Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2000, Blaðsíða 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 21. september 2000
Firma- og innanfélagsmót Sjóve
Árni Karl
Ingason hlaut
flest verðlaun
Fagnaður í Alþýðuhúsinu í mótslok
Árni Karl Ingason, sigurvegari mótsins, með verðlaunagripina ásamt
Ellu Boggu, sem dró stærsta fiskinn.
Firma- og innanfelagsmót Sjóve
var haldið síðastliðinn laugardag.
Alls tóku tuttugu og þrír kepp-
endur þátt í mótinu, sex sveitir og
sjö bátar. Mótinu lauk svo með
hófi í Alþýðuhúsinu um kvöldið
sem stóð langt fram undir morgun
með tiheyrandi gleði og fögnuði.
Meðal þátttakenda í mótinu var
Sigríður Kjartansdóttir sem er
Islandsmeistari kvenna í sjóstöng, en
hún var í þeirri sveit sem mestan afla
fékk. í sveitinni ásamt henni voru
Arni Karl Ingason, Olafur Tryggva-
son og Elínborg Bemódusdóttir, en
heildarafli þeirra var 314,050 kg.
Aflahæsti báturinn var Lubba VE
með samtals 329,650 kíló en þar um
borð voru Einar Birgir Einarsson
Sigríður Kjartansdóttir, Páll Pálsson
og Jóhann Jónsson, en skipstjóri á
Lubbu var Jóhann Guðjónsson.
Tcgundarverðlaun hlutu:
Elínborg Bemódusdóttir dró stærsta
þorskinn, vó hann 11.050 kg og var
jafnframt stærsti fiskur mótsins. A
eftir henni komu Ríkharður
Stefánsson með 8,3 kg. þorsk og Þor-
valdur Kristjánsson með 7,7 kg.
þorsk.
Þorvaldur Kristjánsson dró stærstu
ýsuna sem vó 2,4 kg.
Páll Pálsson dró stærsta ufsann sem
vó 1,3 kg.
Jóhannes Sigurðsson dró stærstu
keiluna, sem vó 4,9 kg.
Erlendur Guðjónsson dró stærsta
steinbítinn sem vó 2,2 kg.
Guðrún Snæbjömsdóttir dró stærsta
karfann sem vó 1,6 kg
Jóhannes Sigurðsson dró særstu
lýsuna sem vó 1,3 kg.
Sigurður Hlöðversson dró stærstu
lúðuna sem vó 2,05 kg.
Ólafur Hauksson dró makríl sem vó
0,850 gr.
Arnór Sigurðsson dró sprettfisk sem
vó 0,110 gr.
í firmakeppninni veiddi Ámi Karl
Ingason flesta fiska. Ámi Karl veiddi
fyrir Lundann, sem vann þar af
leiðandi firmakeppnina. Heildarafli
hans var 103,150 kg.
Flestar tegundir veiddi Einar Birgir
Einarsson eða samtals 7 tegundir, á
eftir honum vom Guðmundur
Stefánsson og Ólafur Tryggvason
með 6 ftska hvor
Flesta fiska veiddi Ami Karl Ingason
eða 105, næst komu Sigríður Kjart-
ansdóttir og Einar Birgir Einarsson
með 82 fiska hvort.
Verðlaunabikara gáfu Guðjón
Rögnvaldsson, Óskar á Frá og Tóti í
Geisla. Em þeim færðar miklar og
góðar þakkir frá Sjóve fyrir þá veg-
semd og góðan hug.
Áhöfnin á Hlýra, fr.v. Erling aðstoðarmaður, Kristbergur Einarsson skipstjóri, Arnþór Yellow Sigurðsson,
Ríkharður Engilbertsson elsti þátttákandi í sjóstöng á heimsvísu, Jóhannes Sigurðsson og Þórey Jóhannsdóttir.
Skipstjórarnir fr. v. Jóhann Guðjónsson, Kristbergur Einarsson, Jóel Andersen, Kjartan Már ívarsson, Georg Árnarson, Guðmundur Rafn
Gunnarsson og Halldór Gunnarsson.
Fr.v. Sigríður Kjartansdóttir íslandsmeistari kvenna í sjóstöng, Aflahæsti skipstjórinn, Jóhann
Olafur Tryggvason, Elínborg Bernódusdóttir og Árni Karl Ingason. Guðjónsson.
Sigríður Kjartansdóttir með sambýlismanni sínum Arnþóri Yellow
Sigurðssyni formanni Landssambands sjóstangveiðimanna.