Fréttir - Eyjafréttir - 14.12.2000, Síða 11
Fimmtudagur 14. desember 2000
Fréttir
11
en ekki sjómenn
Óskar: „Þar sem við verslum beint
við verksmiðjur á þessum svæðum
teljum að við okkur vera að bjóða mun
lægri verð fyrir sambærilega skó á
markaðnum, enda er ekkert skómerki
selt í eins miklu magni á íslandi eins
ogX18.“
Hver er hugmyndin að haki XI8?
„Stíllinn er fyrst og fremst ættaður
frá Islandi, þar sem byggt er á hrein-
leika, einfaldleika og að hafa skóna
stílhreina," segir Óskar.
„Merkið sjálft X-18 þýðir hins
vegar bannað innan átján ára.“ „Þetta
var hugmyndin að þessu,“ bætir Adolf
við. „Mörgum fannst þetta fáránlegt
þá, en finnst það mjög töff í dag.
Þannig er þetta eins og annað nýtt á
markaðnum."
Þekkjum íslenskan markað
mjög vel
Óskar og Adolf segja að þeir haft
verið bjartsýnir þegar þeir hófu mark-
aðssetningu X18, enda til lítils að vera
í þessu, ef svo hefði ekki verið. „Við
áttum alveg von á því að hugmyndin
myndi ganga upp, þetta var frekar
spuming um hversu langan tíma það
tæki. Við teljum okkur þekkja mark-
aðinn á íslandi mjög vel og það hefur
margsannað sig að við höfum náð
árangri og það miklum árangri á
íslandi og viljum það líka erlendis. A
næsta ári munum við hefja
markaðsherferð í Danmörku og ætlum
að gera merkið jafn vinsælt þar eins og
það er héma heima.“
Þó að vel haft gengið við markaðs-
setningu XI8 má ekki gleyma því að
hún hefur kostað mikið fé. Óskar segir
að þeir haft haft mjög góða sam-
starfsaðila úr Vestmannaeyjum, eins
og Pétur Bjömsson og Magnús Guð-
mundsson. „Þeir hafa staðið mjög vel
á bak við fýrirtækið og eiga stóran hlut
í því. Einnig fengum við fjármagn úr
Nýsöpunarsjóðs atvinnulífsins, þar
sem Amar Sigurmundsson er for-
maður. Þessir aðilar eiga mjög stóran
þátt í því uppbyggingarstarfi sem
unnið hefur verið í fyrirtækinu og án
þess fjármagns hefðum við ekki getað
gert neitt."
Öflug ímynd
Þið sögðuð aðjyrirtœkið vœri fyrst og
fremst markaðsfyrirtœki, gætuð þið
útskýrt það aðeins nánar?
Óskar: „Við byggjum ímynd okkar
fyrst og fremst á því að vera íslenskt
fyrirtæki og byggja á einfaldleika.
Einnig emm við með mjög skemmti-
legar auglýsingar í okkar markaðs-
setningu sem gerir ímynd merkisins
mun öflugra. Þess vegna er ekkert
annað fyrirtæki sem er jafn mikið
markaðsett eins og við hér á Islandi.
Þetta er bara nákvæmlega það sama
og við ætlum að reyna að gera út í
heimi og höfum verið að vinna að.
Við emm með mjög góða stöðu í
Bandaríkjunum, Englandi, einnig í
Danmörku og höfum opnað skrifstofu
þar. Síðan em lönd eins og Frakkland
að koma mjög sterk inn ásamt
Ástralíu, Suður-Aífíku og Japan. í dag
seljum við til þrjátíu og átta landa í
fimm heimsálfum. Draumamarkað-
urinn er hins vegar fyrst og fremst
Evrópa þar sem við ætlum að
markaðssetja okkur. Við emm með
annað fyrirtæki sem markaðssetur
okkur í Bandaríkjunum. Það em mjög
sterk fyrirtæki eins og í Japan sem em
að panta hjá okkur og við emm famir
ÓSKAR og Adolf með sýnishorn af framleiðslunni.
ÞÓREY Ágústsdóttir er meðal Eyjamanna sem vinna hjá X-18.
að vinna með Mitsubishi þar.“
„Það er gaman að segja frá því,“
bætir Adolf við, „að þeir vom að
staðfesta fyrstu pöntunina og það var
verið að athuga hvaða flutningafyrir-
tæki við ynnum með og þá var það
náttúmlega fyrirtæki á vegum Mitsu-
bishi. Þannig að þetta er gríðarlega
stórt fyrirtæki sem starfar á mörgum
sviðum viðskipta. Það er mikil eftir-
spum eftir að fá að selja framleiðslu
okkar, en við gemm miklar kröfur til
söluaðila og sækjumst eftir þeim
bestu."
Seljið þið framleiðsluna mikið til
stórra verslanakeðja?
,Já, til dæmis í Bandaríkjunum er
um við að selja til Bloomingdales,
Nordstrom, Macy's, Fritz Seekers og
Faith sem á verslanir inni í Top Shop
búðunum á Englandi og svo mætti
lengi telja.“
Höfðið þið fyrst og fremst til ungs
fólks með framleiðslu ykkar?
„Við viljum orða það þannig að við
séum að höfða til ungs fólks á öllum
aldri.“
Óskar segir að þrátt fyrir mikla
samkeppni við stóm ffamleiðenduma
eins og Nike, þá fari þeir nokkuð aðrar
leiðir í markaðssetningunni. „Nike
keyrir mjög mikið á tækni og yfirleitt
em þeir dýrari. Við keymm hins vegar
á ferskleika og tísku. Það þarf alltaf að
vera með einhvem ferskleika og eitt-
hvað nýtt, en auðvitað er það
markaðurinn sem ræður og hann
stjómar hvaða línu við leggjum
áherslu á og í hvað við viljum setja
peningana. Það þýðir ekkert að bjóða
vöm sem við vitum að selst ekki.“
Urðum of stórir fyrir
Portúgal
Aðeins að verksmiðjunni í Portúgal,
hvers vegna ákváðuð þið að hœtta
rekstri hennar?
„Við höfum verið að þróa fyrir-
tækið allan þann tíma sem við höfum
rekið það, segir Adolf. „Fyrst vomm
við að láta framleiða fyrir okkur skó í
Portúgal og þá aðallega fyrir íslenskan
markað, en einnig til annarra landa
eins og Danmerkur. Þá ákváðum við
að markaðsetja okkur undir merkinu
XI8. Við vomm mjög litlir þá og í
Portúgal er auðveldara að framleiða
lítið magn, því verksmiðjumar em
ekki eins stórar og í Kína. Þess vegna
verður maður að fara með mjög mikið
magn af stað í upphafí. Við vomm
hins vegar ekki nógu stórir til þess í
Portúgal. Við vorum meira að segja
það litlir að verksmiðjumar í Portúgal
töldu framleiðslumagn okkar óhag-
stætt þá. Þess vegna stofnuðum við
okkar eigin skóverksmiðju á sínum
tíma úti í Portúgal. Það var mjög
lærdómsríkt og þegar ég var þama úti
og sá um rekstur verksmiðjunnar í Iok
ársins 1998, var staðan sú að við
höfðum aldrei selt eins mikið af skóm,
svo að ákveðið var að flytja alla
framleiðsluna til Kína og verk-
smiðjunni í Portúgal hreinlega lokað,
enda vomm við kannski engir
snillingar í verksmiðjurekstri. Það sem
við gemm kannski best er að markaðs-
setja skó og búa til nýjar týpur. Aðrir
em miklu betri í verksmiðjurekstri en
við. Málið var því að á þessum
tímapunkti vomm við orðnir of stórir
fyrir verksmiðju okkar í Portúgal og
gátum flutt framleiðsluna til Kína.
Fyrir þann tímapunkt vomm við ekki
nógu stórir til þess að láta framleiða
okkar vöm þar.“
Adolf segir að á næsta ári muni
velta fyrirtækins líklega ná milljarði
og að fyrirtækið stækki í samræmi við
það. „Það em að koma fleiri hjól undir
vagninn. Við seldum mikið í Eng-
landi, Danmörku og á Norður-
löndunum og fleiri lönd í fleiri
heimsálfum em að bætast við. Hong
Kong verður líka alltaf sterkari með
hverju árinu.“
Hvað er mikið lagt í hönnunar- og
ímyndarsköpunina ?
„Við byggjum upp alla skólínuna,
ímyndina og merkið sem slíkt. Þess
vegna er fólk líka að kaupa XI8,
vegna þess að það er eitthvað. Það er
öðm vísi en það sem aðrir em að
bjóða. Svo dæmi sé tekið af Puffins-
merkinu, þá var það bam síns tíma. Þá
var miklu þrengra um vik, vegna þess
að við gátum ekki búið til okkar eigin
sóla og urðum að velja sóla sem vora
til á markaðnum. Þá gátum við ekki
gert þá hluti sem við emm að gera í
dag vegna þess að við vomm svo
smáir. Núna er allt framleitt fyrir
okkur eins og við viljum hafa það. Það
eru allt íslendingar sem koma að
hönnuninni og er nú um tuttugu
manna hópur. Hjá okkur starfa líka
Vestmannaeyingar, eins og hún Inga
Rut, Þórey Ágústsdóttir, Hjálmar
Helgason vomm við að ráða sem field
manager, Magga í Suðurgarði er á
símanum og svo Heiða konan mín
sem komin er aftur í vinnu eftir
bameignarfrí en hún er búin að vera
með okkur í þessu í mörg ár,“ bætir
Adolf við.
Fylgjumst með þróun mála í
Eyjum
Eruð þið að hirða allan œskublómann
úr Eyjuml
„Nei, nei,“ segja báðir einum rómi.
„Kannski að leyfa honum að springa
út,“ bætir Oskar við.
En varðandifjaivent ykkarfrá Eyjum.
Langar ykkur ekkert til að flytja til
Eyja aftur?
„Auðvitað væri mjög gaman að búa í
Eyjum og maður vill hvergi annars
staðar vera,“ segir Oskar. „Við bíðum
bara eftir því að Ámi sjái um að opna
göngin, þá getur maður flutt til Eyja.
Ef við gætum keyrt beint í vinnuna,
byggjum við ömgglega báðir í Eyjum.
En auðvitað fylgjumst við með því
sem er að gerast í Eyjum, enda búa
foreldrar okkar þar.“
„Og konan mín á stóra ætt í
Eyjum,“ bætir Adolf við. „Einnig er
allt mitt vinafólk í Vestmannaeyjum,
þannig að við fylgjumst vel með og
ekki síst í gegnum Fréttir. Við emm
líka áhugasamir um fótboltann og
reynum að mæta á alla leiki, auk þess
stóð ég lengi í markinu hjá IB V.“
Svona að lokum, haldiði að þið komið
til með að eyða ellinni íEyjum?
„Við emm ekkert famir að spá í
það, en hver veit,“ segir Oskar.
„Maður veit aldrei hvað gerist næst.
Hins vegar emm við bjartsýnir hvað
varðar íyrirtækið og X-18. Ég segi það
oft að við séum að fara á Pólinn. Við
emm komnir með sleðann og í vor
sagði ég að við væram rétt að byija að
renna okkur af stað, en nú emm við
komnir á fulla ferð og stefnum á að
komast alla leið. Við reynum að passa
okkur á því að fara ekki of hratt,
reynum að halda góðri stefnu og sigla
vel með okkar afla.“
„Það er langt í land og mikil vinna
framundan," segir Adolf. „Við emm
enn þá í uppbyggingunni, en höfum
alla möguleika til þess að klára
málið.“
Bcnedikt Gestsson