Fréttir - Eyjafréttir - 28.12.2000, Qupperneq 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 28. desember 2000
EYJASKATAR ásmat Ólafi Ragnari Grimssyni við afhendingu forsetamerkisins.
Maí
Jón að hætta
I I. maí ávarpi sínu sagði Jón
Kjartansson, formaður Verkalýðs-
félags Vestmannaeyja, að nýgerðir
samningar hefðu verið samþykktir
með semingi en óánægja kraumaði
undirniðri. Þá sagði Jón að þetta yrði
í síðasta sinn sem hann ávarpaði fólk
sem formaður Verkalýðsfélagsins en
hann hefur verið formaður þess í 29
ár.
Huginn sjósettur
Fyrsta laugardag í maí var Huginn VE
sjósettur í skipasmíðastöðinni Asmar í
Chile í blíðuveðri. Kristín Pálsdóttir,
frá Þingholti gaf skipinu nafn og
sagði: „Huginn skaltu heita. Megi
Guð og gæfan fylgja þér og skipshöfn
þinni á sjóferðum ykkar. Eg óska þess
og bið að þú verðir afla- og happaskip
um alla framtíð."
Væringar heimafólks og
aðkomufólks
Tími skólaferðalaga var í algleymingi
og sóttu nemendur margra skóla af
fastalandinu Eyjar heim. Yfirleitt
voru þau samskipti á friðsamlegum
nótum og jafnvel innilegum en þó
skarst í odda eitt kvöldið. Samkvæmt
skýrslu lögreglu réðust Eyjastúlkur að
einni aðkomustúlkunni með þeim
afleiðingum að fara varð með hana á
Heilsugæslustöðina og var talið að
hún hefði fengið vott af heilahristingi.
Þrjár úr hópi heimastúlkna sögðu í
viðtali við Fréttir að frásagnir af
þessum atburði væru mjög ýktar og
þær væru ekki eins sekar og fréttir
hermdu, þær væru engin glæpakvendi.
Ekki urðu nein frekari eftirmál af
þessum væringum milli „AKP og
orgínala."
Framkvæmdastjóri 17. júní
Menningarmálanefnd, sem hefur með
hátíðahöld 17. júní að gera, fundaði og
lagði drög að dagskrá hátíðahalda.
Þar var Olafur Lárusson skipaður
framkvæmdastjóri hátíðahaldanna og
hefur þessum þjóðhátíðardegi fslend-
inga sjaldan verið gert jafnhátt undir
höfði í Vestmannaeyjum, fram til
þessa hefur hann verið hálfgerð hom-
reka.
Tvísótt að þeim sama
A árum áður var næsta algengt á
vertíð að bátar yrðu að tvísækja, eins
og kallað var, þegar svo mikið
fiskaðist að ekki var rými fyrir aflann
um borð og varð að fara í land og
landa áður en unnt var að draga það
sem eftir var af netum. Nú á tímum
kvóta og skömmtunar er slíkt nær
óþekkt. Aftur á móti gerðist það
fyrstu helgina í maí að tveir ein-
staklingar réðust á mann nokkum og
veittu honum skráveifu. Ekki þótti
þeim nóg að gert því að sfðar sömu
nótt réðust þeir að sama einstaklingi á
ný með enn meiri kárínum. Áverkar
reyndust ekki miklir eftir þessa
tvöföldu ásókn en engu að síður þótt
þeim sem á var ráðist þetta fullmikið
af því góða og kærði tvímenningana.
Nýmæli í messuhaldi
Bryddað var upp á þeirri nýjung í
messuhaldi í Landakirkju að haldin
var þar þjóðlagamessa. Messuformið
hefur hin seinni ár orðið æ
síbreytilegra, t.a.m. með poppmessunt
og þetta messuform mæltist mjög vel
fyrir. Bömin sögðu að þetta hefði
verið æðislegt. Kirkjunnar fólk boð-
aði áframhald á slíkum messum,
jafnframt því sem enn yrði farið inn á
nýjar brautir, jafnvel jassmessur á
dagskrá.
Samkór á faraldsfæti
Samkór Vestmannaeyja lagði land
undir fót fyrstu helgina í maí og hélt
tónleika í Digraneskirkju. Voru þeir
vel sóttir og þóttu takast prýðilega.
Þessi ferð kórsins var nokkurs konar
upphitun fyrir Vortónleikana sem
haldnir voru rúmri viku síðar í Vest-
mannaeyjunr og þóttu ekki takast
síður vel.
Meiri músík
En það vora fleiri en Samkórsfólk sem
flutti tónlist í maímánuði. Tónsmíða-
félag Vestmannaeyja og Brass-
kvintettinn héldu sína tónleika í
Gallerí Áhaldahúsinu við mikinn
fögnuð og skólakóramir í Eyjum
héldu tónleika um miðjan ntánuðinn
þar sem sungið var af einlægni og
upplifun. Þá komu a.m.k. tveir kórar í
heimsókn til Eyja, Islandsbankakórinn
og Kór Strandamanna, og sungu hér.
Segja má að andi tónlistargyðjunnar
hafi svifið yfir Eyjum í maímánuði,
því auk allra þessara uppákoma var
einnig sungið á öldurhúsum og í
heimahúsum þótt ekki verði hér lagt
mat á gæði þeirrar tónlistar.
Búfræðingur frá Eyjum
Vestmanneyingurinn Jóna Sveins-
dóttir, flestum vel kunn sem
starfsmaður Sparisjóðsins, útskrifaðist
sem búfræðingur frá Hvanneyri og
sagðist stefna á nám í dýralækningum.
Hluti af lokaverkefni hennar var að
skrifa um nýlegar tilraunir til
nautgriparæktar í Vestmannaeyjum.
Þórshamar eignast
Bræðraborg
Eigendur Hótels Þórshamars gengu
frá kaupum á Hótel Bræðraborg en
það hótel hafði Þröstur Johnsen haft á
leigu í nokkra mánuði. Ferðamála-
sjóður átti húsnæðið.
Mega ekki vinna
Fyrr á áram þótti eðlilegt að fólk um
fermingaraldur tæki þátt í atvinnu-
lífinu, ekki hvað síst yfir sumartímann.
Vinnuskólinn hefur fram til þessa
skipulagt sumarstarf unglinga hjá 7.,
8. og 9. bekk en nú kom tilskipun frá
Vinnueftirliti ríkisins þar sem bann var
lagt við því að nemendur 7. bekkjar
yrðu látnir vinna í sumar, þar sem í
þeim hópi er eitthvað af 13 ára fólki
og samkvæmt reglum má svo ungt
fólk ekki stunda vinnu. Sigþóra
Guðmundsdóttir, tómstundafulltrúi,
sagði að þetta hefði komið sér nokkuð
á óvart og þetta þýddi að skipuleggja
yrði starfsemi Vinnuskólans upp á nýtt
og finna önnur verkefni handa þessu
fólki, verkefni sem ekki flokkuðust
undir vinnu.
Stærsta sýningin til þessa
Atvinnu- og þjónustusýningin Vor í
Eyjum var haldin í íþróttamiðstöðinni
helgina 19. til 21. maí. Hand-
knattleiksdeild IBV stendurfyrir þeirri
sýningu, sem orðin er árviss
viðburður, með stuðningi atvinnu-
málanefndar Vestmannaeyja. Þetta
var stærsta sýningin til þessa og þótti
takast vel en alls sýndu þama 36 aðilar
í 42 básum.
Menningarmiðstöð í
hrauninu?
Fram vora lagðar tillögur að Menn-
ingarmiðstöð í Vestmannaeyjum en
það er hugmyndaverkefni sem Pétur
Jónsson, landslagsarkitekt, hefur
unnið í samvinnu við Vestmanna-
eyjabæ. Hugmynd Péturs er sú að
grafið verði inn í hraunið og miðja
miðstöðvarinnar verði á Heimatorgi.
Rafveituhúsið gamla gegnir einnig
þýðingarmiklu hlutverki í þessum
hugmyndum. Þessar hugmyndir þóttu
einkar athyglisverðar og skemmtilega
útfærðar en ljóst þykir að kostnaður
við að hrinda þeim í framkvæmd
verður ekki mældur í milljónum
heldur milljörðum.
Stúdent nr. 400
Framhaldsskólanum var slitið laugar-
daginn 20. maí. 21 nemandi út-
skrifaðist, þar af 15 stúdentar og með
þessari útskrift fór íjöldi útskrifaðra
stúdenta frá FÍV yfir 400.
Keikó í „gönguferð“
Sprengingar vegna nýs þils við Naust-
hamarsbryggju vora taldar geta
stofnað andlegri líðan háhymingsins
Keikós í nokkra hættu. Því var
ákveðið af forsvarsmönnum hans að
fara með hann út fyrir dvalarstað hans
í Klettsvík meðan sprengt yrði. Var
svo gert og kunni hann að sögn vel við
sig í ómældri víðáttu undirdjúpanna.
Þetta var fyrsta skrefið í fleiri ámóta
ferðum yfir sumarið sem vora liður í
þeirri fyrirætlan að sleppa skepnunni
frjálsri. Ekki tókst þó háhymingnum
að laga sig nægilega vel að siðum og
háttum annarra undirdjúpabúa, að
mati forsvarsmanna hans, og var því
slegið á frest til næsta árs fyrir-
ætlunum um að veita honum fullt
frelsi.
Þorsteinn til Stöðvar 2
Þorsteinn Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri knattspymudeildar ÍBV og
fyrram blaðamaður á Fréttum, sagði
upp störfum hjá ÍBV í framhaldi af því
að honum bauðst starf íþrótta-
fréttamanns hjá Islenska útvarps-
félaginu. Þorsteinn hóf síðan störf
sem slíkur á Stöð 2 í júnímánuði.
Fullnuma nuddarar
Oft hafa karlmenn fundið það
eiginkonum sínum til foráttu að þær
séu að nudda í þeim með hina og
þessa hluti. Einkum á það við að
vorlagi þegar óspart er nuddað í
mönnum að vinna í garði, mála hús og
taka til í bílskúr og geymslum þegar
hugurinn stendur meira til annarra og
skemmtilegri hluta. En þess konar
nudd leggja þær ekki stund á, þær Erla
Gísladóttir og Guðrún Kristmanns-
dóttir, sem útskrifuðust sem nuddarar
frá Nuddskóla íslands. Þeirra nudd er
af allt öðram toga og veitir bæði
líkamlega og andlega ánægju. Þær
starfrækja báðar nuddstofur í Eyjum
og sögðust hafa nóg að gera.
Sýning á
Vestmannaeyjamyndum
Islenska myndasafnið og fyrirtækið
Genealogia Islandorum gengust fyrir
útgáfu á ljósmyndaöskjum með
gömlum og nýjum myndum frá Vest-
mannaeyjum frá þessari öld. Margir
höfundar vora að þeim myndum. Þá
fylgdu myndunum textar sem
Sigurgeir Jónsson, kennari og blaða-
maður, skrifaði. Efnt var til sýningar
á myndunum síðustu helgina í maí og
var sú sýning fjölsótt.
Bjargað úr sjálfheldu
I lok maí voru tvær tólf ára stúlkur
hætt komnar í Ofanleitishamri þegar
þær voru að klifra þar. Lenti önnur
þeirra í sjálfheldu en hinni tókst að
sækja hjálp og var stúlkunni bjargað á
síðustu stundu. Fjallamaðurinn
Magnús Bragason seig eftir henni og
tókst björgunin giftusamlega.
Árgangamótin vinsæl
Það verður æ vinsælla að árgangar
hittist og riíji upp gamla tíð og gömul
kynni í Vestmannaeyjum. Má segja
að allt sumarið sé meira og minna
undirlagt af slíkum mannamótum en
maímánuður hefur þó verið hvað
vinsælastur. Síðustu helgina í maí
komu íjórir árgangar saman í Eyjum,
1928, 1946, 1956 og 1976, og
skemmtu flestir sér hið besta.
Friðbjöm sækir um
fjölnotahús
Þótt bæjaryfirvöld væru hlynnt þeirri
fyrirætlan að reisa veitinga- og ráð-
stefnuhús á vatnstankinum í
Löngulág, vora ekki allir jafnhrifnir af
þeirri hugmynd. íbúar í næsta ná-
grenni lýstu sumir hverjir yfir
andstöðu sinni við þær framkvæmdir.
I framhaldi af því skrifaði einn þeirra,
Friðbjöm Valtýsson, skipulagsnefnd
og bæjarstjóm bréf þar sem hann fór
fram á leyfi til að byggja fjallaskála í
Heimakletti, fjölnota og margnota hús
fyrir hvers kyns uppákomur. Frið-
björn sagðist hafa langtímasýn til
þessa máls, m.a. með svifbraut frá
Skansinum upp á Heimaklett. Þá
sagðist Friðbjöm hljóta að álykta sem
svo að hann fengi umbeðið leyfi þar
sem bæjarstjóm væri um þessar
mundir einkar örlát á leyfisveitingar úl
hvers kyns framkvæmda.
Ágreiningur leystur með
bitjámi
Yfirleitt gerir sambýlisfólk upp
ágreiningsmál sín með friðsamlegum
hætti. Þó getur skorist illilega í odda,
sé ágreiningur mikill, svo ekki sé um
talað ef Bakkus er hafður með í
ráðum. Sú mun og hafa verið raunin
einn sunnudagsmorgun í maí þegar
ósætti varð milli sambýlisfólks.
Endaði sú rimma með því að konan
sótti sér hníf og stakk sambýlis-
manninn í handlegg. Sá áverki
reyndist þó ekki alvarlegur og eftir að
gert hafði verið að sárinu mun ágrein-
ingurinn hafa verið til lykta leiddur, að
þessu sinni án notkunar bitvopna.
Júní
Minnkandi áhugi
Sjómannadagurinn var hátíðlegur
haldinn um fyrstu helgina í júní. að
vanda. I raun var þama um þriggja
daga hátíð að ræða, sem hófst á
föstudagskvöld og lauk á sunnudag.
Flest atriði vora með hefðbundnum
hætti en forsvarsmenn sjómanna-
dagsins segja að með hverju ári fækki
þeim sem áhuga hafa á hinum
hefðbundnu atriðum dagsins. Sjó-
mannadagsblaðið kom út í 50. sinn.
ijölbreytt að efni, undir ritstjóm
Friðriks Ásmundssonar.
Fimm ungmenni í stóru
fíkniefnamáli
Aðfaranótt laugardagsins 3. júní
handtók lögreglan fimm ungmenni,
Ijóra karlmenn og eina konu. vegna
grans um fíkniefnamisferli. Við leit í
bíl þeirra og heima hjá einu þeirra
STÚLKURNAR sem komust í sjálfhcldu í Hamrinum ásamt
björgunarmönnum.