Fréttir - Eyjafréttir - 14.12.2000, Síða 17
Fréttir
17
Samheldni
starfsfólksins er
aðdáunarverð
-segir Arnar Hjaltalín formaður Verkalýðsfélagsins
Ekki er ofmælt að segja að formenn
verkalýðsfélaganna beggja, þau
Guðný Oskarsdóttir og Arnar
Hjaltalín, hafi unnið frábært starf í
kjölfar brunans í Isfélaginu.
Verkalýðsfélögin tvö voru á laugar-
dag sameinuð í eitt félag sem nefnist
Drífandi stéttarfélag. Óhætt er að
segja að fyrsta verkefni nýja
félagsins hafi sýnt og sannað að
félagið ætlar sér að standa undir
nafni, drífandi kraftur og dugnaður
hefur einkennt það starf sem unnið
hefur verið nú í vikunni.
Arnar Hjaltalín, formaður Verka-
lýðsfélags Vestmannaeyja, segir að
opna húsið í Alþýðuhúsinu fyrir
starfsfólk ísfélagsins hafi íýllilega átt
rétt á sér. Þar hafi verið opið frá því á
mánudagsmorgun og á hverjum degi
hafi um hundrað manns komið
þangað. „I gærmorgun voru rúmlega
hundrað manns í kaffitímanum, bæði
þeir sem ekki eru í vinnu og eins
komu þeir sem eru að vinna við
hreinsun en sá hópur mætir í kaffi upp
eftir og hittir þá hinn hópinn sem ekki
er að störfum. Þetta er mjög gott og
heldur fólki saman. Mér finnst það
aðdáunarvert hvað starfsfólkið hefur
staðið vel saman í þessum erfið-
leikum. Eg var búinn að heyra að
starfsfólk ísfélagsins væri eins og ein
fjölskylda og get fyllilega tekið undir
það. Þetta er búið að vera frábært,
stemmningin einstök og samheldnin
mikil og það er fólkið sjálft sem sér
um það,“ segir Amar.
Um helgina verður opið hús í
Alþýðuhúsinu eftir hádegi, bæði á
laugardag og sunnudag en Amar segir
að áformað sé að hafa opið fram eftir
næstu viku. A þriðjudag er ætlunin að
halda jólatrésskemmtun fyrir böm
Isfólksins kl. 17 og standa bæði ísfél-
agið og Starfsmannafélagið að þeirri
skemmtun. Byijað er að skrá þátttöku
í Alþýðuhúsinu og er starfsfólk beðið
að skrá sig og sín böm sem fyrst og
ekki síðar en kl. 17 á mánudag.
Amar segir að mjög náið og gott
samstarf hafi verið milli verkalýðs-
félaganna og stjómenda Isfélagsins í
öllum málum sem snerta starfsfólkið.
En hvernig tilfinning er það fyrir
formann verkalýðsfélags að vinna að
sama markmiði með þeim aðihtm sem
oftast hafa verið andstœðingar?
„Við búum í litlu samfélagi og ég
held að það sé að koma hvað best í
ljós núna að hagur fólksins, fyrir-
tækisins og bæjarfélagsins fer saman á
flestum sviðum. Kannski kennir þetta
okkur það upp á framtíðina að sam-
vinna þessara aðila er allra hagur.
Mér finnst ekkert skrýtið að vinna í
svo nánu samstarfi við þessa aðila.
Þama em sameiginlegir hagsmunir
okkar allra, við gleymum gömlum
væringum, köstum þeim fyrir borð og
vinnum saman. Ég vil líka geta þess
að við höfum nýlega gengið frá
samningi vegna þeirra sem vinna í
bræðslunum. Sá samningur var unn-
inn hér heima í góðri samvinnu beggja
aðila og ég tel það góðan samning,“
segir Amar.
Nú er tala atvinnulausra í Vest-
mannaeyjum komin yfir eitt hundrað
og hœkkar dagfrá degi. Er sú staða
ekki uggvœnleg?
„Jú, vissulega. En sumt af þeim
vanda væri ekki erfitt að leysa ef vilji
væri fyrir hendi. I hverri viku er
mikið magn af fiski flutt héðan, bæði
upp á land og út. Ef þær útgerðir
legðu meira upp af afla sínum í Eyjum
þá væri hægt að skapa hátt í hundrað
manns atvinnu,“ segir Amar.
Nýta tímann til menntunar
Hvernig hyggjast verkalýðsfélögin
bregðast við þessu ástandi?
„Eins og ástandið er núna lítur ekki
vel út með vinnu. En það er engin
uppgjöf í okkur og við munum leita
allra leiða. Strax upp úr áramótum
ætlum við að fara af stað með nám-
skeið fyrir fiskvinnslufólk og ASI
hefur lofað okkur aðstoð og sam-
vinnu. Ætlun okkar er að fá Félags-
málaskóla alþýðu sterkan hingað með
námskeiðahald í vetur og við ætlum
líka að leita í Endurmenntunarsjóð.
Það sem fyrir okkur vakir er að gefa
þeim kost á að mennta sig sem ekki
hafa fulla vinnu. Auðvitað er það
keppikefli okkar að allt okkar fólk hafi
vinnu en meðan svo er ekki viljum við
kappkosta að veita því fólki tækifæri á
öðmm sviðum,“ sagði Amar Hjaltalín.
Sigurg.
JÓN Svansson og Björn Þorgrímsson, starfsmenn Isfélagsins, voru meðal
þeirra sem áttu and vökunótt aðfaranótt sunnudags.
Starfsfólk ísfélagsins fer á
atvinnuleysisbætur
Lagaheimild skorti
til að geta greitt
kauptryggingu
ísfélagið leggur eina milljón í sjóð til
styrktar verst stadda starfsfólkinu
í fyrradag samþykkti stjórn At-
vinnuIeysistrvggingasjóðs að gefa
jákvætt svar ef Isfélag Vest-
mannaeyja færi fram á að greiðslur
til starfsfólks yrðu lagðar inn á
reikninga fyrirtækisins, sem myndi
þá greiða starfsfólkinu kauptrygg-
ingu. Þetta fyrirkomulag hefur
mátt nota þegar vinna hefur fallið
niður vegna hráefnisskorts. Aftur á
móti munu þess engin dæmi að það
hafi verið notað í tilfellum eins og
þessu þegar vinna fellur niður
vegna bruna.
I gær birtist sameiginleg frétta-
tilkynning frá Isfélaginu og verka-
lýðsfélögunum þar sem segir að það
sé sameiginlegt markmið beggja aðila
að draga eins mikið og mögulegt er,
félagslega og fjárhagslega, úr því
áfalli sem starfsfólk varð fyrir við
brunann um síðustu helgi. Þá segir í
tilkynningunni:
„Því vildu þessir aðilar leita leiða til
að þeir starfsmenn í frystuhúsinu, sem
misstu vinnu sína, gætu fengið bætur
samkvæmt kauptryggingarákvæðum
en ekki atvinnuleysisbætur. Þar með
þyrftu þeir, í viðbót við að fá hærri
bætur. ekki að standa í því að skrá sig
atvinnulausa nú rétt fyrir hátíðimar og
í upphafi þeirra hörmunga sem yfir þá
hafa dunið. Til að einfalda þennan
framgangsmáta og gera hann ódýrari
var ísfélagið tilbúið til að láta starfs-
menn á skrifstofu sinni annast
útreikning á kauptryggingunni og
greiða hana út. Síðan var reiknað með
að full endurgreiðsla á kauptrygg-
ingunni kæmi frá Vinnumálastofnun.
Nú er komið í ljós að lagaheimild
skortir til þess að þessi framgangsmáti
geti orðið að veruleika. Verkalýðs-
félögin og ísfélag Vestmannaeyja Iýsa
yfir vonbrigðum sínum með að ekki
skyldi vera mögulegt að koma þessari
skipan á.
Isfélaginu var ljóst að hefði verið
hægt að koma því við að greiða kaup-
tryggingu í gegnum launaskrifstofu
félagsins hefði það haft í för með sér
nokkum kostnað fyrir félagið. Stjóm
Isfélagsins hefur því nú í dag
samþykkt að ieggja kr. 1.000.000 í
sjóð sem er í vörslu sóknarprestanna í
Vestmannaeyjum og er ætlaður til að
hjálpa þeim starfsmönnum í frystihúsi
ísféiagsins sem verst em staddir.
Undir þessa tilkynningu rita svo fyrir
hönd verkalýðsfélaganna Amar
Hjaltalín og fyrir hönd ísfélagsins
Jóhann Pétur Andersen.
Kaupmenn í Eyjum
gefa ísfólkinu afslátt
Helga Dís í Róma og Krakkakoti reið á vaðið meðal kaupmanna í
Vestmannaeyjum og ákvað á mánudag að gefa starfsfólki Isfélagsins
10% afslátt af öllum vörum í sínum verslunum og gildir þetta til
áramóta. Framvísaþarf starfsmannafélagsskírteini þegar verslað er.
Fleiri kaupmenn munu feta í fótspor Helgu Dísar með afslátt til handa
starfsfólki Isfélagins. Sigurbjörg Axelsdóttir, formaður Félags Kaupsýslu-
manna í Eyjum, sagði að bæjarstjóri hefði beðið bæjarbúa um að sýna
samstöðu. Sigurbjörg sagðist hafa rætt við alla kaupmenn í Eyjum og hefðu
þeir undantekningarlaust tekið þessu vel. Þessir aðilar munu tilkynna
afsláttarkjör í verslunum sínum.
Bjartsýni ríkjandi
Eitt ljósasta dæmið um þá bjartsýni sem ríkir vegna endurupp-
byggingar Isfélagsins gaf að líta strax á þriðjudagsmorgun.
Þá tóku vegfarendur, sem leið áttu um Strandveginn, eftir því að búið var
að kveikja á ný á jólaskreytingunni á húsi ísfélagsins. Kertin sjö, sem
slokknaði á í brunanum á laugardagskvöld, loguðu nú að nýju og með þeim
ljósum var staðfest að uppbygging ísfélags Vestmannaeyja væri hafin.
Hreinsun gengur mjög vel:
Stefnt að síldar- og
loðnuvinnslu í vetur
Hreinsun hófst á þriðjudag í
vesturhluta Isfélagsins sem best
slapp í brunanum. Þar voru um 50
manns við þrif, hreinsun og aðra
uppbyggingu enda allt kolsvart af
sóti og reyk þótt eldur og hiti hafi
ekki náð að eyðileggja neitt sem
nemur.
Lögð hefur verið áhersla á að
koma rafkerfinu í lag en leggja
hefur þurft rafmagn að hluta upp
á nýtt og eins hefur verið unnið að
því að koma háþrýstikerfi fyrir
vatn í lag. Þegar þessir hlutir eru
komnir í lag er hægt að fá fleira
fólk til að þrífa.
Af þessum 50 starfsmönnum voru
um 20 konur. Fólkið var sammála
um að mun betra væri að vera í
vinnu en að sitja heima, jafnvel
þótt þetta væri heldur óþrifaleg
vinna og um fátt líkt því sem áður
hefði farið fram á þessum stað.
Mjög vel hefur gengið í þessu
hreinsunarstarfi en ljóst er að það
mun taka talsverðan tíma, þarna
er stefnt að matvælavinnslu og því
þarf að fara nokkuð margar
umferðir yfir loft, gólf og veggi og
annað. Meðal þeirra, sem þátt
taka í hreinsunarstarfinu eru þeir
bræður, synir Sigurðar heitins
Einarssonar. Einar, sem er elstur
þeirra, segir að þetta sé fremur
óþrifalegt starf en hafi gengið mjög
vel og greinilegt að fullur hugur sé
í fólki að koma ísfélaginu sem fyrst
í gang á ný.
Þarna er um að ræða þrjú svæði
sem notuð verða til vinnslu á
uppsjávarfiski. Vonast er til að
hægt verði að byrja síldarvinnslu í
janúar, þá ættu um 50 manns að fá
vinnu við pökkun og svo einhverjir
við vélarnar. Þá er og stefnt að því
að vinna loðnu til frystingar á
komandi vertíð.