Fréttir - Eyjafréttir - 23.01.2003, Page 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 23. janúar 2003
Sigursveinn Þórðarson blaðamaður skrifar:
Mat íþróttafulltrúans
ÍRáðið samþykkti því tæpum mánuði síðar rök
íþróttafulltrúans en þá var löngu búið að afgreiða málið
frá bæjarstjórn. Það hlýtur því að hafa verið
íþróttafulltrúinn sem skrifaði greinargerðina og því hlýtur
innihald þess að vera á hans ábyrgð, enda íþrótta- og
æskulýðsráð ekki formlega búið að samþykkja
greinargerðina.
íróttafulltrúi
bæjarins
segir í grein í
Fréttum sl
fimmtudag
að blaðið
halli réttu
máli í um-
fjöllun um
Hressó. Þar
er hann helst
ósáttur við
að hann er
bendlaður við bréf nokkuð sem hann
sjálfur skrifar undir. Um er að ræða
svar við fyrirspum Guðrúnar Erlings-
dóttir frá 9. desember sl. vegna tilboðs
Líkamsræktarstöðvarinnar ehf. í
rekstur líkamsræktarsalar íþróttamið-
stöðvarinnar. Undirritaður vann frétt-
ina og ákvað að skýra fyrir lesendum
og ekki síst íþróttafulltrúanum hvaða
rök liggja að baki skrifum mínum. I
fyrsta lagi er bréf undirritað af
íþróttafulltrúanum þar sem tilboði
Líkamsræktarstöðvarinnar ehf. er lýst
oftar en einu sinni sem „algjörlega
óraunhæfu.“
Bréf íþróttafulltrúans er svo tekið
fyrirá fundi bæjarstjómar 12. desemb-
er sl. og þá ber að athuga hvað þar
stendur: „Ingi Sigurðsson, bæjarstjóri,
las upp og lagði fram svar frá
Guðmundi Þ.B. Ólafssyni, íþrótta-
fulltrúa, við fyrirspurn Guðrúnar
Erlingsdóttur í málinu." Tilvitnun
lýkur. Takið eftir að þama var verið að
lesa upp svar frá Guðmundi Þ. B.
Ólafssyni. Nokkm síðar, eða 7. janúar
sl. á fundi í íþrótta- og æskulýðsráði
þar sem greinargerð íþróttafulltrúans
var til umræðu segir: „íþrótta- og
æskulýðsráð samþykkir þessi rök,
enda em þau í samræmi við skoðanir
ráðsins eins og þær komu fram á fúndi
þess 5 des.“ Tilvitnun lýkur.
Ráðið samþykkti því tæpum
mánuði síðar rök íþróttafulltrúans en
þá var löngu búið að afgreiða málið
frá bæjarstjóm. Það hlýtur því að hafa
verið íþróttafulltrúinn sem skrifaði
greinargerðina og því hlýtur innihald
þess að vera á hans ábyrgð, enda
íþrótta- og æskulýðsráð ekki fonnlega
búið að samþykkja greinargerðina.
I fundargerð íþrótta- og æskulýðs-
ráðs frá 5. desember, þar sem tilboð
Líkamsræktarstöðvarinnar ehf. er
tekið fyrir, stendur: „Iþrótta- og
æskulýðsráð leggur til að tilboðinu sé
hafnað, enda er það talið algjörlega
óraunhæft.“ Tilvitnun lýkur. Hvergi
er rætt um einstaka þætti tilboðsins
eins og íþróttafulltrúinn gerir seinna í
bréfi sínu. Þess vegna hlýtur það að
hafa verið embættismaðurinn Guð-
mundur Þ.B. Ólafsson íþróttafulltrúi
sem gerir nánari grein íyrir málinu
með sínum útreikningum, t.d. að
tilboðið feli í sér að rekstraraðilinn fái
á ársgrundvelli tekjur sem á þessu ári
verða um 7.098.000 krónur.
Undirritaður situr ekki fundi ráðsins
og veit því aðeins hvað þar fer fram af
fundargerðum. íþrótta- og æskulýðs-
ráð þurfti sérstaklega að samþykkja
greinargerð íþróttafulltrúans þar sem
hún var í samráði við umræður á
fundinum, umræðu og skoðanir sem
hvergi em skráðar. Iþróttafulltrúinn er
vel sjóaður innan bæjargeirans og veit
því að menn þurfa að standa við það
sem þeir skrifa undir. Hann sem
starfsmaður bæjarins í hlutverki
íþróttafulltrúa skrifaði bæði undir
bréfið og síðar fundargerðina þar sem
tilboðið óraunhæfa var tekið fyrir og
því hlýtur að mega ætla að íþróttafull-
trúinn telji tilboðið óraunhæft. Hann
reyndar segir það síðar í greininni að
„ofangreind rök em í samræmi við
skoðun íþróttafulltrúa...“ sem segir
nákvæmlega það sem stóð í upphaf-
legu fréttinni.
Iþróttafulltrúinn gerir einnig
athugasemd við það að bréf hans skuli
ekki hafa verið birt í heild sinni. Það
er auðvitað álitamál en þó oft sé margt
spennandi að gerast á fundum á
vegum bæjarins held ég að Fréttir
myndu verða heldur leiðinlegri af-
lestrar ef fundargerðir bæjarins fylltu
síður þess.
Virðingarfyllst
Sigursveinn Þórðarson, blaðamaður
Kristján Bjanason
skrifar:
Dala-
bændur í
vondum
málum
Þrátt fyrir blátt bann Landgræðslu
ríkisins síðastliðið haust við því að
beita í Helgafelli halda Dalabændur
áfram að sleppa fé sínu lausu í
fjallið.
Landnytjanefnd hafnaði einnig
umsókn um vetrarbeit í fjallinu
fyrir nokkmm ámm. Ekki er nóg
með að Helgafell hafi undanfarinn
aldarfjórðung verið yfirlýst land-
græðslusvæði og á náttúruminja-
skrá heldur hefur Bamaskólinn
tekið allt fjallið í fóstur og lagt
mikla vinnu í að græða þar upp illa
farin svæði.
Þessu er nú stefnt í voða af
misvitrum „bændum" í Dölum
sem, vel að merkja, em einmitt þeir
sem hafa yfir að ráða mestu
beitilandi víðs vegar um eyjuna. Er
nú ekki mál að linni og „bændur"
allir sem einn semji sig að þeim
lögum og reglum sem í landinu
gilda?
Kristján Bjamason
Selma Ragnarsdóttir bæjarfulltrúi skrifar:
Krafturinn í náttúrunni og okkur
Á þessum
tímamótum í
Já, þetta voru harðir karlar og reyndar konur líka, sem
neituðu að gefast upp fyrir þessari miklu ógn, mánuðina
sem gosið stóð. Þessa hugsun, þennan kraft og bjartsýni
eigum við að varðveita í okkar samfélagi og nýta okkur
þessi tímamót sem tækifæri til að grafa okkur upp úr
öskunni sem hefur verið að falla á okkur jafnt og þétt.
sögu og
menningu
okkar Vest-
mannaey-
inga er þarft
að hugsa
jafnt um
framtíð sem
fortíð.
Hvemig
viljum við
sjá samfélagið? Fyrir tæpum 30 ámm
dundu yfir okkur miklar náttúru-
hamfarir og megum við vera þakklát
fyrir að þessi ógn varð engum að
fjörtjóni. Þessi atburður hefur verið
endurvakinn með myndum og við-
tölum við fólk, og sett saman í
magnaða þætti sem Storm og Stöð 2
eru að sýna landsmönnum.
Mér hefur alltaf fundist þessi saga
vera stór hluti af lífi okkar og hef ég
alltaf fundið fyrir nálægð gossins þrátt
fyrir að hafa aðeins verið fimm
mánaða þegar það hófst. Farið var
með mig í rauða vagninum niður á
bryggju frá Búastaðabraut 9 aðfaranótt
23. janúar. Bjuggum við í rúmt ár í
hötuðborginni.
Ótrúlegt er til þess að hugsa að flest
allir höfðu yfirgefið Heimaey nokkr-
um klukkutímum síðar. Margir
Eyjamenn létu þetta ekki aftra sér og
sneru við til að bjarga eignum og
verðmætum.
Af þessu tilefni langar mig að
minnast afa míns, hans Didda á
fluginu. eins og hann var oft kallaður,
en hann féll frá á þessum degi fyrir ári
síðan. Hann var einn þeirra Ijölmörgu
sem fóru aftur til að bjarga eyjunni
okkar. Hann var mikill dugnaðar-
forkur, ósérhlífinn og samviskusamur
maður sem ég sakna mikið. Hann
hefur ávallt gefið mér kraft og
bjartsýni til að takast á við hlutina með
bros á vör og góðvild í garð annarra.
Já, þetta voru harðir karlar og
reyndar konur líka, sem neituðu að
gefast upp fyrir þessari miklu ógn,
mánuðina sem gosið stóð. Þessa
hugsun, þennan kraft og bjartsýni
eigum við að varðveita í okkar sam-
félagi og líta á þessi tímamót sem
tækifæri til að „grafa okkur upp úr
öskunni sem hefur verið að falla á
okkur jafnt og þétt“. Ástæðurnar eru
m.a. breytingar í þjóðfélaginu, kröf-
ur um betri samgöngur og aukin
tæknivæðing sem hjá okkur hefur haft
neikvæð áhrif á atvinnuframboð.
Við verðum að bregðast við ef við
ætlum að ná lestinni áður en hún þýtur
fram hjá, geisandi inn í framtíðina.
Allt of oft hefur verið gripið til
skyndilausna á ýmsum sviðum, svona
rétt til að setja plástur á „meiddið.“ En
betur þarf að undirbúia ef duga skal.
Það sem okkur vantar og við verðum
að huga að, er að hlúa betur að því
fólki sem hér er en ekki að kenna
öðmm um og benda á aðra.
Við verðum að byggja upp og
hvetja fólk til dáða og um leið að
viðurkenna vanmátt okkar á sumum
sviðum og leita þá eftir aðstoð. Þá er
ég ekki endilega að tala um hjálp í
beinhörðum peningum eða laga-
setningum, það virkar ekki einu sinni
við uppeldi bama, heldur að efla þann
gmnn sem við höfum hér og leiðbeina
fólki réttu leiðina með hugmyndir
sínar og hugvit.
Þannig hlúum við að kraíti fólksins
og til verður nýsköpun. Gossagan og
náttúran hér em ónýtt auðlind sem við
verðurn að fara að huga að. Mögu-
leikamir í menningartengdri ferða-
þjónustu em óþrjótandi. Og það er
efni í aðra grein.
Að lokurn, heilræði og uppskrift að
„gos“drykk:
Blöndum okkur góðan orkudrykk
með hæfilegri blöndu af fmmkvæði,
þekkingu, bjartsýni og þolinmæði. Þá
dugir hann okkur öllum 30 ár í viðbót.
Takkjvrir mig, Selnia Ragnarsdóttir,
bajaijiilltrúi ogfonnaður
menningannálanefiidar
Áheit og gjafir til
Landakirkju
Frá og með I. janúar 2002 til og með
31. desember 2002 bámst eftirfarandi
gjafir og áheit til Landakirkju.
NN. kr. 1.000,- Eygló Kristinsd. kr.
5.000,- RS. kr. 3.000,- J.H. kr. 5.000,-
Soffía Harðard. kr. 2.000,- K.E. kr.
2.000,- Þorvarður kr. 10.000,- Ómar
kr. 500,- NN. kr. 3.000,- H.K.O. kr.
2.000,- H.G. kr. 5000,- J.S. kr. 1.000,-
G.B. kr. 3.000,- Rannveig Einarsd. kr.
2.000,- Sigurður Jónsson kr. 5.000,-
Hörður Óskarsson kr. 10.000,- A.R.P.
kr. 2.000,- K.E. kr. 1.000,- Hjördís
Antonsdóttir kr. 5.000,- Í.B.V. kr.
50.000,- H.H. kr. 4.000,- NN. kr.
5.000,- M og I kr. 1.000,- G.í. og
G.M.G.kr. 1.000,-J.I.kr. 5.000,-G.S.
kr. 13.000,- NN. kr. 1.000,- R.S.E. kr.
1.000,- Fjóla Sig. kr. 5.000,- John R.I.
Norrie kr. 10.000,- NN. kr. 20.000,-
G.M. kr. 10.000,- Rannveig kr.
4.000,- NN. kr. 5.000,- S.S. kr. 5.000,-
NN. kr. 5.000,- Guðlaugur Sigur-
geirsson kr. 5.000,- NN. kr. 500,-
Sólveig Adolfsd. kr. 5.000,- Inga og
Hjölli kr. 10.000,- G.J. kr. 5.000,- Ó.S.
kr. 10.000,- G.M. kr. 500,- G.T. kr.
500,- G.KÓ. kr. 5.000,- og þar til
viðbótar var talið úr söfnunarbauk í
lok ársins og reyndust vera kr. 3.289,-
í bauknum.
Þetta er samtals kr. 257.289,00.
Sóknamefnd Landakirkju færir gef-
endum og velunnumm Landakirkju
nær og tjær þakkir og hlýhug í garð
kirkjunnar okkar, og biður þeim Guðs
blessunar.
Sólaiamefiid Landakirkju.
Eric Guðmundsson skrifar:
Þakkir vegna framlaga til
Hjálparstarfs aðventista
Síðastliðið huust sem endranær
veitti Hjálparstarf aðventista
framlögum viðtöku frá almenningi
hér í Vestmannaeyjum til
þróunar- og líknarstarfs og vil ég
fyrir hönd Hjálparstarfsins konia
innilegu þakklæti á framfæri til
allra þeirra sem lögðu þessu starti
lið þetta árið svo og á umliðnum
árum.
Hjálparstarf aðventista á Islandi
starfar með ADRA - alþjóða þró-
unar- og líknarstofnun aðventista
sein veitir neyðar- og
þróunaraðstoð án tillits til
pólitískra skoðana, trúurhragða
eða kynþáttar, hvarvetna þar sem
neyð steðjar að.
Söfnunarféð rennur til verkefna
sem unnin eru í samvinnu við
ADRA í fjölmörgum þriðja heims
löndum svo og á stríðshrjáðum
svæðum heims.
Enn er mögulegt að taka þátt í
söfnuninni með því að leggja inn
framlag á bankareikning
Hjálparstarfs aðventista nr. 0101-
26-130, kt. 410169-2589.
Eg vil aftur þakka Vestmanna-
eyingum fyrir hlýhug og örlæti í
garð Hjálparstarfs aðventista á
liðnum tíma með ósk um blessun
Guðs á nýju ári.
Eric Guðmundsson,
safnaðarprestur