Fréttir - Eyjafréttir - 05.10.2000, Page 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 5. október 2000
Við leggjum allt okkar undir
-segja þeir Grímur Þ Gíslason og Sigmar Georgsson um nýja veitinga- og
ráðstefnuhúsið sem byrjað verður að reisa í Löngulág í dag.
Undanfarna daga hafa
þeir Grímur Þ. Gíslason
og Sigmar Georgsson verið
önnum kafnir við að
undirbúa grunninn á
vatnstankinum í Löngulág,
koma fyrir festingum og
öðru fyrir hið nýja
veitinga- og ráðstefnuhús
sem rísa mun á næstunni á
tankinum. Byrjaðverður
að reisa sjálft húsið í dag.
„Við emm með öll leyfi í lagi og
höfum frá upphafi verið íöglegir með
allar okkar framkvæmdir. Okkur hef-
ur aldrei dottið í hug að gera neitt sem
ekki hefur verið að fullu leyfilegt. Við
einsettum okkur strax í byrjun að
halda allar reglur og höfum staðið við
það,“ segja þeir félagar en nokkur
styrr hefur staðið um bygginguna,
einkum frá íbúum í næsta nágrenni.
Sjálft húsið, sem byrjað verður að
reisa í dag, er alíslenskt, kemur frá
Límtré hf. á Flúðum og Yleiningum
hf. í Reykholti. Húsið er keypt uppsett
frá þessum aðilum og munu þeir
alfarið sjá um uppsetningu þess.
Grunnflatarmál hússins verður 1216
fermetrar en setustofa á annarri hæð er
um 200 fermetrar. Aætlað er að í
aðalsal verði unnt að koma fyrir 600
manns í sætum. Hægt verður að
skipta aðalsalnum í tvennt og setu-
stofan er þriðji valmöguleikinn þannig
að unnt er að halda í einu þrjár
aðskildar samkomur í húsinu ef þarf.
Horfa hvað mest til
ráðstefnuhalds
I kynningarbæklingi sem þeir hafa
látið prenta, er getið þess helsta sem
boðið verður upp á í hinu nýja húsi.
Þar er fram talið: móttökur, fundir,
ráðstefnur, hvataferðir, óvissuferðir,
árshátíðir, afmælisveislur, brúðkaups-
veislur, fermingarveislur, erfidrykkjur,
jólahlaðborð, þorrablót, sýningar,
kynningar, dansleikir og fleira.
Þeir Grímur og Sigmar segjast horfa
með hvað mestri væntingu til ráð-
stefnuhalds. „Viðhöfumkynntokkur
þessi ráðstefnumál vel og þar er sá
markhópur sem við munum leggja
áherslu á að ná til okkar. Með
ráðstefnum er ekki verið að tala um
nokkra klukkutíma heldur tvo til þijá
daga, þar sem inni er gisting, matur,
skemmtun og verslun í bænum. Hús-
ið verður hannað sérstaklega með
tilliti til nútíma ráðstefnuhalds, þar
verða skjávarpar, tölvur og tölvu-
tengingar. Nýherji hefur séð um þá
hönnun fyrir okkur, samkvæmt nýjum
kröfum sem gerðar eru til aðstöðu til
slíks ráðstefnuhalds og þetta verður
líklega það fullkomnasta á landinu.“
Sérstaðan mun nýtast okkur
Þeir félagar segja Vestmannaeyjar
hafa gífurlega sérstöðu sem ekki hafi
verið nýtt fram til þessa. „Allt um-
hverfið er mjög „ráðstefnuvænt" ef
svo má að orði komast. Hér er mikil
náttúrufegurð, stutt að fara til allra
hluta sem sparar verulegan tíma,
svæðið afmarkað og ekki þörf á
hlaupum til og frá til útréttinga og
reddinga eins og raunin vill oft verða á
í Reykjavík. Þeir sem haldið hafa
ráðstefnur í Vestmannaeyjum tala um
mun betri árangur sem náðst hafi hér
en t.d. á höfuðborgarsvæðinu. En
fram til þessa hefur okkur vantað hús-
næði sem rúmað gæti stórar
GRUNNURINN er til staðar á vatnstanknum og nú á aðeins eftir að reisa húsið. Grímur og Sigmar
standa að þessu ásamt fjölskyldum sínum.
ráðstefnur. A þessu ári hafa þrír stórir
aðilar haft samband við okkur og
viljað halda hér ráðstefnur með 250 til
400 þátttakendum. Það var ekkert
vandamál að taka á móti þessum
fjölda í mat, það gátum við, en
vandamálið var að finna nógu stórt
hús, þar strandaði allt en verður ekki
vandamál í framtíðinni. Við erum
nýkomnir af Vestnorden-ráðstefnunni
og þau viðbrögð sem við fengum þar
hafa virkilega aukið á bjartsýni okkar
sem var þó talsverð fyrir. Við skulum
heldur ekki gleyma því að þessar
framkvæmdir kalla á aukið gistirými í
Vestmannaeyjum, þar er vaxtar-
broddur sem hótelhaldarar í Eyjum
hafa virkilega sýnt áhuga. Og ráð-
stefnur sem þessar eru oftast haldnar
utan hins venjulega ferðamannatíma
og þar með nýtist öll aðstaða hér
betur.“
Tónleikahald og
stórsýningar
Þá segja þeir Grímur og Sigmar að á
undanfömum árum hafi ekki verið til
viðunandi húsnæði fyrir samkomu-
hald í Vestmannaeyjum, hafi fjöldinn
farið yfir 150 manns. „Hátíðahöld
sjómannadagsins eru kannski nærtæk-
asta dæmið, þar sem fólk hefur verið
að skemmta sér á mörgum stöðum, í
stað þess að áður fyrr var þetta á
einum og sama staðnum. Við höfum
fullan hug á að hefja sjómannadaginn
til vegs og virðingar á ný auk þess sem
stefnt er á tónleikahald og stórsýningar
á borð við það sem verið hefur á Hótel
íslandi til dæmis. Nú galopnast okkur
möguleikar til alls þessa.“
Viðamikil
matvælaframleiðsla
En það sem kannski hefur ekki farið
mjög hátt í umræðunni hjá hinum
almenna bæjarbúa um hið nýja hús, er
að þar verður ekki einungis veitinga-
rekstur og ráðstefnuhald. Þar er ei nnig
áformað að verða með viðamikla
matvælaframleiðslu í tengslum við
Veisluþjónustu Gríms sem sífellt
hefur verið að færa út kvíamar.
Reyndar var þetta kynnt á fundi með
nágrönnum.
„Þama verður 200 fermetra eldhús
sem ekki mun aðeins nýtast til að elda
ofan í þá sem sækja samkvæmi og
ÞANNIG kemur húsið til með að líta út þegar það verður risið. Á húsið að
verða tilbúið í febrúar til niars í vetur.
ÁÆTLAÐ er að byrja að reisa húsið í dag og hefur undirbúningur að því
staðið undanfarna daga.
ráðstefnur. Við sjáum fram á að
samnýta þetta með þeirri matvæla-
framleiðslu sem nú er til húsa á
Faxastígnum og verður þar reyndar
áfram. Með þessu verður húsnæðið
ekki bara starfrækt í kringum helgar,
heldur verður þama starfsemi alla
daga vikunnar.
Fiskibollur til Færeyja
Við emm búnir að gera samning við
Sláturfélag Suðurlands um framleiðslu
á fiskibollum fyrir 1944 réttina og það
er mikil viðurkenning fyrir okkur að
SS skuli hafa valið okkur í það
verkefni. Við komum mjög vel út í
gæðaprófunum þeirra og það er góð
viðurkenning fyrir okkur að fá þetta.
Þá er einnig að hefjast útflutningur á
fiskibollum frá okkur til Færeyja. Nú
em Færeyingar líklega manna kröfu-
harðastir þegar fiskibollur em annars
vegar en framleiðslan okkar hefur
líkað vel í Færeyjum, bæði verð og
gæði. Við emm líka að kanna mögu-
leikann á að koma okkur enn frekar
inn á markaðinn í Reykjavík sem er
mjög stór. Og svo emm við með
Kanadamarkaðinn í sigtinu. Sá
markaður er alveg gífurlegur ef af
verður. Við emm í sambandi við eitt
stærsta og traustasta dreifmgar-
fyrirtækið á þeim markaði, ég kynntist
þeim aðilum á sínum tíma þegar ég
var inni í Kinn,“ segir Grímur. „Þá
höfðu þeir mikinn áhuga á að koma
blálöngubollunum á markað en það
strandaði þegar þeir spurðu mig hvað
ég gæti sent þeim marga 40 feta gáma
með bollum! Á þeim tíma var ég að
hnoða bollumar í höndununum og það
hefði tekið mig einhver ár að uppfylla
slíka pöntun. Nú em aðstæðumar allt
aðrar og allir möguleikar opnir, bæði
með tilkomu hússins í Löngulág, auk
þess sem aðstaðan verður áfram niðri
á Faxastíg þó svo að hún sé búin að
sprengja allt utan af sér.“
„Menn em alltaf að tala um full-
vinnslu sjávarafla á Islandi," segir
Sigmar. „Sé það hægt, þá er það hér í
Vestmannaeyjum og við stefnum
ótrauðir á það.“
Engin ævintýramennska
„Við leggjum allt okkar undir í
þessum framkvæmdum," segja þeir
félagar. „En við emm lflca með góða
menn með okkur. Þetta er ekki ævin-
týramennska, okkur er full alvara með
þessu og trúum því að þetta eigi eftir
að verða lyftistöng fyrir byggðarlagið.
Við áætlum að þama geti orðið til allt
að 25 ný störf ef allt gengur upp, bara
í þessu fyrirtæki. Við emm þess
fullvissir að þegar húsið er risið og allt
komið í gang þá verði ekki margar
óánægjuraddir sem muni heyrast,
heldur verði ánægja og sátt, bæði með
staðinn og þá starfsemi sem þama fer
fram. Reyndar er rétt að taka það fram
að við höfum aldrei orðið varir við
neitt sem hægt er að kalla persónulega
óvild frá þeim aðilum sem hafa
mótmælt staðsetningu hússins. Þau
mótmæli hafa beinst að fram-
kvæmdunum en ekki okkur sjálfum
og það emm við út af fyrir sig
þakklátir fyrir. Hitt er svo annað mál
að við emm þess fullvissir að þetta
verður svipað og þegar Safnaðar-
heimilið var byggt. Þá vom margir
því mjög mótfallnir, sáu ekkert gott
við þá byggingu. Nú amast enginn
við því og þykir það sjálfsagt, eins og
það er. Það verður eins með húsið á
tankinum í Löngulág, eftir eitt eða tvö
ár verða allir orðnir fyllilega sáttir við
það.“ Sigurg.