Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 28.12.2000, Qupperneq 8

Fréttir - Eyjafréttir - 28.12.2000, Qupperneq 8
8 Fréttir Fimmtudagur 28. desember 2000 Fréttaannáll 2000 Guðmundur Huginn og Þórunn og börn með fyrsta Eyjabarnið á aldamótaári. Janúar Met í ljósagangi Aldrei hefur öðru eins magni af flugeldum verið skotið upp og þegar árið 2000 gekk í garð. Fögnuðu margir aldamótum þó svo að stjarn- fræðingar og stærðfræðingar væru sammála um að enn væri eitt ár í þau tímamót. Talsverðurerill varánýárs- nótt hjá lögreglu án þess þó að nokkur stórmál kæmu upp. Alvarlegt flugeldaslys Eitt alvarlegt slys átti sér stað á nýárs- nótt. Flugeldur sprakk ájörðu niðri og skaddaðist sá sem í henni kveikti á auga. Var hann fluttur með sjúkra- flugi til Reykjavíkur þar sem aðgerð var gerð á honum. Fékk hann góða von um að fá fulla sjón að nýju eftir nokkrar vikur. Hraunbúðir 25 ára Þess var minnst um áramótin að 25 ár eru liðin frá því að Hraunbúðir, dvalarheimili aldraðra í Vestmanna- eyjum, voru teknar í notkun. I tilefni þess var bæði heimilisfólki og gestum boðið til veislu. Fyrsti stúturinn tekinn Ekki voru nema tæpir þrír dagar liðnir af nýju ári þegar fyrsti ökumaðurinn var tekinn, grunaður um ölvun við akstur. Ekki fór sögum af því hvort hann var enn að halda upp á áramótin. Umferðarljós frá Eykyndli Slysavamadeildin Eykyndill hefur um árabil látið eitt og annað gott af sér leiða í Vestmannaeyjum og hafa flest verk deildarinnar miðað að því að koma í veg fyrir slys á og við sjó. En nú sýndu þær Eykyndilskonur að þær láta sig fleira varða en slys á sjó. Þær gáfu eina og hálfa milljón króna til að koma upp umferðarljósum á gatna- mótum Heiðarvegar og Strandvegar. Heildarkostnaður við að koma upp ljósunum var tjórar milljónir en hlutur Eykyndils dugði til að kaupa sjálf ljósin. Fimmtán útköll á árinu Samkvæmt skýrslu slökkviliðsstjóra var Slökkvilið Vestmannaeyja kallað 15 sinnum út á árinu 1999 eða ívið oftar en í meðalári. Fimm sinnum var slökktur eldur í íbúðarhúsum, tvö skipti í bátum og sex sinnum var liðið kallað út vegna sinubruna. Eitt skipti var slökktur eldur í bíl og eitt skipti í ruslagámi. Nýir stjómendur Þau Helga Jónsdóttir og Amór Hermannsson höfðu haft á hendi stjórnun á barnakómum Litlir læri- sveinar, allt frá því að sá kór var stofnaður. Nú létu þau af starfi og við því tóku þau Guðrún Helga Bjama- dóttir, leikskólakennari og Ósvaldur Freyr Guðjónsson, tónlistarkennari. Fréttapýramídamir afhentir Fréttapýramídamir voru afhentir í níunda sinn. Að þessu sinni komu þeir í hlut írisar Sæmundsdóttur fyrir framlag til íþróttamála, Guðmundar Inga Guðmundssonar fyrir framlag til atvinnumála og Áma Johnsen fyrir framlag til menningarmála. Auk þess hlaut Guðni Davíð Stefánsson viður- kenningu fyrir afrek sitt á Olympíu- leikum þroskaheftra sem fram fóm í Bandaríkjunum á árinu. Anna og Oddgeir fólk aldarinnar Fréttir gengust fyrir könnun á því hvaða Vestmannaeyingar væm best að því komnir að kallast Eyjamaður og Eyjakona aldarinnar. Niðurstöður þeirrar könnunar urðu þær að Oddgeir Kristjánsson, tónlistarmaður, var val- inn Eyjamaður aldarinnar og Anna Þorsteinsdóttir, frá Laufási, Eyjakona aldarinnar. Skrautlegur þrettándi Ekki gaf til hátíðahalda á sjálfum þrettándanum, 6. janúar en föstu- daginn 7. var veður hið skaplegasta og fór kveðjuathöfn jólasveinanna fram með hefðbundnum hætti, þar sem flugeldum var skotið, álfabrenna haldin í Löngulág og jólasveinar, ásamt ýmsum kynjavemm öðmm, kvöddu að sinni. Sölumet hjá Breka ísfísktogarinn Breki fékk hæsta verð fyrir afla sem fengist hefur í Þýskalandi, þann 12. janúar. Aflinn var 223 tonn og fengust 48,6 milljónir króna fyrir hann. Meðalverð var 243 krónur en uppistaða aflans var karfi. Alvarlegt slys í óveðri Hið versta veður gekk yfir mánu- daginn 11. janúar. Ekki varð af því mikið eignatjón en alvarlegt vinnuslys varð þegar hurð á gámi skelltist á höfuð manns sem var að störfum á Friðarhafnarbryggju. Varhann fluttur á Sjúkrahús Reykjavíkur en sökum veðurhæðar varð að fá aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar til að ná í hinn slasaða. Spáir því að birti til Matthildur Sveinsdóttir, tarotlesari, spáði í spilin fyrir nýhafið ár. Meðal þess sem hún sá í spilum sínum var að loðnan brygðist ekki, bjart væri yfir útgerðinni, smákóngar gætu reynst fótboltanum erfiðir, halla myndi undan fæti í handboltanum, átök yrðu í menningunni, líkur væm á að hér yrði stofnuð ný námsbraut, áberandi kona kæmi íram á árinu og svo hlypi á snærið hjá Eyjamönnum og vekti öfund annarra. Nýtt fólk í Skýlinu Þau Þorkell Húnbogason og Elín Frans Hróbjartsdóttir, sem um margra ára skeið höfðu rekið Veitingaskálann í Friðarhöfn, eða Skýlið eins og það oftast er kallað, hættu þeim rekstri og sneru sér að gistihúsarekstri. Olíu- félagið, sem á aðstöðuna, auglýsti hana og bámst 11 umsóknir. Hnossið hrepptu hjónin Svanhildur Guðlaugs- dóttir, verslunarstjóri KÁ og Jóhannes Ólafsson, lögregluvarðstjóri. Lóðsinn „undirbauð“ Gæsluna Lóðsinn frá Vestmannaeyjum kom norsku skipi til aðstoðar og dró það til hafnar um miðjan janúar. Varðskip var reiðubúið til þess verks en Lóðsinn varð fyrir valinu þar sem lægri upp- hæðar var krafist fyrir verkið af þeirra hálfu en það sem Landhelgisgæslan setti upp. Sú upphæð sem Hafnar- sjóður fékk fyrir þessa aðstoð nam um 4 milljónum króna en Gæslan fór ífam á talsvert hærri upphæð. Keikó einráður í Klettsvík Mjög rýmkaði um háhyminginn Keikó þegar innsti hluti Klettsvíkur var girtur af með sérútbúnu neti sem lá frá Ystakletti í Heimaklett. Yfir- þjálfari Keikós, Jeff Foster, sagði að með þessu yrðu þáttaskil í þjálfun háhymingsins sem fram til þessa hafði verið í þröngri kví í Klettsvrk. Dýrt að gleyma sér Nýju umferðarljósin á gatnamótum Strandvegar og Heiðarvegar þóttu auka umferðaröryggi en einhverjir óku þó enn „samkvæmt minni“ og gleymdu sér. Ekki olli sú gleymska slysum en þeir sem fóm yfir á rauðu fengu tíu þúsund króna sekt fyrir. 30% hækkun milli ára Þegar álagningarseðlar fasteignagjalda bámst húseigendum í janúar þótti mörgum hækkanir vemlegar. Heildar- hækkun milli ára var tæp 30%. Þaraf hækkuðu fasteignaskattar og holræsa- gjald mest. Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri, sagði þetta spumingu um hvort líta ætti á fasteignagjöldin sem skatt eða þjónustugjald. Nýr golfhermir Veðurfar, það sem af var vetri, hafði illa hentað til golfiðkunar og því glöddust kylfingar þegar nýr golf- hermir var tekinn í gagnið í Golf- skálanum. Nokkrir velunnarar Golf- klúbbsins fjármögnuðu þau kaup en klúbburinn sá um daglegan rekstur hermisins. Björk í hópi þeirra bestu Björk Elíasdóttir, þjónustufulltrúi í íslandsbanka í Vestmannaeyjum, var í tíu manna hópi sem valdir vom sem framúrskarandi starfsmenn, úr 750 manna starfsliði bankans á öllu landinu. Þótti hún vel að þeirri útnefningu komin. Ríflega eitt bréf á dag Samkvæmt bréfi frá úrskurðamefnd um upplýsingamál, til Vestmanna- eyjabæjar, hafði Oddur Júlíusson skrifað 450 bréf til Vestmanna- eyjabæjar á árinu 1999, þar sem hann óskaði ýmissa upplýsinga. Bæjarritari lýsti þvt' yfir að að svo komu máli yrði bréfum frá honum ekki svarað og væri sú ákvörðun hrein neyðarráðstöfun til þess að tíu bæjarstarfsmenn fengju áreitislaust að sinna þeim störfum sem þeir væru ráðnir til. Nýir þingmenn Tveir 14 ára Vestmannaeyingar, þau Tanja Rut Rúnadóttir og Daníel Steingrímsson, vom valin sem þing- menn Bamaskóla Vestmannaeyja á unglingaþing umboðsmanns bama en þingið fór fram á Netinu. Þetta þinghald stóð fram í mars en þá vom forseta alþingis afhent álit nefnda. Vel á fjórða þúsund lágu í valnum Ásmundur Pálsson, meindýraeyðir Vestmannaeyja, birti skýrslu sína um fjölda deyddra meindýra í Eyjum á árinu 1999. Þar kom m.a. fram að fjöldi þeirra var 3.234 og er það nær tvöfalt meira en var á árinu 1998. Þar vom vargfuglar fyrirferðarmestir eða 1.389 talsins. Fiskibökur á innlendan markað Aðgerðarþjónustan í Kútmagakoti setti á markað fiskibökur sem fengu góðar viðtökur í verslunum í Vest- mannaeyjum. Boðið var upp á þrenns konar bökur, mexíkókryddaðar, hvít- laukskryddaðar og svo sjávarrétta- bökur. Fjölmennur kór en fáir áheyrendur Hátíðakór Kjalamesprófastsdæmis, sem komið var á laggimar í tilefni kristnihátíðar, hélt æfingu og tónleika í Vestmannaeyjum í janúar. Tón- leikamir vom haldnir í Safnaðar- heimilinu og hefur sennilega ekki áður jafnfjölmennur kór sungið fyrir jaíhfáa áheyrendur. Það stafaði þó að einhveiju leyti af misskilningi þar sem margir töldu að þama væri aðeins um að ræða generalpmfu kórsins fyrir messu í Landakirkju á sunnudag en þá mættu mun fleiri. í leit að betra útliti? Eina helgina í janúar var brotist inn í Snyrtistofu Ágústu við Hilmisgötu og náðist innbrotsmaðurinn á vettvangi eftir að árvökull nágranni hafði látið lögreglu vita. Brotamaðurinn reyndist nokkuð undir áhrifum og fékk gistingu í fangageymslu þar til af honum rann víman. Ekki var á hreinu hvort hann hugðist flikka upp á útlit sitt eða hvort aðrar hvatir lágu að baki innbrotinu. Erótík loksins í Eyjum Jón Ingi, veitingamaður á Lundanum, bauð upp á erótískan dans velskapaðra ungra kvenna í janúar. Nokkrir GENGIÐ mót grænu ljósi á nýju umferðarljósunum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.