Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2000, Blaðsíða 8
8
Fréttir
Miðvikudagur 19. apríl 2000
Kristján Óskarsson söðlar um svo um munar. Hann hætti í útgerð á síðasta ári og hefur snúi(
Fólk lifir ekki lengi á hlut<
KRISTJÁN og Emma. -Við hittumst á balli og það var ást við fyrstu sýn, alla vega hjá mér. Líklega féll hún fyrir því hvað ég dansaði vel.
Kristján Óskarsson
fyrrverandi sægreifi eins og
hann segir gjarnan og
núverandi sumarbústaða-
frömuður er ekki maður
einhamur. Hann er
snaggaralegur, hefur
skoðanir á öllu og hefur ekki
farið leynt með þær heldur.
Hann er orðhvatur og hefur
ekki alltaf vandað
samferðamönnum sínum
kveðjurnar og þegar
blaðamaður bankar upp á hjá
honum er auðvitað nær-
tækast að spyrja hann um
skoðanir hans á
blaðamönnum.
Ekkert rétt hjá blaðamönnum
„Nú tekurðu mig í landhelgi,“ segir
hann og hlær „Ég get hins vegar alveg
sagt þér það, en ég hef bara þá skoðun
á þeim að það kemur ekkert rétt út úr
þeim. Það eru alveg hreinar línur.
Þetta er ekkert fyrsta viðtalið, sem ég
hef farið í. Eins og þegar þú varst uppi
í grunni um daginn og ég var að taka
fyrstu skóflustungun, þar var nánast
ekkert rétt eftir mér haft, en svo við
komum nú þessari frétt á hreint, þá
sagði ég að fullbókað væri í bústaðina
um Þjóðhátíðina og Shellmótið, og
væri líka dálítið hissa á því hversu
mikið væri búið að bóka miðað við að
þetta hefur ekkert verið auglýst. En
auðvitað geta ykkur orðið á mistök.
En almennt með fjölmiðla, eins og
þeir koma mér fyrir sjónir í þessu
þjóðfélagi, þá er allt of mikið fjallað
um það neikvæða. Ég hringdi til
dæmis á Skjá einn um daginn, því mér
fannst það frétt að Amarfellið væri að
fara með þrjá sumarbústaði til Vest-
mannaeyja. Nei, þeir létu ekkert sjá
sig þessir menn.“
Kristján byrjaði í útgerð árið 1971
ásamt vini sínum Adda Palla og segir
Kristján að þar hafi allt verið lagt
undir og hann viss um að fólk geri sér
almennt ekki grein fyrir því. Þar áður
hafði hann verið skipstjóri og háseti
hjá föður sínum. Hann er fæddur í
Eyjum og segir að þó að atvinnulíf í
Eyjum virðist einhæft í augum sumra,
þá sé það mikill miskilningur. „Það
eru margir sem halda við séum
einangruð hér í Eyjum, en það er bara
rugl. Ég varsjösumurísveitíVestur-
Landeyjunum og eins og tíðkaðist
kom mjólkurbíllinn á hverjum degi til
þess að ná í mjólkina. Mjólkur-
bílstjórinn var giftur frænku minni.
Eftir að ég hafði aldur til að fara á ball,
til dæmis á Hvoli, fór ég alltaf með
honum á laugardögum til þess að fara
á ball og á sunnudögum hékk maður
niðri í kaupfélagssjoppu. Þá sagði
maður við krakkana sem áttu heima í
Hvolsvelli, þar á meðal Ingibjörgu
Pálmadóttur, sem núna er heil-
brigðisráherra, hvort ekki ætti að
skreppa til Hveragerðis, því þar voru
oft böll. Nei, þá var ekki nokkur áhugi
fyrir því. Fólk sem bjó þama þekkti
færri en ég, einhver peyi úr Vest-
mannaeyjum. Svo þegar maður fór að
spyrja þessa krakka hversu oft þeir
færu til Reykjavíkur fóru þeir kannski
einu sinni á ári meðan ég var kannski
að fara fimm sinnum á ári.“
Ffla ekki pólitflcusa
Hefurðu mjög einarða pólitíska
afstöðu?
„Maður hefur nú verið bendlaður
við Framsóknarflokkinn, vegna þess
að pabbi var einhvem tíma beðinn um
að vera á lista hjá flokknum. Hins
vegar var aldrei talað um pólitík
heima. Ég hef bara mína skoðun og
yfirleitt fíla ég ekki pólitíkusa. En ég
get alveg sagt að ég er mjög hrifinn af
Adda Johnsen. Ég sagði við hann
einu sinni að hann væri búinn að gera
jafn mikið fyrir þetta bæjarfélag og
allir hinir sem vom á undan honum,
eins og Guðlaugur Gíslason, Magnús
Magnússon og hvað þeir nú heita allir.
Ef hins vegar skoðanir mínar falla
ekki í kramið hjá einhverjum, verður
bara að hafa það.“
Kristján segir að þó að hann haft
ákveðnar skoðanir á mörgum málum.
og sér í lagi í sjávarútvegsmálum, þá
sé ekkert erfitt að búa Eyjum. „Ég get
ekki séð annað en það gangi ágætlega,
þó að hafi alltaf gagnrýnt kvótakerfið,
en nú er ég guðsfeginn að vera hættur
því bulli. Líklega hef ég gagnrýnt
þetta manna mest í Vestmannaeyjum,
því ég var til dæmis alltaf á móti
öllum þessum peningum sem em í
kringum þetta og em að eyðileggja
þetta. Við fmnum bara hveming mór-
allinn í þjóðfélaginu er orðinn þegar
sjávarútvgsmál em annars vegar, enda
er ég guðslifandi feginn að vera hættur
og hárið á hausnum á mér er farið að
vaxa aftur.“
Upplifði tvenna tíma í
útgerð
Kristján segir að hann muni líka
tímana tvenna í útgerð. „Þetta var
frjálst eins og allir vita, og ég get sagt
að stundum reri maður eftir því
hvemig staðan var á hlaupareikn-
ingnum. Ég man eftir því þegar ég var
á humri í leiðinda veðri. Viðvissum
að við vomm ekki að fá neitt, þegar
komin var bræla, en við fengum samt
einhvern fisk. Nú, þegar við komum
inn var hirt af okkur humarleyfið.
En eftir á að hyggja finnst
mér það helvíti skrýtið
vegna þess að maður var
manna harðastur í því að
gagnrýna þetta kerfi Eitt
árið var ég með átta
prósent af skoðunum hjá
Landhelgisgæslunni. Mér
finnst það nokkuð
óeðlilegt að einn bátur sé
með átta prósent af
skoðunum. Ég hef trú á
því að ástæðan sé bara
einhver tilskipun að ofan
að fylgjast með mér. Gera
hann nógu leiðan á þessu
svo að hann hætti. Hann
hættir þá að minnsta kosti
að blaðra um þetta og ég
held að þeim hafi lfldega
tekist það.
Auðvitað fór þetta í taugarnar á
manni, því á sama tíma vom til dæmis
Homfirðingar að veiða smáýsu austur
í Breiðamerkurdýpi. Halldór Ásgrims-
son var þá sjávarútvegsráðherra og var
ekkert að taka leyfið af Hom-
firðingum. Ég fékk svo aldrei neina
skýringu á þessu, því auðvitað fór
maður að tuða í þessum köllum. En
eftir á að hyggja fmnst mér það helvíti
skrýtið vegna þess að maður var
manna harðastur í því að gagnrýna
þetta kerfi Eitt árið var ég með átta
prósent af skoðunum hjá Landhelgis-
gæslunni. Mér fmnst það nokkuð
óeðlilegt að einn bátur sé með átta
prósent af skoðunum. Ég hef þá trú á
því að ástæðan sé bara einhver
tilskipun að ofan að gera mig nógu
leiðan á þessu svo að ég hætti. Ég
ntyndi þá að minnsta kosti hætta að
blaðra um þetta, og ég held að þeim
hafi líklega tekist það.“
Hætti í útgerð í
þunglyndiskasti
Erþað ástœðan fyrirþví að þú hœttir,
varstu beygður?
„Ég segi kannski ekki að ég hafi
verið beygður. Mér er hins vegar
engin launung á því að ég er á móti
þessu kerfi. Svo er fólk úti í bæ að
öfunda mig og konuna mfna út af ein-
hverjum krónum sem við fengum út
úr þessu, en ég barðist manna mest
gegn þessu kerfi. Ég vildi bara
sóknardagakerfi, sem hefði verið
miklu betri stýring, það var þá einhver
friðun á fiskistofnana. Hins vegar er
það ekki ástæða þess að ég hætti. Það
var bara út af því að Maggi Kristins
kom í heimsókn til mín. Ég var í
einhverju helvítis þunglyndiskasti,
sennilega hefur hlaupareikningurinn
verið öfugur, eða eitthvað slíkt, en ég
segi við hann. „Nú fer ég að selja þetta
helvíti.“ Nú Maggi segirþá. „Heyrðu
leyfðu mér að hugsa." Viku síðar er
búið að skrifa undir. Ég sá mér alveg
leik á borði að hætta úr því hann hafði
áhuga á að kaupa þetta. Kvótakerfið
er bara fyrir þá stóru og ég vona að
Maggi verði stór. Hann kann að gera
út, ég kunni það bara ekki.“
Er það Akkilesarhœll þessa keifis að
menn leika tveim skjöldum, eins og þú
kannski gerðir?
„Ég var bara með mína skoðun á
þessu kerfi, eins og það er í dag. Og
það fór í taugamar á manni, því maður
sá alveg hvemig þetta myndi fara.
Núna er ég alveg búinn að kúpla mig
frá þessu. Ég les ekki einu sinni neitt
um þetta lengur né hugsa um þetta.
Ég er alveg búinn að slíta mig frá
þessu. Hitt er annað mál til dæmis í
sambandi við Vatneyrardóminn að ég
var búinn að sjá það fyrir hvemig hann
myndi fara. Ég er ekki í vafa um að
það hefur verið togað í einhveija
spotta að ofan. Mér finnst kerfið sjálfit
ekki siðferðilega rétt, að útiloka ungt
fólk frá því að geta gert út. Það em
strákar héma að kaupa kvótalausa
báta. Ég þykist vita að þetta gengur
ekki upp. Ef þetta gengur hjá þeim,
segi ég ekki annað en að mikið
andskoti hef ég verið vitlaus með
þennan kvóta sem ég átti og þess
vegna langbest fyrir kerfið að losna
við mig út úr þessu, úr því maður
kunni ekki að gera út með þessi tonn
sem maður átti og þennan góða bát.
En vissulega má segja það nokkra
mótsögn að hafa verið sægreifi og
vera á móti kvótakerfmu.“
Ást við fyrstu sín
En eignkonan, hvererkonan á bak við
Kristján Oskarsson?
, Jú, hún heitir Emma og sem betur
fer hefur sú kona haft þolinmæði til
þess að vera með mér í þessu, þó að ég
hafi ekki verið allt of stilltur við hana,
því ég myndi líklegast teljast nokkur
glanni. En hún hefur staðið við
hliðina á mér. Við kynntumst á balli
og það var ást við fyrstu sýn, að
minnsta kosti af minni hálfu, ég veit
ekki með hana hins vegar. Hún hefur
líka alla tíð séð um bókhaldið. Svo
stjómar hún mér líka alveg og hefur
mig alveg í vasanum. En það vom
mörg ár sem ég gekk á eftir henni, því
það vora svo margir sem vora líka
skotnir og samkeppnin mikil. En
aðaláhugamálið hjá mér hér áður fyrr