Fréttir - Eyjafréttir - 07.01.1999, Síða 16
FU>TMMGM'VE$niMMAEYJIW
Dagkgur hrtlr hvirt á land um w.
Vöruafgreiðsla
Skildingavegl 4 Síml 481 3440
Vöruafgreiðsla ■ Reykjavík
AðaHlufningar Héðinsgöfu 2
Sími 581 3030
Slökkuiliðið
kallaðtðlf
sinnum út
í ársskýrslu Slökkviliðs Vest-
mannaeyja, sem blaðinu hefur
borist, kemur fram að slökkvi-
liðið var kallað 12 sinnum út á
árinu 1998.
Sex sinnum var kallað út vegna
elds í íbúðarhúsum og tvisvar á
hafnarsvæðinu vegna elds í bátum.
Önnur útköll voru vegna elds í
ruslagámi og til að slökkva eld í
sinu og mosa. Þá fóru slökkvi-
liðsmenn í eitt skipti á Lóðsinum
með dælubúnað til hjálpar báti sem
átti í erfiðleikum vegna leka.
26 æfingar voru hjá slökkviliðinu á
árinu og auk þess sóttu
slökkviliðsmenn námskeið sem
Brunamálaskólinn kom með til Eyja
og að auki námskeið í skyndihjálp.
Liðið tók þátt í flugslysaæfingu á
vegum Flugmálastjómar í mars.
Ennfremur hjálpaði slökkviliðið til
við æfingar starfsfólks hjá tveimur
stofnunum og tvisvar um borð í
skipum með áhöfnum þeirra. Þá tók
slökkviliðið þátt í eldvarnaviku
Landssambands slökkviliðsmanna í
desember og heimsóttu þá öll börn
úr 5. bekkjum grunnskólanna
slökkvistöðina.
Spáð í árið 1995
Á blaðsíðum 12 og 13 í blaðinu í
dag les Matthildur í spilin hvað árið
1999 ber í skauti sér fyrir Eyjamenn.
Ekki er hún alltof hress með hvað
upp kom en öll él birtir upp um
síðir.
Áramótin fóru vel fram enda veður með besta móti. Miklu magni flugelda var skotið upp og nokkrar
brennur loguðu skært. Hér er brennan við Ofanleiti sem Guðmundur Sigfússon myndaði.
Fékk 700 tonn af, jólasíltr
Það er ekki oft sem sfld veiðist á jólum en það gerðist þó
að þessu sinni þegar Antares VE kom til Eyja á
þriðjudag með 700 tonn af síld sem fékkst um sex
sjómflur út af Öndverðarnesi.
Hörður Óskarsson, hjá ísfélagi Vestmannaeyja, sagði að
þetta hefði verið mjög þokkaleg sfld, nokkuð blönduð en
vel hæf til vinnslu og væri nú verið að flaka hana. Hörður
sagði að eftir væru um 1200 tonn af sfldarkvótanum og allt
útlit væri fyrir að tækist að ná honum öllum. Hann sagði
ennfremur að allt útlit væri fyrir samfellda vinnu á
næstunni hjá ísfélaginu því að bolfiskveiðiskipin þijú væm
öll farin til veiða og yrði þá unnið úr afla þeirra ef eitthvað
tregaðist í sfldinni.
Fleiri skip köstuðu á sfld á svipuðum slóðum og Antares
og fengu afla en sú sfld var að sögn mun smærri og vart
hæf til vinnslu. Kap VE var væntanleg til Eyja í gær með
800 tonn sem væntanlega munu fara í bræðslu.
Aukin umsvif
meíndýraeyðis
ásíðastaári
Blaðinu hefur borist skýrsla
meindýraeyðis, Ásmundar Páls-
sonar, um gjörðir hans á árinu
sem liðið er. Þar kemur fram að
starf hans hefur nokkuð aukist að
umfangi, sé borið saman við árið
á undan. Alls var 1839 skepnum
ráðinn bani á árinu 1998 á móti
1520 á árinu 1997.
Mýs vom efstar á lista Ásmundar,
sé mið tekið af fjölda dýra sem
fargað var. Þær vom ríflega
helmingur allra dýra á listanum eða
960 talsins og hafði fjölgað um 297
frá fyrra ári. Músunum var öllum
kálað í spennigildrum. Rottum
fækkaði úr 68 á fyrra ári í 15 og
voru þær ýmist veiddar í gildrur,
skotnar eða eitrað fyrir þeim.
Vargfuglar vom skotnir að þessu
sinni 724 og ijölgaði í þeim hópi frá
fyrra ári um 104. 68 heimiliskettir
vom svæfðir á árinu, 32 færri en
árið áður og 26 villikettir sem er
aðeins minna en var. Þá vom 15
hundar svæfðir eða einum fleiri en
árið 1997. Önnur gæludýr, sem
svæfð vom svefninum langa, vom
þrjú talsins, sama tala og áður.
Það vekur athygli í skýrslunni að
talsvert minna rnagn af eitri er notað
nú en árið á undan eða 136 kg á
móti 196 kg á árinu 1997. Skýrist
það væntanlega að mestu leyti af
minnkandi umfangi í rottuveiðum
og ætti það að gleðja flesta að það
kvikindi virðist vera á undanhaldi.
SURMATURINN
ER KOMINN
MIKIÐ ÚRVAL