Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2000, Qupperneq 16
Frétta- og auglýsingasími: 481-3310 • Fax 481-1293
Dogiegor
ferðir milli
lands og Eyjo
Landflutnjngar
LEA, fjórða frá hægri, ásamt starfsfólki sínu.
Haldið upp á tuttugu og
fimm ára afmæli Hraunbúða
í síðustu viku var þess minnst að á
árinu 1999 voru 25 ár frá því að
Hraunbúðir, dvalarheimili aldr-
aðra í Vestmannaeyjum var tekið í
notkun.
Heimilisfólki og gestum var af því
tilefni boðið til veislu. Það kom í hlut
Leu Oddsdóttur, forstöðukonu Hraun-
búða að segja nokkur orð við það
tækifæri og Sigrún Inga Sigurgeirs-
dóttir, forseti bæjarstjómar fiutti
Hraunbúðum, heimilisfólki og starfs-
fólki kveðju bæjarstjómar og Elsa
Valgeirsdóttir, formaður félagsmála-
ráðs sagði líka nokkur orð.
Lea segir að Hraunbúðir séu gjöf
ýmissa norrænna félaga og félaga og
félagasamtaka á vegum Rauðakross
Islands vegna Heimaeyjargossins
1973 en var formlega afhent 22.
september 1974.
I upphafi var gert ráð fyrir 41
heimilismanni, flestir urðu þeir 46 en
í dag em 38 til 40 heimilismenn á
Hraunbúðum.
Húsið er deildaskipt þannig að á
hjúkmnardeild em 23 og á þjónustu-
rými em 17. Deildaskiptingin er ekki
alveg í samræmi við þarfimar í dag
því fjölga verður hjúkmnarplássum,
vegna biðlista á hjúkmnardeildina.
„Við gagngerar breytingar á húsinu
fyrir nokkmm ámm íjölgaði einbýlum
úr 13 í 26 og tvíbýlum fækkaði úr 14 í
sjö. Arið 1994 var opnuð ný álma,
eldhús og matsalur, sem hefur nýst
fyrir margvíslegar samkomur eldri
borgara í Eyjum. Þar era spilakvöld,
guðsþjónustur og bænasamkomur,
afmælisveislur og ýmiss konar aðrar
skemmtanir. Tólf íbúðir í Eyjahrauni
em með öryggisbjöllu tengda inn á
Hraunbúðir og einnig getur fólkið nýtt
sér félagsþjónustuna hér,“ segir Lea.
Þá em leyfi fyrir átta dag-
vistarplássum og em þau alltaf
fullnýtt. í dagvistun hafa eldri borg-
arar aðgang að m.a. föndri, hár- og
fótsnyrtingu, böðun og geta keypt sér
mat einnig getur fólk fengið heim-
sendan mat.
1977 stóð Rauðikrossinn fyrir opnun
föndurstofu sem síðan hefur vaxið
mikið og margsannað gildi sitt.
Rútuferðir - Bus tours
Móttaka ferðanianna, skóla- og íþróttahópa
ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM
3)481 1909 - 896 6810-fax 481 1927
Vilhjálmur Bergsteinsson
* 481-2943 mmmMÚn
» 897-1178
Þrjátíu milljónir
úr Jöfnunarsjóði
Nokkur sveitarfélög á lands-
byggðinni fengu mill jóla og nýárs
kærkominn áramótaglaðning. Þá
var 700 milljón kr. aukaframlagi úr
ríkissjóði jafnað niður á sveitar-
félögin.
Þessu framlagi var tvískipt. 350
milljónir eru greiddar sem sérstakt
íbúafækkunarframlag og aðrar 350
milljónir greiddar sem hækkuð þjón-
ustuframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfé-
laga. Úthlutunin er samkvæmt sam-
komulagi ríkisins og Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga um 700 milljón
kr. aukaframlag á fjáraukalögum
ársins 1999. Þessu fé var úthlutað
samkvæmt reglum sem félagsmála-
ráðherra samdi í samráði við Sam-
band íslenskra sveitarfélaga. Þessir
aðilar vom sammála um að sveitar-
félög þar sem íbúum hefði fækkað og
tekjur dregist saman, byggju við
sérstakan vanda þar sem ekki hefði
dregist saman í rekstri og þjónustu í
samræmi við fækkun íbúa. Því er
gripið til þeirrar tímabundnu aðgerðar
að greiða sveitarfélögum, þar sem
íbúum fækkaði á ámnum 1997 til
1999, sérstök íbúafækkunarframlög
sem nema 350 milljónum króna.
ísafjörður og Skagafjörður fá hæstu
framlögin, rúmlega 31 milljón króna,
en þar fækkaði íbúum um nær 250 á
hvomm stað. Átta önnur sveitarfélög
fá yfir tíu milljónir, þ.á.m. Vest-
mannaeyjabær sem fær 21 milljón
króna þar sem íbúafækkun hér hefur
verið 175 á þessu tímabili en um 120
þúsund kr. eru greiddar fyrir hvem
brottfluttan.
Þá fá Vestmannaeyjar í sinn hlut úr
hinum helmingnum um 9 milljónir
króna þannig að samtals nemur út-
hlutunin hingað um 30 milljónum.
Páll Einarsson, bæjarritari, segir að
þetta fé komi í góðar þarfir. Nýlokið
sé endurskoðun fjárhagsáætlunar og
ljóst að með þessu vanti minna upp á
en ella hefði verið. Sú spurning
vaknar hvort hér sé fundin ný
tekjuöflunarleið fyrir sveitarfélög, að
reyna að fækka íbúum og fá í staðinn
greitt úr jöfnunarsjóði.
„Æ, nei, ég held að það sé ekki
heillavænleg leið. Mætti ég þá frekar
biðja um fleiri íbúa,“ sagði Páll
Einarsson.
Fiðrildin á toppnum
Að sögn Páls Guðmundssonar í Pennanum Bókabúð endurspeglar sala
bóka í Eyjum söluna á fastalandinu.
í flokki skáldsagna seldist Slóð fiðrildana eftir Ólaf Jóhann Ólafsson best
og í flokki bamabóka var það Harry Potter eftir J.R. Rawling. f flokki bóka
almenns eðlis var besta salan í Útkalli á Atlantshafi á jólanótt. Sagði Páll að
sú bók hefði selst upp hjá sér á aðfangadagsmorgun. Síðan hafi hann fengið
fleiri eintök og ætti hann nú um 15 eintök af henni sem inn hafi komið vegna
skipta eftir jólin. í flokki ævisagna var Einar Ben söluhæst, en í kjölfarið
fylgdu saga Steingríms Hermannssonar og Ólafs landlæknis. Einnig seldist
Sagan af bláa hnettinum , eftir Andra Snæ, mjög vel. Spurður um sölu
ljóðabóka sagði Páll að sú bókmenntagrein hefði vart verið sýnileg í
jólabókasölunni í Eyjum.
I Vikutilboð*
vjkunji 5. tii 1 2. jajj.
>r
Team Cheerios
Weetos heilhveitihringir
Ariel þvottaefni 1,5 kg.
Allways dömubindi 2pk.+ innlegg
Hárlakk
Finish duo active pillur
kr. 199,- pr. pakki
kr. 179,- pr. pakki
kr. 579,- pr. pakki
kr. 599,- pr. sett
kr. 98,- pr. brúsi
kr. 399,- pr. poki
Gleðilegt nýtt ár
481 3184.
VORUVAt
UESTURUEm 18 UESIMANNAIVIUM ^ M
mán-fös 8-19
lau 9-19 sun 10-19