Fréttir - Eyjafréttir - 24.06.1999, Page 1
í blaðinu í dag lýkur kynningu á stúlkunum átta sem þátt taka í Sumarstúlkukeppninni í ár.
Keppnin ferfram laugardaginn 3. júní í tengslum við goslokahátíð á vegum bæjarins.
Sáft í Sigurðarmálinu:
lækka krðfur um helming
Hinn 6. júní 1997 tók norska
strandgæslan Sigurð VE-15, sem
var að sfldveiðum í lögsögu Jan
Mayen, og færði hann til hafnar í
Bodö í Noregi. Skipstjórinn var
sakaður um að hafa brotið lög og
reglur um fiskveiðar í lögsögu Jan
Mayen varðandi tilkynningaskyldu
og færslu veiðidagbókar.
Norsk yfirvöld gerðu kröfu um að
skipstjórinn og útgerðin, Isfélag Vest-
mannaeyja hf., greiddu u.þ.b. fjórar
milljónir króna. Skipstjórinn neitaði
sök og hann og útgerðin höfnuðu að
greiða kröfuna. Þá var gefin út ákæra
og málið fór fyrir héraðsdóm og
áfrýjunardómstól sem sýknaði skip-
stjórann og útgerðina. Það endaði svo
fyrir Hæstarétti, þar sem dómur áfrýj-
unardómstólsins var ógiltur.
Þá lá fyrir að hefja aftur mála-
reksturinn íyrir áfrýjunardómstólnum.
Nú hefur náðst samkomulag milli
norska ákæruvaldsins og skipstjórans
og útgerðarinnar um að norsk yfir-
völd felli niður helming af kröfum
sínum og helmingur verði greiddur.
Það er mat útgerðar og skipstjóra,
með hliðsjón af forsendum dóms
Hæstaréttar Noregs, að rétt sé að ljúka
málinu með þessum hætti. Kostnaður
er orðinn mikill og eykst hver sem
endanleg niðurstaða verður.
Utgerð og skipstjóri vilja leggja
áherslu á að með lúkningu málsins
með framangreindum hætti er ekki
um viðurkenningu á sekt að ræða.
Þvert á móti kom við rekstur málsins
í ljós að tilkynningar höfðu verið
sendar ffá skipinu eins og skipstjórinn
hafði haldið fram. Vegna tæknilegra
mistaka komust þær ekki til norskra
yfirvalda. Þá var sýnt fram á að skip-
stjórinn hafði fært dagbók skipsins
nákvæmlega skv. íslenskum lögum
og fyrirmælum Fiskistofu Islands.
Starfsmenn Fiskistofu íslands töldu að
gerður hefði verið samningur milli
hennar og norsku fiskistofunnar um
færslu veiðidagbóka. Hæstiréttur
Noregs hefur hins vegar kveðið upp
úr með að ekki hafi nægt að senda
tilkynningar frá skipinu og að túlkun
Fiskistofu íslands, hvað varðar færslu
veiðidagbókar, skipti ekki máli.
Utgerð og skipstjóri leggja áherslu á
að allur málatilbúnaður var mjög
forkastanlegur af hálfu norskra yfir-
valda og í engu samræmi við tilefnið.
Sama afstaða kom fram hjá íslenskum
yfirvöldum sem mótmæltu töku
skipsins harkalega á sínum tíma. Þrátt
fyrir tveggja ára málarekstur hafa
norsk yfirvöld ekki fengið útgerð og
skipstjóra Sigurðar VE-15 dæmd.
Shellmótið hafið:
Þúsund peyjar
mætiir til leiks
-Heildarfjöldi gesta um tvöþúsund manns
Samkvæmt áætlun átti að setja
Shellmótið í gærkvöldi en þetta er í
16. sinn sem það er haldið. Alls
taka þúsund strákar úr 6. flokki
þátt í mótinu og fjöldi þjálfara og
fararstjóra er um 200. Því er fjöldi
beinna þátttakenda um 1200 og
auk þess hafa um 800 úr hópi
foreldra og aðstandenda boðað
komu sína.
24 félög taka þátt í mótinu, sömu
félög og undanfarin ár, og senda alls
100 lið til keppni. Skipt er í A, B, C,
D og E-lið. Helmingur félaganna
sendir fimm lið til keppni og sýnir það
að mikil gróska er í bama- og
unglingastarfí þeirra. Önnur félög
koma með færri lið, ekki vegna þess
að starfið sé ekki jafnblómlegt þar,
heldur eru bara ekki fleiri strákar á
þessum aldri í bænum!
I Eyjum búa rúmlega 4600 manns
þannig að 2000 mótsgestir koma til
með að setja mikinn svip á bæjarlífíð
mótsdagana. Þátttakendur gista í
skólum en foreldrar og aðstandendur í
gistihúsum, hjá vinum og ættingjum
eða tjalda inni í Dal. Þá kemur mikill
fjöldi tjaldvagna, hjólhýsa og fellihýsa
með Herjólfí. Tjaldborgin inni í dal
minnir helst á þjóðhátfð.
Dagskrá mótsins er þaulskipulögð.
Setning í gær með skrúðgöngu að
Týsvelli og skemmtiatriðum. f dag og
á morgun er svo leikið á átta
grasvöllum fram til kl. 18 en hvert lið
spilar tvo leiki á dag. Að auki er
innanhússmót með útsláttarfyrir-
komulagi þar sem hvert lið spilar
a.m.k. tvo leiki og allt upp í fímm leiki
ef vel gengur. Riðlakeppni lýkur á
hádegi á laugardag og eftir hádegi
þann dag verða leikir í undanúrslitum.
Fyrir hádegi á sunnudag spila bestu
liðin aukaleik um réttinn til þátttöku í
úrslitaleikjum. Úrslitaleikur A-liða
verður kl. 15 og að honum loknum
verður skrúðganga allra þátttakenda á
Hásteinsvelli þar sem hver þátttakandi
fær afhentan viðurkenningarpening.
Um kvöldið er svo lokahóf og verð-
launaafhending.
Shellmótið er ekki bara fótbolti.
Auk allra leikjanna eru famar skipu-
lagðar skoðunarferðir um Heimaey
með rútu og bátsferð með PH Viking
í kringum Heimaey. Boðið er upp á
kvöldvöku með skemmtiatriðum,
grillveislu, þrautir og leiki, ball fyrir
foreldra að ógleymdu sundinu og
Spröngunni.
ÞESSAR ungu stúlkur voru meðal fjölmargra stuðnings-
manna á leik ÍBV og KR á laugardaginn. Umgjörð leiksins
var til fyrirmyndar og ekki skemmdi að strákarnir okkar unnu.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 481,
TJÍ ) Sumaráœtlun Herjólfs
Frá Eyjum Frá Þorl.höfn
Alla daga kl. 08.15 kl. 12.00
Fimmtud. aukaferðir kl. 15.30 kl. 19.00
Föstud. aukaferðir Kl. 15.30 kl. 19.00
Sunnud. aukaferðir íTTTTTfTTTTTZ kl. 15.30 cmía kl. 19.00 7/rmétö
Sími481 2800 Fax 481 2991