Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2000, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 21. september 2000
Bókvitið
'askana
Vestmannaeyingar
Vil helst hafa bók við hendina
“Sumum bókum á maður að
bragða á - aðrar að gleypa - nokk-
rar getur maður tuggið og melt."
Francis Bacon
Upphafsorðin lýsa nokkuð vel
hvemig mínum bókalestri er háttað.
Þau em tekin upp úr Stóm tilvitnunar-
bókinn sem er nýlega komin inn á
heimilið ásamt fleiri uppflettibókum.
Ymisskonar bækur, t.d. fræðibækur
og ævisögur hef ég tuggið og melt og
vil ég fyrst nefna ævisögu langafa
míns Bjöms Eysteinssonar. Hann
llutti upp á heiði með fjölskyldu sína
og byggði sér þar bú á þeim tíma
þegar tjöldi íslendinga fór til Vestur-
heims . Ég hef heyrt því fleygt að
hann sé ein af fyrirmyndum Kiljan af
Bjarti í Sumarhúsum í Sjálfstæðu
fólki. Ég gleypti þá sögu í mig og
fleiri af sögum Halldórs Laxness,
þ.á.m. Gerplu sem mér finnst yndis-
lega skemmtileg og háðsk.
Þó ég sé ekki bókaormur vil ég
helst alltaf hafa bók við hendina, líka
á ferðalögum. Ofvitann eftir Þorberg
las ég þegar ég var ein á lestarferða-
lagi um Evrópu og var oft litin horn-
auga þegar ég rak upp skellihlátur þar
sem ég sat og las í þétt setnum lestar-
klefúnum.
Á tímabili bragðaði ég mikið á
dulspeki, heimsspeki, ýmsum trúar-
bragaðsögum, þjóðsögum, ævintýr-
um og bókum um náttúrulækningar.
Ég kættist mjög þegar ævintýrabókin
um Harrý Potter birtist í pakka til
sonar míns um síðustu jól, og fékk ég
að vera fyrst til að njóta hennar.
Þegar ég bjó í Harstad í Norður-
Noregi gekk ég í bókaklúbb og
gleypli í mig mikið af skáldsögum
eftir norræna rithöfunda m.a. Her-
björgu Wassmo. Hún er frá Stok-
marknes, bæ nálægt Harstad, notar
norður norsku mállýskuna í sumum
bókum sínum. Hennar stíll er
sérstakur, mjög ljóðrænn. Ég er mjög
hrifin af Dinas bók. Svei mér þá ef
hún fékk ekki bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðsfyrir hana.
Ég komst líka upp á bragðið að lesa
Suður-Amerískar bókmenntir þ.á.m.
Hundrað ára einsemd eftir Gabriel
Garcia Marques og Hús andanna og
Eva Luna eftir Isabel Allente. Svo er
nú spennandi að blaða í Afroditu.
Isabel ber á borð gimilegar uppskriftir
í þeirri bók og við elduðum um
daginn unaðslegan lambakjötsrétt
með spínati (úr garðinum) og fersk-
jum. Ég kann svo vel að meta dul-
spekina, galdrana og ævintýra-
ljómann í bókum þeirra Marques og
Állente.
Af sögubókum sem hafa haft mikil
áhrif á mig vil ég nefna Falið vald e.
Jóhannes Bjöm, Tyrkjaránið e. Jón
Helgason, íslandsfór Himmlers e. Þór
Whitehead og ekki síst Býr Islend-
ingur hér, sem er í raun ævisaga Leifs
Mullers og lýsir þar á mjög sterkan
hátt hvemig honum tókst að lifa af
dvöl í fangabúðum nasista í Noregi
og Þýskalandi.
Ljósmyndabækur eiga sinn sess í
bókahillunum. Spessi gaf okkur í
fyrra bókina Bensín. Hana prýða
ljósmyndir af bensínstöðvum sem
hann tók hringinn í kringum landið.
Þessar bækur eru geymdar í vinnu-
herberginu. Þar liggja á skrifborðinu
mínu þessa dagana uppflettibækur
um hljóðfærafræði, íslensk þjóðlög e.
Bjama Þorsteinsson, og ljóðabækur.
Á píanóinu liggja staflar af ýmsum
nótnabókum. Sú nýjasta er keypt í
síðustu viku í Boston með lögum e.
Tom Waits, hann er þekktur fýrir flott
lög og safaríka texta. Ég fæ aldrei nóg
af því að bragða á þessum bókum,
gleypa.tyggja og meltaþær.
Ég skora á Huldu Karen
Róbertdóttur að vera næsta
bókaunnanda. Að lokum vil ég aftur
vitna í orð Francis Bacon.
“Bækur eru skip sem sigla yfir
óendanlegt haf tímans."
Bára Grímsdóttir.
íóprenthæfum saumaklúbbi
Sambýlið við Vestmannabraut fagnar Fallegasti staður sem þú hefur komið á?
um þessar mundir tíu ára afmæli sínu. Vestmannaeyjar, svo er rosalega fallegt í Ásbyrgi.
Forstöðumaður Sambýlisins er Hve lengi ert þú búin að starfa við Sambýlið? Níu
Eyjamaður vikunnar af því tilefni. ár, næstum þvíjafngömulþví.
Fullt nafn? Sæfinna Ásta Sigurgeirs- íhverju felstþittstarf? I stjórnun, skipulagningu og
dóttir, alltaf kölluð Sæsa Vídó. þjálfun fyrir íbúa og starfsmenn
Fæðingardagur og ár? 5. júlí 1952. Hvernig erað starfa á Sambýlinu? Mjög skemmti-
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar. legt og gefandi starfen getur verið þreytandi andlega.
Fjölskylduhagir? Gift Þorbirni Núma- Hvernig heldurðu að bikarleikurinn á sunnudag
syni. Við eigum þrjú börn, Sigurgeir, fari? Mér finnstþað ekki spurning, ÍBV vinnur hann
Sæþór og Mörtu Maríu. að sjálfsögðu.
Menntun og starf? Menntuð sem Eitthvað að lokum? Ég vona að málefni fatlaðra fái
stuðningsfulltrúi. Starfa sem forstöðu- áfram að þróast á jákvæðan hátt. Áfram Sambýlið!
maður á Sambýlinu. Og áfram ÍBV!
Laun? Ríkistaxti.
Bifreið? Volvo '87.
Helsti galli? Kann ekki að segja nei.
Helsti kostur? Reyni að vera hress.
Uppáhaldsmatur? Hamborgarahrygg-
ur.
Versti matur? Hrossabjúgu.
Uppáhaldsdrykkur? Vatn.
Uppáhaldstónlist? Gamla, góða rokkið og alltþað.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að
vera ígóðra vina hópi.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að þrátta
við yfirmenn.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í
happdrætti? Ég hugsa að ég myndi borga skuldir.
Kannski skreppa til Portúgals efeitthvað yrði eftir.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Árni Johnsen (og
þjóðsöngurinn).
Uppáhaldsíþróttamaður? ÍBV liðið í heild sinni.
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Já,
íþróttafélaginu Ægi og saumaklúbb en nafnið á
honum er ekki prenthæft.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Neyðarlínan.
Uppáhaldsbók? Bankabók sem oftast nær er lítið
inni á.
Hvað metur þú mest f fari annarra? Traust og
hresst viðmót.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?
Andstæðan við þetta á undan.
Sæfinna Astci Siguigeirsdóttir
e r E y j ci m ci ð u r v i k u n n ci r
Þann 23. ágúst eignuðust Ágústa Berg Sveinsdóttir og Gunnar Ámi Vigfússon
son. Hann vó 17 merkur og var 56 cm að lengd. Hann hefur verið skírður
Sveinn Gunnþór og með honum á myndinni er stóra systir Agnes Berg.
Ljósmóðir var Drífa Bjömsdóttir.
Orðspor____________________________
Eins og sagt er frá í blaðinu í dag hefur verið sett upp nýtt hljóðkerfi og svokallaður
tónmöskvi fyrir heyrnartæki í Landakirkju. Mun það hafa verið prestum kirkjunnar
mikið kappsefni að koma upp tækjum þessum fyrir bikarúrslitaleikinn á
sunnudaginn. Sér í lagi vegna þess að fjöldi Eyjamanna mun fara á leikinn og þar
af leiðandi ekki mæta til messu. Mun hið nýja hljóðkerfi þess vegna koma í góðar
þarfir því það mun vera svo öflugt að heyrast mun í því alla leið í Laugardalinn og
víðar ef svo vill. Það verður því ekki amalegt að heyra séra Báru hrópa úr
predikunarstól Landakirkju: „Áfram ÍBV, út af með dómarann og inn á með
kristilegan kærleika."
Á döfmrrí 4*
21. sept. Opin æfing hjó ÍBV strákunum fyrir bikarleikinn Id. 17.30, sérstkalega ælluð ungum aðdáendum. Vífilfell gefur bikardót
22. sept. Skemmtikvöld jeppamanna í Akóges kl. 19.30s
23. sep. Húsbyggingamót Golfklúbbs Vestmannaeyja.
24. sept. Urslitaleikur IBV oglAi kókakólabikamum. Laugardalsvelli. Áfram IBV eins og presturinn segir
25. sept. Töfvuskóli Vestmannaeyja. Námskeiðin hefjast fjölbreyH að vanda. Allir í tölvunám!
30. sept. Héraðsfundur Kjalamessprófastsdæmis í SafnaðarheimiliLandakirkju kl. 09.00- 12:00
30. sept. 30. sept. Lundaballið í umsjá Elliðaeyinga
og 1. old. Námskeið í list- og sköpunargáfu á vegum KÍ haldið á Hallveigarstöðum
02.-04. okt. Seinni hluti náms í Ökuskóla Vestmannaeyja
08. okt. Tónlistarmessa með Tónsmíðafélaginu í Safnaðarheimilinu kl. 20.00
14. okt. Eyjar 2010.
12. okt. Bjórhátíð á Mánabar, slendur í þrjá daga!
15. okt. Poppmessa í Landakirkju kl. 20.00