Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 22.06.2000, Page 22

Fréttir - Eyjafréttir - 22.06.2000, Page 22
22 Fréttir Fimmtudagur 22. júní 2000 Landa- KIRKJA - lifandi samfélag! Sunnudagur 25. júní Kl. 11.00 Guðsþjónusta Miðvikudagur 28. júní Kl. 11.00 Helgistund á Hraunbúð- um, allir hjartanlega velkomnir. 20.30 Opið hús í KFUM&K- húsinu fyrir unglinga. Skráning í helgigöngu á Þingvelli 30. júní stendur yfir. Séra Kristján Bjömsson er í sumarfríi til 9. júlí. Prestar Landakirkju minna á nýtt símanúmer kirk junnar 488 1500. Hvíta- SUNNU- KIRKJAN Fimmtudagur Kl. 20.30 Biblíulestur Laugardagur Kl. 20.30 brotning brauðsins Sunnudagur KJ. 11.00 Vakningarsamkoma Ræðumaður: Lilja Oskarsdóttir Samskot úl innanlandstrúboðs! Allir hjartanlega velkomnir Hvítasunnukirkjan Aliir velkomnir í Hvítasunnukirkj una. Aðvent- KIRKJAN Laugardagur 24. júní Kl. 10.00 Biblíurannsókn. Allir hjartanlega velkomnir. Biblían talar sími 481-1585 Hásteins- hlaupið Góð þátttaka var í árlegu Hásteinshlaupi Ungmennafélagsins óðins á 17. júní. Hlaupið var frá Hásteini inn í Dal. Urslit urðu þessi: 8 ára og yngri. 1. Berglind Björg Þorvaldsdóttir 2. Eyrún Eva Eyþórsdóttír 3. Halla Björk Jónsdóttir 1. Guðmundur Oskarsson 2. Theódór Sigurbjömsson 3. Haukur Jónsson 9 til 10 ára 1. Jóhanna Gylfadóttir 2. Ámý Ómarsdóttir 3. Tinna Ósk Þórsdóttir 1. Þórarinn Valdimarsson 2. Skarphéðinn Njálsson 3. Ingólfur Einarsson 11 til 12 ára 1. Ema Sif Sveinsdóttir 1. Frans Friðriksson 2. Gauú Þorvarðarson 3. Gísli Matthías Auðuns 13 ára og eldri 1. Svala Jónsdóttir 2. Erla Sigurðardótúr 1. Daði Ólafsson 2. Ólafur Steftiir Guðjónsson 3. Heimir Gústafsson Myndin er af keppendum í hlaupinu. Íþróttahátíð á mánudasinn í Eyjum er blásið til íþróttahátíðar leikskólanna á mánudaginn. Við látum hvorki hrun úr fjöllum, sprungur í jörðu né yfirvofandi jarðskjálfta hefta okkur og höldum okkar striki þó reyndar verði að fresta hátíðinni, sem átti að vera í gær, um nokkra daga. Síðastliðinn mánuð hefur undirbúningshópur, sem samanstendur af einum starfsmanni af hveijum skóla auk leikskólafulltrúa. verið að undirbúa þennan dag í samráði við ÍBV, Fimleikafélagið Rán og Ungmennafélagið Óðin hér í Eyjum. Settar verða upp ýmsar stöðvar til að kynna ólíkar íþróttagreinar, ftjálsar íþrótúr, fímleika og boltafimi. Coca cola umboðið í Vestmannaeyjum gefur bömunum boli og drykki til að svala þorstanum. Við byrjum fyrir kl. 10.00 og svo aftur kl. 14.00. Við reiknum með að hátt í 300 böm taki þátt í þessum skemmtilega degi. Golf: Cantat 3 mótið Júlíus marsfaldur sisurvesari Ágæt þátttaka var í Cantat 3 golfmótinu sl. laugardag en það fór fram í blíðuveðri og lauk rétt í sama mund og jarðskjálftinn reið yflr. Haraldur Júlíusson (gull- skalli) horfði á kúluna sína fara með rykkjum og skrykkjum yfir llötina í lokapúttinu áður en hún loks fór ofan í holuna og skilaði Haraldi fugli sem meðspilararnir fullyrtu að hefði aldrei orðið nema fyrir tilstilli skjálftans. Þessir urðu efstir með forgjöf: 1. Brynjar Ólafsson 65 h 2. Vignir A. Svavarsson 65 h 3. Jörgen Eiríksson 67 h Án forgjafar: 1. Júlíus Hallgrímsson 69 h 2. Jón Haukur Guðlaugss. 70 h 3. Guðjón Grétarsson 72 h Júlíus var sigursæll á þessu móti því auk fyrstu verðlauna hlaut hann einnig verðlaun fyrir lengsta teighögg svo og fyrir að vera næstur holu á 2. braut. Landssíminn gaf öll verðlaun til þessa móts, glæsilega síma. Þeir Ásbjöm, Aðalsteinn og Jón Haukur Guðlaugsson voru ánægðir að leik loknum á 18. flöt, sérstaklega Jón Haukur sem varð í 2. sæti og lék á 70 höggum, eða pari vallarins. Tíu mínútum eftir að myndin var tekin skalf allt og nötraði og truflaði lítillega einbeitingu þeirra sem þá voru að pútta. Jónsmessusleði í Skvísusundi ÍBV-Íþróttafélag hefur árlega haldið útiskemmtun í Herjólfsdal um Jónsmessuna. Vegna tilmæla Almannavarnanefndar hefur verið ákveðið að færa Jónsmessuna í Skvísusundið í samstarfi við Kafll Tímor. Þannig er opið í Skvísusundi og Kafft Tímor inni og í tjaldinu, allt á sama svæðinu.Skemmtunin hefst kl. 20.00 föstudagskvöldið 23. júní. Fjölbreytt dagskrá í Skvísusundi og Kaffi Tímor. Hljómsveitimar Dans á Rósum, Fjórir Bjórar, 200.000 Naglbítar, Hljómsveit Pálma Gunnarssonar, Tvíhöfði að ógleymd- um Áma Johnsen. Þá verða grillaðar pylsur og gos selt á úúsvæði. Eitt gjald er á alla skemmt- unina kr. 2.000.- og verður svæðið afmarkað, þ.á.m. Heiðarveginum lokað frá kl. 18.30 til loka skemmt- unarinnar. Mikilvægt að mæta sem fyrst til þess að ná öllum dag- skrárliðunum. Um stóra skemmtun er að ræða með mörgum frábæmm skemmtikröftum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.