Fréttir - Eyjafréttir - 28.12.2000, Blaðsíða 19
Fréttir
19
Fimmtudagur 29. desember 2000
Nissandeildin: Breiðablik 18 - IBV 28
Skyldusigur
Á laugardaginn lék meistara-
flokkur karla gegn Breiðabliki á
heimavelli þeirra síðarnefndu. Það
hefur verið hlutskipti þeirra græn-
klæddu að lúta í lægra haldi í
leikjum sínum í vetur og í flestum
þeirra um að ræða nokkuð stór töp.
Það var því ekki hægt að fara fram
á neitt minna en stórsigur þegar
IBV mætti liðinu og stóðust
strákarnir pressuna og sigruðu með
tíu mörkum, 28-18.
Leikurinn var samt sem áður í jafn-
vægi á upphafsmínútunum og ljóst að
leikmenn IBV áttu erfitt að ná upp
réttu stemmningunni gegn lánlausu
Breiðabliksliði. I stöðunni 5-6 tóku
leikmenn IBV þó kipp, skoruðu hvert
markið á fætur öðru og náðu ásætt-
anlegri forystu í leiknum. Staðan í
hálfleik var 7-14, sjö marka munur og
ljóst að IBV hafði sigrað í leiknum en
spumingin bara hversu stór sigurinn
yrði.
I seinni hálfleik jókst munurinn
með liðunum en þó gekk leikmönnum
IBV erfiðlega að kaffæra heimamenn,
sem háðu hetjulega baráttu. Leikur
liðanna var lítið fyrir augað, heima-
menn hnoðuðust áfram á meðan
áhugalausir Eyjamenn skomðu þegar
þeir vildu eða nenntu. Hálfleikurinn
endaði með þriggja marka sigri IBV
og Jokatölur því 28-18.
ÍBV situr því í 7. til 9. sæti deild-
arinnar með tólf stig ásamt Val og IR
en nú skellur á tæplega tveggja mán-
aða hlé á deildinni sökum þáttöku
landsliðsins í heimsmeistarakeppn-
inni.
Erlingur Richardsson sagði í sam-
tali við Fréttir að staða IB V í deildinni
væri ekki nógu góð. „Það sem pirrar
mig helst er það að spilamennskan hjá
okkur hefur verið slök. Það er ekki að
hin liðin séu svona góð heldur höfum
við einfaldlega ekki verið að ná því út
úr okkar leik sem við eigum að geta.
Við getum miklu meira og ljóst að ef
við spilum áfram í sama klassa þá
verður erfitt að komast í úrslita-
keppnina, en deildin er jöfn og það
þarf lítið til þess að við hoppum upp í
efri hlutann. Vamarleikurinn hjá
okkur hefur ekki verið nógu góður.
Við vorum búnir að ná ágætis tökum á
3-2-1 vöminni í lok síðasta keppnis-
tímabils og maður hélt að leikmenn
myndu búa að þeirri reynslu. Við
lögðum mikla áherslu á hraðaupp-
hlaup á undirbúningstímabilinu með
það í huga að spila sterkan vamarleik
og ná hraðaupphlaupum. Síðan hefur
vamarleikurinn verið lélegur í vetur og
við náum þar af leiðandi ekki þeim
hraðaupphlaupum sem við ætluðum
okkur. Það spilar líka inn í að Auri-
mas er mikið meiddur og gæti jafnvel
verið á leiðinni í uppskurð en þegar
hann hefur verið með þá hefur leikur
liðsins verið mun betri,“ sagði Er-
lingur.
Mörk ÍBV: Eymar Kriiger 7/4, Jón
Andri Finnsson 6/1, Guðfinnur
Kristmannsson 5, Mindaugas Andri-
uska 5, Erlingur Richardsson 3,
Svavar Vignisson 1 og Aurimas
Frovolas 1.
Varin skot: Gísli Guðmundsson 13.
Bikarkeppni kvenna: IBV 34 - Fram 25
Vigdís lokaði markinu
IBV mætti Fram í átta liða úrslitum
bikarkeppni kvenna síðastliðinn
fimmtudag en liðin höfðu áður mæst í
deildinni fyrr í vetur og lauk þeiiri
viðureign með stórsigri Fram. í þetta
skiptið snerist taflið hins vegar við og
ÍBV fagnaði níu marka sigri, 34-25 og
tryggði sér þar með sæti í
undanúrslitum bikarkeppninnar.
Leikurinn var mjög hraður og
skemmtilegur fyrir áhorfendur en alls
voru skoruð 34 mörk í fyrri hálfleik.
ÍBV byrjaði leikinn mun betur og
leiddi framan af fyrri hálfleik en um
hann miðjan komust gestimir tveimur
mörkum yfir. Leikmenn IBV brotn-
uðu hins vegar ekki niður við mót-
lætið heldur efldust við það og leiddu
í hálfleik með íjómm mörkum, 19-15.
I seinni hálfleik héldu IBV hins vegar
engin bönd, sérstaklega ekki síðasta
stundafjórðunginn þegar Vigdís Sig-
urðardóttir hreinlega lokaði markinu
og ÍBV fékk hvert hraðaupphlaupið á
fætur öðru og tryggði sér sætan sigur.
Mörk ÍBV: Tamara Mandizch 12/6,
Anita Andreassen 10, Amela Hegic 4,
Ingibjörg Yr Jóhannsdóttir 3, Edda B.
Eggertsdóttir 2, Gunnleyg Berg 2, íris
Sigurðardóttir 1/1.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 23.
Frábær jólasýnins
Jólasýning Fimleikafélagsins Ránar í síðustu viku ber vitni öflugu starfi
félagsins. Krakkarnir léku listir sínar fyrir fullu húsi. Var ekki annað að
sjá en að allir skemnitu sér vel, krakkarnir og áhorfendur sem samanstóð
af mömmum, pöbbum, ömmum og öfum. Fréttir mættu að sjálfsögðu og
gefa myndirnar nokkra hugmynd um hvað þar fór fram.
Flmm Eyjamenn í
æfingahópnum
Alls eru fimm Eyjamenn í tuttugu
manna æfingahópi Þorbjarnar Jens-
sonar landsliðsþjálfara, en íslenska
landsliðið tekur þátt í Heims-
meistarakeppninni sem fram fer í
Frakklandi og hefst keppnin um
miðjan janúarmánuð. Þeir Eyja-
menn, sem em í æfingahópnum, em
þeir Erlingur Richardsson og
Guðfinnur Kristmannsson frá ÍBV,
Sebastian Alexanderson og Gunnar
Berg Viktorsson frá Fram og Birkir
ívar Guðmundsson frá Stjömunni.
Reyndar var Gunnar Berg ekki inni
í myndinni upphaflega en vegna
meiðsla hefur honum verið bætt
við.
Tryggvi til Stabæk
Svo virðist sem Tryggvi Guð-
mundsson sé á leiðinni til norska
úrvalsdeildarliðsins Stabæk en
verðmiðinn á Tryggva er upp á 50
milljónir króna.
Tryggvi hefur undanfarin þrjú ár
verið hjá Tromsö en þangað kom
hann frá ÍBV frítt. Tryggvi hefur
jafnt og þétt náð að bæta Ieik sinn
við komuna til Noregs og á síðasta
tímabili var hann markahæsti leik-
maður liðsins. Reyndar eru enn
lausir endar á máli Tryggva, félögin
hafa komist að samkomulagi, sem
og Tryggvi og Stabæk en enn hefur
Tryggvi ekki náð samkomulagi við
Tromsö en ólíklegt er að félagið
standi í vegi fyrir Tryggva enda á
hann aðeins eitt ár eftir af samningi
sfnum við Tromsö og gæti því farið
frítt frá félaginu eftir næsta tímabil.
Tryggvi hefur reyndar látið hafa
það eftir sér að hann vilji helst spila
á meginlandi Evrópu eða í Englandi
en áhugi liða þar hefur látið standa
ásér.
Heimaleikur gegn
Stjörnunni í
bikarnum
Dregið var í bikarkeppninni í vik-
unni og var kvennalið IBV í
pottinum. Þrjú önnur lið voru í
pottinum en það voru FH. og
Stjarnan. ÍBV fékk heimaleik og
verður leikið gegn Stjörnunni en
leikimir munu fara fram í byrjun
febrúar. Undanfarin fimm ár hefur
ÍBV mætt Stjömunni þrisvar sinn-
um í undanúrslitum, þar af einu
sinni á heimavelli en ávallt hefur
ÍBV lotið í lægra haldi fyrir Garð-
bæingum.
Tap og aftur tap
Unglingaflokkur kvenna lék tvo
leiki um helgina en báðir leikimir
fóru fram í Reykjavík. Á laugar-
daginn var leikið gegn Fjölni og
þrátt fyrir að vera yfir í leikhléi 6-8,
þá töpuðu stelpumar leiknum með
tveimur mörkum, 15-13
Markahæstar hjá ÍBV vom þær
Aníta Ýr (6), íris (3) og Bjamý (2).
Á sunnudaginn var svo leikið gegn
Stjömunni en til að gera langa sögu
stutta þá steinlá ÍBV 17-8 eftir að
staðan í hálfleik var 6-2 en ótrúlegt
er að lið sem er með jafn mörg stig
og IBV sigri liðið jafn auðveldlega.
Markahæstar voru þær Aníta Ýr
(2), Dagný (2) og íris (2).