Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2000, Qupperneq 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 21. september 2000
Sviptingar á sjoppumarkaði í Eyjum:
Treystum á stuðning
heimamanna
- segir Einir Ingólfsson, eigandi Isjakans
Þessir krakkar gæddu sér á ís og nammi fyrir utan ísjakann og ekki
annað að sjá en að smakkist vel.
Einir Ingólfsson: „Maður sér þessa þróun í verslun og útgerð.
Þetta er alltaf að færast á færri og stærri hendur, og nú er þetta að
byrja í sjoppugeiranum, þar sem stórir aðilar eru að troða sér inn á
smærri staði á landinu.“
Um þessar mundir er
ísjakinn fímm ára.
Isjakinn hefur haslað sér
völl á sjoppu- og
grillmarkaðnum, en þar
hefur einnig verið rekið
gistiheimili og fyrir um
hálfu ári hófu Einir
Ingólfsson og Sigríður F.
Þórhallsdóttir eigendur
Isjakans einnig rekstur
vídeóleigu, sem hefur verið
mjög vel tekið af
Vestmannaeyingum. Þrátt
fyrir hóflega velgengni í
rekstrinum segir Einir þó
að ýmsar blikur séu á lofti
á þessum markaði í
Eyjum.
Hefur undið upp á sig
Þar sem ísjakinn er nú og hefur verið
síðastliðin fimm ár var áður rekin
ísbúð og þegar hún var auglýst til sölu
ákváðu þau hjónin að slá til og kaupa
húseiginina. „Isbúðin hafði verið í
rekstri í eitt og hálft ár minnir mig
þegar hún var auglýst til sölu Ég vann
þá jafnframt fullan vinnudag í
bræðslunni með þessu fyrstu árin svo
að reksturinn gengi. Síðan fór þetta
hægt og rólega að vefja upp á sig. Við
stækkuðum og bættum grillinu við en
sumarið 1997 byrjum við rekstur
gistiheimilisins og fórum þá út í stóra
fjárfestinugu til þess að geta það. Sú
fjárfesting hefur ekki verið að gefa
mikið í aðra hönd, en við höfúm getað
staðið skil á dýrum lánum sem við
tókum og erum að borga þetta niður.
Stóra brcytingin er svo þegar við
stækkuðum verslunina í fyrra og
tókum vídeóleiguna og Hlöllabáta í
gagnið. Það hefur lukkast geysilega
vel og hefur alveg staðið undir
breytingunum og gefið mér tækifæri
til þess að helga mig rekstrinum og
þurfa ekki að vinna annars staðar."
Einir segir að hann sé mjög ánægður
með viðtökur Vestmannaeyinga eftir
að þau breyttu versluninni. „Fólk var
ekkert mjög bjartsýnt þegar við
ákváðum að fara út í þessar breytingar
og margir spurðu okkur út í hvað við
værum að ana. En með mikilli vinnu
hefur þetta gengið vel. Hins vegar er
því ekki að neita að ég hefði viljað
geta haft aðgang að ódýrara lánsfé,
því að það er staðreynd að dýr lán
hamla mjög mikið ungu fólki til þess
að hrinda góðum hugmyndum í
gang."
Einir segir að starfsemin hafi alltaf
verið rekin af fjölskyldunni þangað til
breyting varð á og verslunin var
stækkuð. „Þá urðum við að fjölga
starfsfólki. Einnig er það að konan
mín hefur verið veik og þurft að draga
sig í hlé vegna þess. Hún fór í
uppskurð og hefur verið mjög þróttlítíl
síðan. Reyndar vann hún undir
þessum þjáningum fyrstu árin á
meðan við vorum að koma þessu af
stað. Sigríður hefur hins vegar séð um
gistinguna á sumrin og sinnt henni
ásamt því að vera með stórt heimili."
Rólegt sumar
Hvemig hefur rekstur gistiheimilisins
gengið og hvemig leggst framtíð
ferðaþjónustunnar íþig með hliðsjón
afhenni?
„Við erum með tvö tveggja manna
herbergi og sal með svefnpokaað-
stöðu, en stefnum á að breyta salnum
í smærri einingar með meiri
þægindum. Sumarið hefur verið
rólegra nú en í fyrra hvað nýtinguna á
gistingunni áhrærir. Það voru færri
hópar, en ágætt reyndar á álagstímum.
Á landinu í heild er reyndar talað um
mikla fjölgun ferðamanna, en
tekjumar hafa hins vegar ekki aukist
að sama skapi. Það er skýrt með því
að framboð styttri ferða er miklu
meira en áður en þrátt fýrir gott veður
í sumar, sem ekki hefur hamlað flugi
virðist það ekki hafa skilað sér til
Eyja. Hins vegar höfum við á
Isjakanum kannski ekki sinnt
gistingunni í sumar sem skyldi vegna
þess að verslunin hefur tekið mikinn
tíma. Ef við hins vegar breytum
herbergjaskipaninni, þá teljum við að
auðveldara verði að skipuleggja
gistinguna og ná betri nýtingu.
En svo að ég segi skoðun mína
almennt á ferðamálum og því sem er
verið að gera sem aukið gæti ferða-
mannastrauminn, þá er fyrstan að telja
golfvöllinn sem bæði í náttúrufegurð
og framkvæmd skartar því fegursta
sem sést hefur hér á landi og þótt víðar
væri leitað. Skanssvæðið er hrein
gersemi og verður í framtíðinni fastur
viðkomustaður ferðamanna. Einnig
er átak þeirra vatnstanksmanna
frábært, sem ætti að ryðja veginn fyrir
fleiri stórhuga menn, því auðvitað
þyrfti að byggja hér sæmilega stórt
hótel í kjölfarið. Slíkt myndi tryggja
komu stórra hópa, svo sem fyrirtækja
og félaga til funda og ráðstefnuhalds.
Nýtt íþróttahús á vafalaust eftir að
færa okkur fleiri mót og í leiðinni
meiri peninga í bæjarfélagið, ekki
veitir honum Gauja bæjó af ef honum
á að takst að fjármagna dæmið án
hækkunar gjalda. Einhver nefhdi bara
sí svona að það mætti laga stöðu
bæjarsjóðs verulega með því að selja
eitt stykki úteyju til einhvers auð-
kýfings, hvað segja úteyjamenn um
það? “
Stórir og smáir
Nú eru nokkrar sviptingar á
sjoppumarkaðnum. Til að mynda er
Bónusvídeó komið til Eyja sem er með
starfsemi á landsvísu?
„Þetta leggst ágætlega í okkur, nema
eins og þú bendir á að það sem gæti
gert okkur erfitt um vik og er dálítið
ógnvekjandi er tilkoma þessa risa á
markaðinn Mér finnst til dæmis
slæmt að Kaupfélagið skyldi ekki hafa
gefið öðrum tækifæri til að bjóða í KÁ
sjoppuna í Goðahrauninu í stað þess
að láta Bónusvídeó hafa hana. En
manni virðist KA ráða meira og
minna allri verslun á Suðurlandi, allt
austur á Homafjörð. Maður sér þessa
þróun í verslun og útgerð að þetta er
alltaf að færast á færri og stærri
hendur, og nú er þetta að byrja í
sjoppugeiranum, þar sem stórir aðilar
eru að troða sér inn á smærri staði á
landinu. Bensínstöðvamar em einnig
að færa út kvíamar á þessum
vettvangi, sem ógnar auðvitað öllum
sjoppum á minni stöðum á landinu.
Þessari þróun finnst mér fylgja
ákveðin leiðindi og ekki gott fyrir
samfélagið í heild. Hér í Eyjum á
þetta þó ekkert að þurfa að vera ógnun
ef vel er haldið á spilunum. Þetta er
alltaf spuming um að gera vel, vera
mikið við sjálfur og hafa yfirsýn yfir
allan reksturinn. Við emm hins vegar
ákveðin í því að stefna þessu í góðan
farveg áður en við fömm að breyta
eitthvað meira, þannig að hægt sé að
lifaáþessu."
En nú er fimm ára afmœli, er ekki
einhver liátíð í gangi, góð tilboð og
slíkt?
„Jú við emm með ákveðið afmælis-
tilboð. Við bjóðum hádegistilboð á
Hlöllabátunum, þar sem fylgir kók og
ís. Með vídeóspólunni er svo hægt að
velja um hvort viðkomandi fær sér ís,
snakk eða örbylgjupopp að njóta með
spólunni. Hvort þetta verður eitthvað
mótvægi við það sem von er á verður
bara að koma í ljós. En það sem við
óskum kannski eftir er að Vestmanna-
eyingar sjálfir og þeir viðskiptavinir,
bæði nýir og þeir sem haldið hafa
tryggð við okkur frá því að við
byrjuðum í þessum rekstri, haldi
áfram að styðja rekstur heimamanna.
Oft var þörf en nú er nauðsyn," sagði
Einir að lokum og vildi þakka heima-
mönnum stuðninginn á undanfömum
ámm.
Benedikt Gestsson
KR-ingar fógnuðu sigri í Landssímadeildinni og þar
með Islandsmestaratitlinum í knattspyrnu síðastliðinn
laugardag með því að sigra Stjörnuna í Garðabæ 4-1.
IBV datt niður í fjórða sætið með því að tapa fyrir
Grindavík á Hásteinsvelli 1 - 2, sem er fyrsti tapleikur
þeirra á heimavelli í rúmlega þrjú ár. KR-ingar í
Eyjum hafa kannski ekkert verið að flíka í miklum
mæli aðdáun sinni á Vesturbæjarliðinu. Samt er einn
maður sem aldrei hefur farið leynt með áhuga sinn og
aðdáun á KR, en það er Jóhann Kristján Ragnarsson
afgreiðslustjóri Eimskips í Eyjum, sem náðist á mynd í
sigurvímunni með kampavín, flögg og veifur
síðastliðinn laugardag. Hann sagði að KR-ingar væru
vel að sigrinum komnir, enda lang lang bestir.