Fréttir - Eyjafréttir - 22.06.2000, Side 20
20
Fréttir
Fimmtudagur 22. júní 2000
Hátíðahöldin á 17. júní fengu óvæntan endi þegar jarðskjálfti skók Herjólfsdal:
Agæt skemmtun í góðu veðri
Hátíðahöldin 17. júní sem að
þessu sinni fóru fram í
Herjólfsdal, tóku óvænt enda
þegar jarðskjálftinn reið yfir
klukkan tuttugu mínútur í
fjögur á laugardaginn.
Fjölmenni var í Dalnum þegar
ósköpin gengu yfir en
dagskránni var að ljúka þannig
að margir voru farnir. Má
áætla að milli 200 og 300 manns
hafi verið í Dalnum þegar
skjálftinn reið yfir. Til að byrja
með leit þetta ekki vel út en
öllum tókst að forða sér undan
grjóti sem fór alveg niður á veg
í dalbotninum.
Aldrei þessu vant var veður
hið besta á þjóðhátíðardaginn
og var þokkaleg þátttaka í
hátíðahöldunum sem Leikfélag
Vestmannaeyja, Fimleika-
félagið Rán, Hestamannafélagið
Gáski og Kvenfélagið Líkn
stóðu fyrir. Að sjálfögðu var
Fjallkonan mætt, forseti
bæjarstjórnar flutti tölu, Fjórir
bjórar léku nokkur lög og ekki
má gleyma Lúðrasveit
Vestmannaeyja sem auk þess að
fara í broddi skrúðgöngunnar
lék nokkur lög í Dalnum.
Skófiustunga að nýjum
íþróttasal var fyrst á dagskrá
hátíðahaldanna ásamt árlegu
Hásteinshlaupi sem UMF
Oðinn stóð fyrir. Var hlaupið
frá Hásteini inn í Dal. Þá tók við
skrúðganga frá íþróttamiðstöð
inn í Dal og tóku um 200 manns
þátt í göngunni.
Leikfélagið setti skemmti-
legan svip á hátíðahöldin með
götuleikhúsi sem samanstóð af
fólki í skrautlegum búningum,
krökkum á stultum og
eldgleypum. Lúðrasveitin stóð
fyrir sínu með leik sínum.
Félagar í Gáska leyfðu unga
fólkinu að fara á hestbak,
krakkar úr Rán sýndu fimleika,
Fríða Hrönn Halldórsdóttir
flutti ávarp Fjallkonunnar og
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir
forseti bæjarstjórnar ávarpaði
samkomuna. Arlegt karnival
Líknar var að venju tengt 17.
júníhátíðahöldunum og buðu
félagskonur upp á ýmislegt
gómsætt í þjóðhátíðartjaldinu,
íkæddar furðubúningum.
Allt fór þetta vel fram og var
þeim sem þarna komu fram til
mikils sóma og er gaman að vita
til þess að fólk skuli vera tilbúið
að taka sig til og hysja upp um
þjóðhátíðardaginn eina og
sanna og standa fyrir
myndarlegri dagskrá 17. júní.
Þetta er vert að hafa í huga þó
sennilega komi jarðskjálftinn
fyrst upp í hugann þegar 17.
júní 2000 verður minnst í
framtíðinni.
FRÍÐA Hrönn Halldórsdóttir flutti ávarp Fjallkonunnar.
■ (-.1,
UM 200 manns tóku þátt í skrúðgöngunni.
GÖTULEIKHÚS Leikfélagsins setti skemmtilegan svip á hátíðina.
LÍKNARKONUR hafa í mörg ár sett skemmtilegan svip á 17. júní og þær brugðust ekki að þessu sini. Hér baka Jórunn, Þórdís og Sjöfn
vöfflur af mikilli list.