Fréttir - Eyjafréttir - 03.02.2000, Síða 1
27. árgangur • Vestmannaeyjum 3. febrúar 2000 • 5. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími:481 3310 • Fax:481 1293
UNDIR venjulegum kringustæðum er þessi skúr lítið augnayndi en í snjónum skapast skemmtilegar
andstæður sem Guðmundur Ásmundsson, Ijósmyndari Frétta, festi á filmu fyrir skömmu. Snjór hefur
legið yfir í Vestmannaeyjum með litlum hléum síðan í nóvember. Er það svipað og undanfarna vetur
og ef að líkum lætur verður hann að koma og fara a.m.k. fram í mars. Snjólausar Vestmannaeyjar
virðast því heyra sögunni til, vera orðin einhvers konar goðsögn sem gott er að ylja sér við.
Gangaskýrslan hjá ráðherra
Úttektarskýrsla Vegagerðarinnar
um hugsanlega möguleika ganga-
gerðar milli lands og Eyja hefur nú
verið afhent samgönguráðherra til
kynningar.
I skýrslunni munu vera dregin saman
gögn um kostnað af slfkri jarð-
gangagerð og margur fróðleikur um
jarðsögu kringum eyjar og þó víðar
væri leitað. Ekki vildu heimildar-
menn tjá sig að öðru leyti um efni
skýrslunnar, þar sem eðlilegt væri að
ráðherra fengi að kynna sér efni
hennar áður.
Ekki náðist í ráðherra en Jakob Falur
Garðarsson aðstoðarmaður hans sagði
að skýrslan yrði kynnt í ríkisstjóm 15.
febrúar nk. og í framhaldi af því yrði
blaðamannafundur þar sem efni
skýrslunnar yrði kynnt.
Víntegundum fækkar um helming hjá ÁTVR
Á næstunni mun vörutegundum í
flestum útsölum ÁTVR fækka
verulega.
Sveinn Tómasson, ríkisstjóri í
Vestmannaeyjum, segist ósáttur við
þetta. Hér hafi verið tæplega 600
vörutegundir í útsölunni en nú fækki
þeim um 300, niður í 280. „Ég hefði í
sjálfu sér ekki verið ósáttur við
fækkun upp á 150 en finnst þetta
heldur mikið,“ segir Sveinn. „Þó
kemur þama á móti að við verðum
með 50 - 60 tegundir, svokallaðar
reynslutegundir, í sölu hveiju sinni.“
Helsta ástæðan fyrir þessum sam-
drætti er sögð vera að lækka birgða-
kostnað en Sveinn gefur lítið út á þá
skýringu. „Ég hélt að þetta skilaði nú
það miklu í ríkiskassann að ekki væri
bein þörf á að horfa í birgðahaldið."
Víðir lækniráförum
Víðir Óskarsson, yfirlæknir
Heilsugæslu HIV er á förum frá
stofnuninni.
Hann hefur verið ráðinn á Heilsu-
gæslustöð Selfoss frá og með 1. júní
nk. „Ástæðan fyrir því að við erurn á
förum er fyrst og fremst persónuleg,“
sagði Víðir. „Við munum sakna
margs úr Eyjum en á móti kemur
minna vinnuálag á Selfossi og teng-
ing við stóru sjúkrahúsin í Reykjavík
sem léttir starfið."
Fjármálastjórnin
hefur beðið skipbrot
-segir Ragnar Óskarsson um bréf eftirlitsnefndar með
fjármálum sveitarfélaga - Áminning um að við búum í
sveiflukenndu þjóðfélagi segir bæjarstjóri
Vestmannaeyjabæ hefur borist bréf
frá eftirlitsnefnd með fjármálum
sveitarfélaga. I bréfinu segir að
nefndin hafi athugað reikningsskil
sveitarfélagsins fyrir árið 1998,
ásamt árunum 1996 og 1997. Af
þeim skilum sé Ijóst að fjárhags-
staða sveitarfélagsins sé alvarleg og
virðist fjármál þess stefna í verulegt
óefni.
Sérstaklega er bent á slæma skulda-
stöðu sveitarfélagsins en skuldir á
íbúa árið 1998 voru 193 þúsund og
peningaleg staða neikvæð um 164
þúsund kr. á íbúa. Athugun nefndar-
innar á fjármálum sveitarfélagsins
bendir m.a. til þess að miðað við
framlegð áranna 1996 til 1998 muni
sveitarfélagið verða áratugi að greiða
niður skuldir sínar, að öðru óbreyttu.
Er þá miðað við að helmingur
framlegðar ár hvert fari til greiðslu
afborgana og vaxta.
Með tilvísun til sveitarstjómarlaga
óskar eftirlitsnefndin þess að henni
verði gerð grein fyrir því, innan
tveggja mánaða, hvernig þróunin
hefur orðið t' fjármálum bæjarins á
árinu 1999 og hvemig sveitarstjómin
hyggst bregðast við fjárhagsvandan-
um, m.a. við gerð íjárhagsáætlunar
fyrir árið 2000 og þriggja ára áætlunar
Ragnar Óskarsson (V) segir bréfið
stórtíðindi og um leið áfellisdóm á
fjármálastjóm sjálfstæðismanna í
bæjarstjóm. „Við höfum varað við
slæmri stöðu bæjarins og óskað eftir
breyttri stefnu í fjármálum og atvinnu-
málum. Þetta em slæm tíðindi og ef
ekki verður gripið til róttækra aðgerða
strax fer Vestmannaeyjabær í gjör-
gæslu félagsmálaráðuneytisins. Þama
hefur fjármálastjóm sjálfstæðismanna
beðið algjört skipbrot," sagði Ragnar.
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri,
segir þetta bréf áminningu um að við
búum í sveiflukenndu þjóðfélagi.
„Skattgreiðendum hefur fækkað hér
og við vitum að árið 1999 verður erfitt
> uppgjöri. Tekjumar minnkuðu um
80 - 90 milljónir og þær geta sveiflast
um 15% milli ára, miðað við
aflabrögð, eða mun meira en annars
staðar. í fjárhagsáætlun er búið að
skera niður eins og unnt er og eina
mögulega viðbótin er skert þjónusta.
Ef fara á að lögum t.d. um einsetningu
gmnnskóla og fráveituframkvæmdir,
er ljóst að skuldaaukning verður hjá
flestum sveitarfélögum.“ Guðjón segir
að 19 sveitarfélög hafi fengið slík bréf
og ágætt sé að eftirlit sé með þessu.
„Við emm ekki á neinum hættu-
mörkum en rétt að íhuga stöðuna."
FYRSTA barn ársins 2000 og
að mati lukkulegra foreldra,
Þórunnar Gísladóttur og
Guðmundar Hugins
Guðmundssonar, fyrsta barn
aldarinnar í Vestmannaeyjum
fæddist 25. janúar síðastliðinn.
Þau eignuðust sveinbarn sem
vó 13 merkur og var 53 cm að
lengd. Aðspurð sögðu þau að
þegar lögð voru drög að sveini
þessum hafi ekki verið stefnt
að því að þau eignuðust fyrsta
barn árþúsundsins, né
aldarinnar. „Þetta var algjör
tilviljun og ekkert verið að
keppa við að eignast fyrsta
Vestmannaeyinginn á öldinni"
sagði Guðmundur Huginn og
hló. „Enda langt liðið á
Þorrann núna og fyrr má nú
þá vera ónákvæmnin."
Þórunn sagði að fæðingin
hefði gengið vel og að þau litu
björtum augum til uppeldis
sveinsins. „Hann er þriðja
barnið sem við eignumst, en
fyrir eigum við dótturina
Arnþrúði Dís 6 ára og
Guðmund Inga Guðmundsson
19 ára.“
Fréttir óska foreldrunum og
fjölskyldunni að sjálfsögðu til
hamingju með sveininn og
farsældar á nýrri öld og
árþúsundi.
Vetraráætlun
Fra Eyjum Frá Þorlákshöfn
Alla daga n/sun. Kl. 08.15 Kl. 12.00
Sunnudaga Kl. 14.00 Kl. 18.00
Aukaferð föstud. Kl. 15.30 Kl. 19.00*
' Fellur niður frá 18. des.1999 - 16. mars 2000
Sími 481 2800
Fax 481 2991