Fréttir - Eyjafréttir - 13.04.2000, Blaðsíða 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 13. april 2000
Dagur Tónlistarskóla
Vestmannaeyja:
Bauð upp á
fjölbreytta og
skemmtilega
dagskrá
Síðasliðinn iaugardag var haldinn
hátíðiegur dagur Tónlistarskóla
Vestmannaeyja. Dagurinn er
árviss fjáröflunardagur í ferðasjóð
Litlu lúðrasveitarinnar, þar sem
foreldrafélag sveitarinnar stendur
jafnframt fyrir kaffisölu þcnnan
dag ásamt meðlæti og reynt að
skapa létta kalfihúsastemmningu í
leiðinni. Stefnt er að annarri
utanlandsferð Litlu
lúðrasveitarinnar nú í vor og er
ætlunin að lialda til Englands að
þessu sinni, en sveitin hefur aldrei
verið eins fjölmenn og nú, eða
tuttugu og sjö ungir
hljóðfæraleikarar. Dagskrá
dagsins var mjög fjölbreytt og
skemmtileg. Þó að dagurinn sé
fjáröflunardagur Litlu
lúðrasveitarinnar fluttu margir
nemendur skólans tónlist á þau
hljóðfæri sem þau hafa verið að
læra á í skólanum, auk þess sem
tveir nemendur fluttu einsöng.
Flytjendur stóðu sig með mikilli
prýði og voru Tónlistarskólanum
til mikils sóma, enda ætíð gaman
að hlýða á metnaðarfullt
tónlistarfólk koma fram og sýna
hvað í því býr.
Hjálmar Guðnason stjórnandi
Litlu lúðarsveitarinnar var mjög
ánægður með daginn og taldi hann
hafa tekist mjög vel og lagði hann
áherslu á að í Tónlistarskólanum
væri unnið mjög gott
æskulýðsstarf að hans mati. „Það
er stefnt að því að halda til
Englands þann 26. maí og munum
við dvelja í viku við Ruthland
vatnið, en einnig munum við
heimsækja nærliggjandi staði, og
halda tónleika meðal annars á
útisviði í bænum Oakham.“
Svæðið í kringum Ruthiand
vatnið er mjög vinsæll
ferðamannastaður og þangað
koma að jafnaði um 750 þúsund
ferðamenn á ári, en
Ruthlandvatnið mun vera stærsta
manngerða vatn í Evrópu og mikil
ferðamannaþjónusta byggð upp í
kringum vatnið.
LITLA lúðrasveitin og st jórnandinn, Hjálmar Guðnason.
Eydís Halldórsdóttir lék einleik á flautu og Gísli Stefánsson lék á gítar.
Á myndinni má sjá starfsfólk íslandsbanka í Eyjum ásamt nokkrum leikmönnum í handknattleik kvenna
og stjórnarmanni IBV. Frá vinstri, Rúnar, Sigurður, Lúsí, Anita, Bjarný, Guðbjörg, Ingibjörg og
Þorvarður.
Þriðji leikurinn sl. fimmtudag í meistaraflokki handknattleiks kvenna reyndist að lokum verða hreinn úrslitaleikur.
Leikurinn endaði með fræknum sigri IBV stelpnanna, sem nú hampa Islandsmeistaratitili í fyrsta skipti í sögu
kvennahandbolta í Eyjum. Islandsbanki í Vestmannaeyjum hefur verið ötull stuðningsaðili myndlistar í Eyjum, en hann
hefur ekki síður lagt sitt af mörkum við að styrkja íþróttahreyfinguna með ýmsum hætti. Kvennalið meistaradeildar
IBV í handbolta hefur ekki farið varhluta af slíkum stuðningi í vetur og fyrir leikinn sl. fimmtudag gaf bankinn 50
viðskiptavinum bankans miða á úrslitaleikinn. Stelpumar voru einnig með forsölu miða á leikinn í bankanum, auk þess
sem fánar, bolir og húfúr voru seldar stuðningsmönnum liðsins á kostnaðarverði. Og til þess að lífga upp á stemmningu
dagsins klæddist starfsfólk bankans IBV treyjum, ekki er ólíklegt að slíkt hafi tryggt liðsandann, jafnt utan vallar sem
innan.
Lögreglan
fær nýjan bíl
Síðastliðinn miðvikudag fékk lögreglan í Vestmannaeyjum afhenta nýja
lögreglubifreið til notkunar við störf sín.
Bifreiðin er af Subaru Legacy gerð árg. 2000 og búin öllum þeim tækjum sem
nauðsynleg em svo lögreglumenn geti sinnt skyldum sínum á sem bestan hátt.
Að sögn var bifreiðin sem fyrir var orðin nokkuð lúin og því tímabært og
kærkomið að taka í notkun nýja bifreið, eða eins og einn lögreglumaðurinn
orðaði það. „Þetta er eins og að skrifstofumaður fái nýjan stól að sitja í.“
Að sögn Karls Gauta Hjaltasonar, lögreglustjóra, hefur lögreglan í Vest-
mannaeyjum yfir tveimur nýjum bílum að ráða. Lögreglubifreiðar á landinu em
í eigu embættis ríkislögreglustjóra, sem greiðir allt viðhald, en lögreglustjóra-
embættin á landinu leigja síðan bifreiðamar af ríkislögreglustjóra.
A myndinni má sjá lögreglumennina Pétur Steignmsson og Heiðar Hinriksson
við nýju biffeiðina.