Fréttir - Eyjafréttir - 14.12.2000, Blaðsíða 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 14. desember 2000
Örlaganótt í sögu Eyjanna
-Þegar Isfélagið stóð í Ijósum logum
Laugardagskvöldið og aðfaranótt
siinnudagsins munu seint líða
Vestmannaeyingum úr minni. Að
sjá miskunnariausan eldinn læsa
sig í hús Isfélagsins við Friðarhöfn
var úgnvekjandi og fólkið, sem
dreif að, stóð magnvana gegn
ægikrafti eldsins.
Þarna horfði fólk á eitt
nýtískulegasta frystihús landins
verða eldinum að bráð, um
hundrað manns sáu vinnustaðinn
sinn fuðra upp og eigendurnir sáu
margra ára starf og uppbyggingu
fara í súginn. Það var því ekki
óeðlilegt að margur felldi tár við
þessa hrikalegu sjón.
Eldurinn hafði greinilega
kraumað lengi því örfáum
mínútum áður en hann braust út
varð fólk, sem átti leið þarna um,
einskis vart. Þegar komið var að
stóð eldurinn marga tugi metra
upp í loftið og upp af honum vall
kolsvartur reykur sem steig beint
til himins. Upptökin voru í nýrri
karageymslu sem myndaði flmmtu
og nyrstu burstina á húsi
Isfélagsins.
Slökkvilið virtist ráða lítið við
eldinn, þegar leið að miðnætti
virtist þó sem að takast mundi að
hefta útbreiðslu eldsins en sú von
varð að engu þegar eldurinn náði
að læsa sig í næstu burst og eftir
það varð ekki við neitt ráðið.
Eldurinn æddi suður eftir húsinu
og það eina sem tókst að vcrja var
vestasti hlutinn þar sem er sfldar-
og loðnuvinnsla.
Um tíma var talin hætta á að
cldur kæmist í ammoníaksgeymi
og var næsta nágrenni lýst
hættusvæði en sem betur fer tókst
að verja tankinn.
Um klukkan 3 um nóttina hafði
tekist að ná tökum á eldinum en
ciginlcgu slökkvistarfl lauk ekki
fyrr en langt var liðið á
sunnudaginn.
BRUNABÍLAR frá
Slökkviliði Vest-
mannaeyja og
flugvellinum í
sameiginlcgri atlögu
að eldinum.
ÞANNIG var aðkoman stuttu eftir að eldurinn braust út. Kertin, sem skreytt hafa ísfélagið til margra ára eru enn með Ijósum en á hinum
endanum reðst eldurinn upp úr karageymslunni.
í allt unnu um hundrað manns að slökkvistarfinu. Auk slökkviliðs
Vestmannaeyja tóku starfsmenn Isfélagsins og hafnarinnar,
flugvallarstarfsmenn og 11 slökkviliðsmenn úr Reykjavík þátt í
baráttunni við eldinn. Auk þess voru mættir menn sem vildu leggja
sitt af mörkum. Meðal þeirra var Þór í. Vilhjálmsson, verkstjóri í
Vinnslustöðinni. Af flugvellinum komu tveir slökkvibflar og nota átti
dælubúnað Lóðsins en það reyndist ekki hægt.
SLÖKKVILIÐ Vestmannaeyja telur 30 manns og mættu 26 strax.
Þeir börðust við eldinn alla nóttina og langt fram á sunnudag.