Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 28.12.2000, Blaðsíða 18

Fréttir - Eyjafréttir - 28.12.2000, Blaðsíða 18
18 Fréttir Fimmtudagur 28. desember 2000 Helga Tryggvadóttir námsráðgjafi skrifar: Að velja próf í tíunda bekk? Til foreldra og forráðamanna Nemendur velja samræmd próf eftir því hvað þeir ætla að gera í framhaldsskólanum. Allir þurfa að taka samræmd próf í íslensku og stærðfræði, því að á allar brautir eru inntökuskilyrði í þessum tveimur greinum. Þeir sem ætla sér að verða stúdentar þurfa einnig að taka samræmt próf í ensku, og þeir sem ætla á málabraut þurfa dönskuna einnig. Með nýjum aðalnámsskrám frá menntamálaráðuneytinu hafa orðið ýmsar breytingar á skólastarfi. Sumar eingöngu sýnilegar þeim sem vinna og stunda nám í skólunum. Aðrar eru sýnilegri og kalla á þátttöku fleiri aðila en þeirra sem innan veggja skóla starfa. Valfrelsi á samræmdum próf- um í 10. bekk er dæmi um þetta, en þar kemur til kasta foreldra og forráðamanna að styðja við val bama sinna. Þeir nemendur, sem nú eru í 10. bekk grunnskólanna, bera þá ábyrgð að velja um fjögur samræmd próf sem þeir taka næsta vor. Þetta eru próf í íslensku, stærðfræði, dönsku og ensku. En hvernig á að velja? Nú eru eink- unnir í samræmdum prófum í 10. bekk, ásamt skólaeinkunn, orðnar að inntökuskilyrðum í framhaldsskóla. Þetta þýðir að ef nemendur ætla sér að stunda nám í framhaldsskóla þurfa þeir að sýna tiltekinn árangur við lok grunnskóla. Nemendur velja sam- ræmd próf eftir því hvað þeir ætla að gera í framhaldsskólanum. Allir þurfa að taka samræmd próf í íslensku og stærðfræði, því að á allar brautir eru inntökuskilyrði í þessum tveimur greinum. Þeir sem ætla sér að verða stúdentar þurfa einnig að taka sam- ræmt próf í ensku, og þeir sem ætla á málabraut þurfa dönskuna einnig. Meðfylgjandi er tafla yfir viðmiðunar- einkunnir. Nú eru alls ekki allir í 10. bekk búnir að ákveða sig hvað þeir ætla sér að læra í framhaldsskóla. Fyrir þá sem eru þokkalegir námsmenn er í góðu lagi að taka öll prófin, og ef viðunandi árangur næst, eiga þá greiða leið í allt nám í framhaldsskólum. Hafa verður í huga að það að taka samræmt próf er ekki það sama og ná viðmiðunareinkunum. Það verður að ná tilteknum einkunum til að ná inntökuskilyrðum. Að taka ekki próf og ná ekki einkunn kemur því í sama stað niður. Þá komum við að því sem ég hef mikið verið að velta fyrir mér. Af hverju að fara í próf í einhverri grein ef mér hefur alltaf gengið illa í henni? Það er fullt af nemendum sem eru hagir í höndunum en hafa minni áhuga á bókunum og hafa ekki áhuga að vera lengi í skóla en vilja engu að síður mennta sig. Ólíklegt er að þessir nemendur stefni á stúdentspróf (sem gefur réttindi til áframhaldandi náms), en líklegra að þeir fari í starfsnám þar sem inntökuskilyrði eru í íslensku og stærðfræði. Það sem nemendur og forrráðamenn þurfa nú að gera er að velta fyrir sér til hvers á að taka hvert próf. Nú eru ekki allir sammála mér í því að nemendur eigi ekki að taka öll prófin, en það sem ég kynni er einfald- lega það sem stendur í aðalnámsskrá, lögum og reglugerðum. Nemendur þurfa að skila vali sínu fyrir miðjan janúar næstkomandi. Valblöð hafa verið send nemendum í Hamarsskóla og nemendur Bama- skóla fá þau væntanlega fyrir lok ársins. Þeim sem vilja ráðgjöf er bent á að hafa samband við undirritaða eða aðra í skólunum þegar skólastarf hefst aftur íjanúar. Að lokum óska ég öllum gleðilegra jóla og farsældar í komandi prófum. Helga Tryggvadóttir, námsráðgjafi. Inntökuskilyrði/viðminunareinkunnir Braut: 7 Islenska Stærðfræði Danska Enska Félagsfræðibraut 6 5 6 Málabraut 6 5 6 6 N áttúrufræðibraut 6 6 5 Starfsnámsbrautir 5 5 Listnámsbraut 5 5 + listnám í grunn/sérskóla / Sími: 533 1090 Fax: 533 1091 Dugguvogur10 E-mail: avis@avis.is www.avis.is Umboðsmaður Vestmannaeyjum: 4812220 & 8603510 Innifalið í verðum eru tryggingar og skattur Útvegum einnig bíla erlendis AV/S Góður kostur fyrir lands- byggðarfólk Opel Corsa 3ja dyra 1 dagur kr. 950,- kr. 26,- hver km m/vsk Opel Astra 3ja dyra 1 dagur kr. 950,- kr. 30,- hver km m/vsk. Opel Astra station 1 dagur kr. 950,- kr. 34,- hver km m/vsk. AÐALLEIKARARNIR þrír voru að sjálfsögðu mættir á frumsýninguna. Þau Irena Dís, Ingvar Örn og Hjálmar sögðust ánægð með myndina. Öll fengu þau eintak af myndinni á myndbandsspólu og segjast vera búin að horfa oft á hana í vídeóinu heima. Frumsýning á Pysjuþjófnum: Skrýtið að sjá sjálfan sig í kvikmynd segja aðalleikararnir Kvikmyndin Pysjuþjófurinn var frumsýnd í Bíóinu í Vestmannaeyjum á fimmtudaginn fyrir viku. Þessi sýning var fyrir þá sem komu að gerð myndarinnar í Vestmannaeyjum en myndin verður sýnd í sjónvarpinu á nýju ári, auk þess sem hún verður sýnd víðs vegar um Evrópu í barnatímum sjónvarpsstöðva. Sveinn Magnús Sveinsson er leikstjóri og höfundur handrits og sagðist hann vera þokkalega ánægður með útkomuna en myndin er um 15 mínútna löng. En hvað segja aðalleikaramir um myndina? Irena Dís Jóhannesdóttir, sem leikur Önnu, er níu ára og hún segir að sér hafi þótt myndin góð og hún væri ánægð með hana. „En það er búið að sleppa mörgu sem var myndað í sumar. Svo fannst mér svolíúð skrýtið að sjá mig vera í bíómynd." En heldur írena Dís að hún eigi eftir að leika í fleiri kvikmyndum? „Eg veit það ekki. En ég væri alveg til í það ef ég yrði beðin, það var svo gaman að þessu.“ Hjálmar Viðarsson er líka níu ára og leikur Braga, bróður Önnu. Hjálmar segir að sér hafi þótt myndin skemmtileg en hafi orðið undrandi á því hve mörgum atriðum var sleppt, myndin hafi verið styttri en hann bjóst við. „En mér fannst rosalega fyndið að sjá mig í bíómynd. Mamma leikur líka í myndinni og hún var líka mjög ánægð með hana.“ Ætlar Hjálmar að halda áfram á leikarabrautinni? „Það væri gaman að reyna það.“ Sjálfur pysjuþjófurinn, Axel, er leikinn af Ingvari Emi Bergssyni en hann er 11 ára. Ingvar Öm segir að sér hafi þótt myndin góð en rétt eins og hin tvö sagðist hann hafa orðið hissa á hvað mikið var klippt burt af atriðum úr henni. „En hún var samt mjög góð og ég er alveg ánægður með mitt hlutverk í henni. Mér fannst samt skrýtið að sjá mig á tjaldinu en bara gaman að því.“ Býst Ingvar Öm við því að leggja leiklistina fyrir sig í framtíðinni? „Það veit ég ekki, það getar samt alveg verið því að það var gaman að taka þátt í þessu. En það hefur ekki verið hringt í mig frá Hollywood ennþá.“ Hópaleikurinn: Pörupiltar í góðum Þá er bara ein umferð eftir í riðla- keppni hópaleiks ÍBV og Frétta. Það vom þeir Pömpiltar, Már Jónsson og Baldvin Kristjánsson, sem náðu flestum réttum um síðustu helgi. Það er greinilegt að þessir uppfræðendur geta kennt mönnum ýmislegt í hinni lærðu list, getraunatippi, en þeir standa vel að vígi í sínum riðli. Rétt er að árétta reglumar núna þegar aðeins ein umferð er eftir. Það gilda allar lOvikumar. Tveir hópar komast áfram úr hverjum riðli og er allt galopið í þeim efnum ennþá. Næst verður keppt í tveimur riðlum, 4 umferðir, og síðan keppa tvö efstu liðin í hvomm riðli í kross í undanúrslitum og loks sigurliðin úr þeim rimmum til úrslita. Ætlunin er að byrja á nýjum málum hópaleik fljótlega og hyggjmst við jaftivel breyta fyrirkomulagi hans og emm opnir fyrir öllum hugmyndum. Að lokum viljum við þakka öllum tippumm fyrir þeirra stuðning við að efla unglingastarf ÍBV og ekki síður þeim Fréttamönnum og Vilberg kökuhúsi fyrir þeirra stuðning. Gleðilegt nýtt ár! A riðill: Doddamir 64, Dumb and Dumber 63, Bahamas Boys 63, F.F. 57 og Austurbæjargengið 56. B riðill: Reynistaður 66, JóJó 65, H.H. 63, Bonnie & Clyde 62 og Húskross 59. C riðill: Pömpiltar 65, Landafjandar 62, Yngvi Rauðhaus 62, Vinir Ottós 62 og R.E. 61. D riðill: Klaki 67, Tveir á toppnum 65, Óléttan 64, Bláa Ladan 64 og Vinstri Bræðingur 60.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.