Fréttir - Eyjafréttir - 24.06.1999, Page 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 24. júní 1999
Bákvitiá í askana
Arni ur
Hólminum
1 síðustu Fréttum skoraði Helga
Hallbergsdóttir á mig að taka við sem
bókamaður Frétta þessa viku.
Það má segja að vel fari á því að
láta bókaþátt taka við af matreiðslu-
þættinum því bækur eru andlegt
fóður. Eg hef alltaf lesið mikið og er
alæta á bækur. Ég er oft með nokkrar
bækur í takinu, gríp niður í þær sitt á
hvað. Því miður hefur bókalesturinn
minnkað seinni árin en ég er samt
alltaf eitthvað að lesa.
Ég geri mikið af því að fara á
Bókasafn Vestmannaeyja og nota þá
ágætu þjónustu sem þar er boðið upp
á. Starfsfólkið er mjög lipurt og
bókasafnið er glæsilegt eftir nýlegar
breytingar. Ég tek oft 3-5 bækur í
einu. Stundum les ég þær ekki allar
þegar ég er kominn með þær heim.
I síðustu viku tók ég nokkrar bækur
og ein af þeim bar heitið „Ámi úr
Hólminum”. Það em æviminningar
Árna Helgasonar, fyrrverandi sýslu-
fulltrúa og símstöðvarstjóra í Hólm-
inum, skrifaðar af Eðvarð Ingólfssyni.
Ég geri töluvert mikið af því að lesa
þjóðlegan fróðleik og ævisögur. í
þessum þáttum af lífshlaupi Áma
rekur hann ævi sína í grófum dráttum.
Hann segir frá uppvexti sínum á
Eskifirði en þar er Ámi fæddur. Hann
ólst upp í mikilli fátækt og missir
föður sinn þegar hann er 11 ára, elstur
fjögurra systkina. Á þessum tíma var
mikið atvinnuleysi og erfitt um
Sigurður Einarsson er
bókaunnandi vikunnar
atvinnu á Eskifirði. Hann lýsir
samferðamönnum sínum og verslun-
arháttum á Eskifirði af sérstakri
næmni.
Þegar Ámi er rúmlega tvítugur er
honum boðið starf við sýslumanns-
embættið í Stykkishólmi og flyst
hann þangað en áður hafði hann verið
í hlutastarfi hjá sýslumanninum á
Eskifirði.
Hann annaðist allt reikningshald
embættisins og alla innheimtu og
vinnudagur hans var oft langur.
Þegar Ámi nálgast fimmtugt sækir
hann um og fær stöðu símstöðvar-
stjóra í Stykkishólmi.
Ámi tók mikinn þátt í félagsstarfi á
Eskifirði og í Stykkishólmi. Hann
vildi alltaf láta gott af sér leiða og það
er sjaldgæft að lesa bók þar sem menn
talajafn vel um samferðamenn sína
og Ámi gerir í þessari bók. Hann er
lfka þekktur fyrir gamanvísnagerð og
landsþekktur á því sviði, kom fram á
skemmtunum bæði í Stykkishólmi og
víðar. Ámi er alkunnur bindindis-
maður og em margar sögur af
bindindisáhuga hans.
Bókin er að mínu mati liðlega
skrifuð og skemmtileg aflestrar.
Árni er enn á lífi í hárri elli, þegar
bókin kom út var hann 75 ára en nú er
hann 85 ára.
Ég byrja oft í miðri bók, athuga
hvort hún er áhugaverð og ef mér
sýnist svo, les ég hana frá upphafi til
enda. Mér finnst bóklestur skemmti-
legur og hvet alla til að taka sér bók í
hönd.
Ég veit að Amar Sigurmundsson
les mikið og er mikill bókamaður og
bið ég hann að taka við.
Vinnum oUkur pelta létt
Shellmótið í knattspyrnu hófst ígær en það
er fjölmennasta íþróttamót sem haldið er í
Vestmannaeyjum. Mikil vinna er íkringum
undirbúfíing allan svo og framkvæmd
mótsins og koma margir að því.
Kvennadeild ÍBV á drjúgan þátt f því, rétt
eins og í Pæjumótinu sem nýlokið er. Ein
þessara galvösku kvenna er Ragnheiður
Víglundsdóttirsem erEyjamaður vikunnar.
Fullt nafn? Ragnheiður Víglundsdóttir.
Fæðingardagur og ár? 16. apríl 1957.
Fæðingarstaður? Akureyri.
Fjölskylduhagir? Gift Garðari Péturssyni
og við eigum tvö börn.
Menntun og starf? Gagnfræðingur, vinn í
fiskvinnslu.
Laun? Venjuleg verkamannalaun
Bifreið? Hyundai Sonata 1997.
Helsti galli? Óþolinmóð.
Helsti kostur? Jákvæð.
Uppáhaldsmatur? Lambalæri.
Versti matur? Ég er svo mikið
matargat að mér finnst enginn
matur vondur.
Uppáhaldsdrykkur? Irish coffee
að hætti kvennadeildar ÍBV.
Uppáhaldstónlist? Popptónlist.
Bítlarnir voru góðir og eru það enn.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir? Að vinna með
Þórunni og Beggu.
Hvað er það leiðinlegasta sem
þú gerir? Að hlusta á þrasgefið
fólk.
Hvað myndirðu gera efþú ynnir
milljón í happdrætti? Borga
skuldir.
Uppáhaldsstjórnmálamaður?
Enginn.
Uppáhaldsíþróttamaður? ívar
Bjarklind.
Ertu meðlimur í einhverjum
Ragnheiður
Víglundsdóttir er
Eyjamaöur vikunnar
félagsskap? Kvennadeild ÍBV.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Léttmeti af ýmsum
gerðum.
Uppáhaldsbók? Ég hef gaman af að glugga í
matreiðslubækur.
Hvað metur þú mest í fari annarra? Heiðarleika.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?
Frekja og yfirgangur.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á?
Akureyri, engin spurning.
Hvert er verkefni kvennadeildarinnar í
undirbúningi svona móta? Við sjáum um
morgunmatinn og vinnum einnig við hádegismatinn.
Svo þurfum við að manna allar vaktir, t.d.
skólavaktirnar.
Hve margar eruð þið sem vinnið við þetta?
Líklega er það um 15 manna hópur sem sér um
undirbúning og skipulag, svona fastur kjarni. En svo
þarf fólk á vaktirnar og allt í allt er þetta eitthvað á
annað hundrað manns.
Hvað er erfiðast í framkvæmd?
Við vinnum okkurþetta svo léttað
okkur finnst þetta ekkert erfitt.
Mesta vinnan er líklega við að
manna þetta. Sérstaklega þegar
svona stutt er milli móta en við
sjáum líka um Pæjumótið.
Eru Vestmannaeyingar hæfari
en aðrir til að halda svona mót?
Já, það er engin spurning.
Afhverju er alltaf betra veðurhjá
strákunum en stelpunum? Það
er nú ekki alltaf, stundum hafa
stelpurnar fengið betra veður. En
kannski er það vegna þess að
strákamótið er seinna í mánuð-
inum.
Eitthvað að lokum? Við bara
vonum að mótið gangi vel og
þátttakendur verði ánægðir með
það.
NÝFfEDDIR VESTMfiNNfiEYINGfiR
Þann 20. maí eignuðust Hulda Ólafsdóttir og Jóhannes Sigurðsson son. Hann
vó 13 merkur og var 51 sm að lengd. Á myndinni er hann í fangi móður sinnar.
Ljósmóðir var Elín Sigurbjömsdóttir
o q ö) § p q a
- Eins og Eyjamönnum er kunnugt var
haldið árgangsmót ‘55 árgangsins um
síðustu helgi. Ekki er annað vitað en
allt hafi farið þar fram með ágætum.
Það vakti þó athygli sú einmuna blíða
sem ríkti milli hinna pólitísku and-
stæðinga, Guðjóns Hjörleifssonar og
Þorgerðar Jóhannsdóttur. Þessir
meintu pólitisku andpólar fóru fremstir
í flokki á mótinu, eins og mikilla
leiðtoga er siður og ekkert sem benti til
þess að þau væru andstæðingar í
pólitík. Eins og öllum er kunnugt er oft
talað um eitt og annað „fyrir og eftir
gos“ hér í Eyjum. í pólitísku tilliti nú að
loknu áðurnefndu kærleiksríku ár-
gangsmóti, er nú talað um að úrelda
frasann: „fyrir og eftir gos“ og taka upp
í staðinn „fyrir og eftir árgangsmót."
- Heimildir eru fyrir því að Sighvatur
Bjarnason fyrrum framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar sé búinn að ráða
sig í vinnu. Hann mun hefja störf á
nýjum vettvangi frá og með 1.
september nk. Ekki hefur þó fengist
upp gefið hvert starfið er.
- Margirvoru búnirað hlakka verulega
til 17. júní hátíðahaldanna, ekki síst
aðfluttir sem hefur þótt þeim degi lítill
sómi sýndur í Eyjum til þessa. Heldur
jók það á tilhlökkunina að sjálf
menningarmálanefnd bæjarins ætlaði
að sjá um framkvæmdina og hafði
haldið marga fundi vegna undir-
búnings. Einhverjir urðu þófyrirvon-
brigðum með hátíðarhaldið þar sem í
Ijós kom að flestir liðir voru eins og
venjulega, skrúðganga, lúðrasveit,
ræða og fjallkona; og svo auðvitað
rigning þótt ekki hafi hún verið
sérstaklega á dagskrá menningar-
málanefndar. Hljómsveit átti og að taka
lagið en treysti sér ekki vegna veðurs.
Helstu nýmæli voru þau að fjörið fór
fram í Herjólfsdal í stað Stakkó og að
mælst var til þess að fánar yrðu dregnir
að hún i bænum. Tilkynnt hafði verið
að hátíðahöldin yrðu í Iþróttamiðstöð-
inni ef ekki viðraði til útihátíðahalda.
Þráttfyrirvind og verulega úrkomu hélt
nefndin sínu striki og stormaði með
liðið inn í dal þar sem fólk norpaði og
reyndi að halda á sér hita með góðri
aðstoð Líknarkvenna sem líknuðu
mörgum köldum, blautum og hröktum
í veitingatjaldinu. Það þótti mörgum
hápunktur þessara hátíðahalda. Um
kvöldið voru svo auglýstir dansleikir
bæði úti og inni en eitthvað mun
þátttaka þar hafa verið dræm, a.m.k.
ekki eins og búist hafði verið við, líklega
vegna veðurs. Áhugi fyrir 17. júní
hefur aldrei verið jafnmikill í
Vestmannaeyjum og á fastalandinu,
sennilega vegna þess að önnur
þjóðhátíð á hug og hjörtu manna og
farið að styttast í hana. Næsta víst má
telja að þátttaka í þeim hátíðahöldum
verði mun meiri en var á þjóð-
hátíðardegi íslendinga, 17. júní.
Á döfinni
23. til 27. júní Shell mótið íknattspyrnu haldið með
miklum bravör
26.júní Jónsmessumót Goljklúbbs
Vestmannaeyja
3. júlí Sumarstúlka Vestmannaeyja valin við
liótíðlega athófn í Kiwanishúsinu
3.júlí „Míni“ Goslokaafmœli í Skvísusundi