Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2000, Page 14
14
Fréttir
Miðvikudagur 19. apríl 2000
Landa-
KIRKJA
- lifandi samfélag!
20. apríl. Skírdagur
KL 14.00 ferming
Kl. 20.30 Sérstök stund með mál-
tíð Drottins, sóknarnefndarfólk
aðstoðar við afskrýðingu altaris
21. apríl. Föstudagurinn langi
Kl. 14.00 Helgistund, félagar úr
Leikfélaginu lesa úr píslarsögu
Krists, vandaður söngur kórs
Landakirkju
23. apríl. Páskadagur
Kl. 08.00 Upprisu Krists fagnað,
kaffiveitingar á eftir yfir í safn-
aðarheimili
Kl. 11.00 Guðsþjónusta í Hraun-
búðum, bamaskírn.
24. aprfl. 2. páskadagur
Kl. 14.00Fjölskylduguðsþjónusta,
Litlir lærisveinar syngja, mikið
um dýrðir í tilefni páskanna.
Kl. 15.15 Messa í Sjúkahúsi Vest-
mannaeyja, allir hjartanlega vel-
komnir.
Kl. 17.00 Tónleikar í Landakirkju
með feðginunum Védísi og Guð-
mundi H. Guðjónssyni.
25. aprfl, þriðjudagur
Síðasta samvera Kirkjuprakkara.
Við gerum eitthvað óvænt og
skemmtilegt.
26. aprfl, miðvikudagur
Opið hús fyrir unglinga í
KFUM&K húsinu.
27. aprfl, finimtudagur
kl. 17.30 TTT-starfið, glaðst yfir
ferðalaginu góða.
Prestar Landakirkju hvetja Vest-
mannaeyinga til að njóta páska í
guðshúsi í þeim fjölbreyttu sam-
verum sem þar verða um páskana.
Hvítasunnu
KIRKJAN
Skírdagur
Kl. 20.30 brotning brauðsins -
Borðhald Drottins
Föstudagurinn langi
Kl. 15.00 Samkoma, ræðumaður
Danjal á Duul, Rakul og Tina
syngja
Páskadagur
Kl. 15.00 Hátíðarsamkoma, fjöl-
breyttur og lifandi söngur, Ræðu-
maður Danjal á Duul.
2. páskadagur
Kl. 15.00 Vitnisburðarsamkoma,
hjartanlega velkomin að tigna
upprisinn Frelsara
Allir velkomnir í
H vítasunnukirkj una.
Aðvent-
KIRKJAN
Laugardagur 22. apríl
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Allir velkomnir.
Biblían
talar
sími
481-1585
Börn sem fermast á skírdag
Á skírdag, þann 20. apríl, sem að
þessu sinni ber upp á sumardaginn
fyrsta, kl. 14.00 fermast eftirtalin böm
í Landakirkju.
Berglind Jóhannsdóttir, Illugagötu 15,
Bima Þórsdóttir Saltabergi, Bryndís
Björk Ólafsdóttir Foldahrauni 41,2d,
Hafliði Sigurðarson Boðaslóð 4,
Halldóra Björk Halldórsdóttir,
Kirkjubæjarbraut 15, Hallur Einars-
son Hrauntúni 8, Helena Ósk
Magnúsdóttir Gerðisbraut 2, Hildur
Dögg Jónsdóttir Hólagötu 50, Inga
Rós Gunnarsdóttir Strembugötu 2,
Jóhann Jóhannsson Illugagötu 10,
Karítas Þórarinsdóttir Illugagötu 60,
Kristín Grímsdóttir Áshamri 60,
Margrét Lára Viðarsdóttir, Strembu-
götu 8, Ólafur Stefnir Guðjónsson
Heiðarvegi 51, Sigríður Ósk Jens-
dóttir Búastaðabraut 3, Sæbjörg
Helgadóttir Brimhólabraut 33, Tanja
Rut Rúnadóttir Kirkjuvegi 43, Tinna
Hauksdóttir Brimhólabraut 2 og Örn
Orri Ólafsson Áshamri 3e.
FERMINGARBÖRNIN ásamt prestunum, Kristjáni Björnssyni og Báru Friðriksdóttur. Á myndina
vantar Örn Orra Óskarsson
Leiðrétting
Við viljum koma á
framfæri smá
leiðréttingu vegna
vinamótsins Ránar,
Hveragerðis og Selfoss.
Það misfórst í fréttinni
að minnast á að Arna
Hrund Baldursdóttir og
Jóhann Freyr
Hallgrímsson unnu
ennig gull á öllum
áhöldum. Það má líka
geta þess að Þórsteina
Sigurbjörnsdótti tók á
móti vinamótsbikarnum
fyrir hönd félagsins.
Fimleikafélagið Rán.
Landakirkja um páska
Helsta sigurhátíð kristinnar kirkju er
nú á næsta leiti því um páskana
minnumst við upprisu Jesú Krists frá
dauðum.
Á skírdag er fermingarmessa kl.
14, en um kvöldið er sérstök messa
sem lýkur með afskrýðingu altar-
isins. Það er gert til að undirbúa
guðsþjónustuna föstudaginn langa
kl. 14 þar sem leikhópur les upp
atriði úrpíslarsögunni.
Páskadagsmorgunninn hefst með
hátíðarguðsþjónusta í Landakirkju
kl. átta árdegis og fyrir hádegi á
páskadag, kl. 11, verður hátíðar-
guðsþjónusta á Hraunbúðum.
Annan dag páska verður bama-
guðsþjónusta í Landakirkju og guðs-
þjónusta verður á Heilbrigðis-
stofnuninni, dagstofu 3. hæð, kl
15.15.
Punkturinn yfir iinu þessa hátíð
verða orgel- og flaututónleikar í
Landakirkju 2. dag páska kl. 17. Þar
munu þau Védís Guðmundsdóttir,
þverflautuleikari, og Guðmundur H.
Guðjónsson, kantor, leika saman
fagra tónlist sem allir eru hvattir til
að njóta.
Sóknarprestur
F
Handknattleikur kvenna: Týr varð Islandsmeistari 1949 og 1952
Fensum bikarinn aldrei afhentan 1949
•og verðlaunapeningana eftir gos, segir Siriý í Gíslholti sem var í liðinu í fyrra skiptið
Eyjakonur hafa áður gert það gott
í handboltanum og áttu tvo Is-
landsmeistaratitla í handraðanum
áður en IBV varð Islandsmeistari
árið 2000.
Staðreyndir málsins em þær að Týr
varð íslandsmeistari í tvö skipti, árið
1949 og 1952. Sigríður Ólafsdóttir,
Sirrý í Gíslholti, var meðal leikmanna
Týs sem náðu þessum frábæra árangri.
Handboltinn hefur breyst mikið á
þeirri hálfu öld sem liðin er frá því Týr
hampaði íslandsmeistatitli og kannski
er mesti munurinn sá að uin miðja
síðustu öld var handboltinn bæði inni-
og útiíþrótt.
Sirrý man vel eftir keppninni um
íslandsmeistaratitilinn 1949 sem fór
fram á Hásteinsvelli. „Skúli Ingibergs-
son, seinna borgarstjóri í Reykjavík,
þjálfaði okkur þetta sumar. Mótið
byrjaði á sunnudeginum eftir þjóð-
hátíð sem þá var haldin á föstudegi og
laugardegi. Til þess að tryggja að við
værum sæmilega vakandi í mótinu
skipaði Skúli okkur að fara heim úr
Dalnum klukkan eitt um nóttina fyrir
keppnina,“ sagði Sirrý.
Alls tóku níu félög þátt í mótinu og
var dregið um hvaða lið ættu að
mætast. „Mótið byrjaði með sér-
stökum setningarleik og þar drógumst
við á móti Þór. Það var svo sniðugt að
Kiddi Gogga sagði að það liðið sem
ynni þann leik myndi vinna mótið og
SIRRÝ með verðlaunapeninginn sem hún vann 1949 en fékk ekki
afhentan fyrr en 1973.
verða íslandsmeistari. Ég sagði við leikslokum. Það er skemmst frá því að
hann að við skyldum tala saman að segja að við unnum Þór, gerðum
jafntefli við 1R en unnum síðan alla
leikina," sagði Sirrý en ekki var sopið
kálið þó í ausuna væri komið.
Fram varð Islandsmeistari árið áður
og höfðu forráðamenn Fram Islands-
meistarabikarinn með til Eyja. .TTam-
aramir vonr ekki sáttir við úrslitin og
kærðu leikinn við IR fyrir að vera með
útlenda leikmann en stelpan í markinu
hjá þeim var dönsk. Það var aldrei
dæmt í þessari kæm og Fram fór með
bikarinn til baka. Verðlaunapen-
ingamir urðu eftir hjá Kalla Fjalla en
við fengum aldrei bikarinn og verð-
launapeningana fengum við ekki fyrr
en eftir gos. Við fengum þó aldrei
nema sex peninga því hinir týndust í
öllu umrótinu í gosinu.“
Þrátt fyrir þetta varð Týr íslands-
meistari 1949 með hálfu stigi meira en
Fram sem varð í 2. sæti. Þremur ámm
seinna var íslandsmótið aftur í Eyjum
og þá endurtók sig sama sagan en þá
var Sirrý ekki í liðinu. ,JÉg var þá ólétt
af honum Hallgrími mínum og gat því
ekki spilað með stelpunum. Ég mætti
samt á alla leiki Týs og lét til mín taka
á hliðarlínunni. Gekk það svo langt að
í einum leiknum spurði dómarinn mig
hvort ég vildi ekki bara taka við
flautunni,“ sagði Sirrý og hló við
tilhugsunina. „Svo vil ég að lokum
óska IBV-stelpunum til hamingju með
Islandsmeistaratitilinn sem er frábær
árangur."