Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Síða 10
10
Fréttir
Miðvikudagur 16. apríl 2003
Góð útkoma Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi skiptir máli:
Styrkir stöðu Eyjanna
-segir Guðjón Hjörleifsson sem skipar þriðja sætið á D-lista
GUÐJÓN: Ég barðist harðast fyrir því að a.m.k. helmingur auðlindagjaldsins rynni heim í hérað. Á þingi mun
ég halda áfram þessari vinnu og þá verður stefnan ekki bara sett á helming heldur að allt auðlindagjaldið verði
notað til að styrkja sjávarbyggðirnar. Það á að eyrnamerkja gjaldið í atvinnuuppbyggingu, en jafnframt er
svigrúm ef erfiðleikar verða hjá útgerðinni að lækka önnur gjöld tímabunið, t.d. allagjald.
Settist þú í kjömefndina til að koma
sjálfum þér á framfœrí? „Það var
engin launung á því að þegar ég ákvað
að hætta sem bæjarstjóri og réð mig til
Sjóvá-Almennrra var ég ákveðinn í að
minnka við mig í pólitíkinni," svarar
Guðjón. „Svo lendi ég í því að til
verður mikill þrýstingur á mig, bæði
hér heima og á fastalandinu, um að ég
gæfi kost á mér til þess að tryggja það
að Eyjamaður væri í einu af efstu
sætunum. Fyrir mér er þetta fyrst og
fremst samfélagsskylda vegna
reynslu minnar sem sveitarstjómar-
maður og bæjarstjóri. í þeim störfum
vann maður með þingmönnum kjör-
dæmisins, m.a. Áma Johnsen í þeim
eilífa slag að tryggja hagsmuni
byggðarlagsins á Alþingi. I kosning-
unum í næsta mánuði er ég eini
búsetti Eyjamaðurinn í baráttusæti
fyrir þessar kosningar. Ég held ég
halli ekki á neinn þegar ég segi að
enginn frambjóðandi í kjördæminu
þekkir betur hættur og möguleika sem
snúa að Eyjum og sambærilegum
sveitarfélögum á landsbyggðinni."
Með hreina samvisku
Var þetta ekki óeðlilegt þar sem þú
sast sjálfur í uppstillinganiefitdiimi?
„Þegar nefndin tók til starfa var
fyrst gengið frá efsta sætinu en um
leið og það kom til greina að ég færi
fram hætti ég strax í nefndinni. For-
maður nefndarinnar, Ellert Eríksson,
gerði grein fyrir þessu á kjör-
dæmaþinginu þegar listinn var
kynntur. Og það voru fleiri í nefndinni
sem komu til greina. Eg tel mig því
hafa hreina samvisku og það er af og
frá að ég hafi sóst eftir sæti í nefndinni
til að koma sjálfum mér á framfæri.“
Úr bœjarstjórastólnum Jylgdu þér
nokkur erfið mál, Hallarmálið,
Hressómálið og síðast en ekki síst
Þróunaifélagið þar sem þú varst
stjómarfonnaður.
„Það er búið að róta upp miklum aur í
kringum mig síðasta árið, einkum eftir
að ég ákvað að gefa kost á mér til
Alþingis. Og það er athyglisvert hvað
sumir íjölmiðlar eru tilbúnir að taka
upp fréttir athugasemdalítið eða
athugasemdalaust. Eg verð var við það
á ferðum mínum um kjördæmið að
fólk á erfitt með að gera sér grein fyrir
því hvað er um að vera hér úti í
Eyjum. Bæði er það að fólk spyr mig
um hvað sé hér að gerast og eins fæ ég
fyrirspumir á fundum. Fólk er almennt
hissa á að oddviti minnihluta í
bæjarstjóm og alþingismaður skuli
með þessum hætti snúast gegn eigin
byggðarlagi. Þessi maður er að hóta
kæmm til hægri og vinstri og er með
því að dylgja og gefa í skyn að hér sé
eitthvað glæpsamlegt á ferðinni. En
engin kæra hefur ennþá litið dagsins
Ijós. Auðvitað hefur maður tekið þetta
nærri sér en verst er að fjölmiðla-
umræðan hefur stjómast af pólitískum
loddaraskap sem hefur eyðlagt
Þróunarfélagið. Hin málin sem þú
nefndir em í ákveðnum farvegi,
niðurstaða og sátt er að nást í
Hallarmálinu gagnvart jseim aðlium er
fjalla um þetta mál og Hressómálið er
hjá Samskeppnisstofnun. En öll erfið
mál hafa af mínum andstæðingum
verið eymarmerkt mér sérstaklega,
jafnvel þó að ég hafi lítið komið þar
að, en ég læt þetta ekki stoppa mig í
vinnu minni fyrir kjördæmið."
Kjördæmaþingmaður
Er mikill munur á bœjarpólitíkinni og
landsmálapólitíkinni? „Hvað snýr að
mér persónulega er hún langmest
gagnvart fjöskyldunni. Þótt ég hafi
ekki verið með mikla viðvem heima
sem bæjarstjóri er Ijóst að nú þarf
maður að reka tvö heimili og allt
annað. Ég held að ég verði þessi
dæmigerði kjördæmaþingmaður á
þeytingi um kjördæmið sem er mjög
stórt eins og flestir vita. Þetta byggi ég
á veganesti mínu sem sveitar-
stjómarmaður og þannig vil ég og tel
rétt að þingmenn vinni, og verði í sem
mestum tegnslum við sitt fólk. Ég hef
sem bæjarstjóri þurft að ferðast mikið
þannig að þetta leggst vel í mig enda á
þetta mjög vel við mig.“
Fiskifræðin og verndunin
hafa brugðist
Stóra málið er að sjálfsögðu sjávar-
útvegurinn. Hvar œtlar þú að marka
þér bás íþvíargaþrasi? „Ég hef mjög
ákveðnar skoðanir á sjávarútvegi og
mér sýnist að það séu fiskifræðin og
vemdunin sem hafa bmgðist. Menn
tóku þátt í skerðingunni á meðan verið
að byggja upp fiskistofnana en aukn-
ingin hefur ekki skilað sér. Þetta hefur
orðið til þess að einyrkjum hefur
fækkað.
Ég átti sæti í auðlindanefnd Al-
þingis, var eini sveitarstjómar-
maðurinn í nefndinni. Þar var staðfest
enn betur að fiskimiðin em sameign
þjóðarinnar, en aðilar hefðu skapað sér
ákveðinn veiðirétt. Til þess að reyna
að ná sáttum í þessu máli þá komu
tvær tillögur frá nefndinni, annars
vegar að leggja á hóflegt auðlinda-
gjald og hins vegar var það fym-
ingarleiðin. Ég barðist harðast fyrir því
að a.m.k. helmingur auðlindagjaldsins
rynni heim í hérað. Á þingi mun ég
halda áfram þessari vinnu og þá
verður stefnan ekki bara sett á helming
heldur að allt auðlindagjaldið verði
notað til að styrkja sjávarbyggðimar.
Það á að eymamerkja gjaldið í at-
vinnuuppbyggingu, en jafnframt er
svigrúm ef erfiðleikar verða hjá
útgerðinni að lækka önnur gjöld
tímabunið, t.d. aflagjald.
Gagnvart atvinnuuppbyggingu
skapast meira svigrúm sem er miklu
meira heldur en Byggðastofnun hefur
í dag. Auðlindagjaldið varð ofan á en
hefði fymingarleiðin verið farin eins
og Samfylkingin vill getum slökkt
ljósin í bænum og sett slagbrand við
Heimaklett. Þá var ég á móti kvóta á
skötusel, löngu og keilu og kolmunna.
Sem betur fer em nú allar líkur á 30
þúsund tonna aukningu í þorskkvóta
strax næsta haust, en togararallið og
mælingar styðja eindregið þessa
Guðjón Hjörleifsson,
fyrrum bæjarstjóri og
bæjarfulltrúi Sjólfstæð-
isflokkins í Vetmanna-
eyjum er nú kominn í
alvöru slag í pólitíkinni
því hann skipar þriðja
sæti ó lista flokksins í nýju
Suðurkjördæmi. Sjólfur
sat Guðjón í uppstill-
ingarnefnd flokksins og
það var gagnrýnt þegar
hann ókvað að sló til og
fara fram. Guðjón segist
vera með hreina sam-
visku, hann hafi ein-
faldlega lótið undan
þrýstingi í Eyjum og ó
fastalandinu að gefa kost
ó sér ó listann. Um leið
og ókvörðun var tekin
sagði hann af sér í upp-
stillinganefnd og segist
engin óhrif haft ó störf
nefndarinnar eftir það,
en þó var einungis búið
að skipa í fyrsta sætið.
Þegar Guðjón ókvað
að hætta sem bæjarstjóri
fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingarnar ó síðasta óri
upphófst mikið moldviðri
í kringum hann, fyrst
voru það sex mónaða
biðlaun sem hann fékk
greidd við starfslok eftir
tólf óra starf semm
bæjarstjóri, næst voru
það Hallarmólið og
Hressómólið. Síðast en
ekki síst Þróunarfélag
Vestmannaeyja sem
Guðjón segir að hafi
verið fórnað til að styrkja
V-listann og um leið
Samfylkinguna í Eyjum.