Fréttir - Eyjafréttir - 05.10.2000, Blaðsíða 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 5. október 2000
Landa-
KIRKJA
- hjartanlega velkomin!
Fimmtudagur 5. október
Kl. 10 - 11.30. Foreldramorgnar.
Samvemstundir foreldra ungra
bama. Fyrsta samvera.
Kl. 14.30. Helgistund á Heil-
brigðisstofnun, dagstofu 3. hæð.
Heimsóknargestir velkomnir.
Kl. 16.30. Útför Oddnýjar Bjama-
dóttur.
Kl. 17.30. TTT - starfið í umsjón
Olafs Jóhanns.
Föstudagur 6. október
Kl. 11-12.00. Stafkirkjan á Skans-
inum opin til sýnis.
Kl. 13.45. Æfing hjá Litlum læri-
sveinum, yngri hóp, í Safnaðar-
heimilinu.
Kl. 20.30. Nótt í KFUM&K hús-
inu fyrir unglinga í æskulýðsfélagi
Landakirkju. Olafur Jóhann.
Laugardagur 7. október:
Kl. 10.30. Útför Helgu Björg-
vinsdóttur.
Kl. 11.30. Æfing hjá Litlum læri-
sveinum, eldri hóp, í Tónlistar-
skólanum við Vesturveg.
Kl. 14.00. Útför Margrétar Páls-
dóttur.
Sunnudagur 8. október:
Kl. 11.00. Bamaguðsþjónusta.
Bamakórinn Litlir lærsiveinar
syngur undir stjóm Guðrúnar
Helgu og Ósvaldar Freys. Leikur,
lofgjörð og bæn.
Kl. 13-14.00. Stafkirkjan á Skans-
inum opin til sýnis.
Kl. 14.00. Guðsþjónusta. Organisti
Joanna Wlasczick. Kór Landa-
kirkju. Molasopi á eftir.
Kl. 16.00. Hátíðarmessu síðustu
helgar útvarpað á ÚV FM 104.
Kl. 20.30. Tónlistarmessa Tón-
smíðafélagsins í Safnaðarheim-
ilinu. Kaffihúsastemning og kerta-
ljós. Fundur æskulýðsfélags
Landakirkju rennur inn í messuna.
Þriðjudagur 10. október:
Kl. 16.30. KKK. Krakka-
klúbburinn Kirkjuprakkarar (7-9
ára) í umsjá Hrefnu Hilmisdóttur.
Miðvikudagur 11. október:
Kl. 11.00. Helgistund á Hraun-
búðum. Allir velkomnir.
Kl. 12 - 12.20. Kyrrðar- og bæna-
stund.
Kl. 20 - 22.00. Opið hús í
KFUM&K húsinu fyrir unglinga.
Hver mætir með stráhatt?
Hvi'tasunnu-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20.30 Biblíulestur um ísrael,
hvað er framundan?
Laugardagur
Kl. 20.30 Bænasamkoma.
Sunnudagur
Kl. 15.00 Vakningarsamkoma að
hætti hússins.
Samskot tekin til prédikarans.
Allir hjartanlega velkomnir
Aðventkirkjan
Laugardagur 7. október
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Allir hjartanlega velkomnir.
Biblían talar
sími
481-1585
Körfubolti: Fréttir kynna mfl. IV
Byssjum á heimamönnum
-os einni fesurðardrottninsu sesir Arnsteinn Insi formaöur os leikmaóur
LIÐ ÍV 2000: F.v. Sæþór Orri Guðjónsson, Kristinn Þór Jóhannesson, Eggert Baldvinsson, Guðmundur
Eyjólfsson, Pálmi Óskarsson, Davíð Arnórsson.
Fremri röð: Daði Guðjónsson, Henry Mörköre, Jónatan Guðbrandsson, Arnsteinn Ingi Jóhannesson og Júlíus
Ingason.
Körfuknattleiksfélag Vestmanna-
eyinga, IV er nú að hefja sitt annað
ár í 1. deild karla en liðið komst upp
úr 2. deild tímabilið 1998-99 eftir að
hafa tapað úrslitaleik um það árið
áður. A síðasta tímabili voru fengn-
ir margir leikmenn víðs vegar af
landinu til að styrkja IV og árang-
urinn var þokkalegur, fimmta sæti
en fjögur efstu liðin fara í úrslita-
keppni um tvö laus sæti í úrvals-
deild. Þrátt fyrir ágætis árangur þá
gekk rekstur deildarinnar ekki sem
skyldi og því hefur verið ákveðið að
liöið verði í ár byggt upp á heima-
mönnum sem virðast vera tilbúnir í
slaginn. Liðið hefur fengið til sín tvo
nýja leikmenn og er annar þeirra
þjálfari liðsins í Eyjum.
Eggert Baldvinsson er þó ekki að
öllu leyti aðkomumaður, faðir hans
Baldvin er ættaður úr Eyjum. Það má
því segja að Eggert sé kominn á
heimaslóðir.
Amsteinn Ingi Jóhannesson hefur
lengi starfað í kringum körfuboltann í
Vestmannaeyjum. Addi er Akureyr-
ingur en unnusta hans er Páley Borg-
þórsdóttir, Eyjasnót en þau búa þessa
dagana í Reykjavík. Addi er, ásamt
því að vera formaður IV, einnig
leikmaður og svo sér hann um æfingar
liðsins í Reykjavík. Það er því óhætt
að segja að Addi sé allt í öllu hjá ÍV.
I fyrra fékk liðið til sín marga
leikmenn og réði góðan þjálfara, var
stefnan þá sett á að komast upp?
„Markmiðið í fyrra var fyrst og
fremst að halda sér í deildinni. En
okkur gekk vel til að byrja með og
vorum í þriðja sæti eftir fyrri um-
ferðina. Þá settum við okkur það
markmið að halda því sæti og komast
í úrslitakeppnina en því miður gekk
það ekki eftir og við enduðum í
fimmta sæti og komust þ.a.l. ekki í
úrslit. Það má kannski segja að eins og
staðan er í dag þá er ekki grundvöllur
fyrir úrvalsdeildarliði í Vestmanna-
eyjum. Meistaraflokkur gæti kannski
komist upp en undirstaðan er engin,
þ.e.a.s. yngri flokkarnir eru fáir. Við
höfum reynt að setja á fót fleiri yngri
flokka en við erum með núna, en það
eru 12 ára og yngri og 13-15 ára.
Astæðan fyrir því er einföld, við fáum
ekki fleiri tíma í íþróttahúsi en við
bíðum bara spenntir eftir nýju og
stærra húsi. Við erum að reyna byggja
upp núna þannig að framtíðin ætti að
vera björt.“
En hvernig gengur að afla tekna fyrir
liðið ?
„Það má kannski segja að það gangi
fyrir tilstuðlan fámenns hóps sem að
stendur í þessu. Sæþór Orri hefur að
mestu séð um að afla tekna fyrir
félagið og er ótrúlegt hvað hann hefur
unnið mikið starf einn síns liðs. Við
höfum fáa menn í kringum okkur til
að sækja peninga í fyrirtæki og standa
fyrir ýmsum fjáröflunarleiðum einss
og t.d. árlegs áramótaballs í
Týsheimilinu. Ekki væri verra ef fólk
sem hefur áhuga á því sem við erum
að gera setti sig í samband við okkur,
við tökum öllum fagnandi. Síðasta
tímabil gekk kannski ekki nógu vel,
við áttum erfiðara með að fá fyrirtæki
að styðja okkur en árið áður sem
okkur fannst skrítið enda liðið komið
upp um deild. Þetta var erfitt hjá okkur
í fyrra en við erum ekki að velta
neinum stórum fjárhæðum þannig að
þetta lítur ágætlega út. Við höfum
núna sett stefnuna á að koma út á núlli
og höfum því skorið niður, m.a.
höfum við engan útlending á launum
eins og undanfarin ár.“
En hvemig standa leikmannamálin hjá
liðinu ?
„Staðan er þannig hjá okkur er
þannig að við létum flesta aðkomu-
mennina, sem voru með okkur í fyrra,
fara. I íyrra var mórallinn í liðinu ekki
nógu góður, aðkomumennimir
komust aldrei í takt við liðið sem kom
niður á samvinnu leikmanna inni á
vellinum. Núna höfum við fengið tvo
mjög góða leikmenn, annar býr í
bænum en hinn í Eyjum og hann sér
m.a. um þjálfun yngri flokkanna. Svo
em nokkrir aðkomumenn að æfa með
okkur sem við getum gripið í ef okkur
vantar leikmenn."
Hvemig líst formanninum á komandi
tímabil?
„Bara ágætlega. Það virðast vera
tvö áberandi góð lið í deildinni,
Stjaman og Breiðablik sem hafa verið
að spila mjög vel í æfingaleikjunum
og bæði lið unnu sfna fyrstu leiki með
yfirburðum. En annars held ég að
deildin verði mjög jöfn, Skaga-
mönnum var m.a. spáð fjórða sæti og
okkur áttunda en við unnum þá um
síðustu helgi nokkuð ömgglega."
Hlynur bestur
-íris í liði ársins
Lokahóf KSÍ fór fram um síðustu
helgi og eins og undanfarin ár var
hófið hið glæsilegasta. Hápunktur
kvöldsins var þegar tilkynnt var um
val á bestu leikmönnum Lands-
símadeildarinnar og að sjálfsögðu
var Hlynur Stefánsson valinn besti
leikmaður mótsins, ásamt því að
vera í liði ársins, einn leikmanna
ÍBV.
Hlynur sagði að sjálfsögðu væri
þetta mikill heiður fyrir sig. „Það að
vera valinn besti leikmaður mótsins af
öðmm leikmönnum gerir þetta auð-
vitað mjög sérstakt og óhætt að segja
að heiðurinn sé kannski enn meiri
fyrir vikið. Maður er náttúmlega
alveg í skýjunum með þetta en
kannski er þetta bara samvinna milli
leikmanna að losna loksins við mig úr
þessu.“
Iris Sæmundsdóttir var ennfremur í
liði ársins og er vel að þeirri viður-
kenningu komin. Það vakti hins vegar
furðu að Karen Burke, sem án efa var
besti leikmaður Islandsmótsins í
sumar var ekki einu sinni valin í lið
ársins.
Heimir áfram
með stelpurnar ?
Heimir Hallgrímsson lét hafa eftir sér í lok síðastliðins tímabils að hann
væri hættur þ jálfun meistaraflokks kvenna.
Eftir það fóm forráðamenn liðsins á stúfana í leit að þjálfara en sú leit hefur
engum árangri skilað og ekki útlit eins og staðan er í dag að þjálfari finnist.
Heimir sagði í stuttu spjalli að hann væri ennþá þjálfari liðsins. „Það er alveg
á hreinu að stelpumar verða ekki skildar eftir þjálfaralausar og því er ég enn
þjálfari liðsins. Ef nýr þjálfari finnst ekki þá mun ég halda áfram með liðið, ég
fékk mikinn stuðning frá stelpunum um helgina en ef ég ætti að vera þjálfari
liðsins næsta sumar þá vil ég fá meiri aðstoð með umgjörð liðsins."