Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 07.01.1999, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 07.01.1999, Blaðsíða 6
6 Fréttir Fimmtudagur 7. janúar 1999 Sjósetningarbúnaður gúmbáta: Gíldistöku enn frestað -Sjómenn harðorðir í garð ráðherra Nú um áramót átti að taka gildi reglugerð um björgunar- og ör- yggisbúnað fískiskipa þar sem kveðið er á um losunar- og sjó- setningarbúnað gúmmíbjörgunar- báta. I desember gaf samgönguráð- herra út tilskipun um frestun þessarar reglugerðar. Astæðan er sú að sá búnaður, sem fáanlegur er í dag, hafí ekki fengið vottun hjá Iðntæknistofnun. Þessi tilskipun hefur mælst illa fyrir hjá samtökum sjómanna, ekki síst í Vestmannaeyjum og á aðalfundi Skip- stjóra og stýrimannafélagsins Verð- andi í Vestmannaeyjum, sem haldinn var 27. des. sl., var eftirfarandi samþykkt: „Ss. Verðandi mótmælir harðlega frestun gildistöku reglugerðar um björgunar- og öryggisbúnað fiski- skipa, nánar tiltekið 7. grein um losunar- og sjósetningarbúnað gúmmíbjörgunarbáta. Þetta er í sjötta sinn sem sam- gönguráðherra frestar þessum reglum sem gefnar voru út endurskoðaðar 21. mars 1994. I öllum tilfellum er það eingöngu að kröfu LIÚ sem þessar frestanir eiga sér stað og í öllum til- fellum er það gert í andstöðu við sjómenn og samtök þeirra. Fundurinn vill benda samgöngu- ráðherra, Halldóri Blöndal, á það að í dag er til samþykktur sjósetn- ingarbúnaður af gerðinni Sigmund S 2000 sem tvisvar hefur verið sam- þykktur af Siglingamálastofnun rikisins, síðast 6. mars 1995 eftir prófanir. Hann er samkvæmt viður- kenningarskírteini í gildi til 6. mars árið 2000 og hefur verið settur í mörg skip á síðasta ári þrátt fyrir andstöðu ráðherra og LÍÚ enda sjómenn og útgerðarmenn í Vestmannaeyjum orðnir langþreyttir á vinnubrögðum ráðherra. Nú heimtar samgönguráðherra að búnaðurinn verði vottaður og kemur sú krafa frá LÍÚ sem enn einu sinni tekst gegnum nefndarstörf að tefja málið með hjálp ráðherra. Það verður ömurlegt hlutskipti þeirra manna sem barist hafa á móti þessu tæki, ef þvermóðska þeirra á eftir að kosta sjómenn lífið.“ Lin Gleraugnaþjónusta Linsunnar verður í versluninni Miðbæ, í dag fimmtudag, föstudag og laugardag. Góð gleraugu Vantarvottun Fréttir höfðu samband við sam- gönguráðherra, Halldór Blöndal, vegna þessa máls og spurðu hvers vegna þessu hefði verið frestað enn einu sinni. „Það er einfaldlega ekki hægt að samþykkja búnað sem ekki hefur fengist vottun fyrir,“ sagði Halldór Blöndal. „Það er sjálfgefið að fresta gildistöku reglugerðarinnar þegar enginn vottaður búnaður er fyrir hendi. Enda er það óveijandi ef ráðu- neytið myndi samþykkja búnað sem að mati sjómanna, skipaverkfræðinga og annarra stenst ekki kröfur. Eg ætla ekki að fara að ræða einhverja samþykkt frá sjómanna- félagi í Vestmannaeyjum, ég hef ekki séð hana,“ sagði Halldór. „En ég undrast það ef sjómenn vilja ekki að búnaðurinn sé í lagi. Allt annað yrði til þess að vekja falska öryggistil- finningu. Sérstök undimefnd vann að því á síðasta ári hverjar kröfur ætti að gera til slíks búnaðar. Tillögur hennar lágu fyrir á miðju sumri. Þar með hefðu þeir aðilar, sem framleiða slíkan búnað, átt að hafa samband við Iðntæknistofnun vegna vottunar en það hafa framleiðendur Sigmunds- búnaðarins ekki gert. Þó hef ég sjálfur beitt mér persónulega fyrir því að nauðsynlegar upplýsingar berist Iðntæknistofnun, bæði um Sigmunds og Olsensbúnað. Við stöndum frammi fyrir því að í dag er ekki til í landinu búnaður sem uppfyllir þessar kröfur og þess vegna er sjálfgert að fresta gildistökunni. Um leið og vottun liggur fyrir á slíkum búnaði verður hafist handa í samráði við LÍÚ að koma honum fyrir. Kostar stórfé Félagið Sigmund hefur haft með þróun og markaðsmál Sigmundsbún- aðarins að gera. Bjarki Brynjarsson er í stjóm félagsins. Hann sagði að dráttur hefði orðið á því að senda viðbótargögn til Iðntæknistofnunar. Beðið hefði verið um þau gögn og væri nú verið að útbúa þau. „Aftur á móti er menn ekki tilbúnir að leggja í umtalsverðan kostnað við nýjar vottanir án þess að vita hvort reglugerðin tekur gildi," sagði Bjarki. „Þessi búnaður fékk vottun frá Siglingamálastofnun á sínum tíma en nú er þess krafist að Iðntæknistofnun gefi vottun á ný. Okkur hefði þótt eðlilegra að reglugerðin hefði verið látin taka gildi. Þá hefðu menn farið á fullt, bæði við öflun gagna og framleiðslu. En það er ekki óeðlilegt að menn séu varkárir í að ausa út fé án þess að hafa fulla vissu fyrir því að reglugerðin muni taka gildi í þetta sinn,“ sagði Bjarki. Erummeðvottorðfrá Siglingamálastofnun Vélaverkstæðið Þór í Vestmanna- eyjum framleiðir Sigmundsbúnaðinn. Garðar Gíslason, framkvæmdastjóri hjá Þór, segir að hér sé um mgl að ræða hjá samgönguráðuneytinu. „Við höfum viðurkenningarskírteini fyrir okkar búnað frá Siglingamálastofnun. Sú stofnun prófaði búnaðinn á sínum tíma og viðurkenndi hann,“ sagði Garðar. „Annars emm við svo sem ekki óvanir mglingshætti á þeim bæ. Þeir hafa aldrei haft samband við okkur og ég kannast ekkert við að ráðherra hafi persónulega beitt sér fyrir einu eða neinu íyrir okkur. Hann fylgist nú heldur ekki betur með málum en svo að í haust er leið, þegar hann var hér á ferð, var honum boðið að koma og skoða búnaðinn. Hann svaraði þá til hvort það væri ekki bara eitthvað ryðgað jámamsl. Svo vel fylgist hann nú með. Og það er ekki rétt að búnaður sé ekki til. Við eigum nokkur stykki til- búin en auðvitað fömm við ekki að framleiða í miklu magni búnað sem ekki er á hreinu með hvenær við getum selt,“ sagði Garðar. Siaurgeir Jónsson m m * ■■ ■ r ■ r | skrífar Af yfiitoKu a jolunuvn dcgi í upphafi vill skrifari óska lesendum Frétta árs og friðar og þakka um leið fyrir liðið ár. Um þessar mundir má lesa í blöðum miklar ræður landsfeðra þar sem þeir gera upp gamla árið. Em það yfirleitt mikil skrif að vöxtum og oft mærðarfull. Yfirleitt hefur skrifari ekki í sér nennu til að pæla gegnum þær hugleiðingar þótt vafalaust séu þær hinar uppbyggilegustu. Hann velur sér annað lesefni. Skrifari ætlar heldur ekki að feta í fótspor landsfeðra með ára- mótalanghund. Hann ætlar heldur ekki að ræða um útgáfu á jólablöðum í Vestmannaeyjum, minnugur þess að slíkt getur haft slæm áhrif á andlega og líkamlega líðan manna. Liðið ár mun hafa verið nokkuð gott í efnahagslegu tilliti, þ.e. að fólk hefur almennt haft úr meiru að spila en endranær. Það kom m.a. fram í fleiri utanlandsferðum og meiri verslun fyrir jól. Eigi fólk aura milli handa þá er oftar en ekki keypt meira og stundum meira en efni standa til. Það leiðir huga skrifara að því sem hann heyrði til eins af kirkjunnar þjónum á jólaföstu. Sá minntist á jólin áður en kaupmennimir hefðu yfirtekið þau. Af orðum hans mátti ráða að í þá daga hefðu jólin verið sannkölluð hátíð friðar og kærleika en jól síðari tíma bæru öllu meiri keim af peningum og verslun hvers konar. Þótti kirkjunnar þjóni það slæm skipti. Nú er skrifari ekki svo aldinn að ámm að hann muni þá tíma þegar eitt helsta áhyggjuefni íslendinga í desember var hvort þeir fæm í jólaköttinn, fengju ekki jólagjöf eða hvort unnt yrði að fæða fjölskylduna á jólum. Skrifari fékk alltaf jólagjöf og fleiri en eina og ekki minnist hann þess að skortur hafí verið á heimilinu, hvorki á jólum né aðra daga. En af frásögnum þeirra sem eldri em, má ráða að ekki hafi alltaf verið svo. Þó er það nokkuð sammerkt þeim frásögnum að yfirleitt haft verið farið í kaupstað á Þorláksmessu eða aðfangadag til að ná í einhverjar nauðsynjar fyrir jólin. Og oftar en ekki mun þá kaupmaðurinn hafa hlaupið undir bagga og veitt úttekt út á krít svo að unnt væri að halda jól með einhverju öðm en trosi og jólaketti. Kaupmenn vom ekki alvondir í þá daga frekar en nú til dags þó svo að finna megi í þeim hópi misjafna sauði eins og annars staðar. Nú fyllir skrifari hóp þeirra manna sem kirkjunnar þjónn á jólaföstu sagði að hefðu yfirtekið jólin. Skrifari hefur nefnilega stundað kaupmennsku í smáum stíl í nær áratug. En hann kannast ekki við slíka yfirtöku. Raunar viðurkennir hann að það er öllu meira að gera hjá honum í desember en alla jafna en það þykir honum hið ágætasta mál og yrði raunar óánægður ef svo væri ekki. Og skrifari vill ekki bekenna að fyrir hans atbeina og kollega hans hafi dregið úr friði og kærleika á jólum, alla vega er það ekki með vilja gjört. Það er nefnilega svo nú til dags að fólk vill fá að ráða sér sjálft í flestu og kann því yfirleitt illa sé reynt að hafa vit fyrir því. Vilji fólk fara til útlanda þá stjómar það því sjálft. Og svo þegar víxillinn fyrir ferðinni fellur í gjalddaga þá þýðir ekki að skammast út í ferðaskrifstofuna. Sá sem hefur étið yfir sig á jólum fer ekki eftir áramót og skammar Simma í Vömvali fyrir að hafa selt sér allan þennan fitandi mat. Skrifari hefur og enda ekki verið skammaður á liðnum ámm fyrir að reyna að stilla kaupskap fólks í hóf, það er frekar að hann hafi verið átalinn fyrir að hafa ekki nægilegt vömval á boðstólum. Svo hefur það líka komið fyrir að hann hefur hlaupið undir bagga, rétt eins og kollegar hans gerðu fyrr á öldum, og veitt úttekt upp á krít fyrir jól. Þó svo að landsfeður lýsi yfir góðæri hjá þjóðinni þá er það ekki hundrað prósent og þeir allnokkrir sem em auralitlir fyrir jól eins og aðra daga. Skrifari hefur alltaf haft af því ánægju að geta hlaupið undir bagga á þann hátt og þannig lagt sitt af mörkum til að gera öðmm kleift að haldajól ánjólakattar. Nær alltaf hefur hann fengið greitt hjá viðkomandi aðilum og í þau fáu skipti sem það hefur ekki gerst, hefur hann tekið því meðjafnaðargeði. Skrifari þykist þess líka fullviss að hann sé ekki einn um slíka hluti, kollegar hans loki ekki á fólk þegar illa stendur á og síst fyrir jól. Honum finnst það út í hött ef saka á einhvem um að hafa stolið jólunum. Þeir gætu þá orðið margir söku- dólgamir ef út í það væri farið og ekki bara úr verslunargeiranum. Sigurg.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.