.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.