Fréttir - Eyjafréttir - 05.10.2000, Page 10
10
Fréttir
Fimmtudagur 5. október 2000
Eyjar 2010 frábært tækifæri til þess að opna umræðuna:
Púlsinn tekinn á ungum
HATT í 30 manns mættu á fyrsta fundinn á Klaustrinu í Reykjavík og eru tveir hópar á fastalandinu að undirbúa sig fyrir ráðstefnuna
sem verður haldin 14. október næstkomandi.
-Hjálmar Helgason:
Markvissari stefnu í ferðaþjónustu
Eins og lesendum
Frétta er kunnugt
verður ráðstefnan
Eyjar 2010haldiní
Vestmannaeyjum
laugardaginn 14.
október næst
komandi í
Týsheimilinu.
Ráðstefnunni er ætlað
að verða vettvangur
skoðanaskipta og
hugmyndavinnu ungs
fólks í Eyjum þar sem
stefnt verður að því
að fá upp á
yfirborðið
framtíðarsýn þess ög
ekki síður ungs fólks
sem flutt hefur frá
Eyjum, til náms og
starfa á Stór-
Reykjavíku rsvæði n u.
Myndaðir hafa verið
undibúningshópar
sem hafa verið
starfandi um nokkurt
skeið bæði í Eyjum
og Reykjavík og
munu síðan opinbera
hugmyndir sínar
þegar á hólminn er
komið þann
fjórtánda. Til þess að
heyra aðeins ofan í
nokkra sem unnið
hafa að
undirbúningnum í
Reykjavík, mælti
blaðamaður Frétta
sér mót við Hjálmar
Helgason, Jóhannes
Egilsson og Frosta
Gíslason. Ljóst er að
mikill áhugi er fyrir
því að gera
ráðstefnuna sem
glæsilegasta og ekki
síður að hún geti
skilað árangri sem
hægt er að byggja á
til eflingar menningu
og mannlífi í Eyjum til
framtíðar.
Hjálmar Hclgason er fæddur árið
1975 og starfar hjá fyrirtækinu
Nova Media í Reykjavík.
Hann segir að í sínum huga sé hug-
mynd hans og von um Vest-
mannaeyjar árið 2010 byggð á
blómstrandi mannlífi, ferðamanna-
þjónustu og sterkum sjávarútvegi. „En
þetta er allt byggt á von. Ef rétt er á
spöðunum haldið þá ætti ferða-
mannaþjónustan að geta blómstrað.
Varðandi sjávarútveg, eins og staðan
er í dag, þá eiga Eyjabúar sjálfir
takmarkaða möguleika dl þess að hafa
þar nokkra stjóm, við, eins og flest
bæjarfélög á landinu, erum uppá
góðvild kvótaeiganda komin. Það þarf
ekki annað en að Samheijamenn komi
og kaupi Vinnslustöðina, þá væri
útlitið ekki of bjart. En vonandi halda
núverandi eigendur velli og tryggt
verði að Vestmannaeyjar verði áfram
ein öflugasta verstöð á Islandi."
Þú talar um ferðaþjónustima, hvaða
tökum vilt þú taka luma til þess að hún
fúi blómstrað?
„Eg held það felist fyrst og fremst í
markvissari markaðssetningu á Eyjum
sem forvitnilegum dvalarstað, hvort
heldur íyrir íslendinga eða útlendinga.
Þá held ég að þurfi að fara inn á víðari
svið en bara rútuferðir og að fólk komi
bara og stoppi í einn dag, heldur verði
að vinna að því að það stoppi lengur,
en það em ýmis ráð til þess. Þar sé ég
fyrir mér að Eyjamenn taki fmm-
kvæðið sjálfir, en þurfi ekki að stóla á
einstakar ferðaskrifstofur uppi á landi
með markaðssetninguna. Eg sé til
dæmis fyrir mér allt frá köfún og upp í
klifur, og allt þar á milli. Það má kalla
þetta „stunt-“ eða glæfraferðir, þar
sem fólk getur farið í köfun
úteyjaferðir og gönguferðir, þannig að
gengið verði á fjöll, en ekki bara á
tilbúna útsýnisstaði.“
Af því að þú nefhir úteyjamar, þá
hejúr maður ekki séð að vilji sé til þess
að markaðssetja þœr fyrir hinn
almenna ferðamann, er það kannski
misskilningur að gera það ekki?
„Það yrði að sjálfsögðu að gera allt
slíkt með góðsfúslegu samstarfi við
úteyjafélögin, sem að hljóta að bera
hag eyjanna fyrir bijósd, ekki síður en
þeir sem ekki em í úteyjafélögum.
Þetta mætti gera á dauðum tíma í
úteyjunum. Þetta gætu verið allt frá
einum degi upp í tvo daga sem hópar
gætu dvalið í viðkomandi eyju. Fyrir
utan að skoða eyjuna og fuglalífið,
væri hægt að bjóða upp á köfun og
bjarsig fyrir þá sem vilja. Við höfurn
að mínu mati, ótæmandi möguleika til
að sinna öllum stærðum og gerðum
túrista, hvort sem um er að ræða 70
ára þýskar dömur, eða 20 ára gamla
peyja ofan af landi sem vilja einhverja
spennu og fjör.“
Hjálmar hefur búið í Reykjavík frá
árinu 1997, en þá hóf hann nám í
Vélskóla íslands og lauk námi þaðan
síðastliðið vor. „Sumarið 1998 var ég
að vinna í kringum Keikóverkefnið,
en síðan hef ég alfarið verið í
Reykjavík. Ástæða þess að ég bý ekki
í Eyjum er sú að ég og kærastan erum
í góðum störfum í Reykjavík. Eg
sakna auðvitað Eyjanna, og fjöl-
skyldan mín býr í Eyjum, þannig að
ég kem reglulega heim í mömmu-
matinn. En aðalástæðan fyrir því að
við viljum ekki flytja „heim“ er sú að
við fáum ekki vinnu sem hentar okkur
og ekki heldur þau laun sem við
viljum.“
Sérðu þig búa í Eyjum árið 2010?
„Nei ég efast um það.“
HJÁLMAR Sæþór og Siggi ræða málin á fyrsta fundinum.