Fréttir - Eyjafréttir - 14.12.2000, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 14. desember 2000
Fréttir
13
Séra Jóna Hrönn Bolladóttir skrifar:
Vestmannaeyingar eru
duglegt og kjarmikið fólk
Oft voru skrefin út úr Landakirkju þung þegar
áföll höfðu dunið yfir og manneskjur gengu út í
kirkjugarðinn, sem á þessum tíma er upplýstur af
ljósum umhyggjusamra aðstandenda. En þá var
gengið undir bogann og augu manna hvíldu á
/
orðum Jesú Kiists, „Eg lifi og þér munuð lifa“. Þá
fann ég svo vel hvað það eru sterkar manneskjur
sem á þessari eyju búa og hve óbifanlega náð
Guðs mun alltaf haldast við Heimaey.
Þessi fullyrðing er svo sannarlega
sönn því það hef ég reynt á eigin
skinni þau ár er ég lifði og starfaði í
Vestmannaeyjum. Ég hef ekki aðeins
reynt Vestmannaeyinga af því að vera
duglegt fólk og kjarkmikið heldur líka
æðmlaust. Ég hóf minn starfsferil sem
prestur í Eyjum langt frá mínum
æskustöðvum og í gjörólíku umhverfi
en ég hafði vanist. En að koma til Eyja
var sannkallað ævintýri með sínu
ægifagra landslagi og litríku mannlífi.
Ég hlaut mína eldskím í starfi sem
prestur í Vestmannaeyjum, en þrátt
fyrir að oft gæfi á bátinn kynntist ég
því hvemig bæði landslagið og gott
fólk hélt utan um mig og mína.
Síðustu misseri hafa verið Vest-
mannaeyingum erfið. Og allt of margt
hefur dunið yfir. Mikilvægir forystu-
menn í bæjarsamfélaginu hafa fallið
frá í blóma lífsins. Sjálf jörðin tók að
hristast undir fótum manna á
hátíðardeginum 17. júní þannig að
margir þurftu að flýja til bjargar sínu
eigin lífi og annarra. Aðalsamgöngu-
æð bæjarins fór úr höndum heima-
manna og nú á síðustu dögum máttu
Eyjamenn horfa á stærsta fyrirtæki
bæjarins standa í ljósum logum þar
sem eyðingaröflin virtust taka öll völd.
Allt þetta brýtur niður baráttuþrek
fólks og gerir dagana enn dimmari r'
skammdeginu sem náttúran skammtar
okkur.
En Vestmannaeyingar hafa áður
horft inn í lífsháskann og myrkrið.
Áður hefur Heimaey staðið í björtu
báli, áður hafa Eyjamenn þurft að taka
höndum saman og lagt Ijósinu lið
gegn myrkrinu.
Það var mér mikil trúarvitnisburður
þegar ég bjó í Eyjum að skynja þá
miklu samhygð og samstöðu þegar
blés á móti. Aldrei hafði ég áður
kynnst því hvemig heilt byggðarlag
getur staðið saman og slegið órjúfan-
legri skjaldborg um sameiginleg
verðmæti. Jafnvel í dreifrngunni, eins
og ég nefni stundum brottflutta Eyja-
menn, ríkir samstaða og aldrei líður sú
vika að ekki hitti maður Eyjamenn
sem hugsa heim og láta sig varða h'ðan
og kjör þeirra sem þar búa.
Oft voru skrefin út úr Landakirkju
þung þegar áföll höfðu dunið yfir og
manneskjur gengu út í kirkjugarðinn,
sem á þessum tfma er upplýstur af
ljósum umhyggjusamra aðstandenda.
Én þá var gengið undir bogann og
augu manna hvfidu á orðum Jesú
Krists, „Ég lifi og þér munuð lifa“. Þá
fann ég svo vel hvað það eru sterkar
manneskjur sem á þessari eyju búa og
hve óbifanlega náð Guðs mun alltaf
haldast við Heimaey. Eyjamenn, orð
Guðs mun ekki bregðast, erfiðleik-
amir eru gróðurmold nýrra tækifæra
og nýrrar framtíðar.
Ég sendi ykkur að lokum bæn sem
oft hefur verið mér styrkur.
Guð gefðu mér æðruleysi
til að sætta mig það sem ég fæ ekki
breytt, kjark til að breyta því sem ég
get breytt og vit til að greina þar á
milli.
Með vinark\’eðju,
Jóna Hrönn Bolladóttir.
Mormónatrúboðar í Vestmannaeyjum:
Hér hefur ekki verið
skellt á okkur hurðum
Undanfamar vikur hefur mátt rekast á
í Vestmannaeyjum unga Bandaríkja-
menn, snyrtilega til fara og kurteisa.
Þeir hafa gjaman bankað upp á í
húsum og viljað boða þau trúarbrögð
sem þeir tilheyra.
Hér em á ferðinni fulltrúar
Mormónakirkjunnar, eða Kirkju hinna
síðari daga heilögu eins og hún nefnist
á íslensku. Þau trúarbrögð hafa náð
fótfestu víða en mest þó í Banda-
ríkjunum og sérstaklega í Utah.
Tveir mormónar litu inn til okkar á
Fréttum á dögurrum, tvítugir piltar og
geðugir, þeir Scotty Hyldahl og Jaxon
Hoopes. Scotty er frá Utah en Jaxon
frá Wyoming. Báðir hafa þeir dvalið
á Islandi í níu mánuði og tala ótrúlega
góða íslensku miðað við hve stutt dvöl
þeirra hér hefur verið.
Þeir segja að í samfélagi mormóna
gefist ungu fólki kostur á að helga líf
sitt trúboði í öðm landi um nokkum
tíma, piltum þegar þeir hafa náð 19 ára
aldri og stúlkum eftir 21 árs aldur.
Þeir segjast kosta þessar ferðir sjálfir,
með eigin sparifé, auk þess sem
fjölskyldur þeirra styrki þá til þessa
starfs.
„Við göngum í hús og deilum
boðskap Guðs til fólks á jörðinni. Um
leið kynnumst við líka fólki,“ segja
þeir Scott og Jaxon. Þeir em sammála
um að hér búi gott fólk og enn hefur
ekki verið skellt á þá hurðum eins og á
til að gerast í jreirra heimalandi. „Þetta
er lítill bær og góð tilfinning sem
er að hafa.
fylgir því að vera hér,“ segja þeir.
Forvemm þeirra í mormónatrúboði
varð vel ágengt í Vestmannaeyjum á
síðustu öld. þá létu margir skírast til
mormónatrúar og fluttu í framhaldi af
því vestur um haf. Ekki hefur þeim
félögum gengið jafnvel, þó segja þeir
að einn Vestmannaeyingur hafi tekið
mormónatrú á þessu ári.
Trú mormóna er af sama meiði og
önnur kristin trúarbrögð, sami guð og
sama trú á Jesú Krist. En auk þess
gegna spámenn miklu hlutverki í trú
mormóna sem trúa því að Guð haldi
áfram að nota spámenn sína á jörðinni.
Þá styðjast mormónar ekki einungis
við Biblíuna heldur hafa þeir einnig
Mormónsbók sér til halds og trausts.
Mormónar nota ekki áfengi eða tóbak
né heldur nokkur fíkniefni önnur. Þá
drekka þeir hvorki kaffi né te enda
segjast þeir Scott og Jaxon ekki skilja
hvers vegna Islendingar drekki ekki
meira af því dásamlega vatni sem hér
er að hafa. Áður íyrr máttu mormónar
eiga fleiri konur en eina en nú er sá
siður löngu aflagður.
Þeir Scott og Jaxon vildu koma því á
framfæri að þeir halda samkomur á
hverjum sunnudegi kl. 11 að
Heiðarvegi 62, niðri, þar sem
dvalarstaður þeirra er og eru allir
velkomnirá þærsamkomur.
Sigurg.
• a | • •• r
plagiof
(Spurt í
Barnaskólanum)
Bjarld, 8 ára:
„Mig langar mest í
|i! lcik í Play Station."
Ottó, 8 ára:
„Mig langar líka í
leik í Play Station."
Helga, 8 ára:
„Mig langar mest í
bók til að lesa.
Frans-bækurnar eru
skemmtilegar."
Helga Lilja, 8 ára:
r „Mig langar í bókina
Kafteinn Olúrbrók."
Birta, 8 ára:
„Ég veit það ekki.'
Friðrik, 8 ára:
T----------- „Vídeótæki. Ég á
• . ueftiilegasjónvarp."
Aldís Freyja, 8 ára:
l .• ! 1 „Föi. Fallegan kjól
og svoleiðis."
Steingrímur, 39 ára:
v „Góða bók og kon-
*e^1’ l,il er eS vel
settur."