Fréttir - Eyjafréttir - 23.08.2001, Page 2
2
Fréttir
Fimmtudagurinn 23. ágúst 2001
Málamiðlunarfillaga sjávarúivegsráðaherra:
Bátum í Vestmannaeyjum
fækkar um þrjá til fimm
-verði tillögur um aukinn kvóta handa trillum samþykktur
ÞETTA er enn eitt kjaftshöggið í andlit okkur Vestmannaeyinga þar sem þar sem niokað er frá okkur
fiski yfir á trillurnar. Þetta kemur ofan á að 40% þorskkvótans hafa verið tekin frá okkur síðan
kvótakerfið var sett á og stærsti hlutinn yfir á trillurnar. Við Vestmannaeyingar höfum unnið eftir
afiamarkinu og höfum því verið að fá á baukinn um leið og púkkað er undir trillurnar, segir Sigurjón
Oskarsson.
Kæra vegna
laxeldis
A l'undi bæjarráðs 21. ágúst var
tekið fyrir bréf frá umhverfis-
ráðuneytinu dags. níunda og þrett-
ánda ágúst er varðar stjóm-
sýslukæru Óttars Yngvasonar f.h.
eigenda Haffjarðarár og verndar-
sjóðs villtra laxa vegna útgáfu
starfsleyfis Hollustuverndar ríkisins
fyrir fiskeldisstöð í Klettsvík.
Bæjarráð felur bæjarlögmanni að
veita umhverfisráðuneytinu um-
sögn um málið að svo miklu leyti
sem þörf er á.
190 færslur
Alls voru 190 færslur í dagbók
lögreglu í sl. viku sem eru fleiri
færsluren í vikunni á undan. Helsta
skýringin er fjölgun kæra vegna
vanrækslu á að færa ökutæki til
skoðunar.
Maður lemur mann
sem lamdi konu
Tvær hkamsái'ásir voru kærðar eftir
helgina og áttu þær báðar sér stað á
veitingastaðnum Lundanum.
Þessar árásir tengjast en þarna var
um að ræða árás karlmanns á konu
og mun vinur konunnar hafa ráðist
á karlmanninn og kærðu bæði
konan og karlmaðurinn sem réðst á
hana líkamsárás.
Reiðhjóli stolið
Einn þjófnaður var tilkynntur lög-
reglu og átti hann sér stað þann 21.
ágúst fyrir utan Vinnslustöðina þar
sem reiðhjól var tekið ófrjálsri
hendi. Um er að ræða grænt
Protekk 18 gira hjól.
Tvenn eignaspjöll
óupplýst
Tvenn eignaspjöll voru tilkynnt
lögreglu og áttu þau sér stað á
Skansinum þar sem rúða var brotin
í hurð að salerni. Hin spjöllin áttu
sér stað við Foldahraun 42 þar sem
kveikt var í ruslapoka fyrir utan eina
íbúðina. Ekki urðu miklar
skcmmdir. Ekki er vitað hver var
að verki í þessunt tveimur tilvikum
en lögreglan óskar eftir upp-
lýsingum um hugsanlega gerendur.
Einn tekinn grun-
aður um ölvun við
akstur
Nokkur tjölgun varð á kærum
vegna umferðarlagabrota. Alls
voru 25 kærur vegna vanrækslu á
að færa ökutæki til skoðunar, einn
ökumaður var stöðvaður vegna
gruns um ölvun við akstur, einn var
kærður vegna hraðaksturs, tveir
vegna ólöglegrar lagningar. Þá var
tilkynnt um árekstur þar sem
tjónvaldur fór af vettvangi, hann
kom hins vegar aftur á vettvang og
var málið klárað á staðnum.
Útgerðarmenn í Vestmannaeyjum
eru æfir yfir hugmynduni sjávar-
útvegsráðherra að dusta rykið af
sáttatillögu frá í vor og bæta um
betur. Tillagan gerir ráð fyrir að
krókaaflamarksbátum verði úthlut-
að sérstaklega í upphafi næsta
iiskveiðiárs, sem hefst um næstu
mánaðamót, 1.800 lestum af ýsu,
1.500 lestum af steinbít og 300
lestum af ufsa. Þessu magni verði
skipt milli krókaafiamarksbáta á
grundvelli afiareynslu þeirra á
tímabilinu 1. júní 2000 til 31. maí
2001. Að þeirri úthlutun lokinni
verði aflahlutdeild krókaafia-
marksbáta aukin í samræmi við
þessa breytingu en hlutdcild
annarra aflamarksbáta í þessum
tcgundum lækkuð.
Þetta er ekki allt því ennfremur á að
úthluta krókaaflamarksbátum 200
lestum í ýsu og 600 lestum í steinbíl á
næsta fiskveiðiári á grundvelli afla-
reynslu á tímabilinu 1. júní 2000 til
31. maí 2001. Þessi úthlutun hafi hins
vegar ekki áhrif á aflahlutdeild bát-
anna. Með þessum ráðstöfunum yrðu
afiaheimildir krókabáta á komandi
fiskveiðiári í ýsu auknar úr 2.500
lestum í 4.500 lestir, í steinbít úr 3.400
lestuin í 5.500 lestir og í ufsa úr 1.500
lestum í 1.800 lestir.
Stór hluti af þessum auknu afla-
heimildum rennurtil Vestfirðinga og
mikill hluti kemur frá Vestmanna-
eyingunt sem em sterkir bæði í ýsu og
ufsa. Kemur þetta lil viðbótar sífellt
stærri hlut í þorskaflaúthlutun hvers
árs.
Enn eitt kjaftshöggið
Sigurjón Óskarsson, útgerðarmaður á
frystitogaranum Þórunni Sveinsdóttur
VE, er ómyrkur í máli þegar hugmynd
Árna Matthiesen er borin undir hann.
„Þetta er skelfilegt," segir Siguijón,
sem hefur yftr að ráða 1,5%
ýsukvótans. „Þetta er enn eitt kjafts-
höggið í andlit okkur Vestmanna-
eyinga þar sem þar sem mokað er frá
okkur fiski yfir á trillurnar. Þetta
kemur ofan á að 40% þorskkvótans
hafa verið tekin frá okkur síðan
kvótakerfið var sett á og stærsti
hlutinn yfir á trillurnar. Við Vesl-
mannaeyingar höfum unnið eftir
afiamarkinu og höfurn því verið að fá
á baukinn um leið og púkkað er undir
trillurnar. Menn skyldu því ekki vera
hissa á að hér séu menn að fiytja út í
gámum til að fá sem hæst verð fyrir
fiskinn. Mitt mat er það að fái
trillukarlarnir það sem ráðherrann er
að bjóða þeint núna fækki bátum í
Vestmanneyjum um þrjá til fimm.“
Sigurjón segir það lán Vest-
mannaeyinga að hafa reynt með öllum
ráðum að halda kvótanum í bænum en
það hafi kostað miklar skuldbindingar.
„Mér dettur ekki annað í hug en að
þeir sem nú láta hæst fari að eins og
stóru útgerðimar, selji frá sér kvótann
og fái íbúana upp á móti sér. Við
höfum reynt að halda í kvótann og
verðum að standa skil á því en það
getur gengið illa þegar við vitum ekki
livar við stöndum."
Sigurjón segist ánægður með að
steinbíturinn skuli settur í kvóta enda
byggist kerfið á því að rnenn fái að
vita sem best hvar þeir standi, nóg sé
hringlið samt en hann segist ekki gera
sér grein fyrir því hvaða áhrif það hafi
í Vestmannaeyjum að skötuselur er
líka kominn í kvóta. „Skötuselurinn
hefur verið meðafii þangað til fyrir
einu eða tveimur árum að nokkrir
bátar byrjuðu að veiða hann í net.
Þeim veiðum er sjálfhætt þegar veiðin
minnkar. Annars fer þetta allt á
Vestlirði því ýsuveiði hefur verið góð
þar undanfarið og það er viðmið-
unartímabilið sem á að notast við en
við sitjum eftir með sárt ennið,“ sagði
Sigurjón að lokum.
Á að drepa einyrkjana
Gísli Valur Einarsson, skipstjóri og
útgerðarmaður á Björgu VE. tekur
mjög í sama streng og hann segir að
tilgangurinn sé sá að drepa niður
einyrkjana í útgerð. „Þetta er gjör-
samlega út í hött," segir Gísli Valur.
„Það er engin hemja að setja kvóta á
einn daginn og taka hann af þann
næsta. Nú á að setja keilu, sem fæst
eingöngu á línu og löngu sem við
erum að fá í trollið. í kvóta og er
viðmiðunin tvö síðustu ár. Um leið
verður til verðmyndun í þessum
tegundum. Eg veit ekki hvað þetta á
að þýða en löngu höfum við ekki séð í
mörg ár fyrr en í vor og sumar að hún
gefur sig til. Það er verið að hindra að
við einyrkjamir getum stundað útgerð.
Hvað ætli mönnum, sem Ijárfestu fyrir
margar milljónir á síðasta ári til að
stunda veiðar á skötusel, finnist um
það að hann er kominn í kvóta? Fyrir
mig þýðir þetta bara það að ég get
hvorki veitt löngu eða skötusel auk
þess sem ég er skorinn niður í ýsu og
þorski. Það er verið að drepa okkur
þessa aumingja sem enn nennum að
standa einir í útgerð," segir Gísli Valur
og fær núverandi sjávarútvegsráðheira
ekki háa einkunn hjá honum.
„Meðan Þorsteinn Pálsson var
sjávarútvegsráðherra skoðaði hann
málin, tók ákvörðun og stóð við hana.
Þessi er aftur á móti að fara fram og
aftur með hlutina. Hann er að berja
mann niður með því að minnka sífellt
kvótann en rökin eru engin. Það er
ekki einu sinni hægt að telja
hreindýrin á Austurlandi hvað þá
fiskinn í sjónum. Það ætti að reyna
250.000 til 300.000 tonna jafn-
stöðuafla í þorski í fimm ár og sjá til
hvemig það gefst. Við höfum engu að
tapa,“ sagði Gísli Valurað lokum.
Ásmundur Friðriksson fiskverkandi
í Aðgerðarþjónustunni Kúttmagakoti
segir að minni ýsa skipti sitt fyrirtæki
ekki miklu. „Við kaupum okkar ýsu á
markaði og þar er enga ýsu að fá.
Isfélagið og Vinnslustöðin eru einu
aðilamir sem verka ýsu hér en ég geri
mér fulla grein fyrir því að
bæjarfélagið er að tapa. Bitnar það
mest á útgerð og sjómönnum," segir
Ásmundur.
Sveinn Rúnar Valgeirsson, skip-
stjóri og útgerðarmaður á Byr VE,
segir að þetta komi ekki svo mikið við
þá. „Engu að síður líst mér illa á þetla
og þetta á eftir að koma illa við okkur í
Vestmannaeyjum sem heild," sagði
Sveinn Rúnar.
Pysjurnar eiga skilið
góða meðferð
Nú er pysjutíminn í algleymingi,
krakkarnir eyða
kvöldstundunum með
pappakassa undir hönd
reiðubúin til að leggja sitt af
niörkum til b jargar ungunum.
En pysjurnar eru vandmeðfarnar
og til að mynda er ekki ráðlagt að
setja of margar pysjur sanian í
einn kassa, helst ekki lleiri en
þrjár til fjórar í stóran kassa.
Einnig væri sniðugt að hólfa
kassann niður, þannig nýttist
hann jafnvel betur og pysjurnar
fengju sitt pláss. Eins er brýnt að
minnast á að ef mikið er verið að
leika sér með þær þá getur það
orðið til að pysjurnar eiga sér
engan möguleika til lífs, ef fjaðrir
á vængjum þeirra eru of tættar
þegar þær leggja í ferðalag sitt út
á sjó blotna vængirnir og þær
hreinlega drukkna. Þess vegna er
brýnt fvrir foreldra og börnin að
hafa í huga núkilvægi þess að
fara vel með pysjurnar.
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Sigursveinn Þórðarson, Guðbjörg
Sigurgeirsdóttir. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísii Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjafrettir.is
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrjft og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppnum, Kránni,
Vöruvai, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn og í Jolla í Hafnarfirði. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að
Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
FRETTIR