Fréttir - Eyjafréttir - 03.02.2000, Page 16
BERGUR VE kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum aðfaranótt föstudagsins eftir gagngerar
endurbætur í Póllandi. Fyrir tveimur árum var Bergur lengdur og breikkaður en núna var skipt um brú
og skipið lengt, skipt um aðalvél og fleira. Bergur fer til loðnuveiða næstu daga Mynd Sigurg. Jónasson.
Ekki sammála um gagnagrunninn
Læknar á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum
eru enn í biðstöðu vegna skráningar í miðlægan
gagnagrunn á heilbrigðissviði. Er ekki búið að ákveða
með hvaða hætti skráningin verður og enn er ósamið
við stofnuina um skráninguna.
Víðir Oskarsson, yfirlæknir heilsugæslunnar, segir að
ekki hafi verið tekin afstaða til gagnagrunnsins innan
stofnunarinnar ennþá. „Við höfum rætt málið á
göngunum og lengra hefur það ekki komist,“ segir Víðir.
„Eg veit að það eru skiptar skoðanir hjá læknum innan
stofnunarinnar um gagnagrunninn en það er ekki enn
komið að því að taka formlega afstöðu til hans. íslensk
erfðagreining er búin að fá leyfi fyrir grunninum en það á
enn eftir að hanna með hvaða hætti skráningin fer fram.
A meðan erum við læknar í biðstöðu."
Þegar fyrir liggur með hvaða hætti skráð verður í
grunninn er það Islenskrar erfðagreiningar að semja við
HIV um framkvæmdina. „Það er ljóst að það þarf sér-
stakan starfsmann frá Islenskri erfðagreiningu til að ann-
ast skráninguna því við höfum ekki bolmagn til að annast
verkið. Þama gæti verið möguleiki á starfí fyrir einhvem
hér í Eyjum.“
Eftir að skráning hefst hafa allir möguleika á að segja sig
úr grunninum með skriflegri yfirlýsingu. Þrátt fyrir það
em til læknar sem neita alfarið að skrá upplýsingar um
sjúklinga sína í gagnagrunninn. „Hér innanhúss em
læknar sem em sömu skoðunar en það reynir ekki á þetta
fyrr en kemur að því að semja um gagnagmnninn,“ sagði
Víðir.
Rútuferðir - Bus tours
Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa
ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM
(3)481 1909 - 8% 6810-fax 4811927
s endibílaakstur - iimanbæjar
Vilhjálmur B ir 481-2943 » 897-1178 ty lergsteir $£dó\f£i ísson
Róttæk tillaga um íþrótta-
mannvirki samþykkt í bæjarráði:
Tvöfaldur salur
rísi vestan við
íþróttamiðstöð
Á fundi bæjarráðs á mánudag lágu
fyrir tillögur, ásamt greinargerð frá
bæjarstjóra, þar sem m.a. er fjallað
um framtíðaruppbyggingu íþrótta-
miðstöðvarinnar ásamt breytingum
á rekstri annarra íþróttahúsa í eigu
bæjarins.
Þama er m.a. fjallað um breytta
áætlun við endurbætur á fþrótta-
miðstöð en vegna tilmæla frá aðilum
innan íþróttahreyfingarinnar var
horfið frá áður ákveðinni áætlun og í
þess stað stefnt að byggingu á nýjum
íþróttasal.
Samkvæmt heimildum blaðsins em
helstu breytingar þær að stefnt er að
því að byggja nýjan íþróttasal vestan
fþróttamiðstöðvar, 48 x 48 metra,
ásamt 270 fermetra rými. 1 salnum
yrði löglegur keppnisvöllur en unnt að
tvískipta honum fyrir almenna
notkun. Hætt verði við framkvæmdir
við tengibyggingu en Ijóst er að klæða
verður gafla Iþróttamiðstöðvarinnar
og bæta loftræstingu, ásamt viðhaldi á
þaki. Stefnt verði að þvf að anddyri
austan megin verði tekið undir
skrifstofu- og félagsaðstöðu fyrir ÍBV
og önnur félög.
Frestað verður framkvæmdum við
að skipta um gólf í gamla salnum og
það gert um leið og gólf verður sett í
nýja salinn. Þá verður öðmm fram-
kvæmdum frestað í gamla salnum þar
til nýr salur kemst í gagnið svo að
ekki verði röskun á starfseminni þar.
Þá mun í tillögunum gert ráð fyrir að
rekstri í Týsheimili verði hætt afhálfu
bæjarins og húseignin seld eða leigð
út. Þó mun knattspyman áfram fá af-
not af búningsaðstöðu í húsinu.
Gert er ráð fyrir auknum umsvifum í
Þórsheimili, m.a. muni nær öll
starfsemi ÍBV íþróttafélags flytjast
þangað. Þar verði og starfrækt skóla-
sel og skóladagheimili ásamt athvarfi
og dagþjónustu fatlaðra bama sem nú
er í Búhamri. Þá er og gert ráð fyrir
þjónustumiðstöð fyrir ferðamenn yfir
sumartímann, ásamt því sem
ferðamálafulltrúi hefði þar aðstöðu.
Samkvæmt þessum tillögum er ekki
gert ráð fyrir að heildarkostnaður
hækki, miðað við þá áætlun sem áður
var samþykkt, þrátt fyrir að nýr salur
komi inn.
Þessar tillögur verða lagðar fyrir
fund í bæjarstjóm kl. 18 í dag.
Crest tannkrem ........299 kr.-
Rjómasúkkulaói, 100 gr. . 119 kr,-
Mjólkurkex ............158 kr.-
Chococookies225 gr. ...168kr.-
Ariel Millenium 3.375 gr. 1.269 kr.
BKl I B K-I
B.K.I. Gourmé kaffi 289 kr,-
Yes f. uppþvottavélar 1 kg. 343 kr.-
248 kr.-
Yes pillurl. uppþvottaválar, 25 st. 399 kr.-
VESTURUEG118
UESTMANNAEYJUM
Vikutilboð * | Yes gljái, 500ml. 239 kr,-
Opið: mán.- fös. 8-19, lau. 9 -19 og sun. 10-19
*viku6ia 3. - 9. feb